Ekki hægt að fylgjast með sprengjusmiðum 2. febrúar 2012 00:01
Lögregla hefur ekki heimildir til að fylgjast með því hvort menn séu að sanka að sér efnivið í sprengju, svo sem áburði eða eldsneyti. Til þess að unnt sé að kanna slíkt þarf ábending að berast um grunsamlegt athæfi. Frumvarp um forvirkar rannsóknarheimildir til handa lögreglu hefur verið kynnt í ríkisstjórn og er nú til meðferðar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Ögmundur Jónasson sagðist á Alþingi í síðustu viku leggja áherslu á að flýta framlagningu þess. Lögregla hefur margsinnis látið í ljósi það mat sitt að slíkar heimildir skorti til að unnt sé að taka af festu á skipulagðri glæpastarfsemi og kanna möguleika á hryðjuverkum hér á landi. Reyndar hefur ekki verið fjallað sérstaklega um hættuna af hryðjuverkum á Íslandi opinberlega síðan greiningardeild Ríkislögreglustjóra birti hættumat sitt árið 2008. Hættustigið var þá metið lágt, en ítrekað að rannsóknarheimildir skorti. „Möguleikar lögreglunnar á Íslandi til þess að fyrirbyggja hryðjuverk eru því ekki þeir sömu og á hinum Norðurlöndunum. Þessu fylgir einnig að lögreglan hérlendis hefur mun takmarkaðri upplýsingar um mögulega ógn eða hættulega einstaklinga, sem kunna að fremja hryðjuverk," sagði í hættumatinu. Slíkar heimildir duga þó ekki í öllum tilvikum. Þannig gat norski fjöldamorðinginn Anders Breivik keypt mikið magn af áburði án þess að það vekti grunsemdir þarlendra yfirvalda undir því yfirskini að hann stundaði búskap. Þá hefur einnig verið bent á að eftirliti með sprengiefni á borð við dínamít sé ábótavant. Dæmi eru um að því hafi verið stolið í stórum stíl af verktökum án þess að það uppgötvist strax. Rannsókn lögreglu á sprengingu í Hverfisgötu á miðvikudag stendur enn. Í gærkvöldi hafði enn enginn verið handtekinn vegna málsins. - sh /
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira