Á bílskúr fullan af kubbum 8. febrúar 2012 07:30 Guttormur og sonur hans, Þorfinnur, vinna hörðum höndum að því að tæma 60 stóra kassa af legókubbum. Erfiðisins munu gestir og gangandi geta notið í Ráðhúsinu á Vetrarhátíð um helgina. fréttablaðið/pjetur
Smiðurinn Guttormur Þorfinnsson er ásamt fleirum að setja upp ævintýraland úr legókubbum í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Efniviðurinn, þúsundir og aftur þúsundir legókubba, er allur í eigu Guttorms og fjölskyldu hans og fyllir sextíu þrjátíu lítra kassa Tjarnarsalurinn í Ráðhúsi Reykjavíkur mun um komandi helgi hýsa ævintýraland byggt úr legókubbum. Að baki þessum undraheimi stendur að öðrum ólöstuðum Guttormur Þorfinnsson húsasmiður. Hann tók með sér að heiman 60 þrjátíu lítra kassa af kubbum sem hann hefur frá barnsaldri viðað að sér. „Ég var legópolli og mömmu fannst betra að vita af okkur við að kubba en vera alltaf að slást. Maður sér rítalínbörnin læknast af þessu,“ segir Guttormur. Hann segist hafa tekið sér langt hlé frá unglingsárum allt fram að því að hann eignaðist sitt fyrsta barn. Sá er Þorfinnur sonur hans sem situr ásamt föður sínum klukkustundum saman niðri í Tjarnarsal við að undirbúa undraheim Legó sem er hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar. Þar mun gestum og gangandi gefast tækifæri til að gefa ímyndunaraflinu og sköpunargáfunni lausan tauminn. Guttormur segir dætur sínar tvær hafa síðar gengið í lið með þeim feðgum við að sinna áhugamálinu en aðkoma móður þeirra hefur að mestu einskorðast við að hjálpa til við að ganga frá að leik loknum. „Bílskúrinn hefur lengi verið fullur af legókubbum og ég var orðinn hálfhræddur um að drepast áður en ég gæti gert eitthvað verulega grand,“ segir Guttormur. Þegar blaðamaður spyr í forundran hvort hægt sé að meta hversu marga kubba þarf til að hálffylla bílskúr; hvort þeir skipti tugum eða hundruðum þúsunda, þá skýtur sonurinn Þorfinnur því inn í viðtalið að líklega sé ekki hollt að hugsa mikið um það. Legó eru dýr leikföng og ekki annað hægt en að spyrja eigandann hvort áhugamálinu fylgi ekki töluverð fjárútlát. „Þetta eru svona tvö, þrjú jeppadekk á ári að safna Legó.“ Kastalar og aðrar miðaldabyggingar, riddarar og annað sem því fylgir eru í sérstöku uppáhaldi hjá Guttormi. Hann sýnir blaðamanni nokkur dæmi og er ekki hægt annað en að hrífast með. Ævintýraheimur Legó er flókinn og vandrataður og því margt sem verður til sýnis um helgina. Spurningunni um hvort einhver takmörk séu fyrir því sem hægt er að byggja úr legókubbum svarar Guttormur: „Ég efast um það.“ Eins og flestir vita þá eru leikföngin frá Legó frá dönsku fyrirtæki. Það liggur því beint við að spyrja Guttorm hvort hann hafi ekki „farið til Mekka“ einhvern tímann. „Í brúðkaupsferðinni, kallinn minn. En ég fékk engu öðru að ráða í kringum það umstang allt saman,“ segir Guttormur. Undraheimur Legó opnar á föstudaginn 10. febrúar klukkan 10 og stendur til klukkan 17. Á laugardag og sunnudag verður opið frá klukkan 13 til 17. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira