Fleiri fréttir

Ók á ofsahraða með vin sinn á þakinu

Lögreglan stöðvaði tvo pilta, 17 og 16 ára, í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Sá eldri ók fólksbíl hratt og ógætilega en sá yngri var á þaki bílsins á meðan því stóð. Hafi þetta átt að vera einshverskonar leikur þá er sá leikur lífshættulegur. Piltunum var fylgt til síns heima og þar var ennfremur rætt við forráðamenn þeirra um alvarleika málsins. Mildi má teljast að ekki hlaust mjög alvarlegt slys eða jafnvel dauði af þessu uppátæki.

Starfsmaður veittist að fötluðu barni

Starfsmaður á skammtímavistun fyrir fötluð börn og ungmenni í Garðabæ veittist að barni á heimilinu í síðustu viku. Barnið er ekki alvarlega slasað en er með stórt mar á handlegg, samkvæmt upplýsingum Vísis. Atvikið hefur verið kært til lögreglu, eins og fram kemur á fréttavefnum Pressunni.

Agnes ekki hlynnt frekari aðskilnaði

Agnes M. Sigurðardóttir, nýkjörin biskup Íslands, segist ekki vera hlynnt frekari aðskilnaði ríkis og kirkju. Á endanum sé það hins vegar þjóðarinnar að taka ákvörðun í málinu.

Taka verður alla gagnrýni alvarlega

Heimild ríkisins til að fjármagna Vaðlaheiðargöng er nú á borði fjárlaganefndar eftir fyrstu umræðu um málið á Alþingi á þriðjudagskvöld.

Gangaslagur kostar ríkið 9 milljónir

Íslenska ríkið þarf að greiða fyrrverandi nemanda Menntaskólans í Reykjavík 8,9 milljónir króna með vöxtum vegna meiðsla sem hann varð fyrir í gangaslag í skólanum í apríl 2009.

Netarallið það besta frá upphafi

Svonefnt netarall Hafrannsóknarstofnunar sem nú var farið sautjánda árið í röð, til að rannsaka ástand þorskstofnsins við landið, skilaði betri árangri en nokkru sinni fyrr.

Vilja fá samtal Davíðs og Geirs

Fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hafa óskað eftir afriti af símtali Davíðs Oddssonar, þáverandi formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands, og Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, frá október 2008. Umræðuefnið var fyrirhugað lán Seðlabankans til Kaupþings.

Katrín syngur í Osló

Katrín Jakobsdóttir, er ein fimm menningarmálaráðherra Norðurlandanna, sem mun syngja á torginu á Osló nú í hádeginu. Hún segir að um sé að ræða litla aðgerð til að sýna samstöðu með fjölmenningu. "Við erum hérna að rölta út á torg í Osló, rétt hjá sprengjustaðnum, og þetta er svona aðgerð til þess að sýna samstöðu með fjölmenningu," segir Katrín.

Tíu þúsund kafarar í Silfru nú í sumar

„Menn verða að fá þá vöru sem er verið að selja,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, um þá fyrirætlan að bjóða út sérleyfi fyrir köfunarþjónustu í friðlandinu.

Opinbera afskriftir yfir 100 milljónum

Allar afskriftir yfir 100 milljónum króna verða gerðar opinberar, ef tillaga efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis verður að veruleika. Nefndin samþykkti á fundi sínum í gær að leggja til að frumvarp Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, og fleiri þar um verði samþykkt.

Aldrei fleiri börn í leikskóla

Rúmlega 19 þúsund börn sóttu leikskóla á Íslandi í desember síðastliðnum og hafa þau aldrei verið fleiri. Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur leikskólabörnum fjölgað um 198 frá desember árið á undan, eða um 1%. Einnig má greina breytingar á viðverutíma barnanna á þann hátt að hlutfallslega fleiri börn dvelja 7 tíma og lengur á dag í leikskóla en fyrir ári síðan. Í desember voru starfandi 265 leikskólar á Íslandi og hafði þeim fækkað um 12 frá árinu áður. Breytingar á fjölda leikskóla má aðallega rekja til sameininga skóla í Reykjavík.

Nær uppselt á allar sýningar

Nær uppselt er á allar átján fyrirhugaðar sýningar Afmælisveislunnar eftir Nóbelskáldið Harold Pinter, sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu annað kvöld.

Náttúran.is fær viðurkenningu

Vefsíðan Náttúran.is hlaut Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, í gær fyrir „framúrskarandi starf að umhverfismálum“.

Hvetja til að verslunum sé lokað 1. maí

Aðalfundur Verslunarmannafélags Suðurnesja, sem haldinn var í gærkvöldi, skorar á verslunarmenn á starfssvæði félagsins að hafa verslanir lokaðar fyrsta maí, baráttudag verkalýðsins.

Ungur ökumaður tekinn á ofsahraða í íbúðahverfi

18 ára ökumaður var sviftur ökuréttindum til bráðabirgða og á yfir höfði sér háa sekt, eftir að bíll hans mældist á 116 kílómetra hraða á Stekkjarbakka í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi.

Yfir 500 sjómenn fordæma kvótafrumvörpin

537 sjómenn á 29 þekktum aflaskipum fordæma í yfirlýsingu þá grímulausu aðför að kjörum þeirra, sem við blasi í frumvörpunum um breytingar á stjórn fiskveiða, eins og sjómennirnir orða það.

Gengur gegn EES-samningi að banna gengistryggð lán

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur sent íslenskum stjórnvöldum formlegar athugasemdir vegna allsherjarbanns við gengistryggingu lána í íslenskri mynt. Lögum var breytt í þá veru í kjölfar dóms Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána árið 2010. Stofnunin segir þetta ganga gegn EES-samningnum.

Nýmjólkin á sama verði í öllum búðum

Lægsta matvöruverð landsins er að finna í verslunum Bónuss, samkvæmt nýrri verðlagskönnun ASÍ. Matarkarfan kostaði 20.404 krónur í Bónus, en 24.680 krónur í verslun Nóatúns, þar sem hún var dýrust. Verðmunurinn er 4.276 krónur, eða um 21 prósent.

Fær 140 þúsund króna sekt og missir bílprófið

Tvítugur maður sér fram á missi ökuleyfis og þarf að greiða 140 þúsund krónur í sekt eftir að lögreglan á Suðurnesjum stóð hann að hraðakstri á Reykjanesbraut þar sem er 90 kílómetra hámarkshraði.

Braust inn í apótek eftir vikufrelsi

Maður sem braut af sér viku eftir að hafa fengið reynslulausn úr fangelsi þarf að ljúka 132 daga eftirstöðvum dóma frá 2010 og 2011. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar að lútandi.

Aðeins verður veitt á flugu

Landeigendur við Haukadalsá og fulltrúar einkahlutafélags í eigu Kenneths Johns Deurloo skrifuðu undir samning um leigu á veiðirétti í Haukadalsá um helgina. Samningurinn er til fjögurra ára; gildir frá 2013 til 2016.

18 vilja hanna nýja fangelsið

Átján tillögur bárust í hönnunarsamkeppni fangelsisins á Hólmsheiði. Dómnefnd sem skipuð var vegna samkeppninnar kom saman í gær til að hefja mat á tillögunum.

Ástþór með nýja vefsíðu og Facebook flugmiðaleik

"Nú er hægt að safna vildarpúnktum og komast frítt til útlanda með því að heimsækja Íslenska vefsíðu,“ segir í tilkynningu frá Ástþóri Magnússyni forsetaframbjóðanda. Þar segir að um sé að ræða nýjung í markaðssetningu á netinu sem sé að ryðja sér til rúms erlendis.

Legó íhugar að fjöldaframleiða EVE online-geimskip

Hægt er að kjósa á heimasíðu Legó hvort leikfangafyrirtækið skuli hefja framleiðslu á geimförum eftir hönnun úr leiknum EVE online. Það er íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP sem gerir út leikinn en geimskipið var meðal annars framleitt fyrir aðdáendahátíð CCP sem var á dögunum.

Egill Skallagrímsson hefði orðið framsóknarbóndi á Alþingi

"Egill er mjög klikkaður. Hann er með margar greiningar, hann er mikið illmenni, jaðrar við að vera siðblindur í samskiptum. Hann er með alvarlega geðhvarfasýki og sveiflast þannig upp og niður í geðrofi. Hann er alkahólisti og í æsku var hann með mótþróaröskun,“ segir Óttar Guðmundsson geðlæknir þegar hann lýsir Agli Skallagrímssyni en Óttar hefur skrifað bók um hetjur Íslendingasagnanna þar sem hann dregur þær inn á skrifstofu til sín og greinir út frá geðlækningum.

Stofna vinnuhóp um lausnir á myntvanda Íslendinga

Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vinna nú að stofnun vinnuhóps sem mun hafa það hlutverk að finna lausnir á þeim vanda sem Íslendingar standa frammi fyrir í efnahags- og peningamálum.

RÚV í háskerpu fyrir 2014

Í dag birti Ríkisútvarpið útboðsauglýsingu á Evrópska efnahagssvæðinu um stafræna dreifingu sjónvarps. Útboðið nær til flutnings á tveimur sjónvarpsdagskrám fyrir RÚV í háskerpu til allra landsmanna að því er fram kemur í tilkynningu frá RÚV.

Grunaður um að hafa hótað fólki úr gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er ákærður fyrir fjölmörg brot, meðal annars að hafa ráðist á barnsmóður sína vopnaður harmi og veitt henni áverka. Meðal gagna sem lögð voru fyrir í gæsluvarðhaldskröfunni var listi með nöfnum þar sem maðurinn hafði skrifað ákveðnar upphæðir við hvert nafn. Listinn fannst í fangaklefa hans.

Allir hæstaréttardómarar vanhæfir

Allir hæstaréttardómarar voru vanhæfir í máli sem flutt var í Hæstarétti í gær. Ástæðan er að annar málsaðilinn er sjálfur hæstaréttardómari.

Þannig vilja flokkarnir koma Íslandi í gang

Afar mismunandi sýn birtist frá forystumönnum stjórnmálaflokka um hvernig fjárfestingum verði best komið af stað í landinu. Skapa traust og festu, segja Vinstri grænir. Losun gjaldeyrishafta, segir Framsókn. Orkuuppbygging, segir Sjálfstæðisflokkur. Evrópusambandsviðræður, segir Samfylkingin.

Orkuveitan ræðir við lífeyrissjóði - einkavæðing segja VG

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að hefja viðræður við lífeyrissjóði um aðkomu að hlutafélagi um byggingu orkuvers á Hverahlíðarsvæðinu. Formaður stjórnarinnar vonast til þess að með samningum verði hægt að komast nær því að klára fjármögnun virkjunarinnar öllum til farsældar.

"Þetta eru mikil tímamót"

"Fyrsta verkefnið verður að heyra í starfsmönnum kirkjunnar,“ sagði Agnes M. Sigurðardóttir, nýkjörin biskup Íslands. Hún var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag og ræddi við þáttastjórnendur um nýafstaðið biskupskjör.

Rúmlega 500 sjómenn mótmæla frumvarpi

537 sjómenn hafa skrifað undir mótmæli gegn frumvarpa um breytingu á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Í tilkynningu frá þeim segir að þeir mótmæli þeirri grímulausu aðför að kjörum sínum sem við blasir í þeim frumvörpum sem fram eru komin um breytingar á stjórn fiskveiða.

Fær níu milljónir í skaðabætur vegna gangaslags í MR

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið til þess að greiða fyrrverandi nema Menntaskólans í Reykjavík um það bil níu milljónir króna í miskabætur. Maðurin er tólf prósent öryki eftir að hafa hálsbrotnað í svokölluðum gangaslag í MR sem haldinn var ár hvert í skólanum en hefur nú verið lagður af.

Agnes verður næsti biskup

Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvíkurprestakalli, verður næsti biskup Íslands. Niðurstöður talningar í síðari umferð biskupskjörsins voru kunngjörðar á Dómkirkjuloftinu á fjórða tímanum í dag. Séra Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju, var einnig í kjöri. Nýr biskup verður vígður í lok júní.

Halda alþjóðlega hjólakeppni á Íslandi

Alþjóðlega hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon verður haldin á Íslandi dagana 19. júní -22. júní. Í keppninni munu 20 fjögurra manna lið keppa sín á milli um hvaða lið mun koma fyrst í mark eftir að hafa hjólað 1332 kílómetra hringinn í kringum landið. Hjólakeppnir sem slíkar eru vinsælar erlendis og þótti aðstandum keppninnar tími til kominn að Ísland gæti boðið upp á keppni sem yrði eftirsótt á erlendri grundu, ekki síst vegna miðnætursólarinnar. Markmiðið er ekki eingöngu að hjóla til sigurs heldur einnig að styðja gott málefni. Liðin safna áheitum og í samvinnu við Barnaheill - Save the Children á Íslandi verður efnt til átaksverkefnis um heilsu og hreyfingu barna.

Segir fjármálaráðuneytið hafa rænt Lífeyrissjóðnum

Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri og bæjarfulltrúi í Kópavogi, segir að fjármálaráðuneytið hafi rænt Lífeyrissjóði Kópavogsbæjar. Þetta sagði hann þegar hann gaf skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjaness í máli gegn stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar og framkvæmdastjóra sjóðsins.

Nýr biskup þakklátur stuðningsmönnum sínum

"Nú þegar úrslit liggja fyrir í biskupskjörinu er mér þakklæti efst í huga. Þakklæti til þeirra er hvöttu mig til að gefa kost á mér til embættis Biskups Íslands,“ segir Agnes M. Sigurðardóttir, nýkjörin Biskup Íslands. Í yfirlýsingu segist hún þakklát þeim sem hafi stutt sig og hjálpað sér. "Bið ég Guð að launa það allt og blessa þau öll,“ segir Agnes.

Toyota stolið

Toyota Corolla árgerð 1997, eiturgrænn að lit, var stolið í úthverfi Kópavogs í gær. Bíllinn er í eigu bláfátæks námsmanns í Háskóla Íslands og er tjónið því tilfinnanlegt þótt bíllinn sé ekki verðmætur. Bílnúmerið er UX 945.

Síðasti dagur vitnaleiðsla í Vítisenglamálinu

Nú er að ljúka vitnaleiðslum í Vítisenglamálinu svokallaða en þar er fólk sem sagt er tengjast mótorhjólasamtökunum Vítisenglum, ákært fyrir hrottalega líkamsárás. Einnig er um meint kynferðisbrot að ræða og því hefur þinghald í málinu verið lokað. Hinir ákærðu hafa setið í varðhaldi frá því málið kom upp en þau voru handtekin í janúar. Þar á meðal er Einar "Boom" Marteinsson, sem þá var forsprakki Vítisengla. Hann hefur nú af eigin sögn hætt í félagsskapnum.

Átján tillögur um nýtt fangelsi

Átján tillögur bárust í samkeppni um hönnun fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík en frestur til að skila tillögum rann út 16. apríl síðastliðinn. Dómnefnd sem skipuð var vegna samkeppninnar kom saman í dag til að hefja mat á tillögunum.

Sjá næstu 50 fréttir