Fleiri fréttir

Fékk minnisblað um vafasama hætti Kögunar

Jón Baldvin Hannibalsson sagðist hafa fengið sent minnisblað frá Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins árið 1995, mánuði áður en hann hætti sem utanríkisráðherra, þar sem kom fram, í frekar hlutlausu máli, að fyrirtækið Kögun væri hugsanlega vafasamt.

Launafulltrúi fundinn sekur um fjárdrátt

Fyrrverandi launafulltrúi hjá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG var í gær fundin sek um að hafa dregið sér 9,8 milljónir sem launafulltrúi hjá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG á tímabilinu 16. júní 2008 þar til í september 2010. Konan tók féð af reikningi sem KPMG átti í BYR sparisjóði og lagði það inn á reikning í eigin nafni og í nafni föður síns. Héraðsdómur Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að konan skyldi sæta átta mánaða skilorðsbundnu fangelsi.

Brot Gunnars Andersen varða árs fangelsi - málið þingfest

Ákæra á hendur Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, verður þingfest rétt fyrir hádegi í dag. Hann er, ásamt starfsmanni Landsbankans, ákærður fyrir brot á þagnarskyldu. Samkvæmt ákæru fékk Gunnar starfsmann Landsbankans til að afla gagna úr bókhaldi bankans um viðskipti Bogamannsins ehf. sem hann afhenti Ársæli Valfells, að beiðni meðákærða en um var að ræða skjal sem sýndi að Landsbanki Íslands hf. greiddi 32.7 milljónir króna inn á bankareikning Bogamannsins ehf. 13. júní 2003.

Reyndi að stinga lögregluna af á fjórhjóli

Snarpri eftirför lögreglumanna eftir manni á óskráðu fjórhjóli í Kópavogi laust fyrir miðnætti, lauk með því að ökumaður hjólsins ók utan í lögreglubílinn og stöðvaðist við það.

Aðalmeðferð í máli Gunnlaugs gegn Teiti hafin

Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Gunnlaugs M. Sigmundssonar og eiginkonu hans, Sigríðar G. Sigurbjörnsdóttur gegn bloggaranum Teiti Atlasyni hófst nú klukkan níu í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Bjargað eftir fjóra tíma í miðri jökulá

Fimm hestamönnum var bjargað af eyri í miðri Jökulsá í Lóni í fyrrakvöld við vondar aðstæður. Þeir höfðu fyrr um kvöldið horft á eftir félaga sínum niður ána eftir að hesti hans skrikaði fótur í grjótinu í ánni. Maðurinn fannst látinn undir miðnætti.

Innbrot í áhaldahúsið í Vogum

Brotist var inn í áhaldahúsið í Vogum á Vatnsleysuströnd einhverntímann fyrr í vikunni, og þaðan stolið tveimur loftpressum.

Ekkert sem bendir til árásar á barn

Rannsókn lögreglu á meintri líkamsárás gegn sex ára dreng í Breiðholti á föstudag hefur engan árangur borið. Samkvæmt upplýsingum frá Gylfa Sigurðssyni, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni í Kópavogi, bendir allt til þess að atvikið hafi ekki átt sér stað.

Tugir ættleiðinga í uppnámi

„Þetta eru um þrjátíu fjölskyldur núna sem eru stopp og vita ekki neitt,“ segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar.

Axlarbrotinn heldur Gerðahverfi hreinu

„Ef ég væri ekki að finna mér eitthvað svona þá lægi ég bara uppi í rúmi í þunglyndi,“ segir Sigtryggur Helgason, íbúi í Hlyngerði í Reykjavík, sem í sumar hefur haldið hverfinu sín hreinu og snyrtilegu.

Reyna að skila af sér á þessu ári

„Stefnan er að reyna að klára þetta á þessu ári,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari og formaður rannsóknarnefndar sem Alþingi skipaði til að rannsaka fall sparisjóðakerfisins. Sigurður H. Stefánsson, formaður rannsóknarnefndar um starfsemi Íbúðalánasjóðs, gefur sama svar.

Sjálfstæðiskonur sjá eftir Ragnheiði Elínu

„Já auðvitað kom þetta mér í opna skjöldu þegar formaðurinn orðaði þetta við mig í síðustu viku,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til á þingflokksfundi í gær að Illugi Gunnarsson tæki við af Ragnheiði sem formaður þingflokksins.

Börn eru uppnumin af Ólympíuleikum fatlaðra

Börn í Bretlandi eru upp til hópa heilluð af Ólympíuleikum fatlaðra sem fram fara í landinu um þessar mundir. Mörg þeirra telja þá Ólympíuleika ívið merkilegri en hina upprunalegu Ólympíuleika. Þetta kemur fram

Vill leyfa fólki að brugga sterkara vín

Fyrrum alþingismaður vill rýmka áfengislöggjöfina. Hann telur rétt að leyfa mönnum að brugga sitt eigið vín svo lengi sem það er ekki sterkara en 15%. Heimilt væri að bjóða upp á það í matarboðum og veislum en til að selja það þyrfti önnur leyfi.

Strætó á ekkert erindi út á land

Þórir Garðarsson, kynningarstjóri samgöngufyrirtækisins Allra handa, telur Strætó ekkert erindi eiga í fólksflutninga á landsbyggðinni.

iTaxi er íslenskt app til að panta leigubíla

Nýtt íslenskt app gerir fólki kleift að panta leigubíl með því að senda boð beint í símann hjá leigubílsstjóra í nágrenninu. Höfundur appsins sem einnig starfar sem leigubílstjóri segir það geta bætt samkeppnisstöðu leigubílsstjóra.

Fyrsti rugby leikur milli íslenskra liða

Nú um helgina fór fram fyrsti 15 manna rugby leikur milli íslenskra félaga hér á landi. Með leiknum lauk rugby-leiktímabilinu hér á landi í ár.

Fyrirmyndarbörn af bestu kynslóðinni hingað til

Krakkar í Hagaskóla eru sammála um að þau eru lítið úti eftir klukkan tíu á kvöldin, borða ekki oft nammi og hafa aldrei orðið vitni að einelti. Það er í samræmi við niðurstöður nýlegrar könnunar sem gerð var meðal allra nemenda í efstu bekkjum grunnskóla.

Vill gera Ólympíuleikum fatlaðra hærra undir höfði

Ríkisstjórnin fjallaði á fundi í dag um það hvernig hægt væri að heiðra þá íþróttamenn sem koma fram á Ólympíumóti fatlaðra. Velferðarráðherra vill gera Ólympíuviðburðum fatlaðra og ófatlaðra jafnhátt undir höfði.

Sjaldan jafnhlýtt á landinu og í ár

Veðurfar árið 2012 hefur verið fádæma gott og í samantekt Veðurstofunnar kemur fram að fyrstu átta mánuðir ársins hafi sjaldan verið hlýrri víða á landinu.

Nýju framboðin ná ekki manni á þing

Framsóknarflokkurinn og Vinstri grænir bæta við sig fylgi samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi Sjálfstæðisflokksins dalar lítillega en hann nýtur þó enn langmesta fylgisins. Nýju framboðin fjögur ná ekki manni á þing.

Hvorki fórnarlambið né gerendur fundnir

Lögreglan hefur hvorki fundið árásarmennina né fórnarlambið að hrottalegu líkamsárásinni sem greint var frá í Fréttablaðinu í gær. Málið er því allt hið undarlegasta.

Staða ungs fólks fer batnandi

Sífellt færri ungmenni reykja og drekka samkvæmt nýbirtri skýrslu sem unnin var um líðan og hagi unglinga í 8.-10. bekk.

Óánægðir með nýjan þingflokksformann

Félög ungra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi harma ákvörðun þingflokks Sjálfstæðisflokksins að skipta um þingflokksformann og skora á flokkinn að endurskoða þá ákvörðun.

Hitamyndavélar gætu komið auga á flugdólga

Möguleiki er á því að með nýrri tækni mætti koma auga á líklega flugdólga á flugvöllum með því að sjá alkóhólsmagn í líkama þeirra með sérstökum hitamyndavélum og meðfylgjandi hugbúnaði.

Ók fjórhjóli fram af hengju

Ökumaður slasaðist alvarlega eftir að hann ók fjórhjóli fram af hengju og hafnaði ofan í malarnámu. Hann hafði ekið eftir slóða sem lá að námunni í nágrenni við Suðurstrandarveg þegar slysið varð.

Eggin gleymdust á eldavél

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í nótt tilkynning um að mikil reykjarlykt væri í stigagangi fjölbýlishúss í umdæminu. Þegar lögreglumenn komu á staðinn var mikil brunalykt þar og reyndist hana leggja frá potti á eldavél í einni af íbúðunum.

Hugmyndir reifaðar um að færa stjórnarráðið í Þjóðmenningarhúsið

Þær hugmyndir hafa verið ræddar innan stjórnarráðsins að flytja það úr gamla Stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu yfir í Þjóðmenningarhúsið á Hverfisgötu. Viðskiptablaðð greinir frá því að stjórnarráðið sé nú þegar með starfsemi víðar en í gamla húsinu, sem áður hýsti fanga, svo sem við Hverfisgötuna.

