Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tony Blair skrifar ævisögu Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hyggst skrifa bók um embættistíð sína í Downing Street. Í dag undirritaði hann útgáfusamning við fyrirtækið Random House. 25.10.2007 19:46
Heimilið brann til kaldra kola Íslensk kona sem missti heimilið sitt í skógareldunum í Kaliforníu ætlar sér að flytja alfarið í burtu af svæðinu. Aðeins þrjár klukkstundir liðu frá því hún þurfti að yfirgefa húsið þangað til það var brunnið til kaldra kola. 25.10.2007 19:22
Þrjú til fimm þúsund heimili eldinum að bráð í San Diego Talið er að á milli þrjú til fimm þúsund heimili hafi orðið eldinum að bráð í San Diego borg í Kaliforníu. 25.10.2007 19:12
Vildu smygla yfir eitt hundrað börnum úr landi Lögreglan í Afríkuríkinu Chad handtók í dag hóp Frakka fyrir að reyna að smygla meira en eitt hundrað börnum úr landi. Börnin átti að flytja til Frakklands til ættleiðingar. 25.10.2007 18:54
Pútín vill ekki refsiaðgerðir gegn Íran Pútín Rússlandsforseti sagðist í dag vera mótfallinn frekari refsiaðgerðum gegn Íran. Þetta kom fram í máli Pútíns á blaðamannafundi í Lissabon í Portúgal. 25.10.2007 17:54
Yfir tuttugu láta lífið í sprengjuárás í Pakistan Tuttugu og einn lét lífið í sprengjuárás í norðvesturhluta Pakistan í dag. Svo virðist sem um sjálfsmorðssprengjuárás hafi verið að ræða. 25.10.2007 17:38
Orð Díönu eftir slysið: „Guð minn góður“ Slökkviliðsmaður sem kom á slysstað í Alma göngunum í París strax eftir slysið sem tók líf Díönu prinsessu og Dody Fayed ástmanns hennar bar vitni fyrir dómi í dag. Hann sagði prinsessuna hafa endurtekið í sífellu orðin „Oh my God“. 25.10.2007 17:00
Mattel innkallar fleiri leikföng Leikfangarisinn Mattel hefur innkallað 55 þúsund leikföng vegna þess að málning á þeim inniheldur of mikið blý. Þetta er í fjórða skiptið á síðustu sex mánuðum sem Mattel innkallar leikföng sem fyrirtækið lætur framleiða í Kína. 25.10.2007 16:41
Tyrkir stráfella kúrdiska skæruliða Tyrkneskar hersveitir felldu í dag þrjátíu kúrdiska skæruliða við landamæri Íraks. Tyrkneska herstjórnin segir að minnst sextíu og fjórir kúrdar hafi þá verið felldir síðan á sunnudag. 25.10.2007 14:44
London og Berlín hægustu borgir Evrópu London er hægasta borg Evrópu miðað við umferðarhraða samkvæmt nýlegri rannsókn. Meðalhraði í London mældist rétt 19 kílómetrar á klukkustund. Berlín er í næst neðsta sæti en þar mældist meðalhraðinn 24 kílómetrar á klukkstund. 25.10.2007 14:32
Gorbachev neitaði að fjarlægja valbrána Mikhail Gorbachev fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna upplýsti í danska sjónvarpinu í gærkvöldi að sér hefði aldrei komið til hugar að láta fjarlægja valbrána af höfði sér. 25.10.2007 14:11
Eldar loga á svæði sem er stærra en Reykjanesskaginn Eldarnir í Kaliforníu hafa brunnið á sautján hundruð ferkílómetra svæði sem jafngildir því að eldar loguðu frá tánni á Reykjanesskaga, allan skagann og að þjóðgarðinum á Þingvöllum. 25.10.2007 13:16
Suu Kyi á fund herforingja Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, fór í morgun til fundar við fulltrúa herforingjastjórnarinnar þar. Suu Kyi fór í fylgd fulltrúar stjórnarinnar frá heimili sínu þar sem hún hefur mátt dúsa í stofufangelsi um nokkurra ára skeið. 25.10.2007 13:05
Fyrsta farþegaflug ofurþotu Stærsta farþegaþota í heimi, Airbus A380, lenti í Sydney í Ástralíu í morgun eftir sögulegt flug frá Singapúr. Ekki mátti það seinna vera því framleiðslan hefur tafist um tvö ár og kostað marga starfsmenn Airbus vinnuna. 25.10.2007 12:59
Rosalegt mannfall í Ríó Lögreglan í Rio de Janeiro skaut næstum sjöhundruð manns til bana á fyrstu sex mánuðum þessa árs. 25.10.2007 11:31
Flýta afhendingu orrustuþotna til Ísraels Bandaríkin hafa ákveðið að flýta afhendingu hinna nýju F-35 orrustuþotna til Ísraels um tvö ár til þess að tryggja landinu yfirburði yfir Íranska flugherinn. 25.10.2007 11:03
Kate McCann er sorgmædd og einmana Tár Kate McCann sem féllu í sjónvarpsviðtali eru ekkert miðað við þá sorg sem hún hefur falið fyrir myndavélum. Þetta sagði talsmaður fjölskyldunnar eftir að kate brotnaði saman í viðtali við hana og Gerry á spánskri sjónvarpsstöð í gær. 25.10.2007 10:06
Kínverjar tregir til aðgerða gegn Búrma Erindreki Sameinuðu þjóðanna hefur lokið viðræðum sínum við Kínverja, sem miðuðu að því að fá Kína til að þrýsta á stjórnvöld í Búrma um aukið lýðræði og mannréttindi í landinu. 25.10.2007 08:31
Stærsta farþegaflugvél heims í jómfrúarferð Stærsta farþegaflugvél heimsins Airbus A380, lenti nú fyrir stundu á flugvellinum í Sidney í Ástralíu eftir sjö tíma flug frá Singapore. Þetta var fyrsta áætlunarflug vélarinnar. Það er flugfélagið Singapore Airlines sem fyrst félaga tekur vélina í sína þjónustu. 25.10.2007 08:29
Móðirin fannst látin Breska móðirinn sem hvarf í kjölfar þess að dóttir hennar féll fram af svölum á hóteli í Mæjorka á mánudag er líklegast látin. Búist er við því að spænsk lögregluyfirvöld staðfesti í dag að kona sem fannst látin í helli í gærkvöld sé í raun móðirin. 25.10.2007 08:23
Notuðu Voodoo til að ná valdi á börnum Lögreglan í Hollandi hefur upprætt glæpahring sem grunaður er um að hafa staðið að smygli á börnum frá Nígeríu til Evrópu þar sem þau voru seld í kynlífsþrælkun. 25.10.2007 08:19
Santa Ana vindurinn í rénun Santa Ana vindurinn sem haldið hefur lífi í skógareldunum í Kalíforníu og náði á tímablili styrk fellibyls, er í rénun. Þetta hafa slökkviliðsmenn nýtt sér og hafa í nótt hamast við að skvetta vatni úr flugvélum á stærstu eldana í San Bernardino fjöllunum með góðum árangri. 25.10.2007 08:06
Tíu létu lífið eftir að brotsjór gekk yfir olíuborpall Tíu létu lífið eftir að mikill brotsjór gekk yfir olíuborpall á Mexíkóflóa í dag. Allir starfsmenn borpallsins, 81 að tölu, neyddust til að flýja pallinn og fara í björgunarbáta. Björgunarsveitir hafa náð að bjarga 58 mönnum en yfir tuttugu er enn saknað. 24.10.2007 20:32
Fjórir létu lífið þegar fjölbýlishús sprakk í loft upp Að minnsta kosti fjórir létu lífið þegar fjölbýlishús í borginni Samara í Rússlandi sprakk í loft upp í dag. Önnur hlið hússins gjöreyðilagðist í sprengingunni. 24.10.2007 20:05
Tyrkir gera loftárás á fjallaþorp í Írak Tyrkneskar herþotur vörpuðu í dag sprengjum á kúrdískt fjallaþorp í norðurhluta Íraks. Nokkur mannvirki skemmdust í árásinni en engan sakaði að sögn yfirvalda í Írak. 24.10.2007 19:45
Rasmussen boðar til þingkosninga í Danmörku Þingkosningar verða í Danmörku eftir þrjár vikur - um einu og hálfu ári á undan áætlun. Sitjandi stórn óskar umboðs til að hrinda í framkvæmd breytingum á velferðar- og skattkerfi landsins 24.10.2007 19:22
Bush vill auka lýðræðisþróun á Kúbu Bush Bandaríkjaforseti lagði í dag fram fjölmargar tillögur sem snúa að því að auka lýðræði á Kúbu. Vill forsetinn meðal annars auka stuðning við lýðræðisleg öfl á Kúbu og opna fyrir hvers konar góðgerðarstarfsemi þar í landi. 24.10.2007 19:16
Vilja auka umhverfisvitund Frakka Frestun vegaframkvæmda og lagningu nýrra flugvalla er meðal þess sem lagt er til í skýrslu starfshóps um stefnumótun í frönskum umhverfismálum sem Nicolas Sarkozy, forset Frakklands, skipaði. Þá er ennfremur lagt til að settur verður skattur á þungabifreiðar og að óumhverfisvænir bílar verði merktir sérstaklega. 24.10.2007 18:36
Tékkar ævareiðir út í Bandaríkjamenn Ráðamenn í Tékklandi eru ævareiðir út í bandarísk stjórnvöld eftir að þau veltu upp þeim möguleika að rússneskir hermenn gætu fengið aðstöðu á tékkneskri grund. Málið kom upp í tengslum við umræðuna um uppsetningu ratsjárstöðvar í Tékklandi vegna eldflaugavarnakerfis Bandaríkjamanna. 24.10.2007 17:31
Tveir féllu í átökum í Palestínu Tveir Palestínumenn féllu þegar til átaka kom milli þeirra og ísraelskra hermanna á Gaza svæðinu í morgun. Talsmenn ísraelska hersins segja að mennirnir hafi verið skotnir eftir að þeir skutu þremur flugskeytum í átt að Ísrael. 24.10.2007 17:07
Kínversku könnunargeimfari skotið á loft Kínverjar skutu í morgun á loft geimkönnunarfarinu Change'e 1 en því er ætlað að rannsaka landslag og þykkt jarðefna á tunglinu. Farinu var skotið á loft frá Xichang geimferðarmiðstöðinni í suðvesturhluta Kína. 24.10.2007 16:22
Opna aftur flotastöð við Suðurskautslandið Yfirvöld í Chile í Suður Ameríku hafa ákveðið að taka aftur í notkun flotastöð við Suðurskautslandið en stöðinni var lokað fyrir fimm árum. Vilja Chilebúar með þessu tryggja hagsmuni sína á svæðinu. 24.10.2007 16:06
Danska ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt skoðanakönnunum Ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmekur, heldur velli samkvæmt tveimur skoðanakönnunum sem fjallað er um á vef Berlingske Tidende. 24.10.2007 15:52
Skákborðsraðmorðinginn fundinn sekur Rússneski raðmorðinginn Alexander Pichushkin var fyrir dómi í Moskvu í morgun fundinn sekur um að hafa myrt 48 manns og fyrir þrjár morðtilraunir. Pischushkin ætlaði sér að merkja alla 64 reiitna á skákborði með nöfnum fórnarlamba sinna og hefur hann því fengið viðurnefnið "skákborðs morðinginn" í rússneskum fjölmiðlum. 24.10.2007 15:13
Lögregla í Stuttgart eltist við strokuhumra Lögregla í Stuttgart þurfti að eltast við óvenjulegan hóp strokufanga um helgina þegar hópur humra slapp úr asískri matvöruverslun í borginni. Undandi vegfarandi hafði samband við lögreglu þegar hann sá humrana á rölti niður götuna. Humrarnir sluppu með því að troða sér gegnum glufu á búrinu sínu, og komust út á götu gegnum hálf opnar búðardyrnar. 24.10.2007 13:35
Föngum sleppt til að berjast við eldana Slökkviliðsmenn sem berjast við skógareldana í Suður-Kaliforníu hafa fengið hjálp úr ýmsum áttum, meðal annars hefur föngum verið sleppt úr fangelsum í Kaliforníu, hjálp hefur borist frá Mexíkó auk annarra fylkja Bandaríkjanna. 24.10.2007 11:32
Þingkosningar í Danmörku 13. nóvember Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, boðaði til þingkosninga í landinu þann 13. nóvember í ræðu á danska þinginu fyrir stundu. Sagðist hann þegar hafa greint Margéti Danadrottningu frá því. 24.10.2007 11:17
Hollensku götunafni breytt vegna Viagra Yfirvöld í hollenska bænum Breda hafa ákveðið að breyta nafni nýrrar götu sem átti að heita St. Fiacrius court eftir að fólk fór að kalla götuna Viagra court. 24.10.2007 11:05
Boðað til kosninga á næstu vikum Ráðherrar í ríkisstjórn Danmerkur hafa staðfest við danska fjölmiðla að Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra hyggist boða til þingkosninga á næstu vikum. 24.10.2007 10:40
Geðvonska af svefnleysi sést á heilanum Heilaskimun getur sýnt hvernig heilinn verður þreyttur og yfir-tilfinninganæmur ef manneskja er svipt svefni. Bandarískir vísindamenn héldu sjálfboðaliðum vakandi í 35 klukkustundir og fundu mjög vaxandi viðbrögð heilans þegar fólkinu voru sýndar myndir sem voru ætlaðar til að gera þau reið eða leið. 24.10.2007 10:39
Búist við að Rasmussen boði til kosninga í dag Búist er við því að Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra boði til kosninga í dag. Danskir miðlar hafa þetta eftir heimildamönnum út stjórnarliðinu. 24.10.2007 08:57
Enn leitað að móður stúlkunnar sem féll fram af svölum Leit stendur enn yfir að móður sjö ára gamallar breskrar stúlku sem féll af svölum hótelherbergis á Mæjorka á mánudag. Stúlkan liggur enn stórslösuð á spítala en hún féll um tíu metra niður á steypt þak. 24.10.2007 08:42
Búrma mótmæli í 12 borgum Fjöldasamkomur hafa verið skipulagðar í tólf stórborgum víðs vegar um heiminn í dag til þess að mótmæla herforingjastjórninni í Búrma. 24.10.2007 08:36
Eldri borgarar vopnaðir handsprengjum Danir geyma fleiri tonn af sprengjum og sprengiefnum í kjöllurum sínum og háaloftum. Þetta segir yfirmaður sprengjusveitar Danska hersins. Sprengjurnar eru flestar frá tímum seinna stríðs. 24.10.2007 08:30
Mótmæli í Venesúela Þúsundir námsmanna börðust við óeirðalögreglu í höfuðborg Venesúela, Caracas í gærkvöld. Námsmennirnir voru að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskrá landsins sem gera forsetanum umdeilda Húgó Chaves kleift að bjóða sig endalaust oft fram til endurkjörs. 24.10.2007 08:26