Fleiri fréttir

Hvetur Kína og Japan til sátta

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hvetur leiðtoga í Kína og Japan til þess að nota ráðstefnu Asíu og Afríku ríkja um helgina, til þess að bæta samskipti þjóðanna. Annan segir að þjóðirnar eigi allt of margt sameiginlegt til þess að standa í ágreiningi eins og þeim sem staðið hefur yfir undanfarið.

Andstaða við stjórnarskrá eykst

Andstaða við stjórnarskrá Evrópusambandsins virðist enn vera að aukast í Frakklandi. Samkvæmt skoðanakönnun dagblaðsins <em>Le Figaro</em>, sem birtist í morgun, ætla 55 prósent Frakka að hafna stjórnarskráni sem er heldur hærra hlutfall en í undanförnum könnunum. Nú hafa fimmtán skoðanakannanir í röð bent til þess að stjórnarskráni verði hafnað í Frakklandi í lok maí.

Hrefnuveiðar hafnar í Noregi

Hrefnuveiðivertíðin í Noregi hófst í gær og munu um það bil 30 skip stunda veiðarnar enda kvótinn meiri en áður. Þrátt fyrir mikinn áhuga á veiðunum hefur gengið illa að selja hrefnukjötið á norskum markaði undanfarin ár líkt og hér á landi. Birgðir hafa hrannast upp og loks verið fargað fyrir opinbera styrki.

Krefjast afsagnar forseta Ekvadors

Þúsundir mótmælenda hópuðust saman á götum stærstu borgar Ekvador í gær og fóru fram á afsögn Lucio Gutierrez, forseta landsins. Mótmælendur hentu steinum og öðru lauslegu í átt að lögreglumönnum sem svöruðu með því að skjóta úr loftrifflum. Mótmælin hófust fyrir fimm dögum og hafa stigmagnast.

Réðust gegn uppreisnarmönnum

Hermenn í Afganistan gerðu í gær áhlaup á vígi uppreisnarmanna í fjallahéruðum utan við Kabúl og drápu átta manns og handtóku sextán. Að sögn talsmanns afganska hersins tóku bandarískar herþyrlur þátt í bardögunum sem voru einhverjir þeir mannskæðustu í landinu í marga mánuði.

Láta reyna á stuðning á þingi

Vantrauststillaga verður lögð fram á ríkisstjórn Silvios Berlusconis á ítalska þinginu á fimmtudag. Stjórnarkreppa varð í landinu um síðustu helgi þegar Samband kristilegra demókrata hætti að styðja ríkisstjórnina. Krisitlegir demókratar eru nú sagðir hafa gengið aftur til liðs við hana en stjórnarandstaðan vill fá vissu fyrir því að Berlusconi hafi meirihluta á þingi.

Hleyptu upp kosningafundi í London

Öfgamenn hleyptu í dag upp kosningafundi hófsamra múslíma í Lundúnum. Þeir hrópuðu ókvæðisorð gegn bresku stjórninni.

Persson íhugar framtíð sína

Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður Jafnaðarmannaflokksins, ætlar að ákveða það fyrir flokksþing í haust hvort hann gefi áfram kost á sér sem formaður. Frá þessu greindi forsætisráðherrann í dag, en hann hafði áður lýst því yfir að hann hygðist ekki standa upp úr formannsstóli fyrir þingkosningar sem fram fara á næsta ári.

Sprengjuhótun á hóteli Rice

Sprenguhótun barst hóteli sem Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hugðist gista á í Moskvu, en hún kom þangað í dag til þess að ræða við rússneska ráðamenn. Reuters-fréttastofan greinir frá því að bílalest Rice hafi breytt ferðaáætlun sinni eftir að fregnirnar bárust og hélt hún þess í stað til dvalarstaðar bandaríska sendiherrans í Moskvu.

Fá takmarkaðan kosningarétt

Kúveiska þingið samþykkti í dag að veita konum kosningarétt og kjörgengi í sveitarstjórnarkosningum. Konur mega enn ekki kjósa eða bjóða sig fram í þingkosningum en búið er að leggja fram frumvarp þess efnis á þinginu, sem skipað er 50 karlmönnum. Slíkt frumvarp hefur verið lagt fram áður en verið fellt.

Takast ekki í hendur vegna veiru

Íbúar Uige, angólsku borgarinnar þar sem Marburgarveiran hefur geisað harðast, eru farnir að hneigja sig og nikka fremur en að takast í hendur til að reyna að forðast smit. Veiran er bráðsmitandi og smitast með líkamsvessum eins og svita, blóði og munnvatni. Flestir sem smitast deyja á rúmri viku.

Mikill mannfjöldi á Péturstorginu

Um 40 þúsund manns hafa safnast saman á Péturstorginu til að fylgjast með páfastrompnum á Sixtínsku kapellunni í Vatikaninu. Reykurinn hefur fram að þessu verið svartur en búist er við tveimur atkvæðagreiðslum til viðbótar í dag að því gefnu að sú næsta skeri ekki úr um hver verði næsti páfi.

Inflúensusýna enn leitað

Enn er ekki búið að finna öll sýnin af banvænni inflúensuveiru, sem send voru um víða veröld í síðustu viku. Yfirvöld í Líbanon, Mexíkó og Suður-Kóreu leita sýnanna enn en gripið hefur verið til víðtækra ráðstafana til að finna þau.

Nýr páfi hefur verið valinn

Búið er að velja nýjan páfa. Hvítan reyk lagði upp úr reykháfnum á Sixtínsku kapellunni fyrir nokkrum mínútum og þá hringdu kirkjuklukkur rétt í þessu. Það verður því tilkynnt á næstu mínútum hver tekur við að Jóhannesi Páli páfa öðrum.

17 föngum sleppt á Guantanamo

Bandaríski herinn hefur sleppt 17 Afgönum úr fangabúðunum á Guantanamo-flóa, en þeir hafa sumir verið þar í haldi í á fjórða ár, eða frá því að talabanastjórninni var komið frá völdum í Afganistan. Þeir hafa sendir til síns heima þar sem afgönsk stjórnvöld taka við þeim og verður þeim í kjölfarið leyft að snúa til síns heima.

Joseph Ratzinger kjörinn páfi

Þýski kardínálinn Joseph Ratzinger hefur verið kjörinn páfi og hefur hann tekið sér nafnið Benedikt XVI. Ratzinger hefur verið einn af áhrifamestu kardínálum Vatíkansins og var af mörgum talinn líklegasti eftirmaður Jóhannesar Páls páfa annars.

Grikkir samþykkja stjórnarskrá ESB

Grikkland varð í dag fimmta landið innan Evrópusambandsins til að samþykkja stjórnarskrá sambandsins, en það var gert á gríska þinginu. Bæði íhaldsmenn sem fara með völd í landinu og sósíalistar í stjórnarandstöðunni studdu stjórnarskrána. 268 þingmenn sögðu já, 17 höfnuðu stjórnarsamningnum og 15 sátu hjá.

Var yfirmaður rannsóknarréttar

Rottweiler guðs, íhaldssami og umdeildi, þýski kardínálinn Joseph Ratzinger kallast framvegis Benedikt páfi sextándi. Hann var áður yfirmaður nútímaútgáfu rannsóknarréttarins.

Ratzinger verður Benedikt XVI

Mikil fagnaðarlæti brutust út á Péturstorginu í Róm síðdegis þegar hvítur reykur steig upp úr reykháfi á Sixtínsku kapellunni. Skömmu síðast hringdu kirkjuklukkur inn nýjan páfa, Benedikt sextánda.

Ísland sem bjargvættur ESB?

