Skilaréttartími alltof knappur Jakob Bjarnar skrifar 30. desember 2013 16:01 Kristín Einarsdóttir. Nú er sá tími ársins sem flestir vilja skila vöru en það getur reynst hægara sagt en gert.
Margur fékk of þrönga flík í jólagjöf eða bara eitthvað sem þann langar ekkert í. Og þá er að skipta. Neytendasamtökin segja að skilaréttur sé í mörgum tilfellum alltof knappur tími og gengur á ýmsu. Nú er sá tími eftir mesta verslunartíma ársins. Kristín Einarsdóttir starfar hjá Neytendasamtökunum en þau eru nú að vinna úr ýmsum erindum sem snúa að skilarétti. „Í flestum tilfellum er skilafrestur til 31. Desember og í jafnvel skemur. Við teljum það ansi knappt,“ segir Kristín. „En, seljendur ráða því sjálfir hvaða skilarétt þeir hafa. Það eru ekki til lög um skilarétt.“ Langflestar verslanir skipta þó vörum eða gefa út inneignarnótur en mjög sjaldgæft er að hægt sé að fara fram á endurgreiðslu. Reglur um skilarétt eru ekki skýrar af hálfu verslana, það er upp og ofan hvaða hátt verslunareigendur hafi á því en til eru leiðbeinandi reglur sem margar verslanir fara reyndar eftir. Útsölur sem hefjast strax að lokinni jólaverslun eru svo til að flækja málin. „Já, það flækir ansi mikið málið. Þess vegna finnst okkur þessi tími, þessi skilaréttartími, svo knappur. Við myndum vilja sjá það þannig að skilaréttur væri einhver x-tími og útsölur myndu ekki hefjast fyrr en að þeim tíma loknum.“ Og, það eru einmitt helst mál af þessum toga sem eru helst nú á borði Kristínar. „Sumir hafa endurgreitt, ekkert margar verslanir sem gera það reyndar. Fólki finnst að það ætti að geta fengið vöruna jafnvel endurgreidda. Við erum að fá talsvert um það að útsölur séu hafnar. Og viðkomandi er að skila vörunni og seljandinn vill eingöngu gefa innleggsnótu fyrir útsöluverðinu,“ segir Kristín Einarsdóttir hjá Neytendasamtökunum.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira