Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sodano aftur æðsti maður Páfagarðs Benedikt sextándi, nýkjörinn páfi, skipaði í kardínálanna Angelo Sodano aftur æðsta yfirmann Vatíkansins, en hann gengdi því starfi einnig þegar Jóhannes Páll annar var við völd í Vatíkaninu. Þá verða flestir æðstu menn Páfagarðs áfram í sínum störfum sem bendir til þess að Benedikt vilji starfa í anda Jóhannesar Páls. 21.4.2005 00:01
Stjórnmálaþjark í skugga árása Trúarbragðadeilur fara harðnandi í Írak og árásum hryðjuverkamanna fjölgar sífellt. Á meðan þjarka stjórnmálamenn um embætti og völd en leysa ekki ærinn vanda sem við blasir. Varað er við myndum í þessari frétt. 21.4.2005 00:01
Vonast til að halda embætti Silvio Berlusconi vonast enn til að halda forsætisráðherraembættinu á Ítalíu en forseti landsins kannar hvort hann nýtur til þess stuðnings. Fleiri vandamál blasa þó við Berlusconi en hugsanlegar þingkosningar. 21.4.2005 00:01
För geimskutlu frestað um viku Fyrsta flugi geimskutlu frá Columbiu-slysinu árið 2003 hefur verið frestað um viku. Geimskutlan Discovery átti upphaflega að taka á loft 15. maí en því var frestað til 22. Þannig er unnt að binda alla lausa enda og tryggja örugga ferð, segja yfirmenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA. 21.4.2005 00:01
Gutierrez flúinn til Brasilíu Brasilísk stjórnvöld hafa skotið skjólshúsi yfir Lucio Gutierrez, fyrrum forseta Ekvador, sem ekvadorska þingið svipti völdum á miðvikudag. Gutierrez, sem um hríð hefur verið sakaður um valdníðslu, dvelur nú í brasilíska sendiráðinu í Quito en verður fluttur til Brasilíu innan skamms. 21.4.2005 00:01
Forseti Ítalíu leitar hófanna Forseti Ítalíu hóf viðræður við formenn ítölsku þingflokkanna um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Silvio Berlusconi forsætisráðherra baðst lausnar á miðvikudag, en sagðist hafa í hyggju að mynda aðra ríkisstjórn. 21.4.2005 00:01
Rice hallmælti Lúkasjenkó Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti sjö andófsmenn frá Hvíta-Rússlandi í Litháen í gær og lofaði þá fyrir baráttu sína gegn "síðasta harðstjóranum í Mið-Evrópu," og vísaði þar til Alexander Lúkasjenkó, forseta landsins, sem hefur stjórnað með harðri hendi undanfarin ellefu ár. 21.4.2005 00:01
NATO treystir tengslin við Úkraínu Utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantsshafsbandalagsins eru sammála um að efla skuli hernaðar- og pólitíska samvinnu við Úkraínu og gáfu Úkraínumönnum þar með vonir um að geta gengið í bandalagið á næstu árum. 21.4.2005 00:01
Verður ekki haldið á lífi Breskir dómstólar hafa staðfest úrskurð um að eins og hálfs árs gömlu alvarlega veiku barni skuli leyft að deyja hætti það að anda. Foreldrar barnsins höfðu áfrýjað fyrri dómi og freistuðu þess að fá honum hnekkt. 21.4.2005 00:01
benedictxvi@vatican.va Aðdáendaklúbbur Benedikts XVI páfa var starfræktur þegar hann var kardínáli og hét Joseph Ratzinger og hélt úti heimasíðu honum til heiðurs. Páfagarður hefur nú ákveðið að láta æðsta mann kirkjunnar fá netfang svo guðhræddir menn geta sent páfanum bænir eða létt á hjarta sínu. 21.4.2005 00:01
Samkynhneigðir fá að giftast Neðri deild spænska þingsins hefur samþykkt lagafrumvarp sem heimilar samkynhneigðum að ganga í hjónaband og ættleiða börn. 21.4.2005 00:01
Skotbardagi í Kristjaníu Einn maður lést og þrír særðust í skotbardaga á Pusher Street í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld. Mikil skelfing greip um sig í fríríkinu í kjölfarið. 21.4.2005 00:01
Ódýrara að nauðga útlendingum Dómstól í Osló liggur undir ámæli fyrir að mismuna fórnarlömbum nauðgara eftir þjóðerni. 21.4.2005 00:01
Sjálfboðaliðar tilbúnir til árása Ríflega 440 írönsk ungmenni hafa boðið sig fram til að fremja sjálfsmorðssprengjuárásir gegn Bandaríkjamönnum í Írak og Ísraelum í heimalandi þeirra. 21.4.2005 00:01
Frelsaðar úr klóm ræningja Filippeyskir hermenn frelsuðu í gær 13 konur úr klóm mannræningja eftir mikinn eltingarleik. Tveir ræningjanna lágu í valnum eftir að til átaka kom og einn hermaður. Íslamskir skæruliðar aðstoðuðu hermennina í leitinni. 21.4.2005 00:01
Vargöldin heldur áfram Ekkert lát er á átökum í Írak. Ellefu týndu lífi þegar flugskeytaárás var gerð á þyrlu í gær og reynt var að ráða forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar af dögum. 21.4.2005 00:01
Sprenging í Sambíu 51 maður fórst í sprengiefnaverksmiðju í Sambíu í fyrradag. 26 er enn saknað og er óttast að þeir séu einnig látnir. 21.4.2005 00:01
Brisfrumur græddar í konu Lækning gæti verið í sjónmáli við insúlínháðri sykursýki eftir að læknum í Japan tókst að græða brisfrumur úr konu í dóttur hennar sem þjáðist af sjúkdómnum. 21.4.2005 00:01
Snarpur jarðskjálfti í Japan Að minnsta kosti þrettán slösuðust í snörpum jarðskjálfta sem varð nærri borginni Fukuoka í Japan í nótt. Skjálftinn mældist 5,8 á Richter og honum fylgdu tveir smærri skjálftar upp á tæplega fimm. 20.4.2005 00:01
Sameining allra kristinna manna Fyrsta messa Josephs Ratzingers eftir að hann var kjörinn páfi fór fram í morgun. Þar talaði hann m.a. um að reyna að sameina alla kristna menn veraldar. 20.4.2005 00:01
Fjórir féllu í Írak Tveir bandarískir hermenn féllu í valinn í sjálfsmorðssprengjuárás í suðurhluta Bagdad í nótt. Fjórir Bandaríkjamenn og sjö Írakar særðust í árásinni. Í morgun féllu svo tveir í valinn og fimm særðust þegar bílsprengja sprakk vestur af Bagdad. 20.4.2005 00:01
Rautt regn í Rússlandi Það er ekki á hverjum degi sem rigning er rauð, en þegar það rignir rauðu á annað borð kemur ekki á óvart að það skuli vera í Rússlandi sem státaði lengi vel af rauðum fána og Rauða hernum. 20.4.2005 00:01
Al-Zarqawi með kjarnorkusprengju? Leiðtogi al-Qaida í Írak ræður yfir kjarnorkusprengju. Þessu er haldið fram í dagblaðinu <em>Washington Times</em> í dag og vitnað í ónafngreinda leyniþjónustumenn. 20.4.2005 00:01
Kosningarútur liðin tíð? Hjálp! Það eru blaðamenn á eftir mér! Þannig gæti harmakvein breskra stjórnmálamanna hljómað en þeir sjá sér þann kost vænstan að forðast bresku pressuna í miðri kosningabaráttunni. 20.4.2005 00:01
Ratzinger millibilspáfi Andi Jóhannesar Páls páfa II mun svífa yfir vötnum í Vatíkaninu um hríð því að nýi páfinn, Benedikt XVI, er sagður eins konar millibilspáfi sem ætlað er að fylgja stefnu forvera sína eftir. Kjöri Josephs Ratzingers er víða fagnað en ekki alls staðar. 20.4.2005 00:01
Berlusconi segir af sér Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði fyrir stundu að hann muni segja af sér vegna stjórnarkreppunnar sem komin er upp á Ítalíu. Tveir samstarfsflokkar í stjórn Berlusconis kröfðust þess fyrr í vikunni að hann gerði róttækar breytingar á stjórninni eftir að ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu gríðarlegu fylgi í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru nýlega á Ítalíu. 20.4.2005 00:01
Kapellan fylltist af reyk Þegar reykur sást stíga til himins úr reykháfnum sem komið hafi verið fyrir á þaki Sixtínsku kapellunnar í gær var ekki á hreinu hvort að reykurinn var hvítur eða svartur. Einn kardínálanna sem voru við kjörið greindi frá því að fyrsta tilraun til að kveikja eld hefði mistekist. 20.4.2005 00:01
46 látnir í sprengingu í Sambíu Að minnsta kosti 46 létust í sprengingu sem varð í sprengjuverksmiðju í Sambíu í dag. Að sögn ráðherra í ríkisstjórn landsins liggur ekki fyrir hvað olli sprengingunni. 20.4.2005 00:01
Norsk börn stríða við offitu Norsk börn glíma við vaxandi offitu og eru þyngstu börnin nú fimm til sjö kílóum þyngri en þau voru fyrir þrjátíu árum. 20.4.2005 00:01
Pútín of valdamikill Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa of mikil völd. Rice hefur verið í heimsókn í Rússlandi undanfarið en er nú á heimleið. Hún segir að réttarhöldin yfir Mikhail Khodorkovsky, aðaleiganda Yukos-olíufélagsins, séu afar vafasöm og stjórnvöld í Washington fylgist grannt með þeim. 20.4.2005 00:01
Yfir 30 þúsund á svörtum lista Stöðugt fjölgar fólki á svörtum lista Bandaríkjamanna yfir þá sem ekki mega koma með flugi til Bandaríkjanna. Hafa ellefu þúsund manns bæst við á listann síðustu sex mánuði. 20.4.2005 00:01
Telur vangaveltur FT langsóttar Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir vangaveltur Financial Times um að ein hugsanleg leið út úr þeirri kreppu sem Evrópusambandið myndi lenda í ef stjórnarskrársáttmáli þess yrði felldur væri sú að "smygla" nokkrum helstu atriðum sáttmálans inn í aðildarsamning við Ísland, vera langsóttar. 20.4.2005 00:01
Blendin viðbrögð við páfavali Benedikt XVI páfi hét því í gær, á fyrsta vinnudeginum eftir kjörið á þriðjudag, að vinna markvisst að því að sameina alla kristna menn, rétta öðrum trúarbrögðum sáttahönd og halda áfram að hrinda í framkvæmd umbótum á kaþólsku kirkjunni. Viðbrögð við vali hans voru þó blendin. 20.4.2005 00:01
50 lík fundust í Tígris-ánni Fimmtíu lík fundust á floti í ánni Tígris, skammt frá Bagdad, í dag. Talið er að þau séu af gíslum úr röðum sjíta sem mannræningjar úr röðum súnníta rændu fyrir helgi. 20.4.2005 00:01
Gutierrez hrökklast frá völdum. Ekvadorþing samþykkti í gær að svipta Lucio Gutierrez, forseta landsins, völdum. Varaforsetinn hefur tekið við stjórnartaumunum í hans stað. 20.4.2005 00:01
Rauðum reyk spúið The Sun, mest lesna dagblað Bretlands, tilkynnti í gær að það myndi styðja Verkamannaflokkinn í kosningunum sem haldnar verða eftir tvær vikur. Blaðið tók sér kardinálana í Páfagarði til fyrirmyndar með því að blása rauðum reyk upp um sérsmíðan skorstein sem settur var upp á þaki höfuðstöðva blaðsins. 20.4.2005 00:01
Berlusconi biðst lausnar Valdatíma þaulsætnustu ríkisstjórnar Ítalíu frá stríðslokum lauk í gær þegar Silvio Berlusconi forsætisráðherra sagði af sér embætti Hann mun þó að líkindum mynda nýja stjórn á næstu dögum. 20.4.2005 00:01
Ólga í Tógó Stríðandi fylkingar í tógóskum stjórnmálum reyna nú að setja niður deilur sínar á fundi í nágrannaríkinu Níger. Forsetakosningar verða haldnar í Tógó á sunnudaginn. 20.4.2005 00:01
Stjórnvöld hvetja til stillingar Kínversk stjórnvöld hvöttu í gær almenning til að láta af mótmælum sínum sem staðið hafa yfir síðustu dægrin. 20.4.2005 00:01
Fimmtíu lík í Tígris Fimmtíu lík hafa fundist í fljótinu Tígris í Írak undanfarna daga og eru þau talin vera af mönnum sem teknir voru sem gíslar í liðinni viku. Tugir manna liggja í valnum eftir ódæði gærdagsins. 20.4.2005 00:01
NATO-fundur í Vilníus Utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins ræddu í gær framtíðarhlutverk þess í Vilníus í Litháen en fundinum lýkur síðar í dag. Nánari tengsl við Rússland og Úkraínu, svo og aðkoma að friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhaf eru á dagskránni. 20.4.2005 00:01
Himneskar veigar Nýi páfinn, Benedikt XVI, messaði í fyrsta sinn og kynnti sér aðstæður í Páfagarði í dag. Í heimabæ hans er kjörinu fagnað með því að baka Ratzinger-tertu, Vatíkanbrauð og bjóða upp á Benedikts-pylsu. 20.4.2005 00:01
Líkum fleygt á víðavangi Talið vera tilviljun að þrjú lík hafa fundist á víðavangi í og við Stokkhólm að undanförnu. Búið að bera kennsl á tvö líkanna. Ekki talið að samband sé milli morðanna. 20.4.2005 00:01
Önnur umferð páfakjörs fer fram Önnur umferð atkvæðagreiðslu um kjör páfa stendur nú yfir. Atkvæðaseðlarnir verða svo brenndir um klukkan tíu og þá stígur reykur upp frá skorsteini Sixtínsku kapellunnar. Verði hann svartur munu kardínálarnir 115 ganga strax aftur til atkvæðagreiðslu. Fái enn enginn þeirra minnst tvo þriðju hluta atkvæða verður gert hlé og svo kosið tvisvar sinnum á nýjan leik síðar í dag. 19.4.2005 00:01
Kveikti í hóteli af slysni Ung kona hefur viðurkennt að hafa kveikt eldinn í Paris Opera hótelinu í París á föstudag af slysni. Lögregluyfirvöld í París tilkynntu þetta í morgun og sögðu að verið væri að yfirheyra konuna. Tuttugu og tveir gestir hótelsins létust í eldsvoðanum. 19.4.2005 00:01
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent