Fleiri fréttir

Veturinn er kominn - og helgarspáin er nokkuð góð

Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að veturinn er kominn, í það minnsta á höfuðborgarsvæðinu. Þannig náði myndatökumaður fréttastofu mynd af mæðginum á leiðinni í leikskólann í hlíðunum í morgun.

Afturför ef Reykjavikurflugvöllur hverfur

Stjórn Landsambands heilbrigðisstofnana segir í ályktun, að ef Reykjavíkurflugvöllur hverfi, valdi það mikilli afturför í bráðaþjónustu við þá landsmenn, sem þurfi að komast á Landsspítalann í sjúkraflugi.

Verkfallinu hjá Hafrannsókn frestað

Rúmlega átta vikna verkfalli undirmanna á skipum Hafrannsóknastofnunar var frestað á fundi samningamanna sjómanna og ríkisins hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi með undirritun rammasamkomulags, sem á að verða fullbúið fyrir 11. desember.

Ökumaður tekinn réttindalaus og dópaður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók ökumann úr umferð í nótt eftir að í ljós koma að hann var undir áhrifum fíkniefna. Hann reyndist líka réttindalaus, eftir að hafa áður verið sviftur réttindum fyrir fíkniefnaakstur. Auk þess sem bíllinn, sem hann hafði fengið lánaðan, var ótryggður.

Mikil skjálftavirkni norður af Grímsey

Mikil skjálftavirkni er nú norður af Grímsey. Þar varð skjálfti upp á 3,1 í gærdag, með upptök innan við tvo kílómetar norður af eynni.

Þyrla sótti slasaðan sjómann í nótt

Sjómaður um borð í íslenskum togara slasaðist við vinnu þar um borð laust fyrir miðnætti, þegar togarinn var staddur rúmlega 50 sjómílur suðvestur af Reykjanesi, og var óskað eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar sækti hann.

Óveður gekk yfir austanvert landið

Óveður gekk inn á austanvert landið seint í gærkvöldi með allt að 23 metra vindi á sekúndu og talsverðri sjókomu eða slyddu.

Ofbeldið ekki refsivert í þriðjungi ríkja

603 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki skilgreint sem glæpur samkvæmt lögum. Þetta kemur fram í skýrslu UN Women, stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem vinnur í þágu kvenna og jafnréttis. Skýrslan nefnist Staða kvenna í heiminum: Leitin að réttlæti. Fjallað verður um skýrsluna á morgunverðarfundi íslensku landsnefndar UN Women í dag.

Rauðu nefin fara í sölu í dag

Sala á rauðum nefjum hefst í dag, en dagur rauða nefsins verður haldinn í fjórða sinn 9. desember. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari heimsforeldra UNICEF, setti upp fyrsta rauða nefið í ár. Nefin eru nú þrjú, Skjóða, Skotta og Skreppur. Vigdís valdi nefið Skottu auk þess sem hún valdi þrjú nef til viðbótar fyrir barnabörn sín.

Ólafur Ragnar í slæmum félagsskap

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fékk ekki jólakort frá breska forsætisráðherranum í fyrra. Í breska dagblaðinu Daily Mail segir að með því að senda þjóðarleiðtogum ekki jólakort sé ráðherrann að sýna hverjir úr þeirra hópi séu í ónáð.

Vesturbæjarlaugin 50 ára

Á morgun eru liðin 50 ár frá vígslu Vesturbæjarlaugarinnar. Hafliði Halldórsson hefur starfað sem forstöðumaður laugarinnar í tvö ár. Hann hefur verið að skoða blaðagreinar að undanförnu til þess að minnast þeirra tíma þegar verið var að vígja laugina.

Stofnfjárhafar höfðu betur

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms þess efnis að stofnfjáreigendum í Byr og Sparisjóði Norðlendinga beri ekki að endurgreiða lán sem þeir tóku hjá hjá Glitni á sínum tíma til þess að taka þátt í stofnfjáraukningu sparisjóðanna árið 2007.

Sviptir greiðslum fyrir neysluhlé: „Hrein kjaraskerðing“

„Sveitarstjórn sem er vönd að virðingu sinni gerir ekki svona,“ segir Sóley Tómasdóttir, oddviti VG í borgarstjórn, en meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar samþykktu í borgaráði í morgun að svipta leikskólakennara svokölluðu neysluhléi, en kennarnir fá greitt fyrir að borða með börnunum í hádegishléinu.

Barkaígræðsla ratar í virtasta vísindatímarit heims

Grein um plastbarkaígræðslu sem íslenskur læknir tók þátt í hefur nú verið birt í einu virtasta vísindatímariti heims, the Lancet. Barkaþeganum, sem er nemandi við Háskóla Íslands, heilsast vel.