Gætu Íslendingar séð Evrópusambandinu fyrir neyðarleið út úr þeirri kreppu sem upp kæmi ef Frakkar höfnuðu stjórnarskrársáttmála sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu? Að þessu spyr leiðarahöfundur Financial Times í gær.

Benedikt XVI er nýr páfi

Joseph Ratzinger var í gær kjörinn páfi og hefur hann tekið sér nafnið Benedikt, sem merkir hinn blessaði. Flestir virðast telja að nýi páfinn muni fylgja stefnu forvera síns.

Deilan magnast

Deila Japana og Kínverja harðnar enn. Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, reyndi að miðla málum í gær en án árangurs.

Páfi valinn á mettíma

Það var laust fyrir klukkan fjögur að íslenskum tíma sem hvíti reykurinn streymdi upp úr skorsteini Sixtínsku kapellunnar.

Játar hótelbruna

31 árs gömul kona hefur viðurkennt að hún gæti hafa í ógáti kveikt í hótel Paris Opera sem brann til kaldra kola aðfaranótt föstudagsins.

640 ára í fangelsi

Adolfo Scilingo, fyrrverandi herforingi í argentínska hernum, var í gær dæmdur af spænskum undirrétti í 640 ára fangelsi fyrir þátttöku sína í gagnaðgerðum herforingjastjórnarinnar gegn meintum vinstrimönnum á árunum 1976-83.

Rice í Rússlandi

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, dvaldi í Moskvu í gær þar sem hún ræddi við Vladimir Pútín, forseta Rússlands, um lýðræðisþróun í landinu.

Íhaldssamur maður kenningarinnar

Joseph Ratzinger, sem kjörinn var páfi í gær, fæddist í smábænum Markl am Inn syðst í Bæjaralandi þann 16. apríl 1927. Fjórtán ára gamall var hann skráður gegn vilja sínum í Hitlersæskuna, sem nasistar skylduðu alla þýska drengi til, en var fljótlega sleppt úr henni þar sem hann var þá þegar kominn á þá braut að læra til prests. 

Afsögn Berlusconi?

Ítalska stjórnin virðist vera að falla. Silvio Berlusconi forsætisráðherra fundar með Carlo Azeglio Ciampi forseta í dag og tilkynnir þar hvort hann telji stjórn sína enn hafa meirihluta á þingi eða hvort hann hyggist segja af sér.

30 þúsund á svörtum lista

Meira en þrjátíu þúsund manns mega ekki stíga upp í flugvélar sem lenda á bandarískri grundu. Þetta eru einstaklingar sem eru á lista bandarískra stjórnvalda yfir hugsanlega hryðjuverkamenn.

115 milljónir skortir menntun

Eitt hundrað og fimmtán miljónir barna á grunnskólaaldri um allan heim njóta ekki menntunar. Stærstur hluti þessara barna er stúlkur og því hefur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sett sér það markmið að árið 2015 verði hlutfall kynjanna orðið jafnt í menntun grunnskólabarna.

Forskot Verkamannaflokksins eykst

Verkamannaflokkurinn í Bretlandi eykur forskot sitt lítillega í nýrri skoðanakönnun. Hann mælist með 41% fylgi, Íhaldsflokkurinn 33% og Frjálslyndir demókratar 20%. Gengið verður til kosninga 5. maí.

Norskt skemmiferðaskip í brotsjó

Norskt skemmtiferðaskip skemmdist töluvert þegar meira en tuttugu metra hár brotsjór skall á því á laugardaginn. Fjórir farþegar ferjunnar, sem var á leið til New York, slösuðust í óhappinu og sjór flæddi inn í meira en sextíu klefa. Þá mölbrotnuðu fjölmargir gluggar í ferjunni þegar aldan skall á henni.

Landamæri Kasmír-héraðs opnuð

Stjórnvöld á Indlandi og í Pakistan hafa sammælst um að vinna að því að opna landamærin við Kasmír-hérað þar sem mikill órói hefur ríkt. Pervez Musharraf, forseti Pakistans, sagði í morgun að stefnt væri að því að auka samgöngur og viðskiptatengsl yfir landamærin.

Fyrsta umferð páfakjörs í kvöld?

Kardínálarnir eitt hundrað og fimmtán, sem kjósa nýjan páfa, loka sig inni í Sixtínsku kapellunni laust fyrir klukkan þrjú í dag og hefja undirbúning að atkvæðagreiðslu. Hugsanlegt er að fyrsta umferð atkvæðagreiðslunnar fari svo fram strax í kvöld.

Sænska prinsessan í lífsháska

Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar, lenti í miklum lífsháska í heimsókn sinni til Srí Lanka um helgina. Prinsessan var að heimsækja þau svæði í landinu sem urðu illa úti í flóðbylgjunni annan í jólum.

Vill ekki dauðadóm yfir Saddam

Hinn nýi forseti Íraks, Jalal Talabani, sagði í útvarpsviðtali í dag að hann myndi neita að undirrita dauðadóm yfir Saddam Hussein, ef hann yrði fundinn sekur um stríðsglæpi.

Leynileg útvarpsstöð talíbana

Skæruliðar talíbana í Afganistan hafa hafið útvarpssendingar um leynilega útvarpsstöð. Yfirmaður bandarískra hersveita í landinu segir að talíbanar séu ennþá hættulegir.

2500 hermenn farnir frá Líbanon

2500 sýrlenskir hermenn hafa verið fluttir frá austurhluta Líbanons undanfarna daga og eru þá aðeins um 1500 hermenn eftir í landinu. Þeir eiga að vera farnir fyrir næstu mánaðamót samkvæmt samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Helmingur karlmanna ákærður

Sjö menn, eða helmingur allra fullorðinna karlmanna á Pitcairn-eyju, hafa verið ákærðir fyrir kynferðisglæpi sem sumir áttu sér stað fyrir áratugum. Pitcairn-eyja var numin af uppreisnarmönnum á hinu sögufræga skipi MS-Bounty árið 1789.

Ítalska stjórnin heldur velli

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur tekist að koma í veg fyrir fall ríkisstjórnar sinnar. Hann hafði sagt að ef Flokkur kristilegra demókrata, sem sagði sig úr ríkisstjórninni fyrir skemmstu, kæmi ekki aftur þá myndi hann rjúfa þing og boða til kosninga.

Kardínálarnir loka sig af

Kardínálarnir 115 sem fá að kjósa nýjan páfa hafa nú lokað sig inni í Sixtínsku kapellunni í Vatíkaninu. Þúsundir manna bíða á Péturstorginu til að sjá reykinn liðast upp eftir fyrstu atkvæðagreiðsluna sem gæti allt eins orðið í kvöld.

Eyjaskeggjar flýja vegna eldgoss

Öskugos er nú í gangi í Karthalafjalli á Comoros-eyjum í Indlandshafi. Flestir þeirra tíu þúsund íbúa sem búa á suðurhluta stærstu eyjunnar, þar sem eldfjallið er, hafa flúið. 17 manns létust fyrir um hundrað árum þegar fjallið spjó eiturgufum yfir byggð.

Náði bílprófinu í 272. tilraun

Suður-Kóreubúinn Seo Sang-moon hafði ástæðu til að fagna á dögunum þegar hann náði skriflegum hluta bílprófs í 272. tilraun. Sang-moon er ólæs, sem útskýrir ef til vill hvers vegna þetta tók hann svona langan tíma, en hann er að verða sjötugur.

Persson skóflar í sig osti

Göran Persson, leiðtogi sænska Verkamannaflokksins, segist skófla í sig osti þegar hann er stressaður. Hann viðurkennir að borða mikinn ost þessa dagana því skoðanakannanir sýna að fylgi flokksins dalar stöðugt.

Sjá næstu 50 fréttir