Fleiri fréttir

Ungmenni drukknuðu í helli í Utah

Lík fjögurra ungmenna fundust í helli í Utah í Bandaríkjunum í gærkvöld. Fólkið, sem var á aldrinum 18 til 28 ára, hafði ætlað að reyna að synda í gegnum vatnsfyllt göng á milli tveggja hella en drukknað á leiðinni. Fimmti meðlimur hópsins hringdi á hjálp klukkutíma eftir að félagar hans höfðu synt af stað.

Ian Blair segir ekki af sér

Ian Blair, lögreglustjóri Lundúnaborgar, ætlar ekki að segja upp starfi sínu þrátt fyrir háværar kröfur þess efnis. Ástæðan eru rangfærslur hans eftir að brasilískur karlmaður var skotinn til bana í misgripum á neðanjarðarlestarstöð í borginni.

Flugskeytum skotið að herskipum

Þremur flugskeytum var skotið að tveimur bandarískum herskipum sem voru í höfn í Jórdaníu í morgun. Skeytin hæfðu þó ekki skotmarkið heldur lentu þau á birgðageymslu og sjúkrahúsi, þar sem einn hermaður féll, og svo í Eilat í Ísrael, sem er í níu kílómetra fjarlægð.

Lögreglustjóri neitar ásökunum

Yfirmaður Lundúnalögreglunnar, Ian Blair, neitar því staðfastlega að hafa reynt að hafa áhrif á rannsókn á dauða Brasílíumannsins Jean Charles de Menezes, sem lögreglumenn skutu til bana á neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum í júlí.

Vantar kvenlega varkárni í akstur

Ef karlar ækju eins og konur létust helmingi færri í umferðinni. Þetta kemur fram í sænskri greiningu á bílslysum sem gerð var af sænska umferðaröryggiseftirlitinu.

Sýknaður af aðild að 11. september

Dómstóll í Hamborg dæmdi í gær Mounir el Motassadeq, marokkóskan mann sem búsettur er í Þýskalandi, fyrir að vera félagi í al-Kaída hryðjuverkasamtökunum. Hann var hins vegar sýknaður af þátttöku í hryðjuverkaárásunum 11. september 2001.

Fylgið dalar

Þegar rétt rúmar þrjár vikur eru til norsku þingkosninganna virðist fylgi Verkamannaflokksins og bandalagsflokka hans hafa dalað.

Litrík stjórnmálakona látin

Mo Mowlam var án efa með litríkustu stjórnmálamönnum Bretlands en hennar verður fyrst og fremst minnst fyrir þátt hennar í friðarferlinu á Norður-Írlandi.

Vonir um grænlenska olíu

Vonir eru bundnar við að olíulindir sé að finna úti fyrir Nuuk á vesturströnd Grænlands sem geti fært íbúum landsins allt að 700 milljörðum íslenskra króna í tekjur .

Dönsk fyrirtæki krafin skýringa

Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur krafið yfir sjötíu dönsk fyrirtæki um skýringar á samskiptum sínum við Íraksstjórn meðan á olíusöluáætlun samtakanna stóð.

Disney sakað um arðrán

Walt Disney fyrirtækið hefur fyrirskipað rannsókn á ásökunum á hendur verksmiðjum í Kína sem framleiða ýmsan varning fyrir fyrirtækið.

Gaslind finnst í Norðursjó

Norska orku- og iðnfyrirtækið Hydro staðfesti í gær að það hefði fundið miklar gaslindir undan ströndum Noregs.

Al-Kaída lýsti ábyrgð

Þremur eldflaugum var skotið á skotmörk í Jórdaníu og Ísrael í gær. Ein sprakk rétt hjá bandarísku herskipi en önnur hafnaði nærri flugvelli. Einn maður lést í árásinni.

Náðugt hjá Ísraelsher

Brottfllutningi landtökumanna af Gaza-svæðinu miðar vel áfram. Ekki kom til neinna alvarlegra átaka á svæðinu í gær.

Friðarmamman farin heim

Friðarmamman Cindy Sheehan, sem hefur haldið til fyrir utan búgarð Bush forseta frá síðustu mánaðamótum  gafst upp í gærkvöldi. Hún hafði heitið því að vera við búgarðinn í Texas þar til Bush hitti hana og svaraði spurningum hennar.

Lyfjarisi fær 16 milljarða sekt

Kviðdómur í Texas komst í kvöld að þeirri niðurstöðu að lyfjarisinn Merck & Co. bæri ábyrgð á dauða manns sem hafði tekið inn verkjalyfið Vioxx og lést úr hjartaáfalli. Ekkja mannsins fær andvirði rúmra sextán milljarða íslenskra króna í skaðabætur. 

Nú má guð bíða aðeins lengur

117 ára gömul kona, sem kann að vera sú elsta í heimi, gekkst í gær undir augnaðgerð. "Hér áður bað ég guð um að fara að taka við mér en nú þoli ég að bíða aðeins lengur," sagði Hanna Barisevitsj frá Hvíta-Rússlandi eftir að hún gekkst undir aðgerðina.

