Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Langflest afbrot hér á landi tengd áfengi og fíkniefnum Fjórðungur allra fanga á landinu situr inni vegna fíkniefnabrota. Árið 1990 var hlutfallið sjö prósent. 28.12.2011 08:00
Landsvirkjun endurnýjar veltulán Landsvirkjun hefur skrifað undir samning um nýtt sambankalán á alþjóðlegum bankamarkaði, hið fyrsta sem opinbert íslenskt fyrirtæki gerir frá bankahruni. 28.12.2011 07:00
Hækka um tugi þúsunda á ári Leikskólagjöld hjá öllum stærstu sveitarfélögum landsins hækka um tvö til þrjú þúsund krónur á mánuði um áramótin. Hækkunin nemur tugum þúsunda hjá foreldrum á ársgrundvelli. 28.12.2011 06:30
Gaskútar geta valdið slysahættu í frosti "Ég skrúfa frá gasinu og þá skyndilega leggur eldsúlu upp úr gashellunni sem læsist í gluggatjöldin fyrir ofan. Ég heyri konuna mína strax æpa og skrúfa þá fyrir þar sem ég átta mig á því sem er að gerast. Þetta slapp því í rauninni mjög vel en ég rétt ímynda mér hvað hefði gerst ef ég hefði verið einn þarna og ekki áttað mig. Þá hefði þessi timburbústaður bara fuðrað upp,“ segir Hrafnkell Á. 28.12.2011 06:00
Ekki þörf á byssum fyrir löggur LöggæslaÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki telja þörf á því að lögreglumenn hafi almennari aðgang að skotvopnum en nú er. 28.12.2011 05:00
Byggja félagsmiðstöð í Spönginni Verja á 650 milljónum króna í byggingu nýrrar félagsmiðstöðvar í Spönginni í Grafarvogi. Þar munu þjóðkirkjan og hjúkrunarheimilið Eir meðal annarra hafa aðstöðu. 28.12.2011 04:00
Óásættanlegt að leyfi hafi verið veitt Hópur fólks og félaga sem eru andvíg því að erfðabreytt bygg verði ræktað í gróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi skorar á sveitarstjórnir á svæðinu að beita sér fyrir því að leyfi til ræktunarinnar verði afturkallað. 28.12.2011 03:00
Handrukkunum fjölgað - dæmi um afklippta fingur og skotárás Málum þar sem handrukkun er beitt hefur fjölgað síðustu misseri að mati lögreglu og meiri hörku er beitt en áður. Dæmi um það eru afklipptir fingur og skotárás. 27.12.2011 18:32
Stríðsfréttaritari Íslands: Ótrúlegt ár Jóns Björgvinssonar Það er líklega óhætt að segja að Jón Björgvinsson sé eini stríðsfréttaritari Íslands. Á þessu ári hefur hann verið mitt í miðjum átökunum í Mið-Austurlöndum, eða arabíska vorinu eins og það hefur oft verið kallað. 27.12.2011 20:20
Landsbjörg býst við góðri flugeldasölu í ár Flugeldasala fer í fullan gang á morgun og býst Landsbjörg við góðri sölu þetta árið. Ný skotgleraugu eru komin á markaðinn til að mæta kröfuhörðum tískuunnendum. 27.12.2011 19:00
Hringja grátandi til fjölskylduhjálparinnar Vegna fjölda beiðna um um mataraðstoð verður Fjölskylduhjálpin með úthlutanir í Eskihlíðinni í Reykjavík á morgun frá klukkan tvö til fimm. Búið var að ákveða að hafa lokað á milli jóla og nýárs, en Ásgerður Jóna Flosadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálparinnar, segir að neyðin sé mjög mikil, og fólk hringi grátandi til Fjölskylduhjálparinnar og biðji um mataraðstoð. 27.12.2011 16:42
Örþreyttir björgunarsveitamenn á aðfangadag Þeir voru margir þreyttir björgunarsveitarmennirnir á aðfangadag eftir að hafa unnið þrekvirki við að aðstoða fólk sem var í hremmingum vegna óveðursins sem geysaði á aðfangadag á stórum hluta landsins. 27.12.2011 15:15
Sjö ára í heljarstökki Benedikt Friðbjörnsson, sjö ára gamall drengur á Akureyri, hefur náð alveg hreint ótrúlegri færni á snjóbretti þau tvö ár sem hann hefur æft. Á meðfylgjandi myndskeiði sést hann fara í afturábak heljarstökk og gerir það leikandi létt. 27.12.2011 14:17
Níu brennur á höfuðborgarsvæðinu Byrjað verður að taka á móti efni í áramótabrennurnar í fyrramálið en þær verða á sömu stöðum og í fyrra. Vel er fylgst með því hvað fer á brennurnar og eru um það skýrar reglur hvað má fara í bálkestina. "Best er að fá hreint timbur á brennurnar", segir Þorgrímur Hallgrímsson brennukóngur og rekstrarstjóri á hverfastöð Framkvæmda- og eignasviðs. "Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi á köstinn.“ Starfsmenn hverfastöðvanna verða á vettvangi og leiðbeina þeim sem koma með efni. Hætt verður að taka á móti efni þegar brennurnar eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi klukkan 12 á gamlársdag. 27.12.2011 13:53
Margar konur nefndar til sögunnar sem næsti biskup Síðan Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands tilkynnti við upphaf síðasta kirkjuþings að hann hygðist láta af embætti á næsta ári hefur legið fyrir að biskupskjör fer fram á næsta ári. 27.12.2011 12:18
Litadýrð í loftinu Þessi fallegu glitský sáust á suðausturhimni á Akureyri í morgun um klukkan 10:25. Glitský hafa sést nokkrum sinnum í vetur en um er að ræða ákaflega fögur marglit ský sem myndast í heiðhvolfinu, oft í um 15 - 30 kílómetra hæð, eftir því sem fram kemur í svari Halldórs Björnssonar veðurfræðings á Vísindavefnum. Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða við sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð. 27.12.2011 11:51
Ekkert vitað hver braust inn í Fjölskylduhjálp Enn er ekkert vitað um það hver braust inn í aðsetur Fjölskylduhjálpar Íslands á Suðurnesjum um jólin og stal þaðan gjöfum og tölvu með viðkvæmum persónuupplýsingum. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið. Meðal þess sem þjófarnir tóku, auk fyrrnefndar tölvu, voru 66° Norður gallar. 27.12.2011 10:26
Enn á gjörgæslu en ekki í bráðri lífshættu Tveir liggja enn á sjúkrahúsi eftir árekstur á Vesturlandsvegi síðdegis í gær. Fólkið var í sömu bifreiðinni. Kona liggur á gjörgæslu alvarlega slösuð en er ekki í bráðri lífshættu að sögn vakthafandi læknis. Karlmaður var lagður inn á slysa- og bráðadeild þar sem hann var undir eftirliti í nótt og er hann með minniháttar áverka. 27.12.2011 10:24
Átök á milli lögreglu og strangtrúaðra gyðinga Til átaka kom á milli lögreglu og strangtrúaðra gyðinga í ísraelska bænum Beit Shemesh, nálægt Jerúsalem og voru nokkrir handteknir. Miklar deilur hafa staðið á milli hinna strangtrúuðu og annarra gyðinga í bænum en hinir fyrrnefndu krefjast algjörs aðskilnaðar kynjanna og að konur klæði sig á ákveðinn hátt. Til átakanna í gær kom þegar lögregla reyndi að fjarlægja skilti þar sem hvatt er til aðskilnaðarins. 27.12.2011 09:17
Vill endurskoða skotvopnabúnað lögreglu Þróun ástands og aukin skotvopnanotkun í glæpaheiminum hér á landi undanfarin misseri er farin að kalla á frekari umræðu um skotvopnanotkun lögreglu. 27.12.2011 07:30
Hætta inntöku lyfja vegna aukaverkana Dæmi eru um að konur með brjóstakrabbamein hafi gefist upp á að taka hormónabælandi lyf vegna aukaverkana, að sögn Ásgerðar Sverrisdóttur, krabbameinslæknis á Landspítalanum. 27.12.2011 07:00
Tveir á sjúkrahúsi í nótt eftir áreksturinn á Vesturlandsvegi Einn var á gjörgæslu í nótt og annar undir eftirliti lækna eftir harðan árekstur á Vesturlandsvegi rétt fyrir klukkan sex í gær. Sex bílar lentu í árekstrinum, mis-mikið þó. Alls voru fimm fluttir á slysadeild í kjölfarið, fjórir fullorðnir og fimmtán mánaða gamalt barn en að skoðun lokinni fengu fjórir að fara heim. Sá sem settur var í gjörgæslu beinbrotnaði og hlaut innvortis blæðingu, að sögn lögreglu. Ökumaður bílsins sem hann var farþegi í var einnig hafður á sjúkrahúsinu í nótt undir eftirliti. 27.12.2011 06:43
Ósátt við hærri leikskólagjöld Menntun Samtök foreldra leikskólabarna í Kópavogi mótmæla gjaldskrárhækkunum sem eiga að taka gildi um áramót. Þá hækka leikskólagjöld um sjö prósent. 27.12.2011 06:30
Veiðiþjófar handteknir Lögreglumenn á Fáskrúðsfirði gómuðu á jóladag tvo veiðiþjófa sem höfðu skotið hreindýr í Hamarsfirði fyrr um daginn. Upp komst um verknaðinn við venjubundið umferðareftirlit lögreglunnar. Hún hafði afskipti af bifreið sem í voru menn klæddir í veiðigalla og virtust mjög vel útbúnir til veiða. Þeir kváðust hafa verið við refaveiðar í Hamarsfirði og ekki staðist mátið þegar hreindýrs varð vart. Málið, sem telst upplýst, er til meðferðar hjá lögreglunni í umdæmi lögreglustjórans á Eskifirði. 27.12.2011 06:00
Noregur býður til fundarhalds Noregur hefur boðið Íslandi, Færeyjum og þeim Evrópusambandslöndum sem stunda makrílveiðar til fundar um veiðarnar í Bergen 24. til 27. janúar. 27.12.2011 05:00
Langlífi og lök ávöxtun kostar borgina 8,6 milljarða Hækka þarf iðgjald Reykjavíkurborgar í lífeyrissjóð starfsmanna um tæp fjögur prósent eigi A-deild sjóðsins að standa undir skuldbindingum sínum. 27.12.2011 05:00
Nýtt ADHD-lyf innan seilingar Nýlegar uppgötvanir dr. Hákonar Hákonarsonar og rannsóknarteymis hans við Barnaháskólasjúkrahúsið í Fíladelfíu í Bandaríkjunum vegna ofvirkni og athyglisbrests (ADHD) í börnum hafa vakið mikla athygli, enda bregða þær nýju ljósi á orsakir kvillans og, sem heyrir ekki síður til tíðinda, möguleg lyf gegn ADHD. 27.12.2011 04:30
Landsdómur og hrun tefur sýningarhaldið Þjóðmenningarhúsið mun í framtíðinni hýsa grunnsýningu sem lýsir íslenskum þjóðmenningararfi. Að sýningunni koma höfuðsöfnin tvö Listasafn Íslands og Þjóðminjasafn auk Stofnunar Árna Magnússonar. Þjóðminjasafn mun taka við rekstri hússins af mennta- og menningarmálaráðuneytinu þegar skipunartími Markúsar Arnar Antonssonar, forstöðumanns hússins, rennur út 1. júní 2013. 27.12.2011 04:00
Hafa ekki fengið svör um fangaflug Ísland er meðal Evrópulanda sem ekki hefur svarað fyrirspurn erlendra mannréttindasamtaka um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. 27.12.2011 03:15
70 þúsund fyrir flutning með sjúkrabíl Það mun kost ósjúkratryggða og erlenda ferðamenn um 70 þúsund krónur fyrir flutning með sjúkrabíl eftir áramót. Samkvæmt fréttavef RÚV munu gjöld fyrir læknisþjónustu og lyf hækka almennt um áramót. 26.12.2011 18:06
Veiðiþjófar gómaðir Í gær, á jóladag, gómuðu lögreglumenn á Fáskrúðsfirði tvo veiðiþjófa. Mennirnir skutu hreindýr í Hamarsfirði fyrr um daginn. Upp komst um verknaðinn við venjubundið umferðareftirlit lögreglunnar, en lögreglan hafði afskipti af mönnunum, en þeir voru klæddir í veiðigalla, og virtust mjög vel útbúnir til veiða. 26.12.2011 13:59
Siglufjarðarvegur lokaður vegna snjóflóða Siglufjarðarvegur er lokaður vegna snjóflóða samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. 26.12.2011 12:23
Þjófurinn sem stelur frá fátækum ófundinn Þjófurinn, sem braust inn í Fjölskylduhjálp Íslands í fyrrinótt, er ófundinn. Innbrotið uppgötvaðist í gærmorgun þegar Anna Jónsdóttir, verkefnastjóri Fjölskylduhjálpar Íslands á Suðurnesjum, kom til vinnu. Þá hafði þjófur farið upp á efri hæð hússins, unnið skemmdarverk auk þess sem hann stal tölvu og öðrum munum. 26.12.2011 11:03
Ábendingar frá veðurfræðingi: Éljagangur og skafrenningur víða Éljagangur verður í dag suðvestan- og vestanlands meira og minna í dag. Allhvass vindur og skafrenningur með þessu og nokkuð blint, s.s. á Suðurnesjum, Hellisheiði, Snæfellsnesi, Holtavörðuheiði í Dölum og á sunnanverðum Vestfjörðum. 26.12.2011 10:21
Nokkuð um að ökumenn festu sig Nokkuð var um að bílar festust í ófærðinni í gærkvöldi og í nótt. Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu um að tveir bílar hefðu fest sig og komu björgunarsveitir þeim til aðstoðar í nótt. 26.12.2011 09:40
Gögnum stolið frá Fjölskylduhjálp Íslands á Suðurnesjum "Það er ekki tölvan sem viljum fá til baka heldur aðeins gögnin sem eru í henni,“ segir Anna Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Fjölskylduhjálp Íslands á Suðurnesjum. 25.12.2011 15:41
Mjög ölvaður ökumaður á Miklubraut Færð er tekin að batna en lögreglan vill þó vara við hálku sem og krapa á akbrautum. Á göngustígum er enn talsverður snjór og mjög hált undir og biður lögreglan alla um að fara varlega. 25.12.2011 17:06
Nesval einnig opið Það er ekki bara Pétursbúð sem er opin í dag því verslunin Nesval að Melabraut á Seltjarnarnesi er opin til klukkan 21 í kvöld. Í tilkynningu segir að góð jólastemming sé í versluninni. 25.12.2011 15:52
Festust á leið til Þingvalla í nótt Hjálparsveit skáta í Kópavogi var kölluð til aðstoðar á Nesjavallaleið rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Þar sat bíll fastur með erlendum ferðamönnum sem voru á leið til Þingvalla. Samkvæmt upplýsingum frá hjálparsveitinni var einn bíll sendur á staðinn sem aðstoðaði ferðamennina að halda för sinni áfram. 25.12.2011 15:22
Um 600 Íslendingar halda jólin í 26 stiga hita Um 600 Íslendingar eru nú staddir á Kanaríeyjum þar sem jólin er haldin hátíðleg og að íslenskum sið. Þar er þó engin snjór heldur 26 stiga hiti og sól. 25.12.2011 14:00
Pétursbúð opin í dag Kaupmaðurinn á horninu er með búðina opna í dag, en Pétursbúð skýtur stóru verslunarkeðjunum þannig ref fyrir rass, sem flestar hafa lokað yfir jólin. Hægt verður að komast í apótek á tveimur stöðum á landinu, en ÁTVR verður lokuð fram á þriðjudag. 25.12.2011 12:14
Föt af bæjarbúum úti í fjöru Snögg viðbrögð björgunarsveitarmanna í Neskaupstað komu í veg fyrir stórtjón þegar tvö stór skip slitnuðu frá bryggju í veðurofsanum í gærkvöldi. Veður hefur nú lygnt um allt land en vegagerðin varar við að aðeins er mokstur á helstu umferðaræðum í kringum höfuðborgarsvæðið. 25.12.2011 12:08
Frítt að hringja til útlanda í dag Í dag, jóladag, ætlar Síminn að bjóða öllum viðskiptavinum sínum sem eru með heimasíma að hringja til útlanda án endurgjalds. 25.12.2011 10:47
Hjálpuðu tveimur jólasveinum að dreifa pökkum Hjálparsveit skáta í Hveragerði aðstoðaði nokkra bíla sem lentu þar í vandræðum upp úr klukkan fimm í nótt. Slæmt veður var á heiðinni, samkvæmt upplýsingum frá hjálparsveitinni. Í tilkynningu segir að þegar félagar sveitarinnar höfðu lokið við að aðstoða bíla á heiðinni hafi komi beiðni frá Jólasveinum um að aðstoða þá við að dreifa nokkrum jólapökkum í Hveragerði, þar sem mikill snjór var í bænum í morgun. Félagar í hjálparsveitinni fóru því á tveimur sérútbúnum björgunarsveitarbílum og sáu til þess að allar gjafirnar komust til skila. 25.12.2011 09:52
Jólasnjórinn kemur manni í jólafíling Jólalegt er um að litast höfuðborgarsvæðinu þessa stundina en um klukkan sex í morgun byrjaði að snjóa af krafti. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur snjóað mikið frá klukkan sex til níu, en búist er við meiri snjókomu í dag. 25.12.2011 09:23