Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Blöskrar meðferð á fólki með lánsveð Liðlega sjötugur faðir hefur í tvígang fengið neitun frá Fjármálaeftirlitinu um að Arionbanki verði skikkaður til að aflétta veði sem sonur hans fékk lánað í íbúð foreldra sinn svo sonurinn fái að njóta 110 prósenta leiðarinnar. Faðirinn segir fólk með lánsveð beitt ranglæti, og vill fara með málið fyrir dómstóla. 13.12.2011 19:51
Sjónarvottur að morðunum í Liege: "Það var blóð úti um allt“ Sjónarvottur að árásinni í Liege í Belgíu segir í samtali við fréttastofu að mikil ringulreið hafi ríkt á svæðinu. Hann segist hafa séð nokkra þeirra sem létust og marga særða en 75 særðust í hildarleiknum. Árásamaðurinn, 32 ára karlmaður, framdi sjálfsmorð eftir að hafa skotið úr riffli og skambyssu og varpað handsprengjum niður á mannfjöldann á Saint-lamberte torginu. 13.12.2011 18:37
Aðstoðuðu bensínlausan nemanda á leið í próf Karl á þrítugsaldri varð fyrir því óláni að bifreið hans varð bensínlaus í morgunumferðinni á Miklubraut í gær. „Til að bæta gráu ofan á svart var maðurinn á leið í próf og mátti því engan tíma missa,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. „Honum til happs voru tveir lögreglumenn staddir í nágrenninu og óku þeir manninum í snarhasti á næstu bensínstöð til að sækja nokkra lítra af bensíni.“ 13.12.2011 18:24
Hundur ók á bíl í Eyjum Árekstur varð við verslunina Vöruval í Vestamannaeyjum í dag. Um aftanákeyrslu var að ræða þar sem bíl var ekið á annan kyrrstæðan. Hið undarlega í málinu er, að ökumaðurinn var ekki maður, heldur hundur. 13.12.2011 17:58
Bílþjófur tekinn - ekur bara próflaus í undantekningartilfellum Lögreglan handtók tvo menn á stolnum bíl í miðborginni í gær en bílnum hafði verið stolið í vesturbænum fyrir hádegi. Mennirnir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu lögreglunnar. 13.12.2011 18:28
Tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku Ungur karlmaður var á föstudaginn var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára gamalli stúlku á Selfossi. Pilturinn var 17 ára gamall þegar brotið var framið en atburðurinn átti sér stað í júní síðastliðnum. Stúlkan greindi frá því fyrir rétti að pilturinn hafi dregið sig afsíðis og komið fram vilja sínum gagnvart henni. Hún hafi þráfaldlega beðið hann um að hætta en allt kom fyrir ekki. 13.12.2011 18:00
Syngur lag í minningu föður sins Söngkonan Eivør Pálsdóttir mun syngja nýtt jólalag á árlegum Jólasöngum Langholtskirkju sem fram fara um helgina. Lagið syngur hún í minningu föður síns sem lést á árinu. „Og raunar allra sem við söknum sérstaklega á jólunum sem eru ekki með okkur lengur," segir Jón Stefánsson kórstjóri sem var einmitt á leið á æfingu með graduelakór Langholtskirkju til að æfa nýjustu útsetninguna á laginu. „Svo kemur hún sjálf á morgun og þá erum við með æfingu með hljómsveit og öllu," segir Jón. 13.12.2011 16:36
Katrín veitti verðlaun: Vilja lokka trúaða Bandaríkjamenn til Íslands Katrín Júlíusdóttir, ferðamálaráðherra afhenti í dag forsvarsmönnum "Heilsu og trúar" hvatningarverðlaun í heilsuferðaþjónustu en verkefnið felst í að bjóða heilsuferðir fyrir trúaða Bandaríkjamenn þar sem hver hluti verkefnisins er nátengdur heilbrigði og trú með sterkri tilvísun í íslenska náttúru og menningu. 13.12.2011 16:30
Lögreglan leitar vitna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á Korpúlfsstaðavegi, við Barðastaði, klukkan 8.20 í gærmorgun, mánudaginn 12. desember. 13.12.2011 14:27
Perez Hilton mælir með Retro Stefson Stjörnubloggarinn Perez Hilton, en bloggsíða hans er ein sú vinsælasta í heiminum, mælir í dag með íslensku hljómsveitinni Retro Stefson. Á síðunni er linkur á youTube myndband með hljómsveitinni þegar hún kom fram á síðustu Iceland Airwaves hátíð í október. 13.12.2011 14:23
Ólafur Þórðarson jarðsunginn Útför Ólafs Tryggva Þórðarsonar tónlistarmanns var gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hófst athöfnin klukkan eitt. Ólafur var einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar um árabil, þekktastur fyrir það að vera einn af þremennningunum úr Ríó tríó. Hann lést á endurhæfingardeild Landspítalans á Grensás þann 4. desember síðastliðinn en hann hafði verið rúmliggjandi eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í nóvember í fyrra. 13.12.2011 13:53
Minna á tjáningarfrelsið Stjórnir Hagþenkis, Rithöfundasambands Íslands, Bandalags þýðenda og túlka, Reykjavíkur Akademíunnar, Blaðamannafélags Íslands og PEN á Íslandi vilja af gefnu tilefni minna á að einn af hornsteinum stjórnarskrár Íslands sé óskoraður réttur borgaranna til þátttöku í opinni samfélagsumræðu á fundum, í dagblöðum, á netsíðum, ljósvakamiðlum eða í bókum. 13.12.2011 13:51
Síbrotamaður í átta mánaða fangelsi Rétt liðlega þrítugur karlmaður var dæmdur í átta mánaða fangelsi í dag fyrir líkamsárás í Seljahverfi í apríl í fyrra. Maðurinn var fundinn sekur að að hafa slegið annan mann í andlitið á heimili hans með þeim afleiðingum að það blæddi úr. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða þolanda árásarinnar 600 þúsund krónur í miskabætur. Hinn dæmdi hefur margoft komið við sögu lögreglunnar og var á skilorði þegar dómurinn var kveðinn upp. 13.12.2011 13:16
Slökkti í logandi fötum mömmu sinnar Sautján ára piltur sýndi mikið snarræði og hugrekki þegar hann kom móður sinni til bjargar og náði að slökkva í logandi fötum hennar áður en hún brenndist enn meir en raunin varð. Lögregla telur að hann hafi jafnvel bjargað lífi hennar. 13.12.2011 12:03
Með áverka á baki eftir eggvopn Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu í Vestmannaeyjum um helgina og er önnur þeirra sýnu alvarlegri en hin. Hún átti sér stað aðfaranótt sunnudagsins í heimahúsi. Þar lenti maður í átökum við húsráðanda og fengu báðir áverka í andlit eftir átökin. Auk þess var sá sem var gestkomandi með sár á baki sem talin eru eftir egghvasst áhald. Ekki var um djúp sár að ræða en maðurinn þurfti að leita aðstoðar læknis til að loka sárinu. Við rannsókn málsins viðurkenndi aðili sem þarna var að hafa valdið manninum þessum áverkum á bakinu. Lögreglan segir að málið sé að mestu upplýst. 13.12.2011 11:41
Veðjað á að Jón fari Mun meiri líkur eru á því að Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fari úr ríkisstjórn fyrir áramót en ekki, eftir því sem veðmálasíðan Betsson segir. Á síðunni er nú hægt að veðja hvort Jón fari eða verði áfram. Stuðullinn er 1,35 á að hann fari en 3 á að hann fari ekki, sem þýðir að á síðunni er gert ráð fyrir að hann fari. Ríkisráðsfundur er jafnan haldinn á Bessastöðum á gamlársdag. Á ríkisráðsfundum eru ráðherrar jafnan skipaðir í embætti og öðrum veitt lausn. Á slíkum fundum eru lög sem samþykkt hafa verið frá Alþingi einnig endurstaðfest. 13.12.2011 11:37
Gríðarlegar skemmdir á húsinu Gríðarlegar skemmdir urðu á húsnæðinu við Fagrahjalla í Kópavogi sem kviknaði í í gærkvöld, eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði. Fram hefur komið brenndist kona alvarlega í eldinum og liggur hún nú á Landspítalanum. Konan var ein í húsinu þegar eldurinn kom upp. Hann logaði í stofu á eftir hæð og eru eldsupptök rakin til arins sem er þar. 13.12.2011 11:15
Skattleggja hagnað en lækka skatt á laun Fjársýsluskattur á lífeyrissjóði verður felldur út úr frumvarpi fjármálaráðherra um ráðstafanir í ríkisfjármálum, bandorminum svokallaða. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar samþykkti umfangsmiklar breytingar á frumvarpinu í gærkvöld. Það verður til umræðu á þingi í dag. 13.12.2011 09:00
Óslóartréin eignast afkomendur á Íslandi Oslóartrén, sem prýtt hafa Austurvöll í 60 ár haf nú eignast afkomendur í Elliðaárdal, þar sem nokkur lítil Oslóartré vaxa nú og dafna. 13.12.2011 07:55
Fikt með úðabrúsa endaði með sprengingu Karlmaður á þrítugsaldri, hafði næstum farið sér að voða og hlaut fyrsta og annars stigs bruna þegar hann var að fikta með própangas og kveikti í lakkúðabrúsum, sem sprungu og sköpuðu eldhaf. 13.12.2011 07:47
Þrálát bræla stoppar loðnuveiðarnar Flest loðnuskipin eru í höfn vegna þrálátrar bræðu á Grænlandssundi, þar sem helsta veiðivonin er. 13.12.2011 07:42
Enn talsverður kuldi á landinu Þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr frosti víðast hvar á landinu mældist rúmlega 12 stiga frost í Húsafelli og tæplega 12 stiga frost á Hvanneyri í nótt. 13.12.2011 07:39
Kona alvarlega brennd eftir eldsvoða í Kópavogi Kona liggur alvarlega brennd á Landsspítalanum eftir að hún komst af sjálfsdáðum út úr brennandi raðhúsi við Fagrahjalla í Kópavogi um kvöldmatarleitið í gærkvöldi. 13.12.2011 07:27
Segir skatt vegna skuldamála styrkja lífeyrissjóði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir lífeyrissjóðina njóta góðs af skattlagningu á sjóðina. Hún sé hluti af aðgerðum til styrktar skuldugum heimilum og sjóðirnir muni njóta góðs af betri stöðu heimilanna. 13.12.2011 06:00
Flestir ætla að eyða svipað miklu í jólagjafir og í fyrra Landsmenn ætla ýmist að eyða svipuðum upphæðum og í fyrra til jólagjafakaupa, eða eyða lægri upphæðum en fyrir síðustu jól, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. 13.12.2011 06:00
Með dóp og bjúghníf á jólahlaðborði Lögreglumenn úr sérsveit ríkislögreglustjóra veittu á laugardagskvöld athygli tveimur karlmönnum sem sátu í stolnum bíl fyrir utan klúbbhús Vítisengla í Hafnarfirði. Mennirnir voru handteknir og samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins kvaðst annar þeirra hafa verið á jólahlaðborði sem Vítisenglar stóðu fyrir þá um kvöldið í höfuðstöðvum sínum. 13.12.2011 05:45
Krydda tómatarækt með hestasýningum „Nýja gróðurhúsið er hugsað fyrir stóraukna tómatarækt en einnig móttöku fyrir ferðamenn,“ segir Knútur Rafn Ármann, garðyrkjubóndi á Friðheimum í Reykholti, sem er að ganga frá nýju 2.200 fermetra gróðurhúsi. Eftir stækkun er rafmagnsnotkun býlisins á við þrjú þúsund manna bæjarfélag. 13.12.2011 05:30
Henti 18 kílóa borði í konu Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á sextugsaldri fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 13.12.2011 05:00
Pólitíkusar heykjast á samkomulagi Ekki tókst að ná lagalega bindandi samkomulagi allra þjóða um samdrátt í útblæstri gróðurhúsalofttegunda í Durban. Engu að síður skuldbundu ríki sig til að ná saman um samning sem tæki gildi 2020. Umhverfissinnar hafa áhyggjur af því að það verði of seint. Kýótó-bókunin rennur út á næsta ári. 13.12.2011 04:45
Jólasveinarnir mæta á safnið Stekkjarstaur mætti í heimsókn á Þjóðminjasafnið í gærmorgun, en hann er fyrsti jólasveinninn og kom til byggða í fyrrinótt. Fjöldinn allur af börnum tók á móti Stekkjarstaur. 13.12.2011 04:00
Ofbeldisvarnaráði verði komið á fót Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi eru í engu samræmi við það hversu mikil ógn ofbeldið er við heilsu og réttindi barna á Íslandi. Þetta segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Stofnunin hefur gert ráðamönnum grein fyrir hugmyndum sínum um að stofnað verði ofbeldisvarnaráð hér á landi sem myndi sinna forvörnum gegn ofbeldi með áherslu á kynferðislegt ofbeldi, eða að forvörnum verði fundinn staður hjá viðeigandi stofnun. 13.12.2011 03:45
Víðtæk áhrif af banni við mismunun kynja Bann við mismunun kynja við tryggingaútreikninga mun hafa margvísleg neikvæð áhrif á neytendur, tryggingamarkaðinn og samfélagið í heild sinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem Evrópusamtök vátryggjenda hafa látið vinna fyrir sig. Samkvæmt skýrslunni, sem unnin var af greiningarfyrirtækinu Oxera og kynnt í síðustu viku, er fyrirséð að breytingin muni valda því að lífeyrisgreiðslur skerðist um fimm prósent, líftryggingariðgjöld kvenna hækki um þrjátíu prósent og iðgjöld bílatrygginga ungra kvenna hækki um ellefu prósent. 13.12.2011 03:15
