Baðst afsökunar á gallabuxunum Heimir Már Pétursson skrifar 2. júlí 2013 14:29 Elín Hirst, þingkona Sjálftæðisflokksins, baðst afsökunar á klæðaburði sínum í upphafi þingfundar á Alþingi í dag og lofaði að fara heim að skipta um föt. Mynd/Valli
Elín Hirst, þingkona Sjálftæðisflokksins, baðst afsökunar á klæðaburði sínum í upphafi þingfundar á Alþingi í dag og lofaði að fara heim að skipta um föt. „Virðulegi forseti, ég þakka kærlega fyrir að þú skulir gefa mér leyfi til að stíga hér í ræðustól, þrátt fyrir að ég klæðist buxum sem gætu talist gallabuxur. Ég mun að sjálfsögðu hlíta þeim góðlátlega tilmælum sem til mín hafa verið beint, að fara heim og skipta um og mun ég gera það strax að þessari ræðu lokinni. Enda er mér ekkert eins hugleikið og virðing hins háa Alþingis,“ sagði Elín. Elín ræddi stöðu skólakerfisins í ljósi nýlegrar skýrslu OECD þar sem fram kemur að Íslendingar útskrifast seinna bæði úr grunn- og framhaldsskólum en nemendur annarra OECD ríkja og Íslendingar einir eyddu meira fé á hvern grunnskólanema en hvern háskólanema. Elín sagði nauðsynlegt að efla íslenska skólakerfið. „Og að mínum dómi er allt undir; grunnskólar, framhaldsskólar og öll önnur menntun - ekki bara í dæmigerðum háskólagreinum. Heldur tel ég æðri menntun ekki síður vera í iðnskólum, sjómannaskólum, fiskvinnsluskólum og svo framvegis.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira