Innlent

Veiðiþjófar handteknir

Tveir veiðiþjófar voru handteknir af lögreglunni á Fáskrúðsfirði eftir að hafa drepið hreindýr.
Tveir veiðiþjófar voru handteknir af lögreglunni á Fáskrúðsfirði eftir að hafa drepið hreindýr.
Lögreglumenn á Fáskrúðsfirði gómuðu á jóladag tvo veiðiþjófa sem höfðu skotið hreindýr í Hamarsfirði fyrr um daginn. Upp komst um verknaðinn við venjubundið umferðareftirlit lögreglunnar. Hún hafði afskipti af bifreið sem í voru menn klæddir í veiðigalla og virtust mjög vel útbúnir til veiða. Þeir kváðust hafa verið við refaveiðar í Hamarsfirði og ekki staðist mátið þegar hreindýrs varð vart. Málið, sem telst upplýst, er til meðferðar hjá lögreglunni í umdæmi lögreglustjórans á Eskifirði.

- fb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×