Biðja Bjarna Ben afsökunar Stefán Árni Pálsson skrifar 31. desember 2013 12:49 Pedro Noel og Santiago Carrion hafa beðið fjármálaráðherra afsökunar. mynd / samsett, daníel
Fram kom í fjölmiðlum í vikunni að uppljóstrunarsamtökin Associated Whistle-Blowing Press hefði birt gögn úr Glitni frá því rétt fyrir hrun. Á síðunni er sagt að skjölin geymi upplýsingar um stærstu lántakendur bankans, hagsmunaaðila og hreyfingu á hlutabréfum árin 2007 og 2008. Í einu skjalanna er sagt að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi fengið tæpa 6 milljarða að láni hjá bankanum en ekki 174 milljónir eins og fram kom í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis árið 2010. Uppljóstrunarsamtökin hafa nú beðið fjármálaráðherra afsökunar í yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu þeirra en hana má lesa hér að neðan: Í kjölfar umræðu um leka og birtingu gagna er tengjast Glitni viljum við koma eftirfarandi á framfæri. Á bak við ljost.is erum við tveir, Pedro Noel og Santiago Carrion. Markmið okkar er að færa Íslandi öruggt verkfæri fyrir uppljóstrara til að miðla gögnum er eiga erindi til almennings, í anda WikiLeaks, um það sem varðar íslenskt samfélag. Við höfum komið nokkrum sinnum til Íslands til að finna samstarfsaðila til að greina þau gögn sem gætu borist vefnum ljost.is. Það gekk heldur treglega. Loks fundum við virtan blaðamann til að fara yfir gögn sem bárust vefnum frá Glitni og ákváðum því að birta gögnin. Því miður var meinleg villa í samantekt okkar á gögnunum og viljum við biðja fjármálaráðherra Íslands velvirðingar á því. En við leggjum áherslu á að við birtum raungögnin til að reyndir blaðamenn sem kunna að rýna í gögn af þessu tagi geti metið hvort að í þeim sé að finna eitthvað fréttnæmt. Kerfið er hannað til að vernda þá sem leka gögnum til okkar. Við getum ekki séð hver sendir okkur gögnin, en gerum samt alltaf nauðsynlegar meta data hreinsanir á skjölum áður en þeim er dreift. Greining hjá Páli Hilmarssyni á gogn.in er byggð á misskilning og vanþekkingu á verkferlum okkar. En meintur skjalahöfundur er ekki heimildarmaður heldur nafn sem við settum sjálfir í skjalið. Aðgengi að frumgögnum gefur blaðamönnum og fræðimönnum tækifæri til að fá í hendurnar upplýsingar sem ekki var áður hægt að sannreyna. Það er afar mikilvægur liður í að búa í upplýstara og heilbrigðara samfélagi. Mikilvægi Glitni gagnanna er að þau staðfesta ýmsar sögur sem hafa verið í gangi. Þetta er að mörgu leiti sambærilegt því sem gerðist í kringum gögnin frá Bradley Manning sem innihéldu efni sem allir sögðust vita en enginn gat fengið staðfest fyrr en þau birtust svart á hvítu á vef WikiLeaks. Við viljum hvetja alla íslendinga sem vita af spillingu að standa með gildum sínum og senda okkur viðkomandi gögn, og hverjum alla blaðamenn og 'gagnasérfræðinga' sem hafa áhuga á að greina frumgögn að setja sig í samband við okkur. Leiðbeiningar um hvernig er best að vera með er hægt að finna á vefnum ljost.is. Þá viljum við þakka fyrir öll gögnin sem hafa borist okkur síðan Glitnir gögnin fóru í loftið.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira