Innlent

Segir Gylfa fara með fleipur og ósannindi

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Framsyn.is
„Hvað fær forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörnsson, til að fara með fleipur og ósannindi?“ spyr Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður stéttarfélagsins Framsýnar. Aðalsteinn birti í dag pistil á heimasíðu félagsins undir fyrirsögninni „Hvað gengur forsetanum til?

Aðalsteinn vandar Gylfa ekki kveðjurnar og gerir athugasemdir við ummæli Gylfa í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Einnig gerir hann sérstakar athugasemdir við tvö atriði fyrir utan skattatillögur og ummæla forsetans.

Annars vegar gerir Aðalsteinn athugasemd við ummæli Gylfa um að forsvarsmenn fimm stéttarfélaga hafi í nóvember vitað í hvað stefndi. Hins vegar gerir hann athugasemd við ummæli Gylfa um að kröfugerð Starfsgreinasambandsins hefði gefið honum sjálfum mun meira en sú leið sem farin var.

Aðalsteinn fer fögrum orðum um Grétar Þorsteinsson, fyrrverandi forseta ASÍ, og segir hann hafa alltaf reynt að leiða saman fólk með ólíkar skoðanir.

„Það sama verður ekki sagt um núverandi forseta sem notar hvert tækifæri til að skvetta bensíni á eldinn, helst tvöföldum skammti svo logi glatt í hreyfingunni. Ég skora á forsetann að hætta þessu þegar í stað og hlusta á raddir fólksins í landinu í stað þess að leiða umræðuna um niðurrif hreyfingarinnar og máttleysi hennar.“

„Við byggjum best upp sterka keðju fólks til góðra verka í framtíðinni með því að fylgja eftir skoðunum okkar umbjóðenda. Til þess vorum við kjörin til forystu og eigum því ekki að eyða tímanum í að karpa innbyrðis þar sem það er ekki vænlegt til árangurs,“ segir Aðalsteinn.

Allan pistilinn er hægt að lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×