Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Árni Páll útilokar ekki samstarf við neinn Árni Páll Árnason, sem lýsti yfir framboði í formann Samfylkingarinnar í dag, segist ekki vilja útiloka ríkisstjórnarsamstarf með neinum flokki eftir næstu kosningar. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og fráfarandi formaður hafði hins vegar áður sagt að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að fá frí áfram frá ríkisstjórn. 3.10.2012 17:35
Líffæraþegar vilja áætlað samþykki um líffæragjafir Fjórir líffæraþegar hvetja þingheim til að samþykkja þingsályktunartillögu um áætlað samþykki við líffæragjafir. Kona sem hefur gengist undir tvær nýrnaígræðslur segir mikilvægt að muna að fólk sé á bak við tölur um bæði líffæragjafir og þega. 3.10.2012 19:26
Tæplega 300 hafa fengið nýtt líffæri á fjórum áratugum Tæplega þrjúhundruð Íslendingar hafa fengið nýtt líffæri frá því að líffæraígræðslur hófust fyrir rúmum fjórum áratugum. Sjötíu prósent líffæraþeganna er á lífi í dag. 3.10.2012 19:12
Heppinn Finni 300 milljónum ríkari Heppinn Finni var með allar tölur réttar í Víkingalottói í kvöld og hlaut hann ríflega 300 milljónir í sinn hlut. Lottótölurnar voru 9 12 24 31 34 47 og voru 10 17. Ofurtalan var : 10. 3.10.2012 18:58
Lögreglan lýsir eftir Emil Arnari Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir Emil Arnari Reynissyni 23 ára. Síðast er vitað um ferðir Emils í austurhluta Reykjavíkur á mánudaginn var. Hann er um 185 cm á hæð og nokkuð þéttvaxinn, ljóshærður og bláeygður. Emil var klæddur í ljósbleika skyrtu og bláar gallabuxur. Þeir sem geta gefið upplýsingar um verustað hans er bent á að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. 3.10.2012 16:55
Grettir eignast nýjan bíl Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi hefur eignast fullbúinn Ford F350 bíl. Brynjar Helgi Magnússon, formaður Grettis, segir á vef Slysavarnarfélagsins Landsbjargar segir að nýi bíllinn stykri björgunarsveitina til muna og geri henni mögulegt að taka þátt í vetrarverkefnum á hálendinu við verstu aðstæður. Bíllinn er búinn 49" dekkjum og öllum tilheyrandi búnaði og var honum breytt af Jeppaþjónustunni Breyti í Reykjavík sem hefur mikla sérþekkingu á breytingum á þessari bíltegund. 3.10.2012 16:38
Þór Saari þarf að greiða Ragnari Árna 300 þúsund Þór Saari hefur verið dæmdur til að greiða Ragnari Árnasyni 300 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem birtust í frétt DV þann 7. - 8. september í fyrra. Þá voru ummælin "Ragnar Árnason hefur verið á launum hjá LÍU í áratugi." Þór þarf að auki að greiða Ragnari 800 þúsund krónur í málskostnað. 3.10.2012 16:04
Árni Páll Árnason gefur kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, gefur kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar. Þetta segir hann í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum núna eftir hádegi. 3.10.2012 14:49
Seðlabankinn sýknaður af kröfum Más Seðlabanki Íslands var rétt í þessu sýknaður af kröfum Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Már stefndi bankanum því að hann taldi að breytingar hefðu verið gerðar á launakjörum sem hann hafði samið um þegar hann var skipaður seðlabankastjóri. Dómurinn var kveðinn upp núna klukkan hálfþrjú. 3.10.2012 14:35
Íslenska ríkið þarf að bregðast við kærum Erlu Lögmenn Erlu Hlynsdóttur fréttamanns hafa fengið bréf frá Mannréttindadómstól Evrópu vegna tveggja mála gegn íslenska ríkinu sem Erla hefur kært til dómstólsins. Annað málið snýst um dóm sem Erla hlaut eftir að Rúnar Þór Róbertsson, dæmdur fíkniefnasmyglari, var til umfjöllunar í grein Erlu í DV. Hitt málið snýst um mál sem Helga Haraldsdóttir, eiginkona Guðmundar Jónssonar í Byrginu, höfðaði gegn Erlu og endaði með dómi yfir Erlu í 3.10.2012 14:26
Kosið í Laugardalshöll frá 10. október Frá og með miðvikudeginum 10. október nk. flyst atkvæðagreiðsla utan kjörfundar frá skrifstofu sýslumannsins í Reykjavík og fer fram í Laugardalshöll. Opið verður í Laugardalshöll alla daga frá kl. 10:00 - 22:00 fram að kjördegi. Á kjördag verður opið frá kl. 10:00 - 17:00 fyrir þá kjósendur sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu. 3.10.2012 14:21
Teitur gefur kost á sér í fimmta sæti Teitur Björn Einarsson gefur kost á sér í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi prófkjöri. "Næstu alþingiskosningar eru þýðingarmiklar. Það er hægt að ná árangri við stjórn landsmálanna en til þess þarf að taka réttar ákvarðanir. Frjálslynt samfélag, virðing fyrir frelsi allra einstaklinga og festa í grunnskipan þjóðfélagsins - þessi gildi eru forsenda þess að okkur auðnist að nýta tækifærin sem við höfum til að efla atvinnulífið og þar með auka velferð. Ég vil leggja mitt af mörkum til að búa í haginn fyrir betra samfélag öllum til heilla og ég fylgi Sjálfstæðisflokknum að málum í þeirri vegferð," segir Teitur. 3.10.2012 13:58
Þrýst á Össur um formannsframboð Þrýst hefur verið á Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og þingmann Samfylkingarinnar að bjóða sig fram til formanns flokksins á landsfundi hans. Eins og kunnugt er ákvað Jóhanna á dögunum að draga sig í hlé þegar kemur að næsta landsfundi og hætta svo á þingi í næstu kosningum. 3.10.2012 13:17
Dæmdur fyrir fíkniefnabrot Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lögreglan fann rúmlega 300 grömm af marijúana á heimili hans í maí árið 2010. Maðurinn játaði sekt sína skýlaust en haldi hann skilorð í tvö ár skal fresta fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að þeim tíma liðnum. 3.10.2012 13:05
Ungt fólk borðar fisk sjaldnar - mikið kynslóðabil Hefð Íslendinga fyrir fisk- og lýsisneyslu hefur hnignað með nýjum kynslóðum samkvæmt lækni sem skrifar í Læknablaðið. Áhyggjuefni segir hjartalæknir. 3.10.2012 12:00
Segir rannsókn óumflýjanlega "Umfjöllun Kastljóss um skýrsludrög Ríkisendurskoðunar hafa vakið gríðarlega athygli sem vonlegt er. Upplýsingar sem lekið hafa út úr stofnuninni eru þess eðlis að óumflýjanlegt er að rannsaka málið allt, bæði það sem snýr að Ríkisendurskoðun og sömuleiðis og ekki síður hlut Fjársýslu ríkisins,“ skrifar Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og formaður fjárlaganefndar Alþingis á bloggið sit, um þann styr sem hefur staðið í kringum stofnanirnar eftir uppljóstrun Kastljóss á síðustu dögum. 3.10.2012 11:33
Vopnað rán í Mjóddinni Tveir menn í annarlegu ástandi réðust inn í Apótek í Mjóddinni á tíunda tímanum í morgun og stálu þaðan vörum. Þetta staðfestir lögreglan við Vísi. Samkvæmt fréttavef RÚV eru mennirnir grunaðir um að hafa stolið vörum úr fleiri verslunum í Mjóddinni. 3.10.2012 11:15
Dæmd fyrir skjalafals Þrítug kona frá Nígeríu var dæmd í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir skjalafals þegar hún framvísaði þremur fölsuðum skilríkjum á Keflavíkurflugvelli í byrjun september. Konan, sem þóttist vera frá Ítalíu, játaði skýlaust brot sitt. 3.10.2012 10:59
Snarpur skjálfti í Kötlu Snarpur jarðskjálfti, þrír komma tveir að stærð, varð í Kötlu klukka hálf níu í morgun. 3.10.2012 10:08
Óttast að kvótagróði gæti farið í fótboltafélög og dagblöð uppá landi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir hugsanlegt að auka varnir gegn atvinnumissi vegna kvótasölu úr strandbyggðum með því að taka upp sérstaka skírskotun til mikilvægis sjávarbyggða inn í samningsafstöðu Íslands þegar samningar hefjast um fiskveiðar í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þetta segir Össur í samtali við Eyjafréttir í tilefni af sölu útgerðarfyrirtækisins Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum til Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. 3.10.2012 08:00
Hafrannsóknarstofa leitar loðnu Skip Hafrannsóknastofnunar heldur í dag til loðnuleitar þar sem einkum verður leitað loðnu, sem á að koma inn í veiðarnar næsta haust. 3.10.2012 07:50
Tekist á um Umferðarmiðstöð Tekist var á um tillögu um kaup borgarinnar á Umferðarmiðstöðinni, í því skyni að flytja þangað aðal skiptistöð Strætó, á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi. 3.10.2012 07:08
Landbúnaðarstefnan óskilvirk Meirihluti styrkja til landbúnaðar á Íslandi er bundinn framleiðslumagni og því markaðstruflandi, að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Í nýlegri skýrslu stofnunarinnar um stuðning við landbúnað í aðildarríkjunum segir að 70% af landbúnaðarstyrkjum á Íslandi séu af þessum toga, þótt beingreiðslur í sauðfjárbúskap og kvótakerfið í mjólkurframleiðslu séu til bóta. 3.10.2012 07:00
Tugmilljóna sektir vegna trassaskapar Dagsektir eru nú lagðar á sex hús í Reykjavík samkvæmt yfirliti sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík gerði fyrir skipulagsráð borgarinnar og var kynnt ráðinu á fundi á mánudag. Ákvörðun hefur verið tekin um beitingu dagsekta vegna þriggja húsa til viðbótar. 3.10.2012 06:00
Tíu skiluðu á réttum tíma Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa tekið sig á í skilum ársreikninga sinna til Ríkisendurskoðunar. Í gær sendi Ríkisendurskoðun frá sér tilkynningu um að tíu stjórnmálasamtök hefðu skilað ársreikningum fyrir árið 2011 áður en skilafrestur rann út nú um mánaðamótin. 3.10.2012 06:00
Færri óku bíl í síðasta mánuði Umferðin á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman í september miðað við sama tíma í fyrra, eða um 0,9 prósent. Þó hefur umferðin aukist frá áramótum innan svæðisins, eða um 1,1 prósent. Mest jókst hún í júlí, um 7,7 prósent, er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Það gæti bent til þess að höfuðborgarbúar hafi farið minna út á land þetta sumarið, enda dróst umferðin um hringveginn saman um 2,5 prósent þann mánuð.- sv 3.10.2012 04:00
Fyrst kuldar og svo hlýnar á ný Liðsmenn Veðurklúbbsins á Dalvík funduðu í síðustu viku til að spá í spilin varðandi veðrið fram undan. Að því er kemur fram á vef Dalvíkurbyggðar var farið yfir tunglkomur og fyllingar og þá staðreynd að nýtt tungl kviknar mánudaginn 15. október. „Mánudagstungl geta vitað á mjög góða tíð og eins slæma þannig að grípa þurfti til annarra veðurteikna til að ráða fram úr veðurhorfum í október. Eftir nokkrar vísbendingar varð niðurstaðan sú að spá því að í byrjun mánaðar yrði tíð fremur köld og lítils háttar snjókoma. Eftir stutt kuldakast er reiknað með að dragi til suðlægra átta og að seinni hluti mánaðarins verði mildur og með þægilegu haustveðri,“ segir á Dalvi 3.10.2012 03:00
Fádæma úrkomusöm haustbyrjun Síðasti mánuður var úrkomusamasti september víða á Norðurlandi síðan mælingar hófust. Fádæma úrkomusamt var víða um landið norðanvert og úrkoma var vel ofan meðallags á flestum stöðvum, er fram kemur í samantekt Veðurstofu Íslands á tíðarfari septembermánaðar. 3.10.2012 02:00
Dýrt að skulda skatt Það er alltaf dýrt að vera í vanskilum, segir tollstjóri, sem ráðleggur engum að gera samkomulag um greiðsluáætlun við embættið ef hann getur á annað borð staðið skil á skattgreiðslum – sérstaklega vörslusköttum. 3.10.2012 01:00
Segir mistök að hafa ákært Geir Haarde einan Það voru mistök að ákæra Geir Haarde einan, í stað þess að ákæra líka Björgvin G. Sigurðsson, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Árna Mathiesen. Þetta segir Pieter Omtzigt, sem lagði fram minnisblað í laganefnd Evrópuráðsþingsins, í dag. Omtzigt hefur skoðað réttarhöldin um nokkurra mánaða skeið og kom meðal annars hingað til lands í vor vegna þess. Meginniðurstaða hans er sú að ekki hafi átt að sækja Geir til saka. Hann hefði átt að sæta annarskonar ábyrgð. 2.10.2012 21:16
Þungavigtamenn funduðu um aðildarviðræður að ESB Fyrrverandi ráðherrar og þingmenn úr flestum flokkum og forkólfar í viðskiptalífinu fyrr og nú komu saman á fundi á hótel Hilton Nordica í dag. Fólkið á það sameiginlegt að hafa lengi talað fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu og á fundinum var samþykkt áskorun, meðal annars þess efnis að ekki verði hætt við aðildarviðræðurnar. 2.10.2012 20:09
Gagnrýnir harðlega ákvörðun um kaup á Umferðarmiðstöðinni Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir harðlega ákvörðun borgaryfirvalda um að kaupa Umferðarmiðstöðina við Vatnsmýrarveg og svæðið í kring fyrir 445 milljónir króna. Eins og fram kom í síðustu viku stendur til að flytja þangað aðalskiptistöð Strætó og hafa þar miðstöð almenningssamgangna. Umræða um málið fór fram á borgarstjórnarfundi í dag. 2.10.2012 19:59
Kári: Íslensk heilbrigðisþjónusta verri en í nágrannaríkjunum Íslensk heilbrigðisþjónusta er langtum verri en í nágrannaríkjum okkar, segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. 2.10.2012 18:12
Ríkisstjórnarflokkarnir tapa fylgi - Um 70% taka afstöðu til flokka Ríkisstjórnarflokkarnir tapa fylgi samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup en Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig og mælist stærsti flokkurinn. Enginn flokkanna, sem bjóða fram í fyrsta skipti, nær manni inn á þing en lítið vantar uppá hjá Bjartri framtíð. Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup sem RÚV vísar til. 2.10.2012 18:55
Festi höndina í fiskvinnsluvél Karlmaður fór með aðra höndina í fiskvinnsluvél í fiskvinnslu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá slysadeild nú síðdegis var maðurinn með töluverð meiðsl á hendi, en hann hafði verið sendur af slysadeildinni og yfir á bæklunardeild. 2.10.2012 18:31
Býst við miklum athugasemdum við minnisblaði um Geirs-málið Miklar athugasemdir eiga eftir að koma fram við minnisblað sem lagt var fyrir laganefnd Evrópuráðsþingsins, segir Þuríður Backmann formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins í samtali við Vísi. Í minnisblaðinu segir að með því að draga Geir fyrir dómstóla sé pólitískt andrúmsloft eitrað án þess að reynt sé að fá réttlætinu fullnægt. ,,Þetta er vissulega aðeins minnisblað sem á eftir að koma fram í skýrslunni þegar hún birtist í heild sinni. En miðað við viðbrögðin sem hún fékk í gær býst ég við að sjá miklar athugasemdir við skýrsluna. Fyrst og fremst þá fullyrðingu að aðskilja eigi stjórnmál og brot á löggjöf sem hægt er að vísa yfir á almenn sakamál. Þessa þætti þarf alvarlega að skoða. Það er jafnframt fráleitt að fela hægri þingmanni að fjalla um og skrifa skýrslu um hægri stjórnmálamann." Þuríður segir þetta þá helstu þætti sem fengu hvað harðasta gagnrýni og það verði spennandi að fylgjast með framhaldinu. 2.10.2012 17:14
1700 stöðvaðir í umferðarátaki Rúmlega sautján hundruð ökumenn hafa verið stöðvaðir í Reykjavík undanfarna daga í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Sextán þeirra reyndust undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tíu til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. 2.10.2012 17:04
Strætóbílstjóri sakaður um glæfraakstur - Börn á slysadeild Það ræðst í dag hvort óskað verður lögreglurannsóknar á meintum glæfraakstri strætóbílstjóra í gær, þar sem fimm leikskólabörn meiddust og gera þurfti að meiðslum tveggja þeirra á slysadeild. 2.10.2012 16:47
Tíu stjórnmálasamtök skiluðu ársreikningi á réttum tíma 10 stjórnmálasamtök höfðu skilað ársreikningum sínum fyrir árið 2011 til Ríkisendurskoðunar þegar lögbundinn skilafrestur rann út hinn 1. október síðastliðinn. Þetta kemur fram á vef Ríkisendurskoðanda. 2.10.2012 16:29
Hótaði starfsmanni með sprautunál Rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir rán sem hann framdi í verslun N1 við Stórahjalla í Kópavogi í árslok 2010. Maðurinn hafði hulið andlit sitt og var vopnaður sprautunál sem hann hótaði starfsmanni verslunarinnar með. Þegar starfsmaðurinn varð ekki við ósk mannsins um að hann afhenti sér peninga stökk hann yfir afgreiðsluborðið og tók talsvert magn af peningum úr peningaskúffu sem stóð opin á borði í afgreiðslunni, eða því sem nemur 142.000 krónum. Málið var þingfest í Hérðasdómi Reykjarness í dag. 2.10.2012 16:21
Samþykkja að auka aðgang íbúa að fjárhagsupplýsingum Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aukið aðgengi íbúa að fjármálum borgarinnar á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag. Samkvæmt tillögunni verða upplýsingar um allar kostnaðargreiðslur borgarinnar gerðar almenningi tiltækar með rafrænum hætti á netinu. Borgarráði verður falið að skipa starfshóp til að vinna að málinu og skila tillögum um hvernig staðið verði að slíku verkefni fyrir 15. mars næstkomandi. 2.10.2012 16:12
Ein hópuppsögn í síðasta mánuði - 31 fengu að fjúka Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í september þar sem 31 var sagt upp í samgöngum og flutningum. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. 2.10.2012 16:06
Ys og þys við lokun Europris Viðbrögðin við rýmingarsölu Europris verslananna létu ekki á sér standa en framkvæmdastjórinn Matthías Sigurðsson sagði í samtali við Vísi rétt í þessu að sala gengi vonum framar og það væri sannarlega nóg að gera. En eins og greint var frá í morgun fengu allir starfsmenn Europris uppsagnarbréf um mánaðarmótin og verður verslununum lokað af afstöðnum rýmingarsölum sem hófust í dag. Sjálfur sagði Matthías það blendna tilfinningu að segja skilið við reksturinn enda hefði hann byggt upp þetta verkefni í tíu ár og sárt að þessi staða hefði þurft að koma upp. ,,Það á svo alveg eftir að koma í ljós hvað ég fer að gera næst, nú gengur bara fyrir að klára þetta verkefni." Formaður VR, Stefán Einar Stefánsson, segist nú þegar vera í góðum samskiptum við starfsfólk Europris, sem situr nú eftir atvinnulaust. Stefán telur þetta jafnframt vera mikið áfall fyrir alla. ,,Það er ákaflega erfitt að setja sig í spor þeirra sem misstu vinnuna svo snögglega. Við höfum fylgst náið með gangi mála en til stendur að funda með starfsfólkinu þar sem farið verður yfir stöðuna. Eins munum við aðstoða starfsfólkið við alla faglega ráðgjöf og tryggja að meðferð mála þeirra sé réttmæt. Við munum vísa til ráðgjafa, náms og vinnumálastofnana og tryggja að fólkið komist aftur til starfa sem og fái alla ráðgjöf varðandi atvinnuleysisbætur og slíkt. Þannig reynum við að stýra fólki í gegn með markvissum hætti og koma í vef fyrir óþarfa skakkaföll. Álagið er nóg nú þegar." 2.10.2012 15:28
Slasaðist á leiðinni til læknis - ríkið ber skaðabótaábyrgð Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi konu á sjötugsaldri í vil í morgun en hún höfðaði mál gegn Ríkissjóði Íslands eftir að hún rann til í bleytu á Landspítalanum við Hringbraut árið 2008. Konan var á leiðinni í læknismeðferð þegar hún rann til. Ekki greint á um meiðsl konunnar, sem hlaut samfallsbrot um miðbik brjósthryggjar og féllu tveir hryggjarliðir saman. Konan var lögð inn á spítalann til verkjastillingar og þar lá hún í sex daga. 2.10.2012 14:50
Réðst á tvo lögreglumenn sömu nóttina Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að ráðast á lögreglumenn. Annar maðurinn, karlmaður á þrítugsaldri, réðst á lögreglumann við lögreglustöðinni á Selfossi og veitti honum ítrekuð hnefahögg í andlit og höfuð. Við atlöguna nefbrotnaði lögreglumaðurinn, hlaut bólgu og mar á vinstra eyra og kúlu hægra megin á hnakka. Seinna sömu nótt réðst maðurinn aftur að öðrum lögreglumanni sem sinnti skyldustörfum í fangaklefanum þar sem maðurinn var vistaður og veittist að honum, meðal annars með hnefahöggi og hnéspörkum í andlit lögreglumanns. Seinni ákæran beinist að karlmanni á fertugsaldri en hann veittist að lögreglumönnum á heimili sínu í Hafnafirði snemma á þessu ári. Hann er sakaður um að hafa haft í hótunum við lögreglumennina og gripið í fingur hægri handar annars lögreglumannsins, haldið fast og rykkt hendinni ítrekað til, með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut tognun á vísifingri og löngutöng hægri handar. 2.10.2012 14:43