Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íhuga að kaupa Grímsstaði með láni frá Nubo og leigja honum Sveitarfélagið Norðurþing íhugar nú að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina gegn 25 prósenta hlut ríkisins. Bæjarstjóri Norðurþings er nú staddur í Peking til að hitta Nubo. 8.2.2012 18:52
"Við viljum ekki meiri stóriðju á Íslandi" Helstu félagasamtök um náttúvernd á Íslandi vilja að stjórnvöld fresti eða falli frá frekari uppbyggingu á vatnsaflsvirkjunum í neðri hluta Þjórsár. 8.2.2012 20:30
Lífeyrissjóður bankamanna átti engin hlutabréf í íslensku bönkunum Lífeyrissjóður bankamanna átti ekki krónu í hlutabréfum íslensku bankanna þegar þeir hrundu í október 2008. Sjóðurinn kom langtum betur undan hruni en stærstu lífeyrissjóðir landsins. 8.2.2012 20:04
Fundu amfetamín og eina og hálfa milljón í peningum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 300 grömm af amfetamíni við húsleit í íbúð í Hafnarfirði á föstudag og lagði jafnframt hald á verulega fjármuni, eða um eina og hálfa milljón króna. 8.2.2012 19:16
Tilkynnt um vatnsleka - fundu 80 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í gær. Við húsleit fundust tæplega 80 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar, og um 1,4 kg af marijúana. 8.2.2012 19:04
Magni syngur á plötu tileinkaðri Kiss Ég var einmitt að reyna rifja það upp áðan og fór og skoðaði e-mail-ana. Þetta var eiginlega ekki merkilegra en það að minn maður hjá plötufyrirtækinu mínu úti sendi mér: Hæ, viltu vera með á Kiss tribute-i?“ segir tónlistarmaðurinn Magni Ásgeirsson, sem flytur lagið Love It Loud með hljómsveitinni Kiss á tribute plötu sem kemur út í Bandaríkjunum eftir nokkrar vikur. 8.2.2012 17:46
Óvíst að Aserum sé greiði gerður ef Íslendingar sitja heima Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það að hætta við þátttöku í Eurovision í Aserbaijan, segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Nafni hans, Páll Óskar Hjálmtýsson, hefur sagt opinberlega að hann vilji að Ísland taki ekki þátt í keppninni vegna mannréttindabrota í landinu. Nýjasta dæmi um þau er að íbúar í Bakú, höfuðborg landsins, hafa verið reknir af heimilum sínum og þau jöfnuð við jörðu. Þetta er gert til þess að hægt sé að byggja tónleikahöll fyrir keppnina. 8.2.2012 17:00
Amnesty minnir á ófremdarástandið í Aserbaídjan Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli á skýrslu um ástand mannréttinda í Aserbaídsjan, sem kom út í lok 2011. Landið, sem heldur Eurovision keppnina þetta árið hefur mikið verið í umræðunni í dag sökum þess að Páll Óskar Hjálmtýsson hvetur Íslendinga til þess að sniðganga keppnina í ljósi frétta af mannréttindabrotum gegn íbúm í höfuðborginni Bakú sem hafa verið flæmdir brott af heimilum sínum til þess að hægt sé að byggja Kristalshöllina sem á að hýsa keppnina. 8.2.2012 16:31
Heitavatnslaust í Fossvogi og nágrenni á morgun Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í fyrramálið í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að svæðið sem um ræðir afmarkist af byggð neðan Bústaðavegar frá Reykjanesbraut að Borgarspítala og íbúðabyggð neðan Sléttuvegar að Kringlumýrarbraut. Þá verður einni heitavatnslaust í Ásgarði, raðhúsum við Tunguveg, Stjörnu- og Blesugrófinni í Reykjavík sem og húsum sem standa við Fossvogsbrún í Kópavogi og í hverfinu við Lund í Kópavogi. 8.2.2012 15:51
Ólafur átti ekki að ráðstafa peningnum Reykjavíkurborg hefur verið dæmd til að greiða Frjálslynda flokknum tæpar 6,8 milljónir vegna fjárframlaga fyrir árin 2008-2009 sem áttu að fara inn á reikning flokksins eftir að hann fékk einn mann kjörinn í borgarstjórn árið 2006. 8.2.2012 15:45
