Fleiri fréttir

Höfuðstöðvar landgönguliðsins girtar af

Óeirðalögregla girti af höfuðstöðvar landgönguliðs hersins á Filippseyjum í dag eftir að Renato Miranda, yfirmaður þess, hvatti Filippseyinga til að brjóta bann gegn fjöldafundum. Hann hvetur almenning til að koma sama til að styðja þá herforingja sem voru handteknir fyrir helgi, grunaðir um að hafa lagt á ráðinn um að ræna völdum í landinu.

Fangar taka yfir fangelsi í Kabúl

Fangar í einu rammgirtasta fangelsi í Kabúl, höfuðborg Afganistan, hafa tekið yfir hluta þess að því er yfirvöld þar í landi upplýstu í dag. Fjölmargir afganskir hermenn voru fluttir á staðinn í morgun en í Policharki-fangelsi eru 1300 fangar, þar á meðal liðsmenn al-Kaída samtakanna og Talíbanar.

Ódæðismennirnir særðust sjálfir

Að minnsta kosti fimm létu lífið og þrír særðust þegar bílsprengja sprakk á strætóstóð í bænum Hilla suður af Bagdad í Írak í morgun. Þrír særðust þegar önnur sprengja sprakk skömmu síðar í mosku sjía-múslima í Basra. Sprengjan sprakk nánast í höndum mannanna sem voru að koma henni fyrir og því voru það aðeins þeir sem særðust. Óttast er að borgarastyrjöld kunni að vera yfirvofani í Írak.

Rannsókn miðar vel

Breska lögreglan upplýsti í morgun að hún hefði fundið byssur, hlífðarbúnað og grímur í sendiferðabíl sem fannst fyrir utan hótel í fyrradag. Talið er að búnaðurinn tengist einu stærsta ráni í sögu Bretlands sem framið var í fjárhirslu á miðvikudag. Tveir menn á fertugs og sextugsaldri eru í haldi lögreglu vegna málsins.

Abbas gæti hætt ef Hamas-liðar breyta ekki stefnu sinni

Líkur eru á að Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, segi af sér takist honum ekki fá Hamas-samtökin, sigurvegara þingkosninganna í síðasta mánuði, til að fara að kröfum alþjóðsamfélagsins. Abbas fer þess á leit við ríki heims að snúa ekki baki við Palestínumönnum í refsingarskyni fyrir lýðræðislegt val þeirra.

Bílsprengja í Hilla

Bílsprengja sprakk á strætóstöð í bænum Hilla suður af Bagdad í Írak í morgun. Að minnsta kosti fimm manns létu lífið og þrír særðust. Enn er útgöngubann í Bagdad, þriðja daginn í röð.

Nýnasistar ganga um blökkumannahverfi í Flórída

Til átaka kom milli nýnasista og andstæðinga þeirra á Flórída í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Lögregla handtók 17 þeirra. Nýnasistarnir höfðu safnast saman til mótmæla í hverfi þar sem meirihluti íbúa eru blökkumenn.

Oprah Winfrey fær tilnefningu

Tilnefningar til friðarverðlauna Nóbels árið 2006 eru 191 talsins. Aðeins einu sinni áður hafa fleiri verið tilnefndir, en það var í fyrra þegar 199 voru tilnefndir.

Hálf öld frá leyniræðu Krútsjovs

Hálf öld er í dag frá því að Nikíta Krútsjov, þáverandi aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, steig í pontu á tuttugasta landsþingi flokksins og ræddi grimmdarstjórn Jósefs Stalíns. Ræðan var flutt á bak við luktar dyr og var haldið leyndri. Þrátt fyrir það lak hún út og olli miklu fjaðrafoki.

Úrslitum forsetakosninga í Úganda mótmælt

Yoweri Museveni forseti Úganda var endurkjörinn með talsverðum meirihluta atkvæða í kosningum sem fram fóru á fimmtudag. Kjörstjórn landsins tilkynnti þetta í dag. Stjórnandstæðingar mótmæltu í úrslitunum í dag og sögðu brögð vera í tafli.