Köld excel-skjöl segja ekkert „Kaldir meðaltalsútreikningar í excel-skjölum segja ekkert til um aðstæður á einstökum stöðum,“ segir bæjarstjórn Grundarfjarðar, sem hvetur Heilbrigðisstofnun Vesturlands til að skera niður í öðru en heilsugæslunnni. 13.12.2011 03:15
Segja „óraunhæfa“ tillögu vonbrigði „Tillagan var algjörlega óraunhæf, fól í sér skref aftur á bak frá undanförnum fundum og olli íslenskum stjórnvöldum því miklum vonbrigðum,“ segir Tómas H. Heiðar, aðalsamningamaður Íslendinga í viðræðum um makrílveiðar, um tillögu ESB og Noregs varðandi veiðarnar. 13.12.2011 03:00
Utanríkisráðherra til Íslands Dr. Riad Malki, utanríkisráðherra Palestínu, kemur til Íslands á morgun í boði Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. 13.12.2011 02:00
Eldsvoði og umferðaróhapp með skömmu millibili Tveir voru fluttir á spítala í kvöld. Annarsvegar var kona flutt á spítala eftir að eldur kom upp í íbúð í raðhúsi í Fagrahjalla á áttunda tímanum í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á vettvang en það tók slökkviliðið aðeins nokkrar mínútur að ráða niðurlögum eldsins. 12.12.2011 20:40
Uppljóstrun Alþingis eyðilagði fyrir sérstökum saksóknara Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir úrræði embættisins um að notast við símhleranir hafa eyðilagst eftir að það komst í hámæli í fjölmiðlum. Það var innanríkisráðherra sem upplýsti Gunnar Braga Sveinsson um hleranir embættsins síðasta sumar. Þar kom fram að sérstakur saksóknari notaðist við símhlustun í 72 tilvikum árið 2009. Eftir það gat embættið ekki notast við símhlustun við rannsóknir sínar. 12.12.2011 19:38
Snjóbrettaslysum fjölgað verulega hér á landi Snjóbrettaslysum hefur fjölgað hér á landi með auknum vinsældum brettanna. Rifbeinsbrot og áverkar á milta eru á meðal þess sem læknar sjá eftir slík slys. Yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum segir öryggisbúnað hafa bjargað lífum. 12.12.2011 19:30
Hjálpræðisherinn verður ekki með matarúthlutun Hjálpræðisherinn í Reykjavík hefur ákveðið að vera ekki með matarúthlutun í ár eins og síðastliðin ár. Ástæðan er bág fjárhagsstaða Hjálpræðishersins. Hjálpræðisherinn verður þó eftir sem áður með jólamat á aðfangadag og fangahjálp auk þess að veita heimilislausum mat á dagsetrinu á Eyjaslóð. 12.12.2011 14:34
Aðstandendur Skaupsins í vandræðum vegna Gillz Aðstandendur Áramótaskaupsins íhuga hvort atriði þar sem karakter Egils Einarssonar, eða Gillzenegger, kemur fyrir verði klippt úr næsta Skaupi. Ástæðan er sú staða sem Egill er í eftir að hann var ásakaður um að hafa beitt átján ára stelpu kynferðisofbeldi. Samkvæmt heimildum Vísis er um nokkur atriði að ræða þar sem karakter Egils kemur fyrir. 12.12.2011 13:16
Eldur í raðhúsi - kona slösuð Allt tiltækt slökkvilið hefur verið sent til Kópavogs vegna bruna í raðhúsi. Eldurinn er á annarri hæð hússins en samkvæmt fyrstu upplýsingum slökkviliðsins brenndist kona. 12.12.2011 19:12
46 þúsund felldar niður - verðtryggingin hækkaði um 800 þúsund Lítil fjölskylda í blokkaríbúð í Reykjavík fékk fyrir skömmu lækkun á láni frá Íbúðalánasjóði - lánið var lækkað um 46 þúsund krónur. Á sama tíma hækkaði verðtryggingin lánið um 800 þúsund krónur. 12.12.2011 19:00
Jólatónleikar Lögreglukórsins í Langholtskirkju Jólatónleikar Lögreglukórs Reykjavíkur verða haldnir í Langholtskirkju fimmtudagskvöldið 15. desember klukkan 20. Einsöngvari verður Kristín R. Sigurðardóttir sópransöngkona, undirleik annast Friðrik Vignir Stefánsson en stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson. 12.12.2011 17:28
Bílaeigendur; gætið ykkar á þjófunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. 12.12.2011 17:10
Dýrum vímuefnum skipt út fyrir ódýrari Verð á vímuefnum hefur farið lækkandi undanfarin tvö ár, samkvæmt verðmælingum sem SÁÁ gerir meðal sjúklinga á Vogi. Þessar verðkannanir hafa verið gerðar mánaðarlega síðan um aldamót og sýna vel verðþróun á þessum markaði. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir vísbendingar um að menn séu að skipta ódýrari vímuefnum út fyrir þau dýrari. 12.12.2011 16:06