Berlusconi biðst lausnar 20. apríl 2005 00:01
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, baðst í gær lausnar fyrir ríkisstjórn sína. Ekki er þó talið að boðað verði til kosninga heldur mun Berlusconi mynda nýja hægristjórn til að styrkja stöðu sína. Talsverð ólga hefur verið í ítölskum stjórnmálum undanfarnar vikur eftir að stjórnarflokkarnir biðu afhroð í héraðskosningum í mánaðarbyrjun. Í síðustu viku sögðu tveir smáflokkar skilið við stjórnina og þegar flokkur Gianfranco Fini utanríkisráðherra hótaði að hætta stuðningi sínum við hana á þriðjudag varð ljóst að dagar stjórnarinnar væru taldir. Í gær tilkynnti Berlusconi ítalska þinginu að hann hygðist biðjast lausnar og setja saman nýja stjórn svo fljótt sem auðið væri. Hann kvaðst þess fullviss að hún myndi sitja fram að næstu kosningum, sem haldnar verða á næsta ári. Að því búnu hélt hann á fund Carlo Azeglio Ciampi forseta og afhenti honum afsagnarbréf sitt. Þar með lýkur valdatíma þaulsætnustu ríkisstjórnar Ítalíu frá stríðslokum en hún tók við völdum árið 2001. Þótt Ciampi hafi vald til að ákveða hverjum hann veitir umboð til stjórnarmyndunar eða að rjúfa þing og boða til kosninga eru allar líkur taldar á því að Berlusconi muni eingöngu stokka upp valdahlutföllin í gömlu stjórninni og mynda nýja á næstu dögum enda er vilji til þess hjá leiðtogum samstarfsflokkanna. Stjórnarandstaðan með Romano Prodi í broddi fylkingar hefur sótt hart að stjórnarliðum og virðast kjósendur vera að snúast á sveif með henni. Slæmt efnahagsástand og þátttaka Ítalíu í Íraksstríðinu eru helstu ástæður óvinsælda stjórnar Berlusconi.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Innlent Fleiri fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sjá meira