Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skemmdarverk á TVG lestunum í Frakklandi Þær fregnir berast nú frá Frakklandi að fjöldi skemmdarverka hafi verið unnin á TGV hraðlestarkerfinu þar í landi, en tekist hefur að halda þessu kerfi gangandi í verkfallinu. 21.11.2007 08:28
Trúnaðarupplýsingar um helming Breta hurfu í pósti Fjármálaráðherra Bretlands sætir nú mikilli gagnrýni eftir að hann upplýsti að tölvudiskar með trúnaðarupplýsingum um 25 milljón Breta hurfu í pósti fyrir þremur vikur síðan. 21.11.2007 06:44
Pirraðir og þreyttir á verkföllum Athafnalíf í Frakklandi var lamað í dag vegna verkfalla tug þúsunda opinberra starfsmanna. Almenningssamgöngur hafa verið skertar til muna síðustu vikuna. Sjúkrahús veita lágmarks umönnun og skólar eru lokaðir. Íslendingur sem býr í París segir borgarbúa þreytta og pirraða á ástandinu. Ástæða þessara umfangsmiklu aðgerða og mótmæla í dag eru áform Nicolas Sarkozys, Frakklandsforseta, að skerða lífeyrisrétt opinberra starfsmanna og fækka þeim um rúmlega 20 þúsund með því að ráða ekki í þær stöður sem losna. Almenningssamgöngur hafa að mestu legið niðri í viku. Nú bætast heilbrigðisstarfsmenn, kennarar, flugumferðastjórar og aðrir opinberir starfsmenn í hópinn - en þó aðeins í einn sólahring að öllu óbreyttu. Ari Allansson, kvikmyndagerðarmaður býr í París. Hann segir verkfall starfmanna almenningssamgöngufyrirtækja hafa haft tilfinnanleg áhrif. Það hafi tekið óratíma að komast milli staða með lestum og strætisvögnum sem þó hafi gengið síðustu daga. Sjálfur noti hann litla skellinöðru til að komast milli staða og því laus við þann vanda. Það sem valdi honum hins vegar vandræðum sé það að umferðin sé mun þyngri á vegum nú en áður þegar almenningssamgöngur séu ótruflaðar. Verkfall flugumferðastjóra hefur raskað flugumferð til og frá flugvöllunum tveimur í París og á flugvellinum í Marseilles. Ari segir vin sinn hafa verið á leið til Spánar og millilent í París í gær. Hann hafi ekki komist milli flugvalla vegna verkfallsins og misst af tengiflugi á hinum flugvellinum. Kannanir benda til þess að Sarkozy njóti stuðnings meirihluta Frakka en það gæti breyst. Ari segir flesta Parísarbúa og aðra Frakka miklu fremur pirraða og þreytta á ástandinu en að þeir taki afstöðu í deilunni. Það kunni þó að breytast dragist verkföll á langinn og ljóst verði að það þurfi að grípa til aðgerða. 20.11.2007 18:45
Portúgalska lögreglan leitar í kirkjugarði Portúgalska lögreglan hefur leitað í kirkjunni sem McCann hjónin sóttu til að biðja fyrir að Madeleine kæmi aftur eftir að hún hvarf í Portúgal. Lögreglan leitaði einnig í kirkjugarðinum og yfirheyrði prestinn sem McCann hjónin leituðu til eftir að dóttir þeirra hvarf. 20.11.2007 16:47
Verkfallið kostar Frakka 36 milljarða á dag Verkfall opinberra starfsmanna í Frakklandi kostar Frakka allt að 36 milljörðum íslenskra króna á dag. Þetta sagði Christine Legarde fjármálaráðherra í dag. Verkfallið hefur lamað líf almennings í landinu og margir segja minnihluta Frakka halda landinu í gíslingu. 20.11.2007 16:20
Íraskur fréttamaður AP talinn njósnari Bandaríski herinn vill að gefin verði út ákæra á hendur íröskum ljósmyndara AP fréttastofunnar í Írak. Maðurinn var tekinn höndum árið 2006 vegna gruns um aðstoð við íraska uppreisnarmenn. 20.11.2007 15:24
Háloftaræninginn handsamaður Kínverskur þjófur sem gerði það að iðju sinni að ræna flugfarþega í miðju flugi hefur verið handtekinn. Li Mingwan keypti ódýra flugmiða og flaug til ríkra borga eða svæða til að ræna grunlausa farþega. Lögreglan segir að hann hafi stolið um þremur milljónum íslenskra króna um borð í flugvélum. 20.11.2007 13:10
Fyrsti Kmerinn fyrir dóm Fyrstu réttarhöldin yfir leiðtoga Rauðu Kmerana í Kambódíu hófust í morgun. Þá mætti yfirmaður alræmdustu dýflyssu landsins fyrir sérskipaðan dómstól Sameinuðu þjóðanna til að svara til saka fyrir voðaverk á tímum ógnarstjórnar Kmeranna. 20.11.2007 12:45
Skilur ekki af hverju börnin voru skilin eftir Móðir Kate McCann segir að hún skilji ekki af hverju hjónin hafi skilið börnin eftir í sumarleyfisíbúðinni á meðan þau fóru í kvöldverð með vinum sínum. Susan Healy kom fram í fréttaskýringaþætti BBC, Panorama, í gærkvöldi. 20.11.2007 12:19
Daglegt líf lamað í Frakklandi vegna verkfalla Daglegt líf í Frakklandi er lamað. Mörg þúsund opinberir starfsmenn lögðu niður vinnu í morgun. Skólar eru lokaðir, sjúkrahús veita aðeins lágmarksþjónustu, almenningssamgöngur eru í lamaslessi og flugumferð hefur raskast. 20.11.2007 11:57
Þúsundir frelsaðar í Pakistan Pakistanska ríkisstjórnin segist hafa leyst um 3.400 stjórnarandstæðinga úr haldi. Fólkið var hneppt í varðhald eftir að neyðarlög voru sett í landinu 3. nóvember síðastliðinn. Lausn stjórnarandstæðinga hefur verið lykilkrafa stjórnarandstöðuflokka sem hóta að sniðganga þingkosningarnar í janúar. Fjöldi leiðtoga stjórnarandstæðinga er enn í haldi í landinu. . 20.11.2007 11:45
Tala látinna námumanna í Úkraínu hækkar Nú er staðfest að 88 manns létust í versta námuslysi í Úkraínu á sunnudag þegar sprenging varð um einn kílómeter neðanjarðar. Enn er 12 námuverkamanna saknað í Zasyadko kolanámunni í austurhluta Donetsk héraðs. 20.11.2007 11:28
Skóla í Þýskalandi lokað vegna ótta við skotárás Skóla í bænum Kaarst nærri Düsseldorf í Þýskalandi var lokað í dag vegna ótta við skotárás 20.11.2007 10:14
Færri smitaðir af HIV en áður var talið Sameinuðu þjóðirnar hafa endurskoðað tölur sínar um það hversu margir eru smitaðir af HIV-veirunni í heiminum. 20.11.2007 09:38
Fjöldaverkföll í Frakklandi í dag Mikill fjöldi opinberra starfsmanna í Frakklandi mun fara í verkfall í dag og má búast við truflunum víða í landinu af þessum sökum. 20.11.2007 07:24
Málaliðar handteknir í Írak Íraskar öryggissveitir handtóku í dag 43 einstaklinga vegna skotbardaga í Bagdad þar sem kona særðist. Hinir handteknu eru starfsmenn öryggisfyrirtækis sem starfar í borginni. Tveir þeirra eru Bandaríkjamenn og flestir hinna útlendingar eftir því sem fréttastofa Reuters greinir frá. Handtökurnar eru sagðar til merkis um að málaliðarnir sem starfa í landinu séu ekki yfir lögin hafnir en mál Blackwater fyrirtækisins hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. 19.11.2007 19:53
Annað andlát eftir rafbyssunotkun Lögreglan í Bandaríkjunum rannsakar dauða karlmanns sem lést þegar lögreglumaður skaut hann með rafbyssu í gærmorgun. Lögregla var að stilla til friðar þar sem komið hafði til slagsmála. Íslenska lögreglan íhugar að taka slíkar byssur í notkun. 19.11.2007 19:01
Gift í 60 ár Elísabet önnur Englandsdrottning og Filipus prins, eiginmaður hennar, fögnuðu 60 ára brúðkaupsafmæli í dag. Hjónin fögnuðu demantsbrúðkaupinu ásamt 2.000 gestum á sama stað og þau gengu í það heila 1947 - í Westminster Abbey. 19.11.2007 18:50
Morð skipulögð í Köln og Björgvin Lögreglan í Þýskalandi telur sig hafa komið í veg fyrir fjöldamorð í menntaskóla í Köln. Ódæðin átti að fremja á morgun. Annar hinna grunuðu svipti sig lífi eftir yfirheyrslur. Lögregla í Björgvin í Noregi handtók síðan ungan mann í dag, sem sett hafði áform um fjöldamorð þar á Internetið. 19.11.2007 18:30
Íbúar Kosovo varaðir við sjálfstæði Utanríkisráðherrar nokkurra Evrópusambandsríkja hafa hvatt Kosovo-Albana til að lýsa ekki yfir einhliða sjálfstæði eftir kosningar á laugardaginn. Sjálfstæði án stuðnings alþjóðasamfélagsins gæti einangrað héraðið að mati þeirra. 19.11.2007 16:25
YouTube hótun á skóla í Noregi Einn er í haldi lögreglunnar í Noregi eftir hótanir á YouTube gegn framhaldsskóla nálægt Bergen. Hinn grunaði var handtekinn eftir að hótanir gegn Erdal Skólanum á Askøy eyju voru birtar á vefnum. Odd Dale lögreglustjóri sagði að fylgst hefði verið með manninum frá því í gær en hann hefur ekki verið nafngreindur. 19.11.2007 15:42
Ísraelar frelsa 450 Palestínumenn Ríkisstjórn Ísraels hefur samþykkt að leysa 450 palestínska fanga úr haldi eftir viðræður á milli leiðtoga landanna. Ehud Olmert forsætisráðherra tilkynnti þetta í dag. Í næstu viku hittast leiðtogar landanna tveggja auk annarra leiðtoga á svæðinu á friðarráðstefnu Miðausturlanda í Bandaríkjunum. 19.11.2007 14:42
Sextán ára fangelsi fyrir að smygla 13 tonnum af hassi Fertugur karlmaður var í dag dæmdur í 16 ára fangelsi í Kaupmannahöfn fyrir að reyna smygla 13 tonnum af hassi til Danmerkur. 19.11.2007 13:46
Fyrsta stórmyndin á ís Fyrsta Hollywood stórmyndin hefur verið sett á ís vegna verkfalls handritshöfunda. Tökum á framhaldinu af Da Vinci lyklinum hefur verið frestað. 19.11.2007 12:19
Komið í veg fyrir fjöldamorð í Köln Þýska lögreglan kom í veg fyrir fjöldamorð í menntaskóla í Köln. Ódæðin átti að fremja á morgun. Tveir námsmenn voru yfirheyrðir vegna málsins. Annar þeirra svipt sig lífi eftir það en hinn er nú í haldi lögreglu. 19.11.2007 12:13
70 námuverkamenn látnir í Úkraínu. Að minnsta kosti 70 námuverkamenn eru látnir eftir sprengingu neðanjarðar og óttast er um líf 30 til viðbótar í Donetsk héraði í Úkraínu. Eldar hindra björgunarstörf við námuna í Zasyadko sem er í austurhluta Donetsk. 19.11.2007 11:54
Dómarar vísa endurkjörsmáli Musharrafs frá Hæstiréttur Pakistan hefur vísað frá fimm af sex efaatriðum um lögmæti endurkjörs Pervez Musharrafs forseta í síðasta mánuði. Rétturinn er nú settur dómurum sem eru vilhallir undir forsetann eftir að hann setti á neyðarlög í landinu. 19.11.2007 11:22
Verðbólgutölum í Zimbabwe seinkar vegna skorts Yfirvöld í Zimbabwe segja að skortur á nauðsynjavörum hafi orðið til þess að verðbólgutölum fyrir októbermánuð seinki. Tölurnar átti að birta í síðustu viku en verðbólga í landinu er nú um 8.000 prósent.Moffat Nyoni forstjóri Hagstofu landsins segir söfnun og útreikning hafa orðið fyrir barðinu á skortinum í landinu. 19.11.2007 10:42
Vitni sá kærustu Murats með Madeleine Leynilögreglumenn sögðu í gærkvöldi að þeir væru 100 prósent vissir um að finna Madeleine McCann á lífi. Þetta sögðu þeir eftir að vitni sagðist hafa séð kærustu Roberts Murat halda á barni sem vafið var inn í teppi. Vitnið sagði að Michaela Walczuch hafi haldið á barninu frá einum bíl inn í annan þar sem karlmaður tók við því aðeins tveimur dögum eftir að Maddie hvarf af hótelherberginu 3. maí síðastliðinn. 19.11.2007 10:07
Færeyjar á lista sem mesta ferðamannaparadísin Færeyjar eru efstar á lista yfir eyjar í heiminum sem vert er að heimsækja. Þetta kemur fram í tímaritinu National Geographic, sem birt hefur lista yfir rúmlega eitt hundrað eyjar í heiminum. 19.11.2007 09:03
Neyðaraðstoð streymir til Bangladesh Neyðaraðstoð streymir nú til Bangladesh í kjölfar náttúruhamfaranna þar fyrir helgina. Stjórnvöld hafa staðfest að yfir 3.000 manns eru látnir en óttast er að þegar upp er staðið verði sú tala nokkuð yfir 10.000 manns. 19.11.2007 08:56
Komið í veg fyrir fjöldamorð í þýskum skóla Þýska lögreglan tilkynnti í gær að henni hefði tekist að koma í veg fyrir fjöldamorð við menntaskóla í borginni Köln. Tveir námsmenn voru handteknir og hefur annar þeirra framið sjálfsmorð 19.11.2007 07:39
100% viss um að Maddie sé á lífi Einkaspæjarar sem foreldrar Maddie McCann hafa ráðið til að leysa ráðgátunum um hvarf hennar eru handvissir um að hún sé á líf og að ekki líði á löngu þar til þeir hafi upp á henni. 18.11.2007 12:58
1.600 týndu lífi hið minnsta Tæplega 1.600 manns hið minnsta fórust þegar fellbylurinn Sadr fór yfir Bangladess í gær og fyrradag. Óttast er að mörg þúsund manns til viðbótar finnist látnir. 17.11.2007 18:45
Útlitið svart Mannkyn mun þjást og þriðjungur dýrategunda jafnvel deyja út verði ekkert gert til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í lokaskýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag. Formaður nefndarinnar segir hana leiðbeina leiðtogum í leit að lausnum. 17.11.2007 18:30
Misheppnuð heimsmetstilraun Aðstandendur hollensk sjónvarpsþáttar fóru ansi nálægt því að setja heimsmet í gærkvöldi. Ætlunin var að fella rúmlega fjórar milljónir dómínókubba í röð. Aðeins tókst af fella rúm 80% þeirra rúmlega fjögurra milljóna sem var raðað. 17.11.2007 13:29
Rústir þar sem áður stóðu hús Fjölmargir íbúar í strandhéruðum Bangladess fengu að snúa heim í morgun eftir að fellibylurinn Sidr gekk yfir landið í gær og fyrradag. Rústir húsa og bambuskofa var það sem beið flestra. Þeir sem áttu steinhús enn standandi skjóta nú skjólshúsi yfir þá sem hafa misst allt sitt. 17.11.2007 13:23
Kosið í Kósóvó Íbúar í Kósóvó-héraði ganga að kjörborðinu í dag og kjósa héraðsþing - þrátt fyrir að enn ríki algjör óvissa um framtíð héraðsins. 17.11.2007 13:18
Áhirf loftslagsbreytinga eru ótvíræð Áhrif loftslagsbreytinga eru ótvíræð og 90% líkur á því að útblástur gróðurhúsalofttegunda af mannvöldum sé helsta orsökin. Þetta er niðurstaðan í lokaskýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna - sem kynnt var í morgun. 17.11.2007 12:24
Látnir í Bangladesh um 2000 Vel yfir 900 lík hafa fundist í Bangladesh eftir að fellibylurinn Sidr reið þar yfir á fimmtudag. Fjölmiðlar í landinu segja að mun fleiri hafi látist og eru líkur leiddar að því að tala látinna sé um 2000. 17.11.2007 11:33
Sá mann með Madeleine litlu Jane Tanner, vinkona McCann hjónanna, sagði frá því í dag að hún hefði séð mann fara á brott með barn frá hótelinu sem hjónin gistu á í Portúgal í sumar. 16.11.2007 18:22
Látnir í Bangladesh líklega yfir 1.100 Fjölmiðlar í Bangladesh segja að minnsta kosti 1.100 manns hafa týnt lífi í fellibylnum sem reið yfir landið í gær. Staðfest tala látinna frá yfirvöldum er komin yfir 600 manns. Enn er rúmlega eitt þúsund sjómanna saknað og 150 bátar hafa ekki skilað sér af Bengalflóa. Raunverulegur fjöldi látinna mun ekki skýrast fyrr en náðst hefur samband við fjölda svæða sem nú eru bæði rafmagns- og símasambandslaus. 16.11.2007 16:39
Vitni segir rafbyssu hafa verið óþarfa Maður sem tók myndir af því þegar kanadíska lögreglan notaði rafbyssur á annan mann,með þeim afleiðingum að hann lést, segir ekki hafa verið þörf á svo harkalegum viðbrögðum. Lögreglan á Íslandi íhugar að taka slíkar byssur í notkun. 16.11.2007 19:19
Undirvagninn vandamálið Toyota í Evrópu hefur fyrirskipað að sölu á Hilux pallbíl fyrirtækisins á 16 tommu dekkjum verði hætt í allri álfunni. Bíllinn valt næstum í elgsprófi. Ritstjóri sænsks bílablaðs sem gerði prófið segir dekkin ekki vandamálið heldur undirvagninn. 16.11.2007 19:10
1.100 manns týnt lífi hið minnsta Að minnsta kosti 1.100 manns týndu lífi þegar fellibylurinn Sidr skall á suðurhluta Bangladess í gær. Mörg þúsund manns er enn saknað. Óttast er að fleiri séu látnir því mörg svæði hafa einangrast. Bjögrunarmenn reyna nú hvað þeir geta til að ferja mat og lyf til eftirlifenda. 16.11.2007 18:30