Erlent

Ratzinger millibilspáfi

Andi Jóhannesar Páls páfa II mun svífa yfir vötnum í Vatíkaninu um hríð því að nýi páfinn, Benedikt XVI, er sagður eins konar millibilspáfi sem ætlað er að fylgja stefnu forvera sína eftir. Kjöri Josephs Ratzingers er víða fagnað en ekki alls staðar.

Það er Benedikt XVI greinilega mikið í mun að fullvissa þá sem hafa áhyggjur af kjöri hans um að hann sé víðsýnni en orð hans í fortíðinni gefa til kynna. Í fyrstu messu sinni í morgun kvaðst hann t.a.m. ætla að leita eftir samræðum við aðrar kirkjur og trúarhópa en fyrir fimm árum fordæmdi hann aðrar kristnar kirkjur og sagði þær ófullnægjandi.

Ljóst er að Benedikt hyggst fara mjög að fordæmi Jóhannesar Páls, þó að þeir séu sagðir ólíkir sem einstaklingar. Í morgun sagði Benedikt að honum fyndist sem forveri sinn leiddi sig og vísaði veginn. Fréttaskýrendur á Ítalíu segja ennfremur að snafurmannleg afgreiðsla páfakjörsins bendi annars vegar til þess að kardínálar hafi valið Ratzinger sem einskonar millibilspáfa, og hins vegar að hann hafi notfært sér meðbyr í aðdraganda kjörsins og sameinað íhaldssama kardínála á bak við sig áður en frjálslyndari vængurinn kom sér saman um frambjóðanda.

Sú staðreynd að Evrópumaður er valinn til starfans þykir benda til þess að kardínálarnir hafi áhyggjur af vaxandi trúleysi og þverrandi kirkjusókn í álfunni og vilji að Benedikt snúi þeirri þróun við.

Valinu hefur verið fagnað en víða er fögnuðurinn þó ekki mikill. Í Suður-Ameríku, þar sem um helmingur allra kaþólikka býr, má greina vonbrigði með að nýr páfi komi ekki þaðan. Í heimalandi Ratzingers, Þýskalandi, togast á stolt og djúpstæð óánægja. Desmond Tutu, biskup Suður-Afríku, er óánægður og segir Benedikt stífan íhaldsmann úr takti við nútímann og að nær hefði verið að velja páfa sem tæki á umræðum um konur innan kirkjunnar og smokka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×