Fleiri fréttir

Ferðakona sótt á Snók

Erlend ferðakona örmagnaðist þegar hún var á göngu á fjallinu Snóki í gærkvöldi, á gönguleiðinni frá Lómafirði til Hornbjargs.

Grunnur ógæfunnar er loforð um 90% lán

Ekki sér fyrir endann á milljarðatapi þjóðarinnar vegna Íbúðalánasjóðs. Halla tók undan fæti við efndir kosningaloforðs Framsóknarflokks frá 2003. Ekkert mark tekið á ráðleggingum færustu alþjóðlegu sérfræðinga. Ríkisendurskoðun var vanhæf.

Íbúðalánasjóði breytt í áhættusækinn útlánabanka

Rannsókn á málefnum Íbúðalánasjóðs leiddi í ljós margvísleg mistök í rekstri sjóðsins, sum alvarleg sem kostað hafa þjóðina milljarða króna og í raun er ekki séð fyrir endann á þeim kostnaði. Ein veigamesta og afrifaríkasta ákvörðunin sem gerð var á þessu tímabili var niðurlagning húsabréfakerfisins árið 2004 og sú ákvörðun að hækka hámarkslánsfjárhæð og veðhlutfall lána sjóðsins, en það hækkaði úr 65% í 90%. Þetta var í raun pólitísk ákvörðun tekin af þáverandi ríkisstjórn.

"Menn verða að vanda sig en ekki ana áfram"

Lærdómurinn af skýrslunni um Íbúðarlánasjóð er að menn verða að vanda sig en ekki ana áfram. Þetta kom fram í máli skýrsluhöfunda í dag. Á fundinum kom einnig fram að skýrsluhöfundum er ekki kunnugt um að markvissar breytingar hafi verið gerðar innan Íbúaðarlánasjóðs til að bregðast við því sem miður fór.

Íslenskt lag í So You Think You Can Dance

Lagið Old Skin með Ólafi Arnalds og Arnóri Dan verður flutt í dansþættinum So You Think You Can Dance í Kaliforníu í nótt. Danshöfundurinn Danshöfundurinn Stacey Tookey valdi lagið og semur dansinn við það.

"Er djamm í kvöld?"

Þrír skemmtanaglaðir tölvunarfræðingar hafa hannað app fyrir snjallsíma, sem á að auðvelda fólki að skipuleggja djammið. Þetta er fyrsta íslenska samfélagsappið, en öpp á borð við facebook og instagram hafa notið gríðarlegra vinsælda.

Eldfimt ástand í Egyptalandi

Mohammed Morsi, forseti Egyptalands, hefur hafnað kröfum um að hann segi af sér. Stjórnarandstaðan styður ekki hugsanlega valdatöku hersins en hótar þó aðgerðum.

82 prósent vilja kjósa um ESB á næsta ári

Mikill meirihluti landsmanna vill að kosið verði um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samhliða sveitastjórnarkosningum á næsta ári. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Stöðvar tvö og Fréttablaðsins.

Kærleikur ríkir í Fjóluhvammi

"Fundurinn gekk mjög vel,“ segir Aðalheiður Bragadóttir, forstöðukona hjá Vinamótum, um fund með íbúum í Fjóluhvammi í Hafnarfirði um drengjaheimili í götunni.

Freyja greindi Ban Kin-moon frá vanefndum Íslands gagnvart fötluðu fólki

"Á fundi með Ban Ki-moon bar ég upp áhyggjur mínar af því að að liðin séu sex ár frá því að Ísland undirritaði samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og valfrjálsa bókun hans en hefur ekki fullgilt hann,“ sagði Freyja Haraldsdóttir á Alþingi í dag.

Amen eftir efninu á Alþingi

Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins undrast andstöðu Samfylkingarinnar og Vinstri grænna við ósk formanna stjórnarflokkanna um frestun á þingfundum um þrjár vikur í haust vegna þess að ekki hafi unnist tími til fjárlagagerðar og tekjufrumvörpum í tengslum við fjárlögin.

Baðst afsökunar á gallabuxunum

Elín Hirst, þingkona Sjálftæðisflokksins, baðst afsökunar á klæðaburði sínum í upphafi þingfundar á Alþingi í dag og lofaði að fara heim að skipta um föt.

Töluvert meiri umferð um hringveginn

Umferð um hringveginn í júní jókst töluvert milli ára og hefur umferðin aukist alla mánuði ársins að apríl undanskildum samkvæmt samantekt Vegagerðarinnar.

Flugvöllurinn og hlýnun jarðar

Hlýnun jarðar og fyrirséð hækkun sjávarborðs eru Páli Bergþórssyni, veðurfræðingi og fyrrverandi forstjóra Veðurstofunnar, hugleikin í færslu sem hann ritar á Facebook. Fyrirséð er að til aldamóta megi gera ráð fyrir að sjávarstaða hækki um einn til tvo metra í Reykjavík.

Hestarnir fældust ekki við bílflautið

Ökumaður, sem var sagður hafa flautað á hóp barna sem voru í reiðtúr á Kjóavöllum í Garðabæ um miðjan síðasta mánuð með þeim afleiðingum að hestarnir fældust og fimm ára piltur hlaut innvortis blæðingar, verður ekki kærður fyrir atvikið. Lögreglan í Hafnarfirði segir að flautið hafi komið töluvert seinna, eftir að hestarnir fældust.

Vel tekið á móti Ban Ki-moon á Alþingi

Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er í sinni fyrstu opinberu heimsókn til Íslands. Mikil viðhöfn er í kringum heimsóknina sem hófst á fundi með Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra.

Segir hugmyndir um frestun sérkennilegar

Formaður Vinstri grænna segir hugmyndir forstætisráðherra og fjármálaráðherra um að fresta þingi í haust um þrjár vikur til að að ljúka gerð fjárlaga í tæka tíð, sérkennilegar og að flokknum lítist ekki vel á hugmyndina.

Melódíusafnið til sölu en bara fyrir sérfróða

Eigandi tónlistarsafnsins Melódíur minninganna á Bíldudal hyggst auglýsa safnið til sölu. Hann vill tryggja að það verði í öruggum höndum þegar hans nýtur ekki við. Sárnar að plakat frá Kristjáni Jóhannssyni komist ekki upp vegna plássleysis.

Ban Ki-moon mættur

Opinber heimsókn Ban Ki-moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, hófst formlega fyrir stundu þegar hann mætti í utanríkisráðuneytið á fund Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkisráðherra.

Hætt að greiða ljósmæðranemum laun á Landspítala

Landspítalinn hyggst hætta að greiða hjúkrunarfræðingum í ljósmóðurfræðinámi laun á meðan þeir eru í starfsnámi. Námsbrautarstjóri segir ósamræmi hjá Landspítala í launagreiðslum vegna starfsnáms.

Ganga ekki hart á eftir skýringum foreldra

Miðlæg skrá um bólusetningar á Íslandi inniheldur ekki upplýsingar um ástæðu þess ef ekki er bólusett, en það er skylt samkvæmt 9. grein reglugerðar um bólusetningar.

Spánarsnigill fannst í Hveragerði

Hinn illvígi spánarsnigill hefur nú fundist í Hveragerði, en hann getur orðið allt að 15 sentímetra langur og eyrir engum gróðri.

Vatnsslagur Kópavogs og Reykjavíkur til dómstóla

Kópavogsbær neitar að hleypa Reykvíkingum í borholur á Vatnsendasvæðinu. Þar óttast menn að Orkuveitan gangi um of á vatnsbólið. Borgarlögmaður sakar Kópavogsbæ um samningsbrot og hefur höfðað dómsmál.

Flestir ánægðir með Sigmund í embætti

Tvöfalt fleiri aðspurðra í skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins eru ánægðir en óánægðir með störf Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem forsætisráðherra.

Sjálfvirkt neyðarkall í alla bíla

Haustið 2015 á að vera skylt að hafa í bílum búnað sem kallar sjálfvirkt á aðstoð í alvarlegum slysum. Framkvæmdastjórn ESB vill lögfesta ákvæði um búnaðinn sem gildi í löndum EES. Hér fara prófanir í gang í haust.

Efla nám og rannsóknir á sviði endurnýjanlegra orkugjafa

Landsvirkjun hefur samið við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík um að efla nám og rannsóknir á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Með samstarfinu á að skapa sameiginlegt virði fyrir Landsvirkjun, háskólana og íslenskt samfélag með stuðningi við þau fræðisvið sem þörf er á námi og rannsóknum

Halda meirihlutanum í gíslingu með málþófi

Píratar hafa boðað málþóf til að tryggja að lög um veiðigjald verði ekki samþykkt af handhöfum forsetavalds á meðan hann er erlendis. Forsetinn er nú kominn til landsins.

Framþróun í veggjalistaverkum borgarinnar

Mikil þróun hefur verið í veggjalist, sem sumir kalla reyndar veggjakrot, á höfuðborgarsvæðinu undanfarna mánuði að sögn myndlistamannsins Söru Riel sem á mörg af þekktstu verknum sem prýða höfuðborgina. Vinnu sína og efni í verkin hefur hún oftast gefið og fengið leyfi frá eigendum húsanna til að setja þau upp enda væri víst ekki annað hægt því mörg þeirra tók mjög langan tíma að vinna að og undirbúa.

"Ég vil alla vega ekki að dóttir mín leiki sér með svona!"

Mygla í baðleikföngum hefur vakið óhug foreldra og segir móðir úr Mosfellsbænum marga hafa hent dóti barna sinna í kjölfar myndbirtinga af slíkri myglu síðustu daga. Barnalæknir segir mygluna ógeðfellda en telur ekkert að óttast.

Vilja fresta þingi í haust vegna fjárlagagerðar

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra óskuðu eftir því á fundi með oddvitum stjórnarandstöðuflokkanna að þingi yrði frestað í haust um þrjár vikur. Ástæðan er sú að ríkisstjórnin telur að ekki takist að ljúka gerð fjárlaga í tæka tíð.

Utanríkisráðherra vill vita hvort Bandaríkjamenn hafi njósnað um Íslendinga

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að ef Bandaríkin eða önnur ríki stunduðu njósnir í bandalagsríkjum sínum í Evrópu væri barnalegt að ætla að Ísland væri þar undanskilið. En íslensk stjórnvöld hefðu krafði Bandaríkjamenn svara um það hvort þeir hefðu stundað njósnir á Íslandi.

Sjá næstu 50 fréttir