Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jón Gnarr skálaði við eldri borgara - Mojito spilaði fyrir dansi Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Hrafnistu, skáluðu í bjór þegar nýr salur dvalarheimilis aldraðra, Hrafnistu Reykjavíkur, var vígður í dag. 6.9.2012 14:31
Þriggja ára fangelsi fyrir hrottalega árás í Breiðholti Mennirnir sem réðust á mann á sjötugsaldri í Breiðholti í júlí og héldu honum klukkutímum saman á hemili hans og hótuðu honum ofbeldi voru dæmdir í fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Annar þeirra, Daniel Arciszewski, var dæmdur í þriggja ára fangelsi en hinn, Snorri Sturluson, í tveggja ára fangelsi. Mennirnir voru ákærðir fyrir að beita manninn ofbeldi og meiða hann. Þeir neyddu hann líka til að millifæra hundruð þúsunda á bankareikning sinn. 6.9.2012 13:39
Amazon kynnir nýja vörulínu í dag Vefverslunarrisinn Amazon mun svipta hulunni af nýrri vörulínu í dag. Fyrirtækið mun kynna nýjar útgáfur af Kindle lesbrettinu sem og Kindle Fire spjaldtölvunni. 6.9.2012 13:32
Guðbjartur hækkar laun Björns um 450 þúsund krónur Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, hefur hækkað laun Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, um fjögur hundruð og fimmtíu þúsund krónur á mánuði. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV. 6.9.2012 13:10
Tort bannað að auglýsa: Nr. 1 í innheimtu slysabóta Neytendastofa hefur bannað Tort að birta auglýsingar með fullyrðingunni "Nr. 1 í innheimtu slysabóta“ eftir kvörtun frá keppinaut fyrirtækisins. 6.9.2012 12:50
Börnum hafi verið gert að sæta einangrun Kallað hefur verið eftir bótakröfum frá þeim sem voru vistaðir á Upptöku- eða unglingaheimili ríkisins á árunum 1971 til 1994, en talið er að börn hafi þar sætt illri meðferð og meðal annars verið gert að sæta einangrun þar til þau játuðu á sig refsiverða háttsemi. 6.9.2012 12:06
Óskað eftir vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð norðan við gatnamót Álfabakka og Árskóga í Reykjavík síðdegis í gær, miðvikudaginn 5. september. 6.9.2012 11:48
Ákærður fyrir að ræna 10/11 vopnaður skrúfjárni Karlmaður fæddur 1985 hefur verið ákærður fyrir að ræna verslun 10/11 Við Grímsbæ í mars síðastliðnum. Mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn var vopnaður skrúfjárni sem hann lét standa fram úr ermi peysu sinnar. 6.9.2012 11:33
Drífa Snædal verður framkvæmdastjóri SGS Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins hefur ráðið Drífu Snædal sem framkvæmdastjóra SGS, en hún mun hefja störf hjá sambandinu 17. september næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá sambandinu. Fráfarandi framkvæmdastjóri, Kristján Bragason starfar við hlið Drífu til áramóta. 6.9.2012 11:17
Prófessor og þingmaður deila í héraðsdómi "Maður á ekki von á því að alþingismaður ljúgi upp á mann opinberlega og í skrifuðu máli,“ sagði Ragnar Árnason prófessor við Háskóla Íslands, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli hans gegn Þór Saari, alþingismanni, hófst klukkan níu í morgun."Maður á ekki von á því að alþingismaður ljúgi upp á mann opinberlega og í skrifuðu máli," sagði Ragnar Árnason prófessor við Háskóla Íslands, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli hans gegn Þór Saari, alþingismanni, hófst klukkan níu í morgun. 6.9.2012 10:21
Fannst undarlegt að borða dýr sem hún var nýbúin að skoða Leikkonan Emma Watson sagði í viðtali við þáttastjórnandann David Letterman að Ísland væri gullfallegt land, "þetta er eins og að koma til annarrar plánetu,“ útskýrði Emma þegar hún lýsti reynslu sinni af landinu. Leikkonan var hér við tökur á kvikmyndinni Nóa ásamt stórstirninu Russel Crowe í sumar. 6.9.2012 09:48
Eiður búinn að birta þúsundasta molann Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi umhverfisráðherra og bloggari, hefur skrifað þúsundasta molann um málfar og miðla á vefsvæði sitt. Í tímamótamolanum sínum lítur hann yfir horfinn veg og veltir fyrir sér hvaða áhrif skrif hans kunna að hafa haft, en í pistlum sínum hefur Eiður oft tuktað til ritstjórnir sem starfa hér á landi. 6.9.2012 09:38
Heitavatnslaust frá Köldukvísl að Hvalfjarðargöngum Heitavatnslaust verður frá klukkan átta og fram á kvöld á svæði, sem nær frá Köldukvísl í Mosfellsbæ að Hvalfjarðargöngum, vegna viðgerðar í dælustöð í Reykjadal. 6.9.2012 06:29
Annir hjá björgunarmönnum vegna göngumanna í basli Göngumaður féll og meiddist á hné fyrir oafn Kjarnaskóg við Akureyri í gærkvöldi. Hann gat gefið neyðarlínunni upp GPS staðsetningu, þannig að björgunarmenn voru fljótir að finna hann og bera til byggða. Hann var þrátt fyrir það orðinn nokkuð kaldur. 6.9.2012 06:25
Nýnemar tolleraðir í MR Það ríkir mikil gleði í Menntaskólanum í Reykjavík í dag en 260 nýnemar eru tolleðarir núna fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá skólanum hófst tolleringin klukkan korter yfir elelfu í morgun og lýkur fljótlega eftir hádegi. Að athöfninni lokinni eru nýnemarnir svo boðnir velkomnir með ljúffengri köku og mjólk. 6.9.2012 11:51
Tóku ofurölvi pilt úr umferð eftir busaball Lögreglan tók ofurölvi pilt úr umferð á busaballi Menntaskólans við Hamrahlíð í Vodafone höllinni undir morgun. Hann var vistaður í fangageymslum af manúðarástæðum. 6.9.2012 07:05
Slökkviliðið kallað út að Viðeyjarkirkju Slökkviliðið fékk brunaboð frá Viðeyjarkirkju laust fyrir miðnætt. Viðeyjarferjan var þegar ræst út samkvæmt viðbragðsáætlun og fimm slökkvliðsmenn sendir með henni með búnað. 6.9.2012 07:01
Nýsjálendingar mæta til vinnu í sláturtíðinni Hópur Nýsjálendinga er á leið til landsins til að vinna hér í sláturtíðinni, nánar til tekið í sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands á Selfossi. 6.9.2012 06:55
Samkeppni um skipulag Geysis Eigendur meirihluta Geysissvæðisins í Haukadal ætla að ráðast í miklar framkvæmdir og fjárfestingar á svæðinu. Þeir stofnuðu Landeigendafélag Geysis ehf. í gær utan um verkefnið. 6.9.2012 06:30
Gætu liðið mánuðir til viðbótar Nokkrir mánuðir til viðbótar gætu liðið þar til íslenskt fólk, sem ættleiddi tvær stúlkur frá Kólumbíu, fær úrlausn sinna mála. Hjónin, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson, hafa verið föst með stúlkurnar í Kólumbíu síðan í desember í fyrra. 6.9.2012 06:15
Athugasemd frá Fréttablaðinu Á meðal gagna í meiðyrðamáli Gunnlaugs gegn Teiti er fyrsta fréttin af málsókn Gunnlaugs, sem birtist í Fréttablaðinu 8. júní í fyrra. Teitur og verjandi hans halda því fram að með því að fara óblíðum orðum um Teit í viðtali við Fréttablaðið hafi Gunnlaugur gert sig útsettari en ella fyrir óvæginni umfjöllun af hálfu Teits. 6.9.2012 05:45
Skipti um skoðun Steinunn Valdís Óskarsdóttir var áhrifamaður í borgarstjórn Reykjavíkur þegar staðsetningu sjúkrahússins var fagnað, meðal annars með vísan í nálægð við Háskóla Íslands og eflingu miðborgarinnar. Hún hefur nú upplýst að hún telji forsendur breyttar. 6.9.2012 05:30
Íbúar telja breitt yfir neikvæð áhrif spítala Íbúasamtök 3. hverfis, sem nær til Hlíða, Holta og Norðurmýri, segja umhverfismat á deiliskipulagstillögu um nýjan Landspítala við Hringbraut vera meingallað. Reynt sé að breiða yfir neikvæð áhrif aukinnar umferðar. 6.9.2012 05:15
Stóra systir sallaróleg yfir kæruhótun Grasrótarsamtökin Stóra systir sendu út beiðni til almennings í vikunni og kölluðu eftir aðstoð við að uppræta vændi í samfélaginu. Samtökin svöruðu nokkrum spurningum fyrir Fréttablaðið í gegn um tölvupóst. Hafið þið fengið mikil viðbrögð? 6.9.2012 04:30
Lést í Jökulsá í Lóni Maðurinn sem fannst látinn eftir að hann féll af baki í Jökulsá í Lóni á mánudagskvöld hét Ingólfur Vopni Ingvarsson. Hann var 53 ára, búsettur á Höfn í Hornafirði og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. 6.9.2012 04:15
Ódýrast að ferðast um landið með Strætó Að taka strætó á milli bæjarfélaga virðist vera ódýrasti ferðamátinn sem völ er á. Vagnarnir munu keyra til meira en fjörutíu bæjarfélaga eftir áramót. Strætó bs. fær 30 milljónir árlega frá sveitarfélögunum fyrir þátt sinn í starfinu. 6.9.2012 03:30
Vilja fá leigubílaskýli í Lækjargötuna aftur „Fólk getur beðið í þessu skýli í marga sólarhringa án þess að fá leigubíl,“ segir Jóhann Sigfússon, formaður Bifreiðastjórafélagsins Átaks, um safnskýli fyrir leigubílafarþega í Hafnarstræti. 6.9.2012 03:30
80 milljónir í átta verkefni Átta verkefni frá sex félagasamtökum hafa fengið úthlutað ríkisstyrkjum vegna þróunarsamvinnu. Fram kemur á vef utanríkisráðuneytisins að framlög í þessari úthlutun nemi um 80 milljónum króna. 6.9.2012 02:45
Raflögnum og rafbúnaði víða ábótavant Heilbrigðismál Raflögnum og rafbúnaði á sjúkrastofnunum hér á landi er víða ábótavant. Þetta kemur fram í úttekt Mannvirkjastofnunar á ástandi raflagna og rafbúnaðar á yfir hundrað sjúkrastofnunum. 6.9.2012 02:15
Foreldrar kemba börnum ekki nóg Foreldrar sem eiga börn í skólum þar sem lúsasmit kemur upp eru ekki nægilega duglegir við að kemba hár barna sinna. Þetta segir hjúkrunarfræðingur sem kallar eftir átaki á landsvísu til að hefta útbreiðslu sníkjudýrsins. 5.9.2012 22:30
Vill hámark á gjaldskrá dagforeldra Kópavogsbær vill setja hámarksgjald á þjónustu dagforeldra í bænum. Dæmi er um að foreldrar hafi greitt ríflega 90 þúsund krónur fyrir mánuð hjá dagforeldri í bænum sem er tvöfalt meira en bærinn telur æskilegt. 5.9.2012 20:46
Þjóðverjar fjölmennastir í ágúst Ferðamönnum á Íslandi fjölgaði í ágústmánuði milli ára um 13,2% samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Það er svipuð fjölgun og í öðrum mánuðum. 5.9.2012 20:15
Styttist í kynningu á stjórnarskrárfrumvarpinu Alþingi mun fljótlega senda kynningarbækling á hvert einasta heimili landsins til að varpa ljósi á innihald frumvarps stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár. Einnig verður opnuð heimasíða í upplýsingarskyni. 5.9.2012 19:46
Bubbi heimsækir bændur í Beint frá býli Beint frá býli eru nýir þættir á Stöð 2 þar sem Bubbi Morthens og Gísli Berg sækja íslenska bændur heim og blása til tónlistarveislu í stofunni heima hjá þeim ásamt vinsælustu hljómsveitum landsins. 5.9.2012 19:36
Eitt stærsta þjófnaðarmál frá upphafi þingfest Eitt stærsta þjófnaðarmál sem komið hefur upp á Íslandi var þingfest í dag. Þar er mæðgum af víetnömskum uppruna gefið að sök að hafa stolið fatnaði, skóm og snyrtivörum fyrir um 14 milljónir króna. 5.9.2012 19:16
Andlega vanheill Íslendingur í fangelsi á Spáni Íslendingur um sextugt, sem á við andlega vanheilsu að stríða, hefur setið í fangelsi á Spáni um tveggja ára skeið. Unnið er að því að koma manninum heim til þess að ljúka afplánun hér á landi. 5.9.2012 19:09
Leita sama mannsins á sitthvorum staðnum Tvær björgunarsveitir leita nú að sama slasaða ferðamanninum. Þær leita hins vegar á sitthvorum staðnum á landinu og ber mikið í milli. Ástæðan er sú að maðurinn hringdi sjálfur á Neyðarlínuna, óskaði eftir aðstoð og gaf upp gps-staðsetningu. 5.9.2012 18:48
Sex unnu 22 milljónir í Víkingalottóinu Sex einstaklingar unnu fyrsta vinning í Víkingalottóinu í kvöld og hlutu tæpar 22 milljónir í vinning hver. Vinningsmiðarnir voru allir seldir erlendis, 2 í Danmörku og 4 í Noregi. 5.9.2012 18:05
Afinn fullur með barnabarnið í bílnum Roskinn karlmaður var á dögunum stöðvaður við umferðareftirlit í borginni. Hann reyndist vera drukkinn við stýrið og ekki nóg með það því ólögráða barnabarn hans var meðferðis í bílnum. Afinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð en barnaverndaryfirvöld upplýst um málið vegna barnsins. 5.9.2012 17:42
Öldungaráð stofnað í Reykjavík Samþykkt var að stofna sérstakt öldungaráð í Reykjavík á borgarstjórnarfundi í gær. Ráðið verður skipað eldri borgurum og á að funda reglulega um málefni þeirra og vera borgarstjórn til ráðgjafar. 5.9.2012 17:25
Rannsókn í Bökkunum lögð til hliðar - augljós ósannindi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt rannsókn á meintri árás í Bökkunum um helgina til hliðar þar sem augljóslega er um ósannindi að ræða. Í samtali við lögreglu kemur fram að maðurinn verður ekki kærður fyrir að gefa ranga skýrslu en málið þó litið alvarlegum augum. 5.9.2012 17:04
Örmagnaðist á Laugavegi Björgunarsveitamenn úr Rangárvallasýslu sóttu í dag mann á Laugaveginn, gönguleiðinni milli Þórsmerkur og Landmannalauga. Maðurinn var orðinn afar þreyttur og treysti sér ekki til að ganga lengra. Björgunarsveitir fóru á þremur bílum á svæðið þar sem mikið vatn er í ám og því óráðlegt að vera einbíla á ferð. 5.9.2012 16:41
Stal rafmagni og ræktaði kannabis Karlmaður var dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í dag, meðal annars fyrir kannabisræktun og að hafa stolið rafmagni úr næstu íbúð. Maðurinn ræktaði efnin í Hveragerði. Maðurinn var stöðvaður af lögreglunni á Selfossi í janúar síðastliðnum. Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann meðal annars neitaði að gefa blóðsýni, en hann var undir áhrifum kannabisefna. 5.9.2012 16:06
Dæmd fyrir að stela tíu milljónum frá KPMG Tæplega fimmtug kona var dæmd í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir fjárdrátt en hún dró sér tæplega tíu milljónir króna frá endurskoðendafyrirtækinu KPMG. Konan starfaði þar sem launafulltrúi en hún millifærði fé fyrirtækisins af bankareikningum þess í BYR Sparisjóði, sem konan hafði prókúru á í starfi sínu í þágu félagsins. Fjárdrátturinn stóð yfir frá árinu 2008 til 2010. 5.9.2012 15:59
Smygluðu fíkniefnum í gegnum Bretland - loks gripnir á Íslandi Mál þriggja karlmanna sem ákærðir eru fyrir fíkniefnasmygl var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Einn mannanna er ákærður fyrir að skipuleggja smyglið en hinir tveir fyrir að smygla fíkniefnunum frá Porto í Portúgal til Lundúna og þaðan til Keflavíkurflugvallar þar sem þeir voru loksins stöðvaðir. 5.9.2012 14:26