Björguðu fólki í flotbúningum með hjálp nætursjónaukans Landhelgisgæslan hélt á dögunum æfingu í Patreksfirði um miðja nótt þar sem fólk í flotbúningum kastaði sér útbyrðis úr bátum út í ískaldan sjóinn. Þyrla gæslunnar flaug síðan yfir fjörðinn, fann fólkið með hjálp nætursjónauka og bjargaði því um borð. 8.2.2012 15:45
Mikilvægt að ná samstöðu um nafnið Samstöðu "Grundvallaratriðið er að það er aðeins ein Samstaða," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, varaformaður stjórnmálahreyfingarinnar Samstaða, flokkur um lýðræði og velferð. Þarna liggur einmitt kjarni málsins, hreyfingin heitir nefnilega líka flokkur um lýðræði og velferð. 8.2.2012 15:04
Eðlilegt að Ríkisútvarpið ræði ástandið í Bakú Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir eðlilegt að Ríkisútvarpið og önnur félög innan EBU, sem heldur Eurovision söngkeppnina, taki umræðu um mannréttindabrot sem kunna að vera framin í löndum sem eiga aðild að keppninni. Þetta segir hún aðspurð út í viðbrögð sín við skrifum Páls Óskars Hjálmtýssonar um Eurovision. 8.2.2012 14:28
Búið að bjarga Bretunum Búið er að bjarga Bretunum sem voru fastir uppi á Vatnajökli. Það var björgunarfélagið á Hornafirði sem fór eftir þeim um klukkan tíu í morgun. Mennirnir voru blautir og hraktir og tjald þeirra brotið þegar þeir sendu neyðarkallið. Mennirnir voru mjög vel búnir til ferðalagsins. 8.2.2012 14:25
Nostalgíustemning í apríl Það má búast við sannkallaðri nostalgíustemningu þegar breska hljómsveitin10cc heldur tónleika í Háskólabíói þann 21. apríl næstkomandi. Hljómsveitin er ábyggilega frægust fyrir lögin I´m Not In Love og The Things We Do For Love en öll þekktustu lögin verða flutt á tónleikunum. 8.2.2012 14:00
Fylgja Norðurlöndunum við innleiðingu á nýjum lyfjum Íslendingar stóðu á tímabili fremstir þjóða við innleiðingu á nýjum sjúkrahússlyfjum. Hins vegar hefur krafa á aðhald í rekstri heilbrigðiskerfisins aukist að undanförnu og nú er svo komið að Íslendingar reyna að fylgja hinum Norðurlöndunum við innleiðingu á lyfjunum. Þetta segir Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, í samtali við Vísi. 8.2.2012 14:00
Formenn Samstöðu funda á næstu dögum um hið eftirsótta nafn "Við Lilja [Mósesdóttir, innskt. blm.] ræddum saman í morgun og ætlum að setjast niður á næstu dögum og ræða málið frekar,“ segir Haukur Már Sigurðsson, formaður Samstöðu á Patreksfirði, en nýstofnaður flokkur Lilju reyndist bera sama nafn. Samstaða á Patreksfirði hefur hinsvegar verið til í fjórtán ár og þverpólitískt félag. Núna á það þrjá fulltrúa í bæjarstjórn Patreksfjarðar. Áður var það með meirihluta. 8.2.2012 12:58
Verið að klára samninga vegna myndar Baltasars og Denzels Bandaríski stórleikarinn Denzel Washington, sem er tvöfaldur óskarsverðlaunahafi, hefur samþykkt að leika í nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, 2 Guns. 8.2.2012 12:13
Breskir göngumenn í vandræðum upp á Vatnajökli Björgunarfélag Hornafjarðar var kallað út um klukkan hálf tíu í morgun til að sækja tvo breska ferðamenn sem eru í vandræðum í Norðlingalægð á miðjum Vatnajökli. Eru þeir blautir og hraktir og tjald þeirra brotið. 8.2.2012 11:48
Barnabílstóll innkallaður - Herdís uggandi vegna málsins Nýlega innkallaði Rúmfatalagerinn inn barnabílstól. Neytandastofa og Rúmfatalagerinn hafa staðið að innkölluninni eins og lög gera ráð fyrir. 8.2.2012 11:20
Pólskumælandi ráðgjafi kominn til starfa hjá Reykjavíkurborg Joanna Marcinkowska hefur verið ráðin sem pólskumælandi ráðgjafi innflytjenda hjá Reykjavíkurborg. Joanna starfar á þjónustuskrifstofu Reykjavíkurborgar á Höfðatorgi og mun aðstoða og veita upplýsingar um þjónustu Reykjavíkurborgar á pólsku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 8.2.2012 10:43
Einna minnst fátækt á Íslandi Rétt tæplega 10% Íslendinga voru með tekjur við fátækramörk árið 2010 og um 1,8% Íslendinga bjuggu við aðstæður sem kalla mætti fátæktaraðstæður. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í morgun. 8.2.2012 10:40
Fréttaskýring: Skiptar skoðanir um sameiningar í grunnskólum Sameiningar grunnskóla í Reykjavík hófust um áramót þegar þrír nýir skólar urðu til úr sex. Fleiri breytingar eru á döfinni og foreldrar í sumum hverfum hafa verið mjög ósáttir við fyrirhugaðar breytingar. 8.2.2012 10:00
Hávaði úr Tjarnarbíói hrakti fólk að heiman „Þetta er alveg hrikalegt þegar maður er með lítið barn og getur ekki verið með það heima,“ segir Sergiy Okhremchuk, íbúðareigandi í Suðurgötu 15, sem fast er við Tjarnarbíó þaðan sem berst svo mikill hávaði að heilbrigðisreglugerðir bresta. 8.2.2012 10:00
Gamlinginn trónir enn á toppnum á sölulistum bókabúða Sænski rithöfundurinn Jonas Jonasson, sem skrifaði metsölubókina Gamlinginn sem skreið út um gluggann má vel við una á íslenskum sölulistum en bók hans er enn þá sú mest selda í Eymundsson vikuna 25. janúar til 31. janúar. 8.2.2012 09:45
Augnlokin frusu saman í kuldanum „Það er búið að vera alveg ógeðslega kalt eða gusåkalt eins og Svíarnir segja alltaf,“ segir Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í fótbolta sem nýverið gerðist atvinnumaður með sænska liðinu Piteå í Svíþjóð. Gríðarlegur kuldi hefur verið í Evrópu undanfarna daga og þar á meðal í Piteå sem er í norðurhluta Svíþjóðar. 8.2.2012 09:00
Sautján settir í nálgunarbann Tíu voru úrskurðaðir í nálgunarbann í fyrra og sjö árið á undan. Árin á undan var úrræðið nánast ekkert notað, en er að sanna gildi sitt að mati aðstoðarlögreglustjóra. Sambúðarslit eru oft bakgrunnur málanna. 8.2.2012 09:00
Ráðherra fundar um sprengju Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun funda með ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum í Reykjavík í næstu viku vegna sprengjutilræðisins nærri Stjórnarráðinu. Enn hefur enginn verið handtekinn vegna málsins en nú er liðin meira en vika síðan atvikið átti sér stað. 8.2.2012 08:45
Á bílskúr fullan af kubbum Smiðurinn Guttormur Þorfinnsson er ásamt fleirum að setja upp ævintýraland úr legókubbum í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Efniviðurinn, þúsundir og aftur þúsundir legókubba, er allur í eigu Guttorms og fjölskyldu hans og fyllir sextíu þrjátíu lítra kassa 8.2.2012 07:30
Dreamliner æfir flugtök í hliðarvindi á Keflavíkurflugvelli Boeing 787 Dreamliner farþegaþota kom til Keflavíkur til að æfa lendingar og flugtök í hliðarvindi og má segja að áhöfnin hafi hitt á óskastund í rokinu á Keflavíkurflugvelli í gær. 8.2.2012 07:16
Jarðskjálftahrina við Grímsey Jarðskjálftahrina varð norðaustur af Grímsey um fjögur leitið í gær þegar þar urðu þrír skjálftar upp á 2 til 2,3 á Richter með skömmu millibili. 8.2.2012 07:11
Þyrla sótti veikan 14 mánaða dreng til Vestmanneyja Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gærkvöldi 14 mánaða veikan dreng til Vestmannaeyja og var hann fluttur á barnaspítala Hringsins. 8.2.2012 06:49
Segir ærumissi ekki skýra meiðyrðamál Meiðyrðamál Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Birni Bjarnasyni er tilraun til að koma höggi á Björn að mati verjanda hans. Alvarleg ærumeiðing að segja Jón Ásgeir dæmdan fyrir fjárdrátt en ekki bókhaldsbrot segir lögmaður hans. 8.2.2012 06:45
Kona réðist að öryggisverði í verslun 10-11 Kona í annarlegu ástandi réðst að öryggisverði í verslun 10-11 við Barónstíg á öðrum tímanum í nótt, þar sem hann hafði afskipti af henni vegna þjófnaðar. 8.2.2012 06:35
Fyrir þá sem eru þreyttir á spillingu „Samstaða á að höfða til kjósenda sem hafa fengið nóg af spillingunni í samfélaginu og hafa fengið nóg af misskiptingunni á milli þeirra sem eiga og hinna sem skulda.“ Þetta sagði þingkonan Lilja Mósesdóttir þegar hún kynnti nýjan stjórnmálaflokk sinn, Samstöðu – flokk lýðræðis og velferðar, í Iðnó í gær. Flokkurinn hefur fengið listabókstafinn C. 8.2.2012 06:00
Reykjanesbrautin nú ein öruggasta leiðin Hættulegasti vegur landsins er leiðin milli Neskaupstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið. 8.2.2012 04:00
Páll Óskar vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision "Ég hef nú þegar hvatt Pál Magnússon til að afþakka þátttöku Íslands í Eurovision í Bakú. Ég vona að hann geri það og taki þessari áskorun minni. Listamaðurinn sem vinnur keppnina á laugardaginn getur líka afþakkað ferðina sjálfur ef hann vill," segir Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari á Facebook-síðu sinni. 7.2.2012 23:20
Skilin eftir úti í nístingskulda með feldinn frosinn við stéttina Yfirvöldum hefur borist fjöldi ábendinga vegna illrar meðferðar á hundstík á heimili í Kópavogi, en ekkert hefur verið aðhafst. Þegar verst lét var tíkin skilin eftir úti í nístingskulda með feldinn frosinn við gangstéttina. 7.2.2012 19:30
Samstaða á Patreksfirði: "Við munum ekki breyta um nafn" "Það kemur svolítið á óvart að hún skuli velja akkúrat þetta nafn án þess að hafa samband við okkur. Ég fékk bara tölvupóst áðan frá félaga mínum sem sagði mér frá þessu,“ segir Haukur Már Sigurðsson, formaður Samstöðu á Patreksfirði. 7.2.2012 19:27
Næstu kosningar snúast um trúverðuleika til að framfylgja loforðunum Nýtt stjórnmálaafl, Samstaða, var kynnt til sögunnar í dag. Formaður flokksins er Lilja Mósesdóttir fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna. 7.2.2012 19:15
Lyfjameðferðin kostar 40 milljónir á ári Ungur maður byrjar á árinu í lyfjameðferð á Landspítalanum sem kostar um fjörtíu milljónir á ári. Um er að ræða dýrustu einstöku lyfjameðferð sem að spítalinn hefur veitt. Óttast er að skera þurfi niður lyfjameðferðir vegna kostnaðar. 7.2.2012 18:45
Voru um tíma trúlofuð Maður á þrítugsaldri, sem grunaður er um manndráp í Hafnarfirði, var í dag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Hann var um tíma trúlofaður konunni sem hann er talinn hafa orðið að bana. Hún lætur eftir sig tæplega tvítugan son. 7.2.2012 18:30
Lilja stofnar Samstöðu - Siggi Stormur er varaformaður Nýr stjórnmálaflokkur, Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar, var kynntur formlega til leiks á blaðamannafundi í dag. Þar fer Lilja Mósesdóttir fremst í flokki. Flokkurinn hefur fengið listabókstafinn C og hyggur hann á framboð í öllum kjördæmum í næstu Alþingiskosningum. 7.2.2012 17:04
Tafir í Keflavík vegna veðurs - farþegar fastir um borð Svo hvasst er á Keflavíkurflugvelli að flugvélar sem þar lenda komast ekki allar upp að flugstöðinni í einu. Því hafa nokkrar vélarnar þurft að bíða með að hleypa fólki frá borði. Samkvæmt upplýsingum Vísis voru farþegar í um fjórum vélum að bíða nú rétt fyrir fimm og verður þeim lagt upp að flugstöðinni eftir því sem veður leyfir. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur flug til Ameriku og til Bretlands verið sett i bið þangað til veður lægir. 7.2.2012 17:00
Lýsa eftir vinnuvél Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vinnuvél sem var stolið úr Kjalarvogi við Vogarbakka í Reykjavík sl. fimmtudagsmorgun. 7.2.2012 16:56