Fleiri
Dúettinn Árni Johnsen og Kristján Jóhannsson Stjórna fjöldasöng á gamlárskvöld. 30.12.2013 13:26 Handtekin fyrir vörslu kannabis, amfetamíns og LSD Tvö fíkniefnamál hafa komið til kasta lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. 30.12.2013 13:25 Stefna ótrauðir á þátttöku þrátt fyrir hryðjuverkaárásir Framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir að það hafi ekki komið til tals að hætta við þátttöku á vetrarólympíuleikunum í Rússlandi í febrúar þrátt fyrir ítrekaðar hryðjuverkárásir þar í landi. 30.12.2013 12:29 Pókerstarfsemi grasserar á Íslandi Pókerklúbbar eru starfræktir hér á landi, en samkvæmt lögum er óheimilt fyrir þriðja aðila að hagnast á fjárhættuspili. 30.12.2013 12:22 Hafna sjálfstæðu gjaldi á ferðamenn Sjálfstæðismenn í Rangárþingi eystra vilja strax hefja undirbúning að gjaldtöku við ferðamannastaði eins og Skógafoss og Seljalandsfoss. Meirihluti Framsóknarflokks í sveitarstjórninni ákvað þó að bíða tillagna frá atvinnuvegaráðherra. 30.12.2013 10:15 Konunni haldið sofandi Ástand konunnar sem slasaðist alvarlega í árekstri tveggja bíla á Hellisheiði á fjórða tímanum í gær er óbreytt. Henni er haldið sofandi í öndunarvél að sögn vakthafandi læknis á Landspítalanum. Slysið varð með þeim hættti að tveir fólksbílar, sem voru að koma úr gagnstæðri átt, skullu saman. Í öðrum bílnum voru tveir farþegar með ökumanni, og voru meiðsl þeirra ekki talin alvarleg. Í hinum bílnum var konan ein á ferð, og er hún alvarlega slösuð. 30.12.2013 08:21 Sjá næstu 50 fréttir
Vísir óskar lesendum gleðilegs nýs árs Vísir óskar lesendum sínum nær og fjær gleðilegs nýs árs. Árið sem er að líða hefur verið viðburðaríkt eins og sjá má í annálum fréttastofu 365. 31.12.2013 16:45
Bono eyðir áramótunum á Íslandi Bono, söngvari U2, mun eyða áramótunum á Íslandi ásamt fjölskyldu sinni og vinum. 31.12.2013 16:26
Saga sló í gegn í Kryddsíldinni Saga Garðarsdóttir, leikkona og skemmtikraftur, flutti lag til valdamesta fólks landsins í Kryddsíld Stöðvar 2 í dag. Textinn við lagið vakti mikla lukku hann má finna í heild sinni hér að neðan: 31.12.2013 15:40
Lars Lagerbäck maður ársins að mati Stöðvar 2 Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, var valinn maður ársins á Stöð 2 en valið var tilkynnt í Kryddsíldinni á Stöð 2. 31.12.2013 15:36
Bono eyðir áramótunum í Reykjavík Írski söngvarinn Bono mun eyða áramótunum í Reykjavík en þetta kom fram í þætti Valtýs Björns og Jóa á Bylgjunni í dag. 31.12.2013 15:15
Biðja Bjarna Ben afsökunar Uppljóstrunarsamtökin, Associated Whistle-Blowing Press, hafa nú beðið fjármálaráðherra afsökunar. 31.12.2013 12:49
400 lítrar af díselolíu á hverja áramótabrennu Um 400 lítrar af díselolíu eru notaðir til að tendra í einni áramótabrennu. Kveikt verður í tugum áramótabrenna um allt land í kvöld, flestum í höfuðborginni og það er því ljóst er að fleiri þúsund lítrar munu brenna. Veðurspá lofar víða góðu og munu brennugestir njóta flugeldasýninga og söngatriða 31.12.2013 12:45
Fékk flugeld í andlit í fyrra og skaddaðist varanlega "Það er álíka afl í þessu og í haglabyssu og hún skaut mig á fjögurra metra færi beint í hausinn," segir Baldur Sigurðarson sem fyrir ári síðan fékk skoteld í höfuðið með þeim afleiðingum að höfuðkúpa hans brotnaði á þremur stöðum og sjón hans tapaðist. 31.12.2013 12:40
Skuldarar heimtir úr helju Drómi hættir allri umsýslu lána samkvæmt samkomulagi sem gengið var frá í gær. Einstaklingslán færast yfir í Arionbanka. Talsmaður Samstöðuhóps gegn Dróma fagnar þessari niðurstöðu og segir að skuldarar hafi verið heimtir úr helju. 31.12.2013 12:05
Heilbrigðisstarfsmaðurinn maður ársins að mati hlustenda Bylgjunnar Bylgjan hefur valið mann ársins og að þessu sinni hlaut hinn íslenski heilbrigðisstarfsmaður nafnbótina. 31.12.2013 12:00
Segir að reynt hafi verið koma á hann höggi Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir augljóst að reynt hafi verið að koma á hann höggi með því að leka út röngum fullyrðingum um að hann hafi fengið tæplega sex milljarða lán frá Glitni fyrir bankahrun. 31.12.2013 11:54
Bætir í vind á norðvestanverðu landinu Veðurstofan spáir því að bæti eigi í vind eftir hádegi í dag og gerir ráð fyrir 13-20 metra á sekúndu á norðvestanverðu landinu og við suðausturströndina í kvöld. 31.12.2013 11:44
Ríkisráðsfundur á Bessastöðum Ríkisráðsfundur hófst nú klukkan hálf ellefu á Bessastöðum en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundar með ráðherrum ríkisstjórnarinnar. 31.12.2013 10:56
Tugir áramótabrenna um allt land Kveikt verður í tugum áramótabrenna um allt land á gamlárskvöld, flestum í höfuðborginni. Veðurspá lofar víða góðu og munu brennugestir njóta flugeldasýninga og söngatriða. Slökkvilið varar við notkun skotelda við brennur. 31.12.2013 10:05
Kryddsíldin 2013 í heild sinni Tuttugusta og þriðja Kryddsíld Stöðvar 2 var í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi í dag en þar komu saman formenn stjórnmálaflokkanna og fóru yfir árið. 31.12.2013 10:02
Gylfi Arnbjörnsson: Meirihlutinn réð Í meðfylgjandi grein svarar Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ aðdróttunum Aðalsteins Baldurssonar formanns Framsýnar á Húsavík vegna nýgerðra kjarasamninga. 31.12.2013 09:46
Lögðu hald á fíkniefni og lífandi snák Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm einstaklinga í austurbæ Reykjavíkur rétt eftir klukkan tíu í gærkvöldi og var lagt hald á fíkniefni, lifandi snák, skjaldbökur, hníf og stuðbyssu. Aðilarnir voru síðan vistaðir í fangageymslu fyrir rannsókn máls. 31.12.2013 09:38
„Ég kastaði upp, bæði af viðbjóði og ammoníakseitrun“ Margrét Gunnarsdóttir, nemi, er allt annað en sátt við upplifun sína er hún vann í kjúklingaeldi hér á landi. Fréttastofa Vísis hefur undir höndunum bréf frá Margréti þar sem hún lýsir, að hennar sögn, ólýsanlegri grimmd í íslenskum verksmiðjubúskapi. 31.12.2013 08:00
Orka náttúrunnar tekur við virkjunum OR Nýtt opinbert hlutafélag tekur við rekstri virkjana Orkuveitunnar í dag. Engar uppsagnir starfsfólks fylgja breytingunni. Fjárhagur OR leyfir aðgerðina eftir tveggja ára frestun. 31.12.2013 07:00
Staðfest að ungviði makríls elst upp við strendur Íslands Hafrannsóknastofnun hefur nú í fyrsta sinn vísbendingar um að makríll hefur klakist út við Ísland. Ársgamall makríll finnst víða. Of snemmt að tala um að staðbundinn stofn sé að vaxa hér upp, segir sérfræðingur Hafró. 31.12.2013 07:00
Þröstur fer úr leikhúsinu í laxeldi Þröstur Leó Gunnarsson hættir hjá Borgarleikhúsinu í vor. Hann ætlar að flytja á æskuslóðir sínar í Bíldudal þar sem hann mun starfa hjá nýju laxeldisfyrirtæki Matthíasar Garðarssonar. Leikaranum finnst gott að kúpla sig út á tíu ára fresti. 31.12.2013 07:00
„Fólk er nánast í lífshættu við Gullfoss“ Gríðarleg hálka hefur verið á Suðurlandinu í dag en fjöldi ferðamanna hafa lagt leið sína á ferðamannastaði þar í dag. 30.12.2013 22:00
Sjómenn álykta um kjaramál og afnám sjómannaafsláttar Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar var haldinn í kvöld. Fundurinn var að venju líflegur og auk þess málefnalegur. 30.12.2013 20:58
Konan sem lenti í umferðarslysi á Hellisheiði er látin Kona sem flutt var alvarlega slösuð á sjúkrahús í Reykjavík eftir umferðarslys á Hellisheiði í gær er látin. 30.12.2013 20:33
84 tilkynningar um nauðganir árið 2012 84 tilkynningar um nauðganir bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári og er því um 15% aukningu ef borið er saman við árin 2009 til 2011. 30.12.2013 20:23
Orka náttúrunnar tekur við rekstri virkjana OR Nú um áramót tekur Orka náttúrunnar við rekstri virkjana Orkuveitu Reykjavíkur og allri raforkusölu en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. 30.12.2013 19:36
Óstaðfest hvort Friðrik fór til Paragvæ Íslenska lögreglan fékk í dag send öll gögn sem liggja fyrir hjá Interpol í Paragvæ um hvarf Friðriks Kristjánssonar, þrítugs manns sem ekkert hefur spurst til síðan í apríl. Bróðir Friðriks segir hvarfið hafa haft djúpstæð áhrif á fjölskylduna. 30.12.2013 19:32
Blés á laxarökin gegn virkjunum í Þjórsá Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, greinir frá því í bók sinni, Ári drekans, að hann blási á "laxarökin“ sem síðasta ríkisstjórn notaði til að salta Þjórsárvirkjanir. 30.12.2013 18:47
Lögreglan lýsir eftir þrítugum karlmanni Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Arnari Óla Bjarnasyni. Arnar Óli er þrítugur að aldri, 171 cm að hæð og ca 85 kg. 30.12.2013 17:16
Segir Gylfa fara með fleipur og ósannindi Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar, fer hörðum orðum um Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, í pistli á vef stéttafélagsins. 30.12.2013 17:00
Ríkisborgararéttur í USA fyrir 60 milljónir Pétur Sigurðsson fasteignasali undir smásjánni hjá bandaríska sendiráðinu. 30.12.2013 16:59
Skilaréttartími alltof knappur Dæmi um að verslanir vilji aðeins borga útsöluverð fyrir vöru sem skipt er. 30.12.2013 16:01
Verð á rafmagni hækkar um 4,5 prósent í dreifbýli Samkvæmt nýrri gjaldskrá Rarik mun verð fyrir dreifingu og flutning raforku hækka að meðaltali um rúm tvö prósent. Í drebýli er hækkunin um 4,5 prósent að jafnaði. 30.12.2013 15:39
Safna Pez-körlum fyrir einhverfan dreng Pez-safn Hilmars Geirs Ingibjargarsonar týndist í flutningum eftir bruna. Hilmar er einhverfur og hefur fengið ótrúleg viðbrögð við söfnuninni. Drengur frá Selfossi sem er í hjólastól kom færandi hendi. 30.12.2013 15:07
Makrílungviði klekst út og elst upp við Ísland Niðurstöður Hafrannsóknastofnunnar og Háskóla Íslands gefa fyrstu vísbendinguna um að makríll hafi klakst út og alist upp við strendur Íslands. 30.12.2013 14:45
Börnin grátbáðu feður sína að hætta Fyrrverandi lögregluþjónn skrifar um átakanlega upplifun sína af áfengisneyslu foreldra fyrir framan börnin sín. 30.12.2013 14:33
Var Ben Stiller toppurinn? Dægurmál og pólitík eiga ekki að vera aðskildir hlutir, segir Bergur Ebbi Benediktsson sem hér lítur um öxl og rifjar upp árið þegar venjulegt fólk fékk aftur áhuga á pólitík. Hann veltir því einnig fyrir sér hvort hægt væri að búa til hugtakið "Peak-Iceland". 30.12.2013 14:30
Karlmaður á fimmtugsaldri réðst á konu Ein líkamsárás var kærð til lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir skemmtanahald helgarinnar. 30.12.2013 13:49
Ekki farið á svig við lög með sölu á þriðjungs hlut í HS veitum Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar segir fráleitt að farið sé á svig með lög með hluthafasamkomulagi sem gert verði samhliða sölu á um þriðjungs hlut í HS veitum. 30.12.2013 13:27
Handtekin fyrir vörslu kannabis, amfetamíns og LSD Tvö fíkniefnamál hafa komið til kasta lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. 30.12.2013 13:25
Stefna ótrauðir á þátttöku þrátt fyrir hryðjuverkaárásir Framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir að það hafi ekki komið til tals að hætta við þátttöku á vetrarólympíuleikunum í Rússlandi í febrúar þrátt fyrir ítrekaðar hryðjuverkárásir þar í landi. 30.12.2013 12:29
Pókerstarfsemi grasserar á Íslandi Pókerklúbbar eru starfræktir hér á landi, en samkvæmt lögum er óheimilt fyrir þriðja aðila að hagnast á fjárhættuspili. 30.12.2013 12:22
Hafna sjálfstæðu gjaldi á ferðamenn Sjálfstæðismenn í Rangárþingi eystra vilja strax hefja undirbúning að gjaldtöku við ferðamannastaði eins og Skógafoss og Seljalandsfoss. Meirihluti Framsóknarflokks í sveitarstjórninni ákvað þó að bíða tillagna frá atvinnuvegaráðherra. 30.12.2013 10:15
Konunni haldið sofandi Ástand konunnar sem slasaðist alvarlega í árekstri tveggja bíla á Hellisheiði á fjórða tímanum í gær er óbreytt. Henni er haldið sofandi í öndunarvél að sögn vakthafandi læknis á Landspítalanum. Slysið varð með þeim hættti að tveir fólksbílar, sem voru að koma úr gagnstæðri átt, skullu saman. Í öðrum bílnum voru tveir farþegar með ökumanni, og voru meiðsl þeirra ekki talin alvarleg. Í hinum bílnum var konan ein á ferð, og er hún alvarlega slösuð. 30.12.2013 08:21