Innlent

"Mér finnst líklegra og líklegra að þetti endi í einhvers konar borgarastyrjöld."

Hrund Þórsdóttir. skrifar
Egypski herinn gaf í dag stríðandi fylkingum í landinu tvo sólarhringa til að leysa ágreiningsefni sín og í yfirlýsingu sem lesin var upp í sjónvarpi var farið fram á að komið yrði til móts við stjórnarandstæðinga sem krefjast þess að forsetinn Mohamed Morsi, segi af sér og að Bræðralag múslima hætti afskiptum af stjórnmálum. Þúsundir fögnuðu yfirlýsingunni á Tahrir torginu í Kaíró, en í dag er eitt ár liðið frá því að Morsi tók við embættinu.

Að minnsta kosti 16 manns hafa látist í mótmælum í Egyptalandi undanfarna daga og fréttir berast af uppþotum og ofbeldi víða um landið. Reiður múgur réðst í nótt inn í höfuðstöðvar Bræðralags múslima í Kaíró og gekk þar berserksgang.

Sverrir Agnarsson, formaður Félags múslima á Íslandi, segir mótmælin stafa af því að Egyptar séu óvanir lýðræðinu. „Ég á til dæmis mjög erfitt með að skilja af hverju stjórnarandstaðan getur ekki bara einbeitt sér að næstu kosningum sem væri hægt að halda eftir mánuð,“ segir Sverrir.

Hann segir stjórnarandstöðuna hafa bundist höndum við gömlu Mubarak öflin. Hún hafi sterk ítök í samfélaginu og nóg af erlendu fjármagni. Forsetinn eigi því óhægt um vik. „Fulool heita þessi öfl. Þeir ráða fyrirtækjunum, fjármagninu, bönkunum, stjórnsýslunni, stjórnlagadómstólnum og miðlunum. Hann er með allt þetta á móti sér svo það er kannski erfitt að fóta sig rétt.“

Sverrir segir minnihluta þjóðarinnar berjast gegn Morsi, en að hann sé hávær. „Mér finnst líklegra og líklegra að þetti endi í einhvers konar borgarastyrjöld og hvernig það endar veit enginn,“ segir Sverrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×