Vill sérstakt öldungaráð í Reykjavíkurborg

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi vill að borgarstjórn Reykjavíkur beiti sér fyrir stofnun sérstaks öldungaráðs í Reykjavík. Ráðið fundi reglulega til að fjalla um málefni eldri borgara og verði borgarstjórn til ráðgjafar um þau. Það verði skipað eldri borgurum og hafi víðtækt samráð við félög og samtök eldri borgara í Reykjavík og aðra þá, sem láta málefni þeirra til sín taka.

Óttast að skipti á þingflokksformönnum veiki Sjálfstæðisflokkinn

Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að skipta um þingflokksformann. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn fulltrúarráðs félaganna, sem er ósátt við að Illugi Gunnarsson hafi verið kjörinn þingflokksformaður í morgun og að Ragnheiður Elín Árnadóttir hafi verið sett af.

Tíu manns fastir í skútu

Tíu manns eru um borð í pólskri skútu sem rekur undan veðri í stormi og um tíu metra ölduhæð um áttatíu sjómílur vestur af Færeyjum. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á Íslandi og björgunarstjórnstöðin í Þórshöfn fengu í morgun tilkynningu um að skútan væri í vanda. Varðskip og þyrlur voru send af stað frá Færeyjum. Þyrla kom að skipinu upp úr klukkan 10 en vegna veðurs reyndist ekki mögulegt að hífa fólk úr skútunni. Til stendur að reyna aftur í dag að ná fólkinu um borð í þyrlu, en stærri fiskiskip eru líka á leiðinni að skútunni.

Lisbeth Berg-Hansen: Refsiaðgerðir gegn Íslandi ef ekki verður samið

Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, segir að hvorki Íslendingar né Færeyingar hafi sýnt neinn samningsvilja á fundinum í makríldeilunni Lundúnum í gær. Hún segir að haldi Íslendingar og Færeyingar að veiða jafn mikið án kvóta, eins og allt útlit er fyrir, segist hún ætla beita sér fyrir refsiaðgerðum gegn ríkjunum.

Ragnheiður Elín: Svona er pólitíkin og þetta er niðurstaða formannsins

"Svona er pólitíkin og þetta er niðurstaða formannsins, það þýðir þó ekki að ég sé ánægð með hana,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, en Illugi Gunnarsson var í dag kjörinn þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins eftir að Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, lagði fram tillögu um að Illugi yrði nýr þingflokksformaður á þingflokksfundi í morgun. Sú tillaga var svo samþykkt með meirihluta þingflokksins.

Illugi nýr þingflokksformaður

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið við stöðu þingflokksformanns að nýju. Hann staðfestir þetta í samtali við Vísi. "Þetta var tillaga formanns sem var síðan rædd og síðan varð hún niðurstaðan,“ segir Illugi í samtali við Vísi.

Framsókn leggst gegn nýjum spítala

Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur telur byggingu nýs spítala við Hringbraut örlagarík mistök samkvæmt ályktun sem stjórnin sendi á alla fjölmiðla í dag. Þar skorar stjórn félagsins á stjórnvöld og Alþingi að stöðva nú þegar það "stórslys sem er í uppsiglingu í Þingholtunum“. Stjórnin skorar jafnframt á formann og þingflokk Framsóknarflokksins að beita sér að fullu afli gegn málinu.

Vill kjósa fyrr frekar en að upplifa annan vitleysisvetur

"Við eigum ekki að þurfa upplifa einhvern vitleysisvetur, þjóðin á að fá að taka afstöðu til lykilmála og veita stjórnmálaöflum umboð til þess að halda áfram,“ sagði Lúðvík Geirsson, þingmaður Samfylkingarinnar í útvarpsþættinum Í Bítið á Bylgjunni í morgun þar sem hann sat fyrir svörum ásamt Vigdísi Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins.

Á annan veg keppir um verðlaun Norðurlandaráðs

Kvikmyndin Á annan veg, eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson, er framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Auk hennar keppa fjórar aðrar afar ólíkar norrænar kvikmyndir um hin eftirsóttu verðlaun. Verðlaunin, að andvirði 350.000 danskra króna eða um sjö milljónir íslenskra króna, eru veitt kvikmynd sem á rætur í norrænni menningu og býr yfir miklum listrænum gæðum. Kvikmyndin á einnig að sýna listræna nýsköpun og jafnframt þróa kvikmyndalistina með því að sameina hinar ýmsu hliðar hennar í sannfærandi og heilsteyptu verki.

Sjá næstu 50 fréttir