Óvenjulegan feng rekur á fjörur fisksala Jakob Bjarnar skrifar 2. júlí 2013 21:13 Kristján Berg - fiskikóngurinn hefur í sinni vörslu fjórar fullorðinsmyndir. „
Margt furðulegt hefur gerst í fiskbúðinni en þetta er það furðulegasta,“ segir Kristján Berg sem betur er þekktur sem Fiskikóngurinn. Á Facebooksíðu sinni hefur Fiskikóngurinn birt mynd og greinir frá því að fjögur eintök „fullorðinsmynda“ hafi tapast á bílaplaninu fyrir framan fiskverslunina. „Sá/sú sem á þetta getur vitjað myndanna á opnunartíma. Væri best að koma sem fyrst, þannig að við þurfum ekki að geyma þetta lengi. Takk.“ Jafnframt segir í auglýsingunni, með kveðju frá starfsfólki Fiskikóngsins, að nauðsynlegt sé að sá sem komi og vitji myndanna geti sannað að hann sé réttur eigandi svo myndirnar lendi hjá réttum aðila. „Það kom eldri kona með þetta inn til okkar. Einhver hefur tapað þessu úti á bílaplani. Svo kíkti maður í pokann og fór hjá sér. Gömul kona með dónamyndir í poka. En hún lét sér hvergi bregða.“ Að sögn Fiskikóngsins er ómögulegt að segja til um hver eigi þessar DVD myndir, sem eru enn í plastinu, óuppteknar og ótextaðar. „Eins og heimurinn er í dag þá gætu þetta verið bæði kynin. Á einu hulstrinu eru tvær stúlkur að leik. Heimurinn er orðinn rugl og klámkynslóðin lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. En, þetta er í góðri vörslu hjá Fiskikóngnum,“ segir Fiskikóngurinn, fjallhress að vanda.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira