Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsætisráðherra Ísraels með krabbamein Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísrael er með krabbamein í blöðruhálskirtli. Hann fullyrðir þó að hann sé nógu hress til að geta setið áfram í embætti. 29.10.2007 10:22
Tyrkneskt skip sökk við suðurströnd Danmerkur Kafarar frá dönsku strandgæslunni hafa í nótt reynt að bjarga tyrkneskum sjómönnum sem fastir eru í skipi sem marar á hvolfi við suðurströnd Danmerkur. 29.10.2007 08:03
Áhrif al-Kaída fara þverrandi í Bagdad Áhrif al-Kaída fara þverrandi í Bagdad en önnur "glæpagengi" eins og æðsti yfirmaður Bandaríkjahers orðar það taka við af samtökunum. Þetta kom fram í viðtali AP fréttastofunnar við hershöfðingjann David Petraeus í dag. 28.10.2007 19:45
Gerald Ford taldi Clinton vera kynlífsfíkil Gerald Ford fyrrum forseti Bandaríkjanna hafði áhyggjur af kvennafari Bill Clintons og taldi að Clinton ætti að skrá sig inn á meðferðarstofnun fyrir kynlífsfíkla. Hann var einnig á þeirri skoðun að Hillary klæddist buxunum í sambandi þeirra en að Bill gæri ekki haldið rennilásnum á sínum lokuðum. 28.10.2007 19:15
Sextán í haldi eftir misheppnað ættleiðingarflug frá Tsjad Níu Frakkar og sjö spænskir flugliðar eru í haldi lögreglu í Tsjad eftir að reyna að fljúga með 103 börn frá Darfúr í Súdan úr landi. Börnin voru öll í flóttamannabúðum í Tsjad. 28.10.2007 18:30
Hótuðu að birta kynlífsmyndir Lögregla í Bretlandi hefur handtekið tvo menn fyrir tilraun til að kúga fé út úr bresku konungsfjölskyldunni. Mennirnir kröfðust fimmtíu þúsund punda fyrir að birta ekki kynlífsmyndband með meðlimi konungsfjölskyldunnar. 28.10.2007 18:15
Tyrkir felldu 20 kúrda Tyrkneski herinn felldi tuttugu skæruliða kúrda í umfangsmiklum hernaðaraðgerðum í austanverðu landinu í dag, langt frá landamærunum við Írak. 28.10.2007 18:07
SAS hættir notkun á Dash-vélum Stjórn SAS flugfélagsins hefur ákveðið að hætta alfarið allri notkun á Dash 8/Q400 vélum í sinni eigu. Þessi ákvörðun var kynnt á fréttamannafundi SAS sem var að ljúka í þessu. 28.10.2007 14:26
Arnold lofar að hafa hendur í hári brennuvarga Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu hefur heitið því að hafa hendur í hári þeirra sem grunaðir eru um að hafa verið valdir að skógareldum þeim sem geysað hafa í ríkinu undanfarna daga. A.m.k. tveir af eldunum hófust með íkveikju og grunur leikur á íkveikju í tveimur tilvikum í viðbót. 28.10.2007 14:17
Talibanar felldir í átökum í Afganistan Áttatíu skæruliðar talibana lágu í valnum eftir sex klukkustunda bardaga í suðurhluta Afganistans, að sögn talsmanns bandaríska hersins í morgun. 28.10.2007 13:15
Þýskir veitingahúsaeigendur mótmæla reykingabanni Veitingahúsaeigendur í Neðra Saxlandi í Þýskalandi mótmæla harðlega reykingabanni sem tók gildi fyrsta október. Þeir stóðu á aðaltorgi gamla bæjarins í Frankfurt í gær og sögðu að reykingabannið hefði haft veruleg áhrif á krár og minni veitingahús. 28.10.2007 13:14
Átök í norðvesturhluta Pakistans Spenna magnast nú í norðvesturhéruðum Pakistans. Þar hafa talibanar verið að hreiðra um sig og láta stöðugt meira til sín taka. 28.10.2007 13:12
Presturinn, ástkona hans og fasteignasalinn Ítalir ræða fátt annað þessa dagana en fréttir frá þorpinu Monterosso þar sem presti staðarins hefur verið vikið úr starfi fyrir að eiga ástkonu í þorpinu. Sjálfur segir presturinn, Don Sante Sguotti, að fasteignasali sem falast hefur eftir landi í eigu kirkjunnar hafi komið af stað orðrómi um að hann ætti barn með ástkonu sinni. 28.10.2007 12:11
Madeleine rænt eftir pöntun Valinn hópur einkaspæjara sem nú leitar að Madeleine McCann telur að ránið á henni hafi verið eftir pöntun. 28.10.2007 10:44
SAS aflýsir grimmt eftir Dash-óhapp Frá því að einni af Dash-vélum SAS flugfélagsins hlekktist á í lendingu á Kastrup-flugvelli í gærdag hefur SAS aflýst 57 flugferðum sínum með Dash8/Q400 vélum . Danska flugmálastjórnin setti flugbann á allar vélar sínar af þessari tegund eftir óhappið en annað hjólastellið gaf sig í lendingu Dash-vélarinnar. 28.10.2007 09:42
Mexíkanar fórust í skógareldunum í Kaliforníu Nú er komið í ljós að ólöglegir innflytjendur frá Mexíkó hafa látist í skógareldunum sem geysað hafa í Kaliforníu. Fjögur skaðbrunnin lík hafa fundist við landamærin að Mexíkó sem talin eru af innflytjendum. Nú er vitað að a.m.k. 14 manns hafa farist í þessum eldsvorðum. 27.10.2007 20:15
Bhutto heimsækir heimasveitina Benazir Bhutto lét líflátshótanir ekki aftra sér frá því að heimsækja gröf föður síns í heimasveit sinni í Pakistan í dag. Um fjögur þúsund stuðningsmenn Benazir Bhutto tóku á móti henni við komuna til Sindh, þar sem hennar pólitíska bakland er. 27.10.2007 18:55
Dash átta vél hlekkist á - enn einu sinni Enn einni Dash átta flugvélinni hlekktist á í dag, í þetta sinn SAS flugvél sem var að lenda á Kaupmannahafnarflugvelli. Hjólabúnaður vélarinnar gaf sig þegar hún lenti á flugbrautinni, með 44 farþega innanborðs. 27.10.2007 18:51
Höfuðpaurinn í árásinni á USS Cole látinn laus Stjórnvöld í Jemen hafa leyst úr haldi Jamal al-Badawi höfuðpaurinn í hryðjuverkaárásinni á bandaríska herskipið USS Cole. Jamal hefur setið í fangelsi síðan 2003 en hefur tvisvar náð að flýja úr vistinni, síðast í fyrra. 27.10.2007 18:15
Undirbúnir fyrir árás uppvakninga Lögreglustjórinn í bænum Lansing í Michigan, Bruce Ferguson, segir að hann og menn sínir séu vel undirbúnir ef uppvakningar (zombies) gera árás á bæinn. Hefur hann m.a. fyllt lögreglustöð sína af vélsögum vegna þessa. 27.10.2007 13:51
Viðræður Íraka og Tyrkja fara út um þúfur Viðræður milli stjórnvalda í Írak og Tyrklandi um leiðir til að koma í veg fyrir árásir kúrdískra skæruliða hafa farið út um þúfur. Tyrkneskar herflugvélar sjást nú á stöðugum eftirlitsferðum um landamærin við Írak. 27.10.2007 13:19
Bhutto fagnað við komu í heimaþorp sitt Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans heimsótti heimaþorp sitt í dag, í fyrsta sinn eftir komuna til Pakistans. Um fjögur þúsund stuðningsmenn hennar tóku á móti henni. 27.10.2007 13:16
Litvinenko var breskur njósnari Breska blaðið Daily Mail greinir frá því að Rússinn Alexander Litvinenko hafi verið breskur njósnari og þegið 2.000 pund í laun á mánuði frá MI6. Litvinenko var myrtur í London í fyrra með geislavirka efninu polonium 210 og er talið að fyrrverandi meðlimir rússnesku öryggisþjónustunnar hafi verið þar að verki. 27.10.2007 13:08
Mynd Elton John er ekki klám Ríkissaksóknari Bretlands hefur komist að þeirri niðurstöðu að mynd af tveimur nöktum stúlkum í eigu Sir Elton John sé ekki klám. Myndin sem tekin var af bandaríska ljósmyndaranum Nan Goldin var gerð upptæk á sýningu í listamiðstöðinni í Gateshead í síðasta mánuði. 27.10.2007 12:07
Mistök að aðskilja ríki og kirkju, segir Person Göran Person fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar segir að það hafi verið söguleg mistök að skilja að ríki og kirkju í Svíþjóð eins og gert var árið 2000. Þetta kemur fram í ævisögu Person "Min vej, mine valg", sem kom út nú fyrir helgina. 27.10.2007 11:03
Er þetta ræningi Maddie? McCann fjölskyldan hefur sent frá sér teikningu listamanns af hugsanlegum mannræningja dóttur þeirra Madeleine. Teikningin er byggð á frásögn Jane Tanner, vini þeirra Jerry og Kate McCann, en hún snæddi kvöldverð með þeim hjónum á þeim tíma sem Madeleine var rænt í Portúgal. 27.10.2007 09:36
Skyndibitaraðþjófar handteknir í Kanada Lögreglan í Toronto í Kanada handtók í dag tvo karlmenn og eina konu fyrir rúmlega 200 innbrot í skyndibitastaði í borginni. Fólkið var búið að stunda iðju sína í langan tíma áður en það náðist fyrir tilviljun. 26.10.2007 20:50
Boða hertari aðgerðir gegn reykingum Stjórnarandstaðan í Danmörku boðar hertari aðgerðir gegn reykingum nái hún að fella ríkisstjórnina í komandi kosningum. Segir hún núverandi reykingalög ekki nógu góð í að vernda fólk fyrir óbeinum reykingum. 26.10.2007 20:22
Vilja banna þýska þjóðernisflokkinn Þýski jafnaðarmannaflokkurinn, SPD, vill láta banna starfsemi þýska þjóðernisflokksins, NPD. Ályktun þessa efnis var samþykkt á flokksþingi þýskra jafnaðarmanna í Hamborg í dag. 26.10.2007 19:46
Grunur um gin- og klaufaveikismit á Kýpur Yfirvöld á Kýpur rannsaka nú hvort búfénaður á búgarði í suðausturhluta eyjarinnar hafi sýkst af gin- og klaufaveiki. Varnarsvæðið hefur verið afmarkað í kringum býlið á meðan vísindamenn rannsaka sýni sem tekin voru úr búfénaðinum. 26.10.2007 19:22
Hryðjuverkamaður dæmdur í ævilangt fangelsi Alsírbúinn Rachid Ramda var í Frakklandi í dag dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir þátt sinn í sprengjuárásunum á neðanjarðarlestarkerfið í París árið 1995. Átta manns létust í árásunum og 200 særðust. 26.10.2007 18:55
Hárlokkur af Che Guevara seldur á 6,5 milljónir Hárlokkur af byltingarmanninum Che Guevara var seldur á uppboði í Bandaríkjunum í dag fyrir um 6,5 milljónir króna. Kaupandinn er sjötugur bóksali í Texas en seljandinn er fyrrum leyniþjónustumaður hjá bandarísku leyniþjónustunni, CIA. 26.10.2007 18:45
Fagna refsiaðgerðum en vilja ekki árás á Íran Hópur útlægra Írana fagnaði í dag auknum refsiaðgerðum sem Bandaríkjastjórn kynnti í gær gagnvart Íran. Á sama tíma ágerast stöðugt vangaveltur um að í Washington sé verið að ráðgera árás á Íran. 26.10.2007 18:32
Vilja banna andlitsslæður í kjörklefa Banna á múslimskum konum að vera með slæðu fyrir andlitið þegar þær ganga inn í kjörklefa í Kanada samkvæmt frumvarpi sem nú liggur fyrir kanadíska þingið. Með þessu á að tryggja að auðvelt verði fyrir starfsmenn kjörstjórnar að bera kennsl á viðkomandi. 26.10.2007 18:31