Hleyptu af byssunni í miðri eftirför

Mennirnir sem eru í haldi grunaðir um skotárás um síðustu helgi skutu í átt að fórnarlambi sínu úr bíl á ferð í miðri eftirför. Þetta fullyrðir fórnarlambið, að því er fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir mönnunum.

Stór rækjubátur sigldi á 15 tonna línubát

Minnstu munaði að alvarlegt slys yrði, þegar rækjubáturinn Siglunes, sem er á annað hundrað tonna stálbátur, sigldi á rúmlega sjö mílna hraða á línubátinn Jonna, norður af Siglufirði í gær.

Dregið í Víkingalottóinu klukkan níu

Stefnt er að því að dregið verði í Víkingalottóinu klukkan níu fyrir hádegi, eftir drætti var frestað í gærkvöldi vegna misræmis milli sölukerfa og kerfisstjórnunar finnska lottósins. Stóri vinningurinn er kominn í 2,6 milljarða króna þannig að margir bíða spenntir eftir drættinum.

Leikskólakennarar sturlaðir af reiði

Félag leikskólakennara mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Borgarráðs frá því í morgun að svipta leikskólakennara svokölluðu neysluhléi. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að greiðslurnar falli ekki niður hjá neinni annarri starfstétt hvorki hjá leiðbeinendum sem eru innan raða Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Eflingar eða innan vébanda BHM og ekki hjá aðstoðarleikskólastjórum sem eru í Félagi stjórnenda leikskóla.

Líklega olía á Drekasvæðinu

Meiri líkur eru taldar vera á því að olíulindir finnist á Jan Mayen-hryggnum en áður. Þetta er niðurstaða Olíustofnunar Noregs sem hefur rannsakað sýni af svæðinu í samstarfi við Orkustofnun og Háskólann í Bergen síðustu mánuði.

Funda með stóriðju vegna kolefnisgjalds

Stjórnvöld munu hitta fulltrúa stóriðjunnar vegna fyrirhugaðs kolefnisskatts sem styr hefur staðið um. Fjármálaráðherra segir fyrirtæki ekki verða tvísköttuð. Ekki komi til gjaldsins fyrr en 2013 vegna fyrri loforða gagnvart stóriðju.

Krampakennd leiftur úr biluðu ljósamastri

Héraðsbúi sakar Ríkisútvarpið um skeytingarleysi með því að laga ekki biluð leifturljós í langbylgjumastri þrátt fyrir ábendingar um ónæði af þeim. Um sé að ræða viðvörunarljós vegna flugumferðar en hending sé hvernig þau virki.

Flytja inn sement í stað þess að framleiða

Sementsverksmiðjan á Akranesi mun brátt hætta eigin framleiðslu breytist aðstæður á markaði fyrirtækisins ekki verulega á næstunni. Það hefði óhjákvæmilega í för með sér fækkun starfa hjá fyrirtækinu, að því er segir í fréttatilkynningu frá verksmiðjunni.

Mikill sandur í hafnarmynni Landeyjahafnar

Mikill sandur hefur safnast fyrir framan hafnarmynni Landeyjahafnar og er dýpið þar aðeins þrír metrar, en þarf að vera sex metrar svo höfnin nýtist Herjólfi.

Norðmenn vilja sameina neyðarnúmerin

Fulltrúar öryggismála og frá neyðarþjónustu í Noregi eru nú staddir hér á landi til að kynna sér fyrirkomulag fjarskiptaleiða Neyðarlínunnar.

Örykjar mótmæla skerðingu á kjörum sínum

Aðalstjórn Öryrkjabandalagsins mótmælir harðlega þeim alvarlegu skerðingum á kjörum öryrkja, sem fyrirhugaðar eru af hálfu stjórnvalda og birtast meðal annars í frumvarpsdrögum Velferðarráðuneytisins.

Brotist inn í heimahús

Brotist var inn í heimahús í Reykjavík um miðnætti og þaðan stolið leikjatölvu. Þjófurinn komst undan. Þjófar sem brutust inn í tölvuverslun í fyrrinótt og stálu þaðan átta tölvuskjám, eru ófundnir.

Gígjökulslón er þornað upp

Hálft annað ár er nú frá gosinu í Eyjafjallajökli sem lamaði samgöngur um heim allan. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari brá sér upp að Gígjökli, þaðan sem mestu hlaupin urðu í fyrra.

Tæplega 1.100 bíða eftir félagslegri íbúð

Nær 1.100 manns bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi. Um síðustu mánaðamót biðu 706 eftir félagsíbúð í Reykjavík en af þeim uppfylla 412 skilyrði um að gerast leigutakar hjá Félagsbústöðum. Langflestir þessara 412 umsækjenda, eða 349 manns, bíða eftir eins til tveggja herbergja íbúð.

Öryrkjar mótmæla skerðingu á kjörum

Öryrkjabandalag Íslands mótmælir harðlega þeim alvarlegu skerðingum á kjörum öryrkja sem fyrirhugaðar eru af hálfu Ríkisstjórnar Íslands. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi aðalstjórnar ÖBÍ í dag.

Vonir um risaolíulindir á Drekasvæðinu

Niðurstöður sem Olíustofnun Noregs kynnti í gær sýna að berglögin á Jan Mayen-hryggnum eru þau sömu og á olíusvæðunum í Noregshafi. Norskir sérfræðingar telja líkur á risaolíulindum á Drekasvæðinu sem geymi stjarnfræðileg verðmæti.

17 milljóna króna lán í 140 milljónum árið 2047?

„Ég er búinn að tapa öllum mínum peningum,“ segir Frosti Logason, útvarpsmaður í þættinum Harmageddon á Xinu 977. Hann segir að, ef það verði fimm prósent verðbólga hér á landi út lánstímann á 17 milljón króna láni sínu, sem hann tók árið 2006, verði hann búinn að borga bankanum 140 milljónir króna árið 2047.

Finna flug með öðrum

Finna á leiðir til að það fólk sem átti pantað flug með Iceland Express til Bandaríkjanna á morgun geti flogið með öðrum flugfélögum. Iceland Express ákvað á dögunum að hætta flugi til Bandaríkjanna. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, vill ekki gefa upp um hversu marga farþega er að ræða. "Við gefum það ekkert upp. Það er bara viðskiptamál," segir Heimir Már.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir meintum skotmanni

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa átt aðild að skotárás í Bryggjuhverfi þann átjánda nóvember síðastliðinn. Tveir menn eru í haldi lögreglu vegna málsins en hinum þriðja hefur þegar verið sleppt. Lögregla segist hafa rökstuddan grun um að sá sem um ræðir tengist árásinni. Hann skal sæta varðhalds fram til næstkomandi föstudags.

ESB leggst ekki gegn ríkissölu áfengis

Evrópusambandið mun ekki leggjast gegn einkasölu ríkisins á áfengi og tóbaki eins og hún er stunduð á Íslandi. Þetta kom fram í máli Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á opnum fundi utanríkismálanefndar Alþingis í dag.

Kveikt á Oslóar-trénu á sunnudaginn

Ljósin verða tendruð á Oslóar-jólatrénu á Austurvelli á sunnudaginn kemur. Nú eru sextíu ár liðin frá því íbúar Oslóar færðu Reykvíkingum fyrsta tréð en það hefur ævinlega verið sett upp á Austurvelli og kveikt á því við hátíðlega athöfn fyrsta sunnudag í aðventu. Engin undantekning verður á því í ár og kemur Gunnar Halle trompetleikari frá Noregi fram sem sérstakur gestur Aðventuhátíðar og leikur hann undir jólasöng Dómkirkjukórsins klukkan 16:00, að undangengnum jólatónlistarflutningi Lúðrasveitar Reykjavíkur sem hefst kl. 15.30.

Hafnfirskir unglingar gátu keypt tóbak á fjórum stöðum

Ný könnun sem gerð var á tóbakssölustöðum í Hafnarfirði leiddi í ljós að unglingar gátu keypt sér tóbak á fjórum stöðum af þeim nítján sem kannaðir voru eða á um 20 prósent staðanna. Forvarnafulltrúi Hafnarfjarðar stendur reglulega fyrir könnun af þessu tagi og nú fóru tveir unglingar úr 10. bekk á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa sígarettur.

Peningaeiganda enn leitað

Eigandi veskisins sem lögreglan auglýsti eftir í gær hafði enn ekki gefið sig fram fyrir hádegi í dag, samkvæmt upplýsingum Vísis. Fram kom á Vísi í gær að skilvís maður hefði komið með veskið á stöðina.

Árni Johnsen: Byggingu Þorláksbúðar haldið áfram

Haldið verður áfram við byggingu Þorláksbúðar í Skálholti en skyndifriðun húsafriðunarnefndar á Skálholti var synjað af menntamálaráðherra í gær. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála hefur borist kæra vegna byggingaleyfis Þorláksbúðarfélagsins.

Sjá næstu 50 fréttir