Fleiri fréttir

Bræður dæmdir fyrir líkamsárás á Ráðhústorginu

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi bræður á þrítugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Annar bróðirinn hlaut átta mánaða fangelsisdóm, en hann var á skilorði vegna annars brots. Sex mánuðir dómsins eru skilorðsbundnir.

Umsóknir um strandveiðar streyma inn

Umsóknir um strandveiðileyfi í sumar streyma nú inn til Fiskistofu, eftir að farið var að taka á móti þeim í gær. Talið er að hátt í sjö hundruð bátar muni stunda veiðarnar í sumar.

Telja fundinn legstað Magnúsar lagabætis

Rannsóknir á dómkirkjunni í Bergen í Noregi hafa leitt í ljós það sem menn telja vera hinsta hvílustað Magnúsar lagabætis Noregskonungs. Magnús var sonur Hákonar gamla Hákonarsonar og ríkti yfir Noregi frá 1263 til 1280.

Staða sendinga sést í snjallsíma

Eimskip hefur tekið í notkun nýtt snjallforrit (eða „app“) sem býður viðskiptavinum fyrirtækisins upp á að fá nákvæmar rauntímaupplýsingar í snjallsíma um stöðu sendinga.

Kjörstjórn vinnur hörðum höndum á Dómkirkjuloftinu

Kjörstjórn í biskupkosningunum lokaði sig af á Dómkirkjuloftinu klukkan tíu í morgun og mun sitja við talningu atkvæða í seinni umferð kosninganna fram eftir degi. Tveir eru í framboði þau Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju, og Agnes Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík, en þau fengu flest atkvæði í fyrri umferð kosninganna.

Leiðin frá hugmynd að frumgerð oft löng

Sjálfvirkur pitsuskeri, boltakastari fyrir lata hundaeigendur og golfkerra framtíðarinnar voru meðal nýstárlegra tækja sem gaf að líta á sýningu verkfræðinema Háskóla Íslands í gær. Um var að ræða prófverkefni í námskeiðinu Tölvustýrður vélbúnaður, en þar fá nemendur að þróa hugmynd og fylgja henni allt fram að fullgerðu tæki.

Stór hluti andvígur fjárfestingum í stóriðju

Um 47% landsmanna eru andvígir því að lífeyrissjóðurinn þeirra leggi fjármagn í frekari virkjanaframkvæmdir vegna stóriðju, um 34% eru því hlynntir og um 19% eru hvorki hlynntir né andvígir. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Græna netið, Náttúruverndasamtök Íslands og Landvernd í byrjun apríl. Úrtakið var 1350 manns á landinu öllu, átján ára og eldri sem valdir eru af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og var svarhlutfall rúm 63%.

Vill að Kringlan og Smáralind séu lokuð 1. maí

Stefán Einar Stefánsson formaður VR fer þess á leit að forsvarsmenn Kringlunnar og Smáralindar endurskoði þá ákvörðun sína að hafa opið þann fyrsta maí, á baráttudegi alls launafólks.

Nýr biskup verður valinn í dag

Nýr biskup þjóðkirkju Íslands verður valinn í dag. Talningu í seinni umferð atkvæðagreiðslu um biskupskjörið lýkur seinni partinn, en hún hefst klukkan tíu. Talningin fer fram á háalofti Dómkirkjunnar, líkt og hefur tíðkast áður.

Fjárfestar féllu frá tilboði sínu í Perluna

Hópur fjárfesta sem gerði hæsta tilboð í Perluna á Öskjuhlíð hefur fallið frá tilboðinu og segir í yfirlýsingu frá hópnum, sem RÚV greinir frá, að borgaryfirvöld séu að eyðileggja söluferlið.

Þingmál ná ekki í nefndir

Algjör óvissa ríkir um hvernig starfi Alþingis verður háttað fram á vor. Alls liggja 93 stjórnarfrumvörp fyrir Alþingi og 29 stjórnartillögur. Ljóst er að ekki tekst að ljúka þeim málum fyrir sumarleyfi, en þingi á samkvæmt dagskrá að ljúka 31. maí.

Ólíkar áherslur í fyrirsögnum

Fjölmiðlar Í frásögnum erlendra fjölmiðla af úrskurði Landsdóms er í fyrirsögnum ýmist lögð áhersla á að Geir Haarde hafi verið sakfelldur í einum ákærulið af fjórum, eða að dómstóllinn hafi ekki séð ástæðu til að gera honum refsingu.

Á sakaferil allt frá árinu 1999

Maður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í ársfangelsi fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, önnur umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og vopnalagabrot. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Umfangsmikil rannsókn á starfi fréttamanna

Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun veita eina milljón króna til hóps íslenskra fræðimanna vegna þátttöku þeirra í alþjóðlegri rannsókn meðal blaða- og fréttamanna. Katrín Jakobsdóttir ráðherra ákvað fjárveitinguna á mánudag.

RÚV fær enga styrki frá ESB

RÚV tekur ekki við styrkjum eða öðrum fjármunum frá Evrópusambandinu eða stofnunum sem því eru tengdar til að kynna starfsemi ESB eða til fréttaöflunarferða eða dagskrárgerðar.

Getur þýtt gjaldþrot eða frekari aðlögun

Þau fyrirtæki í sjávarútvegi sem hafa þegar farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu horfa mörg hver fram á frekari fjárhagslega erfiðleika, nái frumvarp til laga um veiðigjöld fram að ganga. Lítil og meðalstór fyrirtæki, mörg í smærri sjávarbyggðum, lenda helst í vanda en stærstu útgerðirnar þola hækkað veiðigjald, en það takmarkar þróun og vöxt félaganna.

Tölvuöryggi í viðskiptum rætt

Tölvuöryggi í viðskiptum er viðfangsefni hádegisfundar Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, á morgun fimmtudag. Fundurinn, sem hefst klukkan tólf í ráðstefnusal Þjóðminjasafns við Suðurgötu, á að standa í klukkustund.

Viðtal við móður Eyþórs Darra

"Þó ég geri mér grein fyrir að hann er látinn, þá finnst mér stundum eins og hann sé að koma hlaupandi upp tröppurnar." Þetta segir móðir Eyþórs Darra Róbertssonar sem lést daginn fyrir átján ára afmælið sitt, eftir að hafa lent í bílslysi við Mýrargötu í Reykjavík. Móðir hans bíður þess nú hvort ríkissaksóknari gefur út ákæru á hendur ökumanni bílsins, einum besta vini sonar hennar. Í meðfylgjandi mynskeiði ræðir Erla Hlynsdóttir við móður Eyþórs Darra, Lilju Huld Steinþórsdóttur, um lífið með sorginni.

Fréttamaður flaug á hausinn: Prófaði rafknúið hjólabretti

Nemendur í Vélaverkfræði við Háskóla Íslands hafa fundið leiðir til að auka á leti landans og er sjálfvirkur boltakastari á meðal þess sem hefur sprottið úr hugmyndasmiðju þeirra. Hugrún Halldórsdóttir þurfti samt sem áður að hafa örlítið fyrir hlutunum þegar hún fékk að prufukeyra fjarstýrðu hjólabretti í dag.

Sá örn klófesta fýl

Spurningar hafa vaknað um hvort að hafernir hafi gert sér hreiður í Esjunni, borgarfjalli Reykvíkinga, eftir að mynd náðist af tignarlegum erni þar á flugi fyrir skömmu.

Efast um afleiðingar hrunsins ef ráðherrar hefðu fundað

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, efast um að bankahrunið hefði skollið á með þeim hætti sem það gerði ef ráðherrar hefðu fundað reglulega um stöðu efnahagsmála í aðdraganda hrunsins. Þetta kom fram í máli Jóhönnu á Alþingi í dag.

Landspítalinn kominn að þolmörkum

Níu milljörðum minna er varið til reksturs Landspítalans en árið 2007 en verkefnum starfsfólks hefur fjölgað. Eitthvað hlýtur að láta undan ef gengið veður lengra segir Björn Zoëga, forstjóri spítalans.

Vitnisburður Davíðs hafði grundvallarþýðingu

Vitnisburður Davíðs Oddssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra, virðist hafa haft grundvallarþýðingu fyrir sakfellingu Geirs Haarde varðandi fjórða lið ákærunnar í Landsdómsmálinu.

Á annað hundrað konur sauma Mæðrablómið 2012

Á annað hundrað konur eru nú staddar í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem þær sauma og sníða Mæðrablómið 2012. Blómið, sem er hannað af Steinunni Sigurðardóttur fatahönnuði, er til styrktar menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar fyrir tekjulágar konur.

Telur óheppilegt að núverandi ríkisstjórn breyti lögum um Landsdóm

"Ég held að það sé óheppilegt að þeir sem virkjuðu lögin afnemi þau einnig svo þeir sömu sem nýttu sér lögin komi sér undan því að vera mældir út frá þessum sömu lögum,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag þar sem hann kallaði eftir því að ferlið fyrir undirritun fyrstu Icesavesamninganna yrði rannsakað sérstaklega.

Tíu búrhvalir í botni Steingrímsfjarðar

Myndir af tíu búrhvölum náðust á innanverðum Steingrímsfirði í gær. Myndatökumaðurinn segist aldrei hafa séð annað eins og það hafi verið magnað að fylgja hvölunum eftir. Hvalasérfræðingur segir þessa hegðun búrhvala mjög óvenjulega.

Faldi kannabis í nærklæðunum

Lögreglan á Suðurnesjum fann fjóra poka af meintu amfetamíni fyrir utan eldhúsglugga við húsleit í umdæminu um helgina.

Atli telur að rétt hafi verið að ákæra Geir

Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar, sem skrifaði ákæru gegn Geir H. Haarde, segir að niðurstaða Landsdóms í gær hafi ekki komið sér á óvart. Af sex upphaflegum ákæruliðum var Geir dæmdur fyrir einn. Það var brot á stjórnarskránni, fyrir að hafa látið fyrir farast að halda ríkisstjórnarfundi um mikilvæg mál. "Ég get ekki sagt að þetta hafi komið flatt upp á mig. Ég var farinn að vænta þessa,“ segir Atli í samtali við Vísi.

Tekin með hassköku í Leifsstöð

Lögreglan á Suðurnesjum barst tilkynning um helgina frá tollgæslunni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þess efnis að afskipti hefðu verið höfð af konu sem var að koma til landsins með fíkniefni í fórum sínum.

"Niðurstöðurnar koma ekki á óvart"

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, segir að niðurstöður skoðanakönnunarinnar sem Vísir stóð fyrir um helgina komi honum ekki á óvart.

Greiðir 140 þúsund í hraðasekt

Lögreglan á Suðurnesjum tók á dögunum pilt um tvítugt þegar bíll hans mældist á 154 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Hann þarf að borga um 140 þúsund krónur í sekt og á yfir höfði sér ökuleyfissviptingu. Lögreglan hefur verið með umferðarátak og stöðvað allmarga ökumenn fyrir of hraðan akstur. Auk unga piltsins mældust aðrir brotlegir ökumenn frá 116 kílómetra hraða og allt upp í 143 km. á

Þóra og Ari þakklát fyrir stuðninginn

"Ég er afskaplega þakklát," sagði Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi en hún nýtur mest stuðnings hjá þeim sem tóku þátt í skoðanakönnun Vísis um helgina.

"Ég mun ekki gefast upp"

"Það er augljóst að lýðræðið er ekki virkt á Íslandi,“ segir Jón Lárusson, forsetaframbjóðandi, aðspurður um nýlega skoðanakönnun Vísi. Jón mældist þar með minna en eitt prósent atkvæða.

Önnur tekjuhæsta íslenska kvikmynd allra tíma

Velgengni kvikmyndarinnar Svartur á leik ætlar engan endi að taka. Um síðustu helgi náð hún þeim merka áfanga að verða önnur tekjuhæsta íslenska kvikmynd allra tíma þegar gestur númer 60 þúsund sá hana.

Þóra með átta prósentustiga forskot á Ólaf Ragnar

Þóra Arnórsdóttir nýtur mests stuðnings hjá þeim sem tóku þátt í könnun Vísis á fylgi þeirra sem lýst hafa yfir framboði til forseta. Könnunin stóð frá föstudegi og fram á mánudag og var þáttakan gríðarlega góð.

Rafmagn komið á í Melasveit

Vinnuflokkur Rarik í Borgarnesi lauk viðgerð á háspennustreng í Melasveit kl. 19:29, en strengurinn skaðaðist í sinubruna eftir að álft flaug á strenginn.

Jóhanna hvatti Kínverja til að láta af dauðarefsingum

Jóhanna Sigurðardóttir hvatti Kínverja til þess að láta af dauðarefsingum þegar hún ræddi við Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, í opinberri heimsókn hans hér á dögunum. Þetta segist hún hafa rætt við forsætisráðherrann á fundi þeirra tveggja en hún geti ekki farið ítarlega út í það sem fram kom á fundinum. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurði Jóhönnu út í málið á Alþingi í dag.

Sjá næstu 50 fréttir