Flestir ánægðir með störf forsætisráðherra 2. júlí 2013 15:00 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Könnun Landsmenn virðast almennt ánægðir með störf Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var fyrir helgi. Um 44 prósentum þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni fannst Sigmundur Davíð hafa staðið sig mjög eða frekar vel í embætti forsætisráðherra, þar af 12,1 prósenti mjög vel. Þriðjungi landsmanna, 33,4 prósentum, þykir hann hvorki hafa staðið sig vel né illa. Alls sögðust 22,5 prósent telja Sigmund Davíð hafa staðið sig mjög eða frekar illa í starfi, þar af 8,8 prósent mjög illa. Mikill meirihluti stuðningsmanna Framsóknarflokksins, 76,3 prósent, segist ánægður með störf Sigmundar Davíðs. Svipað hlutfall Sjálfstæðisfólks, 75 prósent, er sömu skoðunar. Innan við fimm prósent stuðningsmanna stjórnarflokkanna tveggja telja Sigmund Davíð hafa staðið sig illa. Staðan er heldur önnur hjá stuðningsmönnum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Aðeins um þrettán prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar og fimmtán prósent kjósenda Vinstri grænna telja Sigmund Davíð hafa staðið sig vel í embætti forsætisráðherra. Stuðningsmenn Pírata eru heldur ánægðari með forsætisráðherrann, 24 prósent þeirra telja hann hafa staðið sig vel. Sömu skoðunar er þriðjungur þeirra sem kjósa myndu Bjarta framtíð yrði gengið til kosninga nú. Karlmenn eru almennt ánægðari með Sigmund Davíð en konur. Tæp 49 prósent karla telja hann hafa staðið sig vel í starfi samanborið við tæp fjörutíu prósent kvenna. Lítill munur er á afstöðu fólks til starfa Sigmundar Davíðs eftir búsetu, en íbúar landsbyggðarinnar eru almennt heldur jákvæðari í garð Sigmundar en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Hringt var í 1.077 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 23. maí og fimmtudaginn 24. maí. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hversu vel eða illa finnst þér Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa staðið sig í embætti forsætisráðherra? Alls tók 91 prósent afstöðu til spurningarinnar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira