Fleiri fréttir Páfi harmar blóðbaðið í Írak Ekkert jákvætt gerist í Írak og blóðbaðið þar virðast engan enda ætla að taka. Þetta sagði Benedikt páfi sextándi í tilfinningaþrungnu páskaávarpi sínu í morgun. Hann harmaði hversu víða þjáningar er að finna í heiminum. 8.4.2007 12:08 Handtekinn vegna morðs á verðandi móður 8.4.2007 11:48 Engin frí á kristnum hátíðum Leiðtogi hægri manna í Noregi vill afnema frí á páskum og öðrum kristnum helgidögum ef kemur til aðskilnaðar ríkis og kirkju. Rune Aale Hansen segir að þá verði óeðlilegt að hafa sérstaka trúarlega sem aðeins tengist einni trú. Spurningin verði þá hvort Norðmenn fari eins að og Bandaríkjamenn og Frakkar, sem hafa afnumið frí á mörgum helgidögum. 8.4.2007 11:36 Bresku sjóliðarnir fá að selja sögu sína Bresku sjóliðarnir fimmtán sem fangaðir voru af Írönum gætu fengið yfir þrjátíu milljónir króna fyrir að sögu sína hjá fjölmiðlum. Breskir hermenn mega ekki selja sögur sínar, en varnarmálaráðneytið ákvað að gefa undanþágu sökum sérstakra aðstæðna. 8.4.2007 09:51 Vilhjálmur Bretaprins syrgir vinkonu Ung kona, sem lést þegar vegsprengja sprakk í Írak á fimmtudaginn, var náin vinkona Vilhjálms Bretaprins. Konan, sem var tuttugu og fjögurra ára, var meðal bresku hermannanna fjögurra sem létu lífið í árás á eftirlitstöð þeirra í Basra í Írak. 8.4.2007 09:44 Flugvél forsætisráðherra gerð afturræk Íranar neituðu að leyfa flugvél Nuris al-Malikis, forsætisráðherra Íraks, að fljúga um lofthelgi sína, í nótt. Forsætisráðherrann var á leið í opinbera heimsókn til Asíu. Flugvél hans var kominn inn í Íranska lofthelgi þegar flugmaðurinn fékk fyrirmæli um að snúa aftur og fara út úr lofthelginni. 8.4.2007 09:09 Vilja 1300 fanga fyrir ísraelska hermanninn Hamas samtökin hafa lagt fram lista með nöfnum 1300 Palestínumanna sem þeir krefjast að verði látnir lausir í skiptum fyrir ísraelska hermanninn Gilad Shalit, sem var rænt fyrir tíu mánuðum. Talsmaður Hamas segir að listinn hafi verið afhentur Egyptum og að þetta sé skýr vísbending um að hreyfing sé að komast á málið. 8.4.2007 08:59 Malasía hatar Jeremy Clarkson 7.4.2007 20:54 Sérsveit gegn þjófum frá Austur-Evrópu Norska lögreglan er að stofna sérsveit sem hefur það verkefni að uppræta innbrots- og þjófagengi frá Austur-Evrópu. Mikið er um slík gengi í Noregi og Svíþjóð. Sum þeirra koma sér upp höfuðstöðvum á afskekktum stöðum í löndunum tveimur og fara þaðan í ránsleiðangra. 7.4.2007 20:26 Miskunsamir Rússar Rússar gera um páskana lítillega undanþágu á flugbanni sínu á nágrannaríkið Georgíu. Þrem flugvélum er leyft að fljúga á milli Tblisi og Moskvu. Farþegarnir eru Georgíumenn sem fá að heimsækja ættingja sína í Rússlandi. Rússar settu flugbann á Georgíu fyrir sex mánuðum, eftir að þrír Rússar voru handteknir þar í landi, sakaðir um njósnir. 7.4.2007 19:52 Fimmti ferðamaðurinn til að fara út í geiminn Miljarðamæringurinn Charles Simonyi varð í dag fimmti ferðamaðurinn til að fara út í geiminn. Simonay var um borð í rússneskri soyuz geimflaug sem skotið var á loft í Kazakstan. 7.4.2007 18:53 Páskaeggjaleit á hafsbotni Íbúar í Flórída í Bandaríkjunum geta í ár tekið þátt óvenjulegri páskaeggjaleit. Verslun nokkur ákvað að bregða á leik og faldi páskaegg, á tuttugu og fimm metra dýpi, á friðuðu hafsvæðin undan ströndum Flórída. 7.4.2007 17:55 Yfirmenn gríska skemmtiferðaskipsins ákærðir Skipstjóri og fimm yfirmenn gríska skemmtiferðaskipsins sem fórst á gríska Eyjahafinu í fyrradag hafa verið ákærðir fyrir vanrækslu. Tveggja er enn saknað en um sextán hundruð manns voru um borð í skipinu. 7.4.2007 17:50 Karlmenn umburðarlyndir gagnvart brjóstagjöf Yfirgnæfandi meirihluti Dana telur að það sé ekkert athugavert við að mæður gefi börnum sínum brjóst á opinberum stöðum. Enginn er hissa á því, en það sem kannski kemur á óvart er að danskir karlmenn eru nokkuð umburðarlyndari í þessum málum en konur. 7.4.2007 17:43 Kommúnistar átu kanínurnar mínar Þýski kanínuræktandinn Karl Szmolinsky hefur áhyggjur af því að háttsettir embættismenn í Norður-Kóreu hafi étið risakanínurnar sem hann seldi þeim til undaneldis, á síðasta ári. Karl hefur ræktað kanínur í 47 ár og unnið til fjölda verðlauna. Kanínurnar sem hann ræktar eru risastórar og mjög matarmiklar. 7.4.2007 16:29 Hatast við sænsku konungsfjölskylduna Sænska konungsfjölskyldan hefur leitað lögfræðiráðgjafar vegna hatursfullrar heimasíðu sem bandarískur bókstafstrúarsöfnuði hefur haldið úti í tvö ár. Ástæðan fyrir þessu hatri er sú að fyrir tveim árum var sænskur prestur sakfelldur fyrir að espa til haturs gegn samkynhneigðum. Á heimasíðunni er Karl Gústaf meðal annars kallaður konungur kynvilltra hóra. 7.4.2007 16:12 Ungir Danir falla á ríkisborgaraprófi -vilt þú reyna ? Tuttugu og tvö prósent Dana á aldrinum 18-25 ára falla á prófi sem innflytjendur þurfa að standast til þess að fá ríkisborgararétt. Leitað var til meira en 7000 Dana á þessum aldri og prófspurningarnar lagðar fyrir þá. Spurningarnar eru 40 talsins og menn þurfa að svara minnst 28 rétt til þess að standasst prófið. 7.4.2007 14:20 Abbas skipar öryggissveitum að stöðva eldflaugaskot 7.4.2007 13:25
Sjá næstu 50 fréttir
Páfi harmar blóðbaðið í Írak Ekkert jákvætt gerist í Írak og blóðbaðið þar virðast engan enda ætla að taka. Þetta sagði Benedikt páfi sextándi í tilfinningaþrungnu páskaávarpi sínu í morgun. Hann harmaði hversu víða þjáningar er að finna í heiminum. 8.4.2007 12:08
Engin frí á kristnum hátíðum Leiðtogi hægri manna í Noregi vill afnema frí á páskum og öðrum kristnum helgidögum ef kemur til aðskilnaðar ríkis og kirkju. Rune Aale Hansen segir að þá verði óeðlilegt að hafa sérstaka trúarlega sem aðeins tengist einni trú. Spurningin verði þá hvort Norðmenn fari eins að og Bandaríkjamenn og Frakkar, sem hafa afnumið frí á mörgum helgidögum. 8.4.2007 11:36
Bresku sjóliðarnir fá að selja sögu sína Bresku sjóliðarnir fimmtán sem fangaðir voru af Írönum gætu fengið yfir þrjátíu milljónir króna fyrir að sögu sína hjá fjölmiðlum. Breskir hermenn mega ekki selja sögur sínar, en varnarmálaráðneytið ákvað að gefa undanþágu sökum sérstakra aðstæðna. 8.4.2007 09:51
Vilhjálmur Bretaprins syrgir vinkonu Ung kona, sem lést þegar vegsprengja sprakk í Írak á fimmtudaginn, var náin vinkona Vilhjálms Bretaprins. Konan, sem var tuttugu og fjögurra ára, var meðal bresku hermannanna fjögurra sem létu lífið í árás á eftirlitstöð þeirra í Basra í Írak. 8.4.2007 09:44
Flugvél forsætisráðherra gerð afturræk Íranar neituðu að leyfa flugvél Nuris al-Malikis, forsætisráðherra Íraks, að fljúga um lofthelgi sína, í nótt. Forsætisráðherrann var á leið í opinbera heimsókn til Asíu. Flugvél hans var kominn inn í Íranska lofthelgi þegar flugmaðurinn fékk fyrirmæli um að snúa aftur og fara út úr lofthelginni. 8.4.2007 09:09
Vilja 1300 fanga fyrir ísraelska hermanninn Hamas samtökin hafa lagt fram lista með nöfnum 1300 Palestínumanna sem þeir krefjast að verði látnir lausir í skiptum fyrir ísraelska hermanninn Gilad Shalit, sem var rænt fyrir tíu mánuðum. Talsmaður Hamas segir að listinn hafi verið afhentur Egyptum og að þetta sé skýr vísbending um að hreyfing sé að komast á málið. 8.4.2007 08:59
Sérsveit gegn þjófum frá Austur-Evrópu Norska lögreglan er að stofna sérsveit sem hefur það verkefni að uppræta innbrots- og þjófagengi frá Austur-Evrópu. Mikið er um slík gengi í Noregi og Svíþjóð. Sum þeirra koma sér upp höfuðstöðvum á afskekktum stöðum í löndunum tveimur og fara þaðan í ránsleiðangra. 7.4.2007 20:26
Miskunsamir Rússar Rússar gera um páskana lítillega undanþágu á flugbanni sínu á nágrannaríkið Georgíu. Þrem flugvélum er leyft að fljúga á milli Tblisi og Moskvu. Farþegarnir eru Georgíumenn sem fá að heimsækja ættingja sína í Rússlandi. Rússar settu flugbann á Georgíu fyrir sex mánuðum, eftir að þrír Rússar voru handteknir þar í landi, sakaðir um njósnir. 7.4.2007 19:52
Fimmti ferðamaðurinn til að fara út í geiminn Miljarðamæringurinn Charles Simonyi varð í dag fimmti ferðamaðurinn til að fara út í geiminn. Simonay var um borð í rússneskri soyuz geimflaug sem skotið var á loft í Kazakstan. 7.4.2007 18:53
Páskaeggjaleit á hafsbotni Íbúar í Flórída í Bandaríkjunum geta í ár tekið þátt óvenjulegri páskaeggjaleit. Verslun nokkur ákvað að bregða á leik og faldi páskaegg, á tuttugu og fimm metra dýpi, á friðuðu hafsvæðin undan ströndum Flórída. 7.4.2007 17:55
Yfirmenn gríska skemmtiferðaskipsins ákærðir Skipstjóri og fimm yfirmenn gríska skemmtiferðaskipsins sem fórst á gríska Eyjahafinu í fyrradag hafa verið ákærðir fyrir vanrækslu. Tveggja er enn saknað en um sextán hundruð manns voru um borð í skipinu. 7.4.2007 17:50
Karlmenn umburðarlyndir gagnvart brjóstagjöf Yfirgnæfandi meirihluti Dana telur að það sé ekkert athugavert við að mæður gefi börnum sínum brjóst á opinberum stöðum. Enginn er hissa á því, en það sem kannski kemur á óvart er að danskir karlmenn eru nokkuð umburðarlyndari í þessum málum en konur. 7.4.2007 17:43
Kommúnistar átu kanínurnar mínar Þýski kanínuræktandinn Karl Szmolinsky hefur áhyggjur af því að háttsettir embættismenn í Norður-Kóreu hafi étið risakanínurnar sem hann seldi þeim til undaneldis, á síðasta ári. Karl hefur ræktað kanínur í 47 ár og unnið til fjölda verðlauna. Kanínurnar sem hann ræktar eru risastórar og mjög matarmiklar. 7.4.2007 16:29
Hatast við sænsku konungsfjölskylduna Sænska konungsfjölskyldan hefur leitað lögfræðiráðgjafar vegna hatursfullrar heimasíðu sem bandarískur bókstafstrúarsöfnuði hefur haldið úti í tvö ár. Ástæðan fyrir þessu hatri er sú að fyrir tveim árum var sænskur prestur sakfelldur fyrir að espa til haturs gegn samkynhneigðum. Á heimasíðunni er Karl Gústaf meðal annars kallaður konungur kynvilltra hóra. 7.4.2007 16:12
Ungir Danir falla á ríkisborgaraprófi -vilt þú reyna ? Tuttugu og tvö prósent Dana á aldrinum 18-25 ára falla á prófi sem innflytjendur þurfa að standast til þess að fá ríkisborgararétt. Leitað var til meira en 7000 Dana á þessum aldri og prófspurningarnar lagðar fyrir þá. Spurningarnar eru 40 talsins og menn þurfa að svara minnst 28 rétt til þess að standasst prófið. 7.4.2007 14:20
Sakar breska herinn um að leikstýra sjóliðunum Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sakar breska herinn um að leikstýra bresku sjóliðunum sem teknir voru fyrir meint landhelgisbrot í íranskri lögsögu. Leiksýning hafi verið sett á svið á blaðamannafundi í gær en hún breiði ekki yfir þá staðreynd að hermennirnir hafi verið í óleyfi í íranskri lögsögu. 7.4.2007 12:33
Páfi bað fólk um að sýna samúð Krossfestingar Jesú Krists var minnst víða um heim í gær. Í táknrænni athöfn sem haldin var í Róm bað páfi um að þeim sem þjást yrði sýnd samúð. 7.4.2007 12:28
Tveir hafa látið lífið í árásum í Lundúnum Tveir hafa látið lífið í árásum í Lundúnum síðastliðinn sólarhring. Rúmlega tvítug ólétt kona var skotin til bana og fjórtán ára piltur lét lífið eftir hnífsstungu. 7.4.2007 12:17
Banvæn forvitni Sextán manns fórust og fjölmargir slösuðust þegar jeppi sprakk í loft upp í Tamil Nadu héraði á Indlangi í dag. Þetta er ekki hryðjuverk heldur slys. Jeppinn var að flytja sprengiefni og var yfirhlaðinn. Vélin ofhitnaði svo að það kviknaði í henni. 7.4.2007 11:35
Vill að Bretar séu jákvæðir Sendiherra Írana í Lundúnum segir Breta eiga að bregðast jákvætt við lausn sjóliðanna fimmtán. Sjóliðarnir voru í haldi Írana í tæpar tvær vikur. Þeir sögðu á blaðamannafundi í gær að þeir hefðu verið beittir harðræði af Írönum. 7.4.2007 09:58
Stunginn til bana í fjöldaslagsmálum í Álaborg Rúmlega tvítugur maður lét lífið eftir að hafa verið stunginn í slagsmálum á skemmtistað í Álaborg í Danmörku í nótt. Flytja þurfti sex aðra á slysadeild eftir slagsmálin, tveir þeirra eru í lífshættu. Lögreglan hefur handtekið einn vegna málsins. 7.4.2007 09:56
Loftárásir gerðar á Gasasvæðinu Ísraelsmenn gerðu í morgun loftárásir á byggingar nærri Jabaliya flóttamannabúðunum á Gasasvæðinu. Tuttugu og tveggja ára karlmaður lét lífið. Maðurinn tilheyrði herskáum samtökum en Ísraelar telja að Palestínumenn hafi skotið flugskeytum á Ísrael frá svæðinu. 7.4.2007 09:50
Feðgina saknað eftir að ferja strandaði Franskra feðgina er saknað eftir að stórt skemmtiferðaskip strandaði við grísku eyjuna Santorini í nótt. Sextán hundruð manns voru um borð í skipinu. Farþegar og áhöfn voru þegar í stað flutt í annað skip, en fljótlega kom í ljós að tvo farþega vantaði, Fjörutíu og fimm ára franskan karlmann og dóttur hans. Eiginkonu mannsins og syni var hins vegar báðum bjargað. Ferðamálaráðherra Grikklands segir að þeim sem beri ábyrgðina á slysinu verði refsað harkalega fyrir atvikið. 6.4.2007 18:17
Íranar segja yfirlýsingu sjóliða hreinan tilbúning Íranar gagnrýna yfirlýsingu bresku sjóliðanna 15 frá því fyrr í dag harðlega og segja hana hreinan tilbúning. Þeir segja yfirlýsinguna vera gerða til að hylma yfir mistök hersins og að sjóliðarnir hafi verið á írönsku hafsvæði. Þetta segir í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Írans sem Reuters-fréttastofan fékk með símbréfi. Sjóliðarnir héldu því fram að Íranar hefðu beitt þá harðræði í varðhaldi, bundið fyrir augu þeirra, haldið fyrir þeim vöku, geymt þá í einangrun og neytt þá til að játa að þeir hefðu verið í óleyfi á írönsku hafsvæði. 6.4.2007 17:26