Íslensk fjölskylda á um sárt að binda eftir eldana Meðal þeirra sem urðu illilega fyrir barðinu á eldunum í Kaliforníu var fjölskylda Maríu Berglindar Jónsdóttur. Dóttir hennar missti húsið sitt og ætlar að flytja til öruggari svæða með manni sínum og þremur börnum. Þau gista nú hjá Maríu. 26.10.2007 18:29
Lofar að láta smyglara gjalda fyrir sinn glæp Idriss Deby, forseti Afríkuríkisins Chad, hét því í dag að Frakkarnir níu sem voru handteknir fyrir að reyna smygla 103 börnum úr landi fengju að gjalda fyrir glæp sinn. Hann sagðist ætla gera allt í sínu valdi til að svo megi verða. 26.10.2007 18:13
Grunsamlegur búnaður finnst í ræðismannabústað Mexíkó í New York Lögreglan í New York í Bandaríkjunum rannsakar nú grunsamlegan búnað sem fannst við bústað ræðismanns Mexíkó þar í borg. Svæðið í kringum bústaðinn hefur verið girt af en óttast er að um sprengju sé að ræða. 26.10.2007 18:00
Slökkviliðsmenn í Kaliforníu náð tökum á skógareldum Slökkviliðsmenn í Kaliforníu fylki í Bandaríkjunum hafa náð yfirhöndinni við skógareldana sem logað hafa þar síðastliðna viku. Reiknað er með því að íbúar svæða sem urðu eldinum að bráð geti snúið aftur um helgina. 26.10.2007 17:25
VVRRRÚÚÚÚÚMMMMMMMM Átján ára strákur á körtu stakk af sjö sérbúna BMW bíla lögreglunnar í þýska bænum Mönchengladbach í dag. 26.10.2007 16:22
Langt yfir skammt? Það er ekkert leyndarmál að það er skortur á vinnuafli á Íslandi. Undanfarin misseri hefur fólk verið sótt til annarra landa þúsundum saman vegna þess. 26.10.2007 15:32
Ætla að kæra Tyrki til Mannréttindadómstólsins Foreldrar 17 ára gamals þýsks pilts íhuga nú að kæra tyrknesk stjórnvöld til Mannréttindadómstólsins í Strassborg. Pilturinn hefur setið í gæsluvarðhaldi í Tyrklandi í 200 daga en hann er sakaður um að hafa átt mök við stúlku undir lögaldri. Í morgun ákvað dómstóll í Istanbúl að framlengja gæsluvarðhaldi yfir piltinum um óákveðinn tíma. 26.10.2007 15:07
Gerðu Ísraelar árás á kjarnorkuver í Sýrlandi? Nýjar gervihnattamyndir sýna að Sýrlendingar hafa jafnað við jörðu byggingu sem hugsanlega var leynilegt kjarnorkuver, sem Ísraelar gerðu loftárás á í síðasta mánuði. 26.10.2007 13:27
Aukinn viðbúnaður í Rangún Vopnaðir lögreglumenn umkringdu klaustur í Rangún höfuðborg Búrma í dag og á götum borgarinnar varð vart við herta öryggisgæslu. Í gær ræddu fulltrúar herforingjastjórnarinnar í Búrma við helsta leiðtoga stjórnarandstöðunnar. 26.10.2007 12:36
Mannkynið mun skiptast í yfir- og undirstétt á næstu hundrað þúsund árum Mannkynið mun í framtíðinni skiptast í tvo hópa: Vel gefna, hávaxna, fagra og sjarmerandi einstaklinga og svo lágstétt stuttra og ljótra heimskingja. Þessu heldur þróunarfræðingurinn Oliver Curry frá London School of Economics fram að gerist á næstu hundrað þúsund árum. 26.10.2007 12:13
LÚS-ER Flatlúsin er í útrýmingarhættu að sögn danska blaðsins Nyhedsavisen. Blaðið segir að danska Náttúruminjasafnið sé nú með allar klær úti til þess að ná sér í eintök af kvikindinu. 26.10.2007 11:31