Erlent

Fjarvistarsönnun kærustu Murats stenst ekki

MYND/AFP
Fjarvistarsönnun Michaelu Walczuch kærustu Robert Murats sem fyrstur var grunaður í Madeleine-málinu reyndist ekki á rökum reist samkvæmt nýjustu upplýsingum. Hún hefur sagst hafa verið á fundi Votta Jehóva þegar Madeleine hvarf en nú segir meðlimur söfnuðarins að svo hafi ekki verið.

Tiofilo Castelo meðlimur í trúarsamtökunum í Algarve sagði breska blaðinu Sun að Michaelu hafi verið vísað úr söfnuðinum á síðasta ári. Ástæðan hafi verið sú að hún hafi brotið reglur Biblíunnar. Annar meðlimur Votta Jehóva segir að Michaela hafi verið tíður gestur á fundum safnaðarins fyrir brottreksturinn en hann hafi ekki séð hana á þessu ári. Castelo hefur ekki verið yfirheyrður af lögreglunni.

Ef þessar upplýsingar eru réttar kollvarpa þær fjarvistarsönnun Michaelu.

Tvö vitni segjast hafa séð Michaelu með Madeleine. Portúgalskur vörubílsstjóri segist hafa séð konu sem líktist henni sem afhenti manni í Silves stúlku tveimur dögum eftir hvarfið. Og spænsk kona telur Michaelu vera konu sem hún sá í Marokkó sama dag og hún sá stúlku sem líktist Maddie.

Vinir Michaelu sögðu í þessari viku að hún hafi verið á fundi Votta Jehóva 3. maí og lögreglan hefur staðfest þær upplýsingar.

Ekki er ljóst hvaða reglur söfnuðarins Michaela hefur brotið, en hún hóf samband við Murat fyrir næstum tveimur árum þegar hún var enn gift Luis Antonio. Strangar reglur Votta Jehóva telja framhjáhald og kynlíf fyrir hjónaband vera synd. Michaela hefur alfarið vísað á bug ásökunum um tengsl hennar við hvarf Madeleine. Hún segir þær algjörlega fáránlegar.

Fyrir helgi kom í ljós að rannsóknir sem gerðar voru á hári úr Kate McCann leiddu í ljós að síðustu átta mánuði hafi engin lyf verið í líkama hennar. Það afsannar þá kenningu að hún hafi verið undir áhrifum lyfja þegar Madeleine hvarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×