Innflutningshöft á kínversk föt

Bandaríkin og Kína eru nálægt því að komast að samkomulagi um umfangsmikla takmörkun á innflutningi á kínverskri vefnaðarvöru og kínverskum fatnaði til Bandaríkjanna. Bandarískir framleiðendur fatnaðar og vefnaðarvöru hafa lagt mikla áherslu á að höft verði sett á innflutning á vörum frá Kína.

Heræfingar Rússa og Kínverja

Rússar og Kínverjar hafa tekið höndum saman og æfa heri sína sameiginlega í tilraun sem stendur yfir næstu átta daga. Flug, sjó og landherir ríkjanna æfa nú stíft en í tilkynningu frá yfirvöldum beggja ríkja kemur fram að æfingar þessar séu ekki til að hræða neinn heldur sé tilgangurinn að styrkja samband ríkjanna sem löngum hefur verið ansi stíft.

SAS selur aðra leið

SAS flugfélagið hefur skorið upp herör gegn lággjaldaflugfélögum, og mun hér eftir aðeins selja miða aðra leiðina, á flugleiðum sínum í Evrópu. Talsmaður flugfélagsins segir að þetta sé það sem viðskiptavinirnir vilji í stað þess að vera neyddir til þess að kaupa miða báðar leiðir, með allskonar skilyrðum um dvalarlengd og dvalardaga erlendis.

Sprengjuárásir í Bangladesh

Að minnsta kosti tveir létust og rúmlega 130 særðust þegar um 100 litlar sprengjur sprungu í Bangladesh í gær. Um 50 manns hafa verið handteknir vegna málsins en um heimagerðar sprengjur var að ræða og var mörgum þeirra komið fyrir við opinberar byggingar.

Vilja ferðamenn á ný

Yfirvöld í Lundúnum ætla að eyða milljónum punda í auglýsingaherferð sem miðar að því að fá ferðamenn til borgarinnar en þeim hefur fækkað mikið í borginni síðan hryðjuverkaárásirnar voru gerðar í lestum og strætisvagni borgarinnar þann 7. júlí síðastliðinn.

Fjórir skæruliðar drepnir í Riyadh

Fjórir meintir skæruliðar voru drepnir og nokkrir til viðbótar handteknir eftir byssubardaga við öryggissveitir í Sádi-Arabíu í morgun. Lögregla umkringdi hús norður af höfuðborginni Riyadh, drap þar tvo eftirlýsta byssumenn og handsamaði þann þriðja.

Krefjast afsagnar Ian Blair

Ian Blair, lögreglustjóri Lundúnaborgar, verður að segja af sér, segja ættingjar Brasilíumannsins Jeans Charles de Menezes, sem skotinn var í misgripum í neðanjarðarlestarstöð í borginni í síðasta mánuði.

Lét lífið fyrir eigin sprengju

Sautján ára norskur piltur lét lífið þegar sprengja sem hann var að setja saman heima hjá sér sprakk í loft upp. Pilturinn hafði fundið leiðbeiningar á Netinu um hvernig búa ætti til sprengju en lögregla segir enga ástæðu til að gruna að hryðjuverk hafi verið í undirbúningi. Bróðir piltsins slasaðist einnig í sprengingunni. Talsmenn lögreglu segja allt benda til þess að um barnaskap unglinga hafi verið að ræða.

Lögreglustjóri vildi ekki rannsókn

Yfirmaður lögreglunnar í Lundúnum vildi að lögreglan sjálf rannsakaði tildrög þess að lögreglumenn skutu Brasilíumann til bana á lestarstöð í júlí og mælti gegn utanaðkomandi rannsókn. Ekki var farið að beiðni hans en rannsóknarnefndin fékk ekki aðgang að lestarstöðinni fyrr en þremur dögum eftir atvikið. </font /></b />

Milljón pílagrímar bíða páfa

Hundruð þúsunda ungmenna frá 184 löndum eru saman komin í Köln í Þýskalandi og bíða komu Benedikts páfa XVI. en alþjóðleg hátíð kaþólskra ungmenna stendur nú yfir í borginni.

Helmingur brúða undir lögaldri

Nær helmingur allra brúða í Afganistan eru yngri en 16 ára og á afskekktum svæðum landsins eru stúlkubörn allt niður í sex ára gefin í hjónabönd samkvæmt upplýsingum sem AP fréttastofan hefur frá Sameinuðu þjóðunum.

Svipt leyfi vegna útlendingahaturs

Útvarpsstöð í Danmörku hefur verið svipt útvarpsleyfi í þrjá mánuði fyrir að ala á útlendingahatri. Stöðin heitir Radio Holgeir og er þar vísað til goðsagnarinnar um Holgeir danska, sem á að vakna til þess að verja Danmörku, þegar hætta steðjar að.

Sniglar valda usla í Danmörku

Risasniglar frá Spáni eru að gera garðeigendur í Danmörku brjálaða. Þeir hafa breiðst út um nánast allt landið, og Danir sem eru umhyggjusamir um garða sína geta tínt saman tvö til þrjúhundruð snigla á hverjum einasta morgni.

Móðir berst gegn Íraksstríðinu

Barátta sorgmæddrar móður hefur vakið þjóðarathygli í Bandaríkjunum. Cindy Sheehan hefur staðið utan við búgarð Bush forseta svo dögum skiptir til að mótmæla Íraksstríðinu.

Páfa fagnaði í Þýskalandi

Tugþúsundir skælbrosandi ungmenna fögnuðu Benedikt páfa sextánda gríðarlega þegar hann kom til Þýskalands í morgun. Hann er þar til að taka þátt í kaþólskum æskulýðsdegi og messu á sunnudaginn.

Landnemar fluttir úr bænahúsum

Landnemar á Gasa-svæðinu öskruðu og æptu þegar ísraelskar sveitir létu til skarar skríða gegn þeim í dag. Fólkið var flutt úr bænahúsum með valdi. Harkan sex var boðorðið í dag og ísraelskir hermenn fylgdu því eftir, þó að sumum þeirra hafi verið það á móti skapi. Fimmtíu þúsund lögreglu- og hermenn voru til reiðu en þetta er stærsta hernaðaraðgerð Ísraels á friðartímum.

NASA gagnrýnd harðlega

Stjórnendur bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA fá á baukinn í skýrslu rannsóknarnefndar sem rannsakaði vandræðin sem fylgdu ferð geimferjunnar Discovery á dögunum.

Átök á öðrum degi brottflutnings

Til alvarlega átaka kom á milli landtökumanna og hermanna í Neve Dekalim og Kfar Darom á Gaza-ströndinni í gær þegar herinn reyndi að rýma tvær sýnagógur í hverfinu.

Flugslysið gerist æ dularfyllra

Líkur eru taldar á því að farþegar kýpversku þotunnar sem fórst á sunnudaginn með 121 manni innanborðs hafi misst meðvitund fljótlega eftir flugtak. Vélin flaug svo á sjálfstýringu þar til hún fórst.

Kapphlaup við tímann

Íraskir þingmenn leggja nú allt kapp á að ljúka við frumvarp til stjórnarskrár landsins en frestur þeirra rennur út eftir helgi. Fjórir bandarískir hermenn létu lífið í sprengjuárás í gær.

Sprenging í Ósló

Sautján ára gamall piltur af sýrlenskum uppruna beið bana þegar sprengja sem hann hafði búið til sprakk í höndunum á honum á heimili hans í Ósló. Nítján ára bróðir hans slasaðist alvarlega.

Ratvís dúfa

Norsk bréfdúfa villtist á leið sinni á dögunum og lenti óvart í Svíþjóð. Engu að síður sýndi hún óvenjulegar gáfur í viðleitni sinni við að rata.

IKEA sakað um mútuþægni

IKEA í Þýskalandi sætir nú lögreglurannsókn eftir að upp komst að forsvarsmenn fyrirtækisins tóku við tugmilljóna króna mútum frá byggingaverktökum.

Stelpum á pillunni snarfjölgar

Dönskum unglingsstúlkum sem nota getnaðarvarnarpilluna hefur fjölgað mikið samkvæmt könnun samtaka danskra lækna.

Þrjátíu létust í sprengjuárás

Að minnsta kosti þrjátíu manns féllu og yfir fimmtíu særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu með aðeins örfárra mínútna millibili í Baghdad, höfuðborg Íraks í morgun. Sprengjurnar sprungu báðar nálægt rútubílastöð með fyrrgreindum afleiðingum.

Brottflutningur af Gaza á áætlun

Víða voru haldnar einskonar kveðjuveislur á Gasa áður en svæðið var yfirgefið en gríðarleg sorg ríkir nú í Ísrael. Yfir níu þúsund manns hafa á síðustu dögum þurft að yfirgefa heimili sín og er reiði í garðs Ariels Sharons, forsætisráðherra landsins mikil.

Tímabundið framsal á Hussain

Dómstóll á Ítalíu fjallar sem stendur um framsalsbeiðni Breta sem vilja að Osman Hussain, sem einnig er þekktur sem Hamdi Isaac, verði sendur til Bretlands. Yfirvöld þar vilja yfirheyra og ákæra hann fyrir aðild að misheppnuðum hryðjuverkaárásum þann tuttugasta og fyrsta júlí síðastliðinn.

Madonna slasaðist á hestbaki

Söngkonan Madonna hlaut alvarleg beinbrot þegar hún féll af hestbaki á útreiðum við óðal sitt skammt frá Lundúnum í gær. Slysið átti sér stað í fjörutíu og sjö ára afmælisveislu Madonnu við Ashcombe House, þar sem hún býr ásamt eiginmanni og tveimur börnum. Hún braut rifbein, viðbeinið og höndina, en var útskrifuð af sjúkrahúsi í morgun.

Sjá næstu 50 fréttir