Norður-Kóreumenn geta loks fengið peningana sína Bandaríkjamenn segjast hafa fundið leið til þess að koma fjármunum sem stjórnvöld í Norður-Kóreu eiga á bankareikningi í Macau í hendur eigendanna. Peningarnir hafa legið frystir á bankareikningum vegna efnahagsþvingana en það var eitt skilyrði Norður-Kóreumanna fyrir kjarnorkuafvopnun að peningarnir fengjust lausir. 6.4.2007 15:15
Sjóliðar voru beittir harðræði í Íran Bresku sjóliðarnir 15 segjast hafa verið beittir harðræði í varðhaldi í Íran. Þeir segja að bundið hafi verið fyrir augu þeirra, þau sett í einangrun og þeim hótað allt að sjö ára fangelsisvist. Sjóliðarnir hafa verið látnir lausir og héldu blaðamannafund heima í Bretlandi í dag. 6.4.2007 15:10
Karzai vill ræða við talibana Hamid Karzai, forseti Afganistan hefur átt í beinum viðræðum við uppreisnarmenn talibana um að koma á varanlegum friði í landinu. Þetta viðurkenndi Karzai fyrst í dag. Talibanar hafa gefið yfirlýsingar þar sem þeir segjast nú búa sig undir mikla og blóðuga sókn með vorinu, en ofbeldið hefur magnast í landinu undanfarna mánuði. 6.4.2007 14:01
Lögregluyfirvöld í Róm verja hegðun lögreglumanna Yfirmenn lögreglunnar í Róm verja hegðun lögreglumanna borgarinnar eftir að slóst í brýnu með þeim og stuðningsmönnum Manchester United eftir leik þeirra við Rómverja í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Þeir segja viðbrögð lögreglumannanna hafa verið eðlileg og að stuðningsmennirnir hafi stofnað til vandræðanna. Stuðningsmennirnir kvörtuðu undan tilhæfulausum árásum lögreglumanna eftir leikinn, sem Manchester tapaði 2-1. UEFA, knattspyrnubandalag Evrópu rannsakar nú málið og gætu bæði félögin átt yfir höfði sér refsingar. 6.4.2007 13:48
Krossfesta sig til að minnast pínu Krists Milljónir manna um heim allan minnast í dag krossfestingar Jesú Krists. Hvergi er jafnlangt gengið og á Fillipseyum, þar sem rúmur tugur manna lætur krossfesta sig í dag, auk þess sem hundruðir til viðbótar húðstrýkja sig. 6.4.2007 12:15
Loftslagsbreytingar þegar haft varanleg áhrif Lofstslagsbreytingar hafa þegar haft veruleg og varanleg áhrif á vistkerfi heimsins samkvæmt nýrri skýrslu vísindanefndar Sameinuðu Þjóðanna. Alþjóða Rauði Krossinn segir að skýrslan feli í sér varnaðarorð til ríkisstjórna. 6.4.2007 11:45
Borgar sig að blunda Þið sem vitið ekkert betra en að blunda eilítið á daginn hafið fengið nýtt vopn í báráttunni fyrir réttindum dagsvæfra. Samkvæmt nýrri rannsókn ætti fólk að jafnaði að leggja sig þrisvar sinnum á viku yfir daginn, hálftíma í senn. Þetta á jafnt að auka afköst sem og gleði í vinnu. Og vinnuveitendur ættu að íhuga þetta alvarlega líka, því að talið er að síþreyta kosti bandarísk fyrirtæki eitt hundrað og fimmtíu milljarða á hverju einasta ári. 6.4.2007 11:11
Tuttugu fórust í bílsprengjuárás í Írak Minnst tuttugu manns féllu í bílsprengjuárás í borginni Ramadi í Írak nú í morgunsárið. Jeppa fullum af sprengiefni var ekið að vegatálma sem lögregla hafði sett upp, þar sem töluvert af fólki hafði safnast saman. Í borginni Díwanía í suðurhluta Íraks berjast bandarískir og íraskir hermenn nú við uppreisnarmenn úr röðum Sjía og hefur öll bílaumferð verið bönnuð í borginni. 6.4.2007 10:34
Mannshjarta ræktað úr stofnfrumum Breskum vísindamönnum hefur tekist að rækta hluta úr mannshjarta með stofnfrumum. Talið er að innan þriggja ára verði hægt að nota þessa tækni til líffæraflutninga. Á hverju ári þarfnast tíu þúsund Bretar hluta úr hjarta, svo að niðurstöðurnar hafa skiljanlega vakið töluverða athygli. Að sögn vísindamannanna eru vonir bundnar við að eftir áratug eða svo verði hægt að ganga skrefinu lengra og rækta heilt mannshjarta með stofnfrumum. 6.4.2007 10:15
Kerkorian býður í Chrysler Milljarðafjárfestirinn Kirk Kerkorian lagði í dag fram formlegt tilboð um að kaupa Chrysler Group af DaimlerChrysler samsteypunni þýsku. Tilboðið hljóðar upp á 4,5 milljarða dollara í reiðufé. Þetta er í annað skiptið sem Kerkorian reynir að eignast Chrysler. Hann bauðst til að kaupa bílaframleiðandann 1995 í félagi við fyrrverandi forstjóra, Lee A. Iacocca á 20 milljarða dollara. 5.4.2007 22:52
Fyrrum fangar mega kjósa á ný Yfirvöld í Flórídaríki í Bandaríkjunum hafa breytt lögum um borgaraleg réttindi fólks sem hefur verið dæmt fyrir glæpi. Hingað til máttu þeir sem höfðu verið dæmdir ekki kjósa, ekki vera í kviðdómi og máttu ekki sinna ýmsum störfum. 5.4.2007 20:45
Velgja hafmeyjunni undir uggum Íslenskt listaverk á garðbekk í dönskum almenningsgarði velgja Litlu hafmeyjunni undir uggum. Danskur listaverkasali segir verkið, sem er eftir Steinunni Þórarinsdóttur, hafa hlotið meiri athygli undanfarna mánuði en frægasta kennimerki Danmerkur. 5.4.2007 19:43
Þrír handteknir vegna hryðjuverkaárása Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir aðild sína að hryðjuverkaárásunum í Lundúnum þann sjöunda júlí árið 2005. Fimmtíu og tveir létu lífið í fjórum sjálfsmorðsprengjuárásum, en þrjár þeirra voru gerðar á neðanjarðarlestarkerfi Lundúna. Mennirnir sem hafa verið ákærðir eru á aldrinum tuttugu og þriggja ára til þrítugs. Rannsókn er enn í gangi og telur lögreglan líklegt að fleiri verði handteknir í tengslum við árásirnar. 5.4.2007 19:40
Aðskildu hjörtu síamstvíburasystra Ungar símastvíburasystur reyndust mun uppteknari hvor af annarri en myndavélunum þegar þær birtust í fyrsta inn opinberlega eftir að þær voru skildar að. Hjörtu stúlknanna voru meðal annars föst saman. Að öllum líkindum er aðgerðin sú fyrsta sinnar tegundar. 5.4.2007 19:16
Fagnað við komuna til Bretlands Fimmtán breskum sjóliðum, sem verið höfðu í haldi Írana í nærri tvær vikur, var fagnað við komuna til Bretlands í dag. Sjóliðarnir flugu frá Tehran snemma í morgun. Aðeins degi eftir að forseti Írans, tilkynnti að þeim yrði sleppt og sagði ákvörðunina gjöf til Breta. 5.4.2007 18:41
Rice ætlar að ræða við Írana Condoleezza Rice, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, ætlar sér að hefja beinar viðræður við Írana um hugsanlegt hlutverk þeirra í Írak þegar hún fer á fund sem verður haldinn í maí. Rice sagði líklegt að fundurinn yrði haldinn af ráðherrum en undirmenn utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Írans áttu fundi í mars síðastliðnum. 5.4.2007 18:19
Páfinn minnist auðmýktar Jesú Benedikt páfi þvoði og þurrkaði fætur 12 manna við hátíðlega Skírdagsathöfn í Vatíkaninu í dag. Athöfnin er haldin til þess að minnast þess hversu auðmjúkur Jesú var kvöldið áður en hann var krossfestur. 5.4.2007 17:40
Ísland og Indland í samstarf um jarðskjálftarannsóknir Sendiherra Íslands á Indlandi, Dr. Gunnar Pálsson, og ráðuneytisstjóri vísindamálaráðuneytis Indlands, Dr. T. Ramasani, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf Íslands og Indlands á sviði jarðskjálftarannsókna. 5.4.2007 17:26