Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Talsmaður stækkunarstjóra: Viðræður ganga vel vegna góðs undirbúnings Ísland hefur nú lokað 10 köflum af þrjátíu og þremur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Á sumum sviðum ganga viðræðurnar afar hratt fyrir sig og undirstrikar það gæði undirbúnings þeirra. Þetta er mat talsmanns stækkunarstjóra ESB. 1.4.2012 21:30
Erum að komast í tísku aftur Bandalag íslenskra skáta hlaut samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Röksemd: Skátahreyfingin hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem valkostur í frístundastarfi barna og ungmenna í hundrað ár. 1.4.2012 21:00
Fjölskrúðugt lífríki í Reykjavíkurtjörn og draugur á Vestfjörðum Það voru líklega fjölmargir sem hlupu 1. apríl í dag enda vantaði ekki göbbin í fréttamiðlum á netinu. Þannig mátti finna þjóðlegt og hrollvekjandi gabb á vestfirska fréttavefnum Bæjarins besta. Þar var sagt frá því að ótrúleg ljósmynd hefði náðst á Hótel Núpi í Dýrafirði í sumar, þar sem svo virtist sem yfirnáttúrulegur svipur hefði náðst á filmu. Hótelstjórinn sagðist ekki óttast minnkandi aðsókn og sagði á vefnum: 1.4.2012 20:30
Ósáttur við evru-sinna í nefnd um framtíð krónunnar Formaður Framsóknarflokksins furðar sig á að þremur þekktum evrusinnum hafi verið bætt inn í þverpólitíska nefnd sem átti að fjalla um framtíð krónunnar og skipan gjaldmiðlamála á Íslandi. Þar með sé niðurstaða nefndarinnar gefin. 1.4.2012 20:00
Forstjóri Ölgerðarinnar fagnar samkeppni á bjórmarkaði Forstjóri Ölgerðarinnar fagnar aukinni samkeppni á bjórmarkaði. Hann segir fyrirtækið ekki standa í vegi fyrir því að nýir aðilar komist inn á markaðinn. 1.4.2012 18:49
Hef meiri tíma með hestunum Einar Bollason er einn stofnenda ferðaþjónustufyrirtækisins Íshesta sem fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu í gær. Hann lét nýlega af starfi framkvæmdastjóra og sagði Kjartani Guðmundssyni frá áformum sínum, ferlinum í körfunni og erfiðri einangrunarvist. 1.4.2012 18:00
Segist ekki hafa fallið fyrir aprílgabbi Smugunnar "Ég hljóp ekkert 1. apríl, það er bara ekki rétt,“ segir Ástþór Magnússon sem hringdi frá Kína þar sem hann skoðar brúðarkjóla þessa dagana en Vísir birti grein fyrr í dag þar sem sagt var frá því að Ástþór hefði fallið fyrir aprílgabbi Smugunnar sem greindi frá því að Páll Magnússon útvarpsstjóri hygðist bjóða sig fram til forseta. 1.4.2012 17:12
Úr greipum nördanna Aðstandendur sjónvarpsþáttanna Game of Thrones óttuðust að sverð-sveiflandi lávarðar og eldspúandi drekar myndu aðeins höfða til lítils hóps fantasíu-nörda. Raunin varð önnur. Undir rauðrósóttum rúmgafli tók Sif Sigmarsdóttir tali tvíeykið á bak við þættina og fór vel á með þeim er þau ræddu um væntingarnar og velgengnina. En skyndilega skipaðist veður í lofti. 1.4.2012 17:00
Vill ákvæði um að svipta fyrirtæki veiðileyfi Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í viðtali í Silfri Egils í hádeginu í dag að ef það kæmi í ljós að Samherji hefði brotið gjaldeyrislög, og þannig gengið gegn almannahagsmunum, ætti að svipta félagið veiðileyfi. 1.4.2012 16:37
Stálu sel úr Húsdýragarðinum og slepptu í Reykjavíkurtjörn "Okkur er nú ekki skemmt,“ segir Tómas Óskar Guðjónsson, líffræðingur og forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, en óprúttnir aðilar virðast hafa brotist inn í skemmtigarðinn í nótt, stolið þaðan sel og sleppt í Reykjavíkurtjörn. 1.4.2012 13:00
Tveir hundar drápu kött og fóru hálfir ofan í barnavagn Tilkynning barst til lögreglunnar í dag um að tveir stórir hvítir hundar hefðu ráðist á kött fyrir utan hús í foldahverfinu í Grafarvogi. Hundarnir hlupu síðan í burtu. Nokkru síðar kom önnur tilkynning um að sömu hundar hefðu farið hálfir ofan í barnavagn skammt frá þar sem þeir réðust á köttinn. 1.4.2012 20:19
Forsetaframbjóðandi hleypur 1. apríl - Páll ekki á leið í framboð Það eru eflaust einhverjir sem hafa hlaupið 1. apríl í dag, en einn þeirra er Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, sem nú býður sig fram í þriðja skiptið til forseta. Þannig sendi hann pistil á alla fjölmiðla landsins fyrr í dag en ástæðan var frétt Smugunnar um að Páll Magnússon útvarpsstjóri hygðist bjóða sig fram til forseta. 1.4.2012 15:31
Leikskólakennarar stefna Reykjavíkurborg Félag leikskólakennara mun nú í byrjun mánaðar höfða mál á hendur Reykjavíkurborg vegna niðurfellingar neysluhlés kennarana. Getum ekki sætt okkur við þetta segir formaður félagsins. 1.4.2012 13:30
Færeyskur línubátur gripinn við ólöglegar veiðar Landhelgisgæslan stóð í gær færeyskan línubát að meintum ólöglegum veiðum inni í reglugerðarhólfi suðaustur af landinu. Skipinu hefur verið vísað til hafnar þar sem lögregla mun taka skýrslu af skipstjóra. Annars sinnir Landhelgisgæslan almennu eftirliti þessa stundina. 1.4.2012 13:21
Segir veiðigjaldið í raun byggðarskatt Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segist vera afar ósáttur við að dregið hafi verið úr byggðastefnu í nýju frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða sem hann líkir við lestarslys. Þá segist hann ósáttur við nýja hugmyndafræði og að allt veiðigjaldið renni til ríkisins. Veiðigjaldið sé í raun landsbyggðaskattur. 1.4.2012 12:28
Innbrot og nágrannaerjur á borði lögreglu Brotist var inn í íbúðarhús í Hafnarfirði í nótt. Innbrotsþjófurinn spennti upp opnanlegt lausafag í glugga og voru stormjárn brotin. Hann fór svo inn í herbergi og stal þaðan fartölvu og hleðslutæki. 1.4.2012 10:51
Eigandi skíðanna fundinn Hún er heiðarleg konan sem hafði samband við fréttastofu í gær en hún sá þegar skíði féllu af toppi jeppabifreiðar á Borgarnesbrúnni. Bifreiðin var á leiðinni norður í land, og átti ökumaðurinn það eitt eftir að uppgötva að skíðin væru týnd. 1.4.2012 10:45
Skorað á Davíð að bjóða sig fram til forseta Hópur fólks þrýstir nú á Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóra að gefa kosta á sér til forseta. Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu. Davíð mun enn sem komið er ekki hafa svarað þeim áskorunum. 1.4.2012 10:01
Vel heppnuð jarðarstund - ökumenn keyrðu hægar Jarðarstundin svokallaða heppnaðist mjög vel í miðborg Reykjavíkur en götuljósin í miðborginni voru ekki kveikt fyrr en klukkan 21.35. Öll lýsing var takmörkuð og slökkt var á nokkrum áberandi byggingum sem iðulega eru upplýstar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. 1.4.2012 09:57
Þyngri börn fá síður háþrýsting Lág fæðingarþyngd spáir fyrir um hækkun á blóðþrýstingi í 9 og 10 ára gömlum íslenskum börnum. Þetta var meðal þess sem nýverið var kynnt á rannsóknarráðstefnu deildarlækna Lyflækningasviðs LSH. 1.4.2012 00:00
FC Köbenhavn heldur áfram á beinu brautinni Þrír leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en FC Köbenhavn hélt áfram uppteknum hætti og vann góðan útisigur á Lyngby. 1.4.2012 16:09
Flest skíðasvæði landsins opin Skíðasvæðin eru víða opin í dag, þar á meðal í Hlíðarfjalli, á Siglufirði og í Bláfjöllum. Í Hlíðarfjalli og á Siglufirði er opið til klukkan fjögur en til klukkan fimm í Bláfjöllum. 1.4.2012 10:22
Hákublettir á Vesturlandi og Vestfjörðum Flughált er á Vatnsskarði, mikil þoka og eru ökumenn beðnir um að fara keyra varlega. Snjóþekja er á flestum leiðum fyrir austan Akureyri og verið að hreinsa. Hálka er á Þverárfjalli, Siglufjarðarvegi og í Eyjafirði. Þungfært er á Hálsum. 1.4.2012 10:18
Rændi Bónusvídeó vopnaður hnífi Karlmaður ógnaði starfsstúlku Bónusvídeó í Lóuhólum í Breiðholti seint í gærkvöldi. Maðurinn hugðist ræna verslunina. Ekki kemur fram í dagbók lögreglunnar hvort maðurinn hafi verið handtekinn en málið er í rannsókn. 1.4.2012 09:52
Össur ræddi málefni norðurslóða við Patrushev Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Nikolay Patrushev, formanni þjóðaröryggisráðs Rússlands, sem staddur er hér á landi í stuttri heimsókn. 31.3.2012 17:48
Segir kvótafrumvörpin til þess fallin að veikja krónuna Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ segir að ef frumvörp ríkisstjórnarinnar um sjávarútveginn verða samþykkt, þá mun það leiða af sér veikingu krónunnar sem myndi svo grafa undan kaupmætti heimilanna í landinu. 31.3.2012 15:51
Búið að opna veginn inn í Þórsmörk Búið er að opna veginn inn í Þórsmörk samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Verið er að kanna ástand hálendisvega og nú þegar er allur akstur bannaður á hálendisvegum norðan Vatnajökuls og á nyrðri hluta Dettifossvegar vegna aurbleytu. 31.3.2012 14:36
Íslenskt frímerki selt á milljón - frímerkjasöfnun góð fyrir sálina Íslenskt frímerki var selt fyrir eina milljón króna á uppboði hjá sænsku fyrirtæki í Malmö. Tengiliður fyrirtækisins á Íslandi segir mikla eftirspurn eftir íslenskum frímerkjum í heiminum. 31.3.2012 13:45
Misstir þú skíðin í Borgarnesi? Óheppinn vegfarandi missti skíðin sín af toppi hvítrar jeppabifreiðar á Borgarnesbrúnni upp úr klukkan eitt í dag. Um er að ræða Fischer skíði. Vegfarandi sem ók á eftir bifreiðinni hafði samband við fréttastofu og vildi koma því til skila að skíðin væru í þeirra höndum og biðu þess eins að komast til eiganda síns. 31.3.2012 13:37
Telur að fleiri samskiptasíður hafi afhent bandarískum yfirvöldum gögn Birgitta Jónsdóttir þingmaður segir víst að bandarísk stjórnvöld hafi fengið afhent gögn um hana af fleiri vefsíðum en Twitter. Innanríkisráðuneytið hefur nú rúman mánuð til að skila rökstuðningi fyrir gagnaleynd. 31.3.2012 12:30
Keppt um Gulleggið Úrslit eru nú hafin í Frumkvöðlakeppni Innovit 2012 og fara þau fram í Háskólanum í Reykjavík. Topp tíu teymin halda nú kynningu fyrir lokadómnefnd keppninnar sem ákveður hver verður handhafi Gullleggsins, ásamt því að útdeila verðlaunum sem eru að andvirði hátt í 5.000.000 íslenskra króna. 31.3.2012 11:34
Þriðji bústaðabruninn á fjórum dögum - rannsókn hafin Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds við sumarbústað við Rauðavatn á níunda tímanum í gærkvöldi en það reyndist vera þriðji sumarbústaðurinn sem brennur á aðeins fjórum dögum. 31.3.2012 09:48
Ljósin slökkt í Reykjavík vegna jarðarstundarinnar Met verður slegið í kvöld milli 20.30 til 21.30 því þá munu fleiri en 5000 borgir og bæjarfélög í 147 löndum taka þátt í jarðarstundinni eða Earth hour. Viðburðurinn felst í því að njóta myrkurs í 60 mínútur og skapa hugarorku í þágu umhverfisins. 31.3.2012 09:43
Flugvél frá Nasa á Íslandi Rannsóknarflugvél frá Nasa lendir hér á landi í dag og dvelur í mánuð. Verkefnið mun styðja við rannsóknir á loftslagsbreytingum með þróun betri aðferða við að mæla bráðnun heimskautaíss. 31.3.2012 00:01
Opið í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli Bláfjöll verða opin fyrir skíðaiðkun á milli klukkan tíu og fimm í dag. Eins gráðu hiti er á svæðinu, vest suð vestan 3 metrar á sekúndu og ganga rútur samkvæmt áætlun í fjallið. Skíðasvæðið í Skálafelli er lokað eins og er vegna slæms skyggnis í fjallinu. Aðstæður þar verða í skoðun í dag. 31.3.2012 09:58
Hestastemmning í miðbænum Í dag munu hestar og hestamenn vera áberandi í miðbæ Reykjavíkur en Hestadaga í Reykjavík standa nú yfir. Klukkan 13:00 munu 150 hestar leggja upp í skrautreið í gegnum miðborgina. 31.3.2012 09:57
Stal frá starfsfólki 10-11 Óprúttinn þjófur stal verðmætum úr fatnaði starfsfólks 10-11 við Lágmúla skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar og vistaður í fangageymslu lögreglunnar. 31.3.2012 09:37
Tveimur samningsköflum var lokað strax í Brussel Fjórir samningskaflar voru opnaðir á ríkjaráðstefnu Íslands og ESB í Brussel í gær. Tveimur var lokað samdægurs, um utanríkis-, öryggis- og varnarmál, og um neytendamál og heilsuvernd, en samningaviðræður halda áfram um hina tvo, sem fjalla um samkeppnismál og orkumál. Með því hafa fimmtán kaflar af 33 verið opnaðir og tíu þegar lokað. 31.3.2012 08:00
Stjórnarskrá fari í þjóðaratkvæði AlþingiDrög stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verða ekki borin undir þjóðaratkvæði samhliða forsetakosningum í júní. Slíka kosningu þarf að samþykkja með þriggja mánaða fyrirvara og rann sá frestur út á miðnætti á fimmtudag. Stjórnarliðar saka sjálfstæðismenn um málþóf, en þeir brugðust ókvæða við slíkum ásökunum. 31.3.2012 07:00
Moska reyndist helmingi of lítil Byggingarmagn sem ætlað var fyrir mosku og safnaðarheimili Félags múslima í Sogamýri reyndist helmingi minna en áður var gert ráð fyrir að félagið fengi. Samkvæmt lýsingu sem unnin var í fyrra á byggingin að vera 400 fermetrar. Guðjón Magnússon arkitekt, sem unnið hefur þarfagreiningu fyrir Félag múslima, segir hins vegar nauðsynlegt að bygggingin verði á bilinu 800 til 1.000 fermetrar. Það sé svipað og gerist með 31.3.2012 06:00
Þakklát þeim sem aðstoðuðu við útför „Ég er gríðarlega þakklát rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni á Íslandi, útfararstofunni, heiðurskonsúl Letta hér á landi og öllum öðrum sem gerðu mér kleift að koma hingað til að kveðja son minn.“ Þetta segir Tamara Aldohina frá Lettlandi, en hún er stödd hér á landi til að fylgja syni sínum, Aleksandzs Aldohins, til grafar. 31.3.2012 05:00
Flóknara en gerist á einni nóttu Breytingar sem gera þarf á eignarhaldi vegna breytinga á raforkulögum frá því í ársbyrjun 2011 gætu haft áhrif á lánasamninga Landsvirkjunar. Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu Geirs A. Gunnlaugssonar, stjórnarformanns Landsnets, á kynningarfundi í vikulokin. 31.3.2012 04:00
Allir verði með öryggisáætlun Allir sem bjóða ferðir innanlands þurfa að útbúa öryggisáætlun, nái nýtt frumvarp um breytingu á lögum um skipan ferðamála fram að ganga. Oddný Harðardóttir, ráðherra ferðamála, greindi frá því á aðalfundi SAF, að hún byndi miklar vonir við þá hluta frumvarpsins sem snúa að öryggi ferðamanna. „Í öryggisáætlun á að koma fram mat á áhættu viðkomandi ferðar og lýsing á því hvernig ferðaskipuleggjandi hyggist bregðast við beri vá að höndum í ferðinni,“ segir í tilkynningu SAF. - 31.3.2012 03:15
Eldur í bústað við Rauðavatn Eldur kviknaði í litlum bústað sem staðsettur er við Rauðavatn, rétt við Hádegismóa, um klukkan níuleytið í kvöld. Það tók slökkviliðið rúmar fimmtán mínútur að mæta á staðinn og slökkva eldinn. Enn er þó verið að vinna á staðnum og tryggja að ekki séu nein glóð. Ekki er vitað til þess að neinn hafi verið inni í húsinu. 30.3.2012 21:32
Konurnar í Mæðrastyrksnefnd gleðjast yfir málalyktum Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segist mjög glöð yfir því að þjófurinn sem fór inn í húsnæði Mæðrastyrksnefndar fyrr í vikunni sé kominn í leitirnar. Hún veit þó ekkert hvert ástandið er á tölvunum sem var stolið. 30.3.2012 20:59