Textílverkamenn létu lífið þegar bygging hrundi

Að minnsta kosti 9 létu lífið og um 50 slösuðust þegar textílverksmiðja hrundi í Dhaka, höfuðborg Bangladesh, í morgun. Um 150 manns voru að störfum í verksmiðjunni þegar hún tók að gefa sig. Þetta er annað mannskæða slysið í textílverksmiðju í Bangladesh á þremur dögum. Í fyrradag létu 54 verkamenn lífið og minnst 60 slösuðust þegar eldur kviknaði í textílverksmiðju í í hafnarborginni Chittagong.

H5N1 í innlendum alifuglum í Frakklandi

Chirac Frakklandsforseti hvetur landa sína til að sýna stillingu þó hið hættulega H5N1 afbrigði fuglaflensu hafi greinst í kalkúnum á alifuglabúi í austurhluta landsins. Greiningin fékkst staðfest síðastliðna nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta afbrigði veirunnar greinist í innlendum alifuglum í Evrópusambandsríki.

Mannskæð átök í Írak

Að minnsta kosti sjö létu lífið og tugir særðust þegar bílsprengja sprakk á fjölförnum markaði í borginni Kerbala í Suður-Írak í morgun. Svo virðist sem sprengjan hafi verið fjarstýrð. Árásin var gerð aðeins nokkrum klukkustundum eftir að byssumenn réðust inn í hús í borginni Baquba í Norður-Bagdad og myrtu tólfmanna fjölskyldu sjía múslima.

Hluti ránsfengsins fundinn.

Líklegt er að breska lörgrelan hafi í gær fundið hluta ránsfengs úr þaulskipulögðu ráni sem framið var í fjárhirslu í bænum Tonbridge í Bretlandi í vikunni. Talið er að ræningjarnir hafi komist undan með jafnvirði allt að sex milljarða íslenskra króna og er ránið sagt það langstærsta í sögu Bretlands.

12 manna fjölskylda myrt

Að minnsta kosti sjö létu lífið og tugir særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir stundu á fjölförnum markaði í borginni Kerbala í Suður-Írak í morgun. Svo virðist sem sprengjan hafi verið fjarstýrð. Árásin var gerð aðeins nokkrum klukkustundum eftir að byssumenn réðust inn í hús í borginni Baquba í Norður-Bagdad og myrtu tólfmanna fjölskyldu sjía múslima.

Hluti þýfisins fundið

Lögreglan á Englandi hefur fundið hluta þýfisins sem ræningjar höfðu á brott með sér þegar þeir rændu peningageymslu í Kent í fyrradag. Þetta er eitt stærsta ránið í sögu Bretlands en ræningjarnir náðu um 50 milljónum punda eða sem nemur hátt í sex milljörðum íslenskra króna. Lögreglan hefur ekki viljað gefa út hversu mikið af fénu er fundið en það fannst í sendiferðabíl

Fuglaflensan breiðist hratt út

Fjölmörg ný fuglaflensutilfelli, af hinum banvæna H5N1-stofni, voru staðfest víða í Evrópu í dag. Nú er óttast að alifuglar í Þýskalandi og Frakklandi hafi drepist af völdum veirunnnar.

Neyðarástandi lýst yfir

Gloria Arroyo forseti Filippseyja lýsti yfir neyðarástandi í landinu í dag í kjölfar þess að upplýst var um áætlanir háttsettra hershöfðingja í filippeyska hernum um að ræna völdum.

Vikið úr starfi fyrir ummæli um blaðamann af gyðingaættum

Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúna, hefur verið vikið úr starfi í mánuð fyrir ummæli sín um blaðamann af gyðingaættum. Rauði Ken, eins og hann er oft kallaður, bar blaðamanninn saman við fangavörð í útrýmingabúðum nasista.

Göran Sonnevi hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Sænska skáldið Göran Sonnevi hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir ljóðasafnið Úthafið eða Oceanen. Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Kristín Marja Baldursdóttir voru tilnefndar af Íslands hálfu, Auður fyrir bókina "Fólkið í kjallaranum" og Kristín Marja fyrir "Karítas - án titils".

Neyðarástand á Filipseyjum

Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, lýsti yfir neyðarástandi í landinu í morgun eftir að fregnir bárust af því að valdamenn í hernum hafi ætlað að velta henni úr sessi í dag. Tuttugu ár eru á morgun frá því Ferdinand Marcos, þáverandi einræðisherra, flúði í útlegð eftir uppreisn almennings gegn honum.

Þrjú handtekin vegna stærsta ráns í sögu Bretlands

Þrír hafa verið handteknir vegna ránsins í fjárhirslu Securitas í Kent, skammt utan við London, í fyrradag en þetta er langstærsta rán í sögu Bretlands. Ræningjarnir, sem dulbjuggust sem lögregluþjónar við verknaðinn, komust á brott með allt að sex milljarða íslenskra króna. Rúmlega tvö hundruð milljónum króna hefur verið heitið fyrir upplýsingar sem leitt geta til handtöku ræningjanna.

Útgöngubann í Bagdad

Útgöngubann er nú í gildi allan sólarhringinn í Bagdad, höfuðborg Íraks. Óttast er að borgarastyrjöld sé að brjótast út í landinu en á annað hundrað manns hafa fallið í skærum sjía- og súnní-múslima undanfarna daga.

Mannskæður bruni í textílverksmiðju í Bangladesh

Að minnsta kosti 52 létu lífið og 150 slösuðust þegar eldur kviknaði í textílverksmiðju í suð-austur hluta Bangladesh í gærkvöldi. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá neista úr rafmagnsverkfæri og jókst hann þegar rafall og gufuketill sprungu.

Enn átök fyrir Rolling Stones tónleika

Að minnsta kosti 20 slösuðust og 50 voru handteknir þegar til átaka kom milli lögreglu og æstra aðdáenda hljómsveitarinnar Rolling Stones í Buenos Aires í Argentínu í gær, annað kvöldið í röð.

Fuglaflensa í innlendum alifuglum í Frakklandi

Fuglaflensa hefur greinst í fuglum á kalkúnabúi í Frakklandi. Dominique Busseraeu, landbúnaðarráðherra, staðfesti þetta í morgun. Hann sagði verið að rannsaka hvort um hið hættulega H5N1 afbrigði væri að ræða. Verði það staðfest yrði það í fyrsta sinn sem það hættulega afbrigði greindist í innlendum alifuglum í Evrópusambandsríki.

Nýstárleg auglýsingaherferð

Ástralir hafa ákveðið að beita nokkuð nýstárlegri aðferð við laða ferðamenn til landsins. Rauði þráðurinn í auglýsingaherferðinni, sem ráðherra ferðamála í Ástralíu kynnti í gær, eru blótsyrði. Yfirskrift herferðarinnar er "Hvar í andskotanum eruð þið?".

Útgöngubann í Bagdad

Óttast er að borgarastyrjöld sé að brjótast út í Írak en á annað hundrað manns hafa fallið í skærum síja- og súnní-múslima undanfarna daga. Ákveðið hefur verið að útgöngubann sem gildir á nóttunni í Bagdad gildi nú allan sólarhringinn.

Handtekin vegna stærsta ráns í sögu Bretlands

Kona og maður hafa verið handtekin vegna ránsins í fjárhirslu Securitas í Kent, skammt utan við London, í fyrradag en þetta er langstærsta rán sem framið hefur verið í sögu Bretlands. Ræningjarnir, sem dulbjuggust sem lögregluþjónar við verknaðinn, komust á brott með jafnvirði allt að 6 milljarða íslenskra króna. Jafnvirði rúmlega 200 milljóna króna hefur verið heitið fyrir upplýsingar sem leitt gætu til handtöku ræningjanna.

Minningarathöfn í París

Jacques Chirac, forseti Frakklands, og fleiri stjórnmálamenn og trúarleiðtogar þar í landi tóku í gær þátt í minningarathöfn um ungan mann af gyðingaættum sem fannst nær dauða en lífi á sorphaugum í París í síðustu viku. Pilturinn lést á leið á spítala en honum var rænt þremur vikum áður og hafði verið haldið föngnum í kjallara húss í úthverfi Parísar.

Neyðarástand á Filipseyjum

Gloria Arroyo, forseti Filipseyja, lýsti yfir neyðarástandi í landinu í morgun eftir að fregnir bárust af því að valdamenn í hernum hafi ætlað að velta henni úr sessi í dag. Auk þess söfnuðust íbúar í höfuðborginni, Manila, saman í morgun til að mótmæla ástandinu í landinu. Fólki hafi verið bannað að koma saman á tiltekinni götu í borginni en það bann var virt að vettugi.

Blóðbönd frumsýnd í kvöld

Íslenska kvikmyndin Blóðbönd verður frumsýnd í kvöld klukkan sex, en þetta er frumraun Árna Ólafs Ásgeirssonar sem leikstjóra. Kvikmyndin er talin vera með þeim dýrustu sem framleiddar hafa verið hérlendis og kostaði um níutíu milljónir króna. Það er fyrirtæki Snorra Þórissonar, Pegasus sem framleiðir myndina.

Langstærsta rán í sögu Bretlands

Ævintýralegt rán var framið á Englandi í fyrrinótt þar sem stolið var jafnvirði fimm milljarða íslenskra króna í beinhörðum peningum. Lögregla leitar ræningjanna ákaft en þeir virðast hafa falið slóð sína fullkomlega. Það var í fyrrakvöld sem ræningjarnir, dulbúnir sem lögregluþjónar, stöðvuðu yfirmann fjárgeymslu Securitas í Kent, skammt utan við Lundúnir, þar sem Englandsbanki geymir seðla sína.

49 manns krömdust til bana

Í það minnsta 49 manns krömdust til bana og þrjátíu til viðbótar slösuðust þegar þak yfir markaðstorgi í Moskvu hrundi í morgun. Snjóþyngsli eru talin líklegasta skýringin á slysinu en lögreglan útilokar ekki hönnunargalla. Vanalega er ys og þys á þessum yfirbyggða markaði í Moskvu en í dag hefur verið þar ömurlegt um að litast.

Einn hefur verið handtekinn

Ævintýralegt rán var framið á Englandi í fyrrinótt þar sem stolið var jafnvirði fimm milljarða íslenskra króna í beinhörðum peningum. Lögregla leitar ræningjanna ákaft og hefur einn verið handtekinn.

49 lík hafa fundist

Í það minnsta 49 manns krömdust til bana og þrjátíu til viðbótar slösuðust þegar þak yfir markaðstorgi í Moskvu hrundi í morgun. Snjóþyngsli eru talin líklegasta skýringin á slysinu en lögreglan útilokar ekki hönnunargalla.

Óttast að borgarastyrjöld brjótist út

Hjaðningavíg írakskra sjía og súnnía hafa gengið á víxl undanfarinn sólarhring eftir að ein helgasta moska sjía var sprengd í loft upp í gær.

Meira en hundrað fallnir

Írak rambar á barmi borgarastyrjaldar eftir sprengingu á einum heilagasta stað Sjíja í gær. Meira en hundrað manns hafa farist í tugum sprengju árása síðan í gær.

Fengu 25 milljarða króna í lottóinu

Átta lottóvinningshafar í Bandaríkjunum hrepptu til saman 25 milljarða íslenskra króna í stærsta útdrætti í sögu lottósins til þessa. Hver og einn vinningshafi fær því um 2,8 milljarða króna.

Bush þrýstir á leiðtoga Indlands og Pakistans

George Bush Bandaríkjaforseti ætlar að þrýsta á að leiðtogar Indlands og Pakistan finni lausn á langavarandi deilu sinni um Kasmír-hérað þegar hann heimsækir löndin í fyrsta sinn í næstu viku.

Sharon í einn eina aðgerðina

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fór í gærkvöld í enn eina aðgerðina en læknar þurftu að fjarlægja vökva úr kviðarholi hans. Sharon hefur legið meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í Jerúsalem síðan í byrjun árs þegar hann fékk heilablóðfall.

Fæðing tvíeggja tvíbura líklegri hjá eldri konum

Fæðing tvíeggja tvíbura er líklegri hjá eldri konum en þeim yngri. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem vísindamenn við háskóla í Amsterdam í Hollandi gerðu á rúmlega 500 konum.

Óeirðir fyrir tónleika Rolling Stones

Óeirðir brutust út fyrir tónleika Rolling Stones í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, í gær. Æstir aðdáendur hljómsveitarinnar gátu ekki beðið eftir að komast inn og ruddust inn á íþróttaleikvanginn þar sem tónleikarnir fóru fram.

Ahmadinejad verði saksóttur fyrir ummælin um Helförina

Ísraelskur lögfræðingur hefur beðið þýsk stjórnvöld um að sækja Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, til saka fyrir að segja að Helförin sé sögusögn. Forsetinn lét þessi ummæli falla í desember síðastliðnum en hann hefur einnig sagt að réttast væri að eyða Ísrael af yfirborði jarðar.

Sjá næstu 50 fréttir