Fleiri fréttir

Hópur gæsa olli umferðarslysi á Hringbraut

Hópur gæsa olli umferðarslysi á Hringbraut, vestan Njarðargötu, um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi, þar sem einn maður slasaðist og tveir bílar eyðilögðust í bruna.

Lög um reynslulausn verði gerð skýrari

Umboðsmaður Alþingis telur að skýra þurfi löggjöf um útreikning á afplánunartíma og reynslulausn fanga. Þetta kemur fram í áliti Róbert R. Spanó, setts umboðsmanns Alþingis, um útreikning refsitíma og hvenær fangar eigi rétt á reynslulausn.

Öflugur jarðskjálfti við Grímsey

Allt hefur verið með kyrrum kjörum í Grímsey í nótt, eftir að heimamenn fundu greinilega fyrir skjálfta upp á 3,7 á richter, sem varð um 27 kílómetra aust-suðaustur af eynni rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi.

Lokað fyrir strandveiðar á austursvæðinu

Lokað var fyrir strandveiðar á austursvæðinu á miðnætti, þar sem júlíkvótinn var uppurinn. Það er í fyrsta sinn sem mánaðarkvóti klárast á austursvæðinu í sumar.

Telja ríkið vanbúið í leyfismálum

Þrjár stjórnsýslukærur hafa borist úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að leyfi Hraðfrystihússins Gunnvarar fyrir eldi á 7.000 tonnum af laxi og regnbogasilungi í Ísafjarðardjúpi skuli ekki háð umhverfismati.

Endurreiknar 57,7 milljarða

Tryggingastofnun þarf að endurreikna 57,7 milljarða króna af lífeyri og öðru bótafé eftir að uppgjör samkvæmt tekjum eftir skattframtali hefur verið gert.

Engin stefna um virkjanir

Þar til Rammaáætlun hefur verið samþykkt er stefna ríkisstjórnar í virkjanamálum aðeins orðin ein. Ekkert er því til fyrirstöðu að sækja um rannsóknarleyfi á svæðum sem eru í verndarflokki.

Fundust á göngu á níunda tímanum

Erlenda parið sem leitað hefur verið að í dag er komið fram en það fannst á göngu til byggða austur í Lóni á níunda tímanum í kvöld. Parið hafði ekki hugmynd um að björgunarsveitiri væru að leita að þeim en að sögn lögreglu amaði ekkert að þeim. Ekkert hafði spurst til parsins frá 14. júlí síðastliðnum. Fólkið ætlaði að láta vita af sér á miðvikudag í síðustu viku en gerði ekki.

Jarðskjálftar við Grímsey

Nokkrir jarðskjálftar mældust austsuðaustur af af Grímsey um klukkan 20 í kvöld. Að sögn jarðfræðings á vakt hjá Veðurstofunni voru nokkrir skjálftar yfir 2 stig af stærð en sá stærsti mældist rúmlega þrjú og hálft stig. Skjálftar á þessu svæði eru algengir en ólíklegt er að íbúar á svæðinu hafi fundið fyrir þeim þar sem þeir áttu upptök sín tæplega 30 kílómetrum frá Grímsey.

Gunnar og Jónína ekki að stofna nýtt trúfélag

"Nei, það er ekki rétt,“ segir Gunnar Þorsteinsson í Krossinum, spurður hvort að hann ásamt eiginkonu sinni, Jónínu Benediktsdóttur, undirbúi stofnun nýs trúfélags. Í helgarblaði DV var sagt frá því að miklar deilur væru innan Krossins og sjálfur stofnandinn, Gunnar, væri að undirbúa stofnun nýs trúfélags.

Bærinn eins og ein stór fjölskylda eftir bruna

"Þau bera sig bara vel en fengu náttúrulega sjokk þegar þetta gerðist. Núna eru þau búin að átta sig á þessu. Auðvitað eru þau skelkuð og önnur fjölskyldan búin að missa allt," segir Pálína Hermannsdóttir hjá Rauða Krossinum í Vestur Barðastrandarsýslu, en samtökin hafa aðstoðað fjölskyldu á Tálknafirði í kjölfar eldsvoða sem varð í fjölbýlishúsi í bænum í gærkvöldi.

Börnin ómeidd eftir bílveltu

Þrjú börn á aldrinum þriggja, sjö og tíu ára, sluppu ómeidd eftir að bifreið sem þau voru í valt á Álftanesvegi, við Presthól, um klukkan þrjú í dag. Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn var að sinna börnunum þegar bifreiðin varð stjórnlaus og valt á veginum. Börnin og ökumaðurinn reyndust ómeidd eftir skoðun á slysadeild en þau voru öll í belti, að sögn lögreglu.

Verð á metani hækkaði um 18 krónur um helgina

Verð á metaneldsneyti hækkaði um átján krónur á rúmmetran um helgina. Það er meðal annars til þess að Sorpa geti ráðist í framkvæmdir til að framleiða meira metaneldsneyti svo hægt sé að anna eftirspurn.

Telja að parið sé komið til byggða

Talið er öruggt að erlenda parið sem leitað hefur verið að í dag sé komið til byggða, segir varðstjóri hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Lögreglan hefur fengið upplýsingar um ferðir fólksins eftir að myndir birtust af þeim í fjölmiðlum í dag. "Við erum áhyggjulausir. Við erum ekki hræddir um að þau sé á fjöllum,“ segir varðstjórinn. Ekkert hafði spurst til parsins frá 14. júlí síðastliðnum. Fólkið ætlaði að láta vita af sér á miðvikudag í síðustu viku en hefur ekki gert það. Lögreglan mun þó halda áfram að reyna ná sambandi við fólkið.

Brynjar: Kröfur öryrkja hafa ekkert með mannréttindi að gera

Brynjar Níelsson, fyrrum formaður Lögmannafélagsins, tekur undir með Sigurði Líndal að kröfur Öryrkjabandalagsins (ÖBÍ) um ógildingu forsetakosninganna séu frekja. Í nýjum pistli á Pressunni segir hann að vel megi vera að einhverjum fötluðum kjósendum finnist betra að njóta aðstoðar nákominna aðila heldur en aðstoðar kjörstjórnar. "Þau þægindi hafa hins vegar ekkert með réttlæti að gera hvað þá mannréttindi," segir hann.

Bensínþjófur slapp án refsingar

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 35 ára gamlan karlmann fyrir að stela bensíni á bíl sinn af bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Hann stal bensíni í þrjú skipti, af N1 og Skeljungi, fyrir samtals um 30 þúsund krónur. Manninum var ekki gerð refsing en hann mun þurfa að endurgreiða Skeljungi bensínið og vexti í ofanálag.

Skátar létu rigninguna ekkert á sig fá

Hvorki íslenskir skátar, né erlendir gestir þeirra á Landsmóti skáta, sem sett var í gær, létu rigningu á sig fá. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussiaeff, eiginkona hans, heimsóttu skátana og slógu þau á létta strengi með mótsgestum. Í setningarávarpi sínu ræddi Hrólfur Jónsson mótsstjóri meðal annars 100 ára sögu skátahreyfingarinnar á Íslandi. Ávarpi Hrólfs lauk skyndilega þegar jarðálfar og eldspúandi púkar brutust fram á sjónarsviðið en þar var á ferðinni skrílsleiftur (e. Flash-mob) sem undirbúið hafði verið af yfir 70 skátum af fjórum þjóðernum. Áður en langt um leið sungu og dönsuðu viðstaddir við sigurlag Eurovision 2012, Euphoria, áður en mótseldurinn var kveiktur við mikinn fögnuð.

Þarf ekki að greiða vask af lyftum fyrir fatlaða

Lögum samkvæmt bar tollstjóra að endurgreiða virðisaukaskatt af tveimur lyftum fyrir fatlað fólk sem sveitarfélag fékk að gjöf til nota í sundlaug. Þetta var niðurstaða Umboðsmanns Alþingis í máli gefandans.

Sýna stuðning við Hinsegin daga í verki

Iceland Express styrkir Hinsegin daga í Reykjavík og til að sýna þann stuðning í verki er vönduðu dagskrárriti hátíðarinnar dreift um borð í flugvélum félagsins. Þá skarta flugfreyjur okkar regnbogaslæðum og flugþjónar regnbogabindum til að minna á hátíðina sem hefst hinn 6. ágúst næstkomandi og stendur til 12. ágúst.

Skærgrænt hjól við sumargötu

Reykjavík öðlaðist í morgun nýtt kennileiti þegar skærgrænt hlið úr notuðu reiðhjóli var sett upp á Laugarvegi til að hindar bílaumferð. Hjólahliðið vakti strax athygli ferðamanna sem stilltu sér unnvörpum upp við hjólin og brostu í myndavélar.

Eldurinn kom upp í rafmagnstöflu

Orsakir þess að eldur kom upp í skipinu Maggý VE á fimmtudag í síðustu viku eru raktar til þess að loki við lensidælu í vélarrúmi hafi ekki lokast og síðuloki virkaði ekki. Sjór lak því inn um lensirör skipsins og komst þannig inn í vélarrúmið. Í framhaldi af þessu kviknaði eldur í rafmagnstöflu. Eins og fram kom á fimmtudag voru sjö í bátnum þegar eldurinn kom upp. Björgunarsveitabátar úr Grindavík og Vestmannaeyjum voru kallaðir til aðstoðar og jafnframt þyrla Landhelgisgæslunnar. Báturinn var svo dreginn til hafnar í Vestmannaeyjum.

Starfsmenn sérstaks saksóknara enn til skoðunar

Rannsókn Ríkissaksóknara á málum tveggja starfsmanna embættis sérstaks saksóknara, þeirra Guðmundar Hauks Gunnarssonar og Jóns Óttars Ólafssonar, stendur enn yfir. Samkvæmt upplýsingum frá Sigríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, er búist við að henni ljúki á næstu vikum. Mennirnir tveir eru grunaðir um brot á þagnaskylduákvæði í störfum sínum þegar þeir seldu þrotabúi Milestone upplýsingar sem þeir urðu sér úti um í störfum sínum fyrir sérstakan saksóknara. Embætti sérstaks saksóknara kærði mennina í maí síðastliðnum og hefur rannsókn staðið yfir síðan þá.

Eldmar, Ebonney og Einbjörg voru öll samþykkt

Mannanafnanefnd samþykkti þrjú ný eiginnöfn þann 11. júlí síðastliðinn. Um er að ræða karlmannsnafnið Eldmar og kvenmannsnöfnin Ebonney og Einbjörg. Í rökstuðningi mannanafnanefndar segir að nöfnin taki íslenskri beygingu í eignarfalli og samræmist að öðru leyti lögum um mannanöfn.

Rækjuveiðar bannaðar og leyfðar aftur

Sjávarútvegsráðuneytið hefur fellt úr gildi reglugerð sem sett var á fimmtudaginn síðasta um stöðvun úthafsrækjuveiða. Atburðinn má að öllum líkindum rekja til klaufaskapar í ráðuneytinu eða þess að afladagbækur voru ekki skoðaðar nógu vel.

Leit hafin að erlendu pari

Ekkert hefur spurst til þýsks pars sem er á ferðalagi hér á landi frá 14. júlí síðastliðnum. Lögreglan á Hvolsvelli er að hefja leit og eftirgrennslan að parinu. Fólkið ætlaði að láta vita af sér á miðvikudag í síðustu viku en hefur ekki gert það. Þegar heyrðist til þeirra þann 14. júlí voru þau stödd austan Torfajökuls. Lögreglan biður þá sem geta mögulega gefið einhverjar upplýsingar um fólkið að hafa samband í síma 4884110.

Velti bíl við að sveigja frá lömbum

Fjórir erlendir ferðamenn komust í hann krappann þegar lömb hlupu skyndilega upp á þjóðveginn og í veg fyrir bíl þeirra í Hestfirði við sunnanvert Ísafjarðardjúp í gærkvöldi.

Vinsældir Ísafjarðar hjá siglingafólki aukast

Skútuheimsóknum á Ísafirði hefur fjölgað ár frá ári. Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri á Ísafirði, segir að draumurinn sé koma upp góðri aðstöðu, ráðast í markaðsátak og gera Ísafjörð að nokkurs konar skútubækistöð norðursins.

Gulir hundar þurfa meira pláss

Ef hundur er með gulan borða, gula slaufu eða eitthvað með gulum lit á taumnum eða hálsbandinu þá er óráðlegt að nálgast hann. Þetta eru skilaboð herferðar sem nefnist Guli hundurinn og er að ryðja sér til rúms hér á landi.

Rifjar upp afskriftir aðalkeppinautanna

"Er þetta réttlæti?" spyr Kristþór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ísafoldarprentsmiðju ehf., í grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann fjallar um afskriftir skulda aðalkeppinauta prentsmiðjunnar.

Hátt í 30 þúsund eiga inneign hjá Tryggingastofnun

Um 29 þúsund bótaþegar eiga inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins eftir síðasta ár, en endurreikningur og uppgjör á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins liggur fyrir. Í flestum tilfellum er um óverulegar upphæðir að ræða því að um 70% eiga inneign undir 100 þúsund krónum. Aftur á móti eru um 14 þúsund sem hafa fengið ofgreitt á síðasta ári og Tryggingastofnun á því kröfu á þessa aðila. Þar er líka í flestum tilfellum um óverulegar upphæðir að ræða því að um 70% þeirra skulda Tryggingastofnun innan við 100 þúsund krónur.

Fá ekki vínveitingaleyfi að sinni

"Það er formið sem setur okkur stólinn fyrir dyrnar,"? segir Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkur, um breytingu á fyrri afgreiðslu embættis hennar á umsókn Hrafnistu um vínveitingaleyfi.

Virkja íbúana gegn lúpínunni

"Nú er tíminn til að herja á þennan skaðvald sem ógnar íslensku flórunni á stórum svæðum hér í og við þéttbýlið. Íbúum sem vilja leggja framtakinu lið eru gefnar frjálsar hendur með að slá lúpínuna niður hvar sem hana er að finna og mega byrja strax,? segir í ákalli umhverfisnefndar Djúpavogshrepps og áhugahóps um eyðingu lúpínu.

Teknir með kannabis og vopn

Þegar lögreglumenn ætluðu að hafa tal af ökumanni bíls í Breiðholti, við venjubundið eftirlit upp úr miðnætti, gaus kannabislykt á móti þeim.

Ferðamenn sluppu ómeiddir frá umferðaróhappi

Fjórir erlendir ferðamenn sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra fór út af þjóðveginum í Hestfirði við sunnanvert Ísafjarðardjúp í gærkvöldi. Bíllinn hafnaði á réttum kili, en var óökufær.

Vilja að ríkið hefji rannsóknir

Skotveiðifélag Íslands, Skotvís, skorar á hið opinbera að hefja rannsóknir á þeim áhrifum sem kynnu að fylgja því að koma hreindýrahjörðum til Vestfjarða. Sigmar B. Hauksson, sem haft hefur forgöngu um málið, segir að málefnið hafi verið rætt ýtarlega og eftir standi að rannsaka hvort smithætta yrði þessu samfara og hvort dýrin myndu þrífast vel þar.

Um sex þúsund leirdúfur liggja

Nú stendur yfir hin svokallaða Dúfnaveisla en hún býður meðal annars upp á það að menn án byssuleyfis geti gert sér ferð á næsta leirdúfnavöll og fengið að skjóta á leirdúfu undir handleiðslu reyndra manna.

Sjá næstu 50 fréttir