Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkisendurskoðun vill selja ESÍ Ríkisendurskoðun telur að rekstur Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ) samrýmist illa dagbundnum og lögbundnu verkefni Seðlabankans. Stofnunin telur að endurmeta þurfi tilvist ESÍ. Þetta er ein þeirra athugasemd sem Ríkisendurskoðun setur fram í skýrslu sinni um endurskoðun ríkisreiknings ársins 2010. Þar er lagt til „að Seðlabankinn íhugi hvort það væri ekki þágu hagsmuna hans að selja eignir félagsins eða félagið í heild til aðila sem sérhæfa sig í slíkri eignaumsýslu“. 23.11.2011 10:00
Algert öngþveiti á Hellisheiði Öngþveiti er orðið á Hellisheiði vegna óveðurs og er búið að kalla út björgunarsveit til að aðstoða ökumenn, sem lent hafa í vandræðum. Þónokkrir bílar hafa hafnað utan vegar, eru stopp í köntunum eða jafnvel út á miðjum vegi, en skyggni er afleitt, mjög hvasst í hviðum og vegurinn er flug háll. Þrátt fyrir mörg óhöpp hafa ekki borist fréttir af slysum, heldur ekki úr þrengslunum, þar sem tveir bílar ultu í morgun. Í athugun er að loka Hellisheiðinni á meðan veðrið gengur yfir. 23.11.2011 09:50
Þingmenn fræðast um eldvarnir Slökkviliðsmenn ætla að fræða alþingismenn og starfsfólk Alþingis um eldvarnir í hádeginu í dag. Fræðslan fer fram við þinghúsið og er liður í Eldvarnaátaki Landssambands slökkviliðsmanna sem nú stendur yfir. Þingmenn fá fræðslu um mikilvægi reykskynjara og annars eldvarnabúnaðar og fá að spreyta sig á að slökkva elda undir leiðsögn slökkviliðsmanna. 23.11.2011 09:18
Fleiri kettir verða fyrir bíl Kattholti hafa borist óvenjumargar tilkynningar um ketti sem hafa orðið fyrir bíl og drepist það sem af er nóvembermánuði. Þegar hafa tólf kettir fundist dauðir án þess að hægt hafi verið að rekja þá til eigenda sinna. Til samanburðar voru slík tilvik fjögur talsins í október. 23.11.2011 09:15
Ungbarnadauði síst vandamál á Íslandi Tíðni ungbarnadauða var lægst á Íslandi af öllum ríkjum árið 2009. Þetta kemur fram í nýju riti Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Hér á landi lést sem samsvarar 1,8 af 1.000 fæddum börnum. Meðaltal OECD landa var 4,4 börn en var 30 árið 1970. Börn með lága fæðingarþyngd (undir 2.500 grömmum) voru einnig hlutfallslega fæst hér á landi árið 2009 en 4,1 % nýfæddra barna voru í þeim hópi samanborið við 6,7% að meðaltali í OECD-ríkjum. 23.11.2011 09:13
Skotmenn voru með óeirðakylfu Bíll mannanna, sem stóðu að skotárás á bifreið í austurborginni síðastliðið föstudagskvöld er nú kominn í hendur lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á hann og við leit fannst í honum stór kylfa, ekki ósvipuð óeirðakylfum. Haglabyssan sem notuð var við árásina er hins vegar ófundin. 23.11.2011 09:00
Mestu endurbætur í 43 ára sögu laugarinnar Bakkar Laugardalslaugar eru nú sundurgrafnir og gestir þurfa að leggja lykkju á leið sína til að komast frá einum potti til annars. Þetta tímabundna óhagræði stafar af langmestu endurbótum í 43 ára sögu laugarinnar. 23.11.2011 08:30
Facebook-leikir eru skýrt brot á reglum Mikið hefur borið á svokölluðum Facebook-leikjum undanfarið þar sem íslensk fyrirtæki gefa notendum færi á að vinna vörur fyrir „kvitt“ og „like“. Slíkt er brot á reglum Facebook. Verslunin Karen Millen fékk 2.500 „like“ á einum degi. 23.11.2011 08:00
Opnar stofur í fimm löndum „Ég hef haft í svo ofboðslega miklu að snúast við að sinna verkefnum um víða veröld að mér þótti orðið skynsamlegast að færa út kvíarnar,“ segir arkitektinn Guðlaug Jónsdóttir sem mun á næstunni stækka við sig með opnun skrifstofa í fimm löndum. 23.11.2011 07:30
Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun Þrír grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun í Smárahverfi undri morgun og stálu þaðan átta tuttugu og fjögurra tommu tölvuskjám. 23.11.2011 07:28
Árekstur kostaði þrjú hross lífið Eitt hross drapst og tvö slösuðust svo alvarlega að það þurfti að aflífa þau, þegar bíl var ekið á þau á þjóðveginum á milli Ólafsvíkur og Rifs í gærkvöldi. 23.11.2011 07:26
Mikið þrumuveður gekk ekk inn á landið Mikið þrumuveður, sem geysaði suðaustur af landinu í gær, gekk ekki inn á landið eins og búist var við að það gerði í gærkvöldi. 23.11.2011 07:21
Mikið um ölvunar- og fíkniefnaakstur Ökumaður var tekinn úr umferð og sviftur ökuréttindum í Reykjavík í nótt vegna ölvunaraksturs. 23.11.2011 07:15
Aflaverðmætið eykst milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 98,8 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins 2011 samanborið við 92,4 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,4 milljarða króna eða 6,9 prósent á milli ára. 23.11.2011 07:00
Engar opinberar jólaskreytingar í Borgarnesi Engar jólakreytingar verða settar upp í Borgarnesi eða annarsstaðar í Borgarbyggð á vegum sveitaffélagsins fyrir næstu jól. 23.11.2011 06:59
Tillaga um Palestínu afgreidd úr nefnd Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi tillögu um að Ísland viðurkenni sjálfstæði og fullveldi Palestínu á fundi sínum í gærmorgun. Utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson lagði þingsályktunartillöguna fyrir Alþingi í síðasta mánuði. 23.11.2011 06:45
Forgangsatriði að draga úr brottfalli Mikið brottfall íslenskra framhaldsskólanema var til umræðu í vinnustofu sem mennta- og menningarmálaráðuneytið stóð fyrir á Grand Hóteli í gær. Tók sendinefnd frá Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) þátt í vinnustofunni en fyrir þátttakendur var lagt minnisblað sem stofnunin hefur unnið í samvinnu við ráðuneytið um styrkleika og veikleika íslensks framhaldsskólanáms. 23.11.2011 06:00
Árstíðabundinn munur á verði Olíufélögin lækkuðu öll verðið á bensíni og dísilolíu í gær um tvær krónur á lítrann. 23.11.2011 06:00
Bein aflasala eykst töluvert Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 43,2 milljörðum króna og jókst um 14,9 prósent frá árinu 2010. 23.11.2011 05:00
Ísland verður að vera samkeppnishæft í kísiliðnaði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segist taka athugasemdir forsvarsmanna Íslenska kísilfélagsins alvarlega og að Ísland þurfi að vera samkeppnishæft þegar komi að kísiliðnaði. Magnús Garðarsson, forstjóri félagsins, sagði í Fréttablaðinu í gær að kolefnisgjald, sem sé fyrirhugað í stjórnarfrumvarpi, setji áform þeirra um uppbyggingu verksmiðju í Helguvík í uppnám. 23.11.2011 04:00
Skrifuðu undir kjarasamning í kvöld Í dag var skrifað undir kjarasamning milli félags leikskólakennara og Sigöldu ehf, sem rekur leikskólann Aðalþing í Kópavog. 22.11.2011 21:00
Jónas heiðursborgari Kópavogs Bæjarstjórn Kópavogs ákvað á fundi sínum í kvöld að gera Jónas Ingimundarson píanóleikara að heiðursborgara Kópavogs. Með því vill bæjarstjórn sýna honum þakklæti fyrir ómetanlegt starf í þágu tónlistar, menningar og tónlistaruppeldis, segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. 22.11.2011 20:55
Jólagjöfin í ár spjaldtölva - sambýliskona eiganda Epli.is í dómnefnd Jólagjöfin í ár verður spjaldtölva. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar um jólaverslunina, en sérstök jólagjafanefnd sér um að velja jólagjöf ársins. 22.11.2011 20:08
Bera kennsl á börnin og bjarga þeim Íslenskir lögreglumenn hafa frá og með morgundeginum aðgang að alþjóðlegum gagnagrunni Interpol með myndum af börnum sem hafa verið misnotuð kynferðislega. Markmiðið er að bera kennsl á börnin og bjarga þeim. 22.11.2011 19:38
Jón Gnarr vill fá að gefa saman hjón Borgarstjóri Reykjavíkur sótti í dag um undanþágu til innanríkisráðuneytisins til þess að fá að gefa saman hjón. Jón Gnarr segist reglulega fá fyrirspurnir um að gera slíkt, aðallega frá erlendum hommum. 22.11.2011 19:04
Íslensk fornrit leggja grunn að norskri ferðaþjónustu Fornsögum sem Íslendingar færðu í letur fyrir áttahundruð árum er haldið í heiðri í Noregi og þar rekin söfn og menningartengd ferðaþjónusta á grunni íslenska sagnaarfsins, sem Norðmenn telja reyndar vera sinn eigin sagnaarf. 22.11.2011 18:59
Þingmaður: Ríkisendurskoðandi fer yfir reikninga frá bróður sínum "Ríkisendurskoðandi er að endurskoða gjörðir Samfylkingarinnar nánast á hverjum degi og hann er líka að endurskoða fjármálaráðuneytið. Þar situr bróðir hans sem yfirmaður í rauninni á ríkiskassanum sjálfur,“ segir Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. 22.11.2011 18:06
Fjórtán fullir ökumenn og fimm dópaðir Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Hafnarfirði. Sex voru teknir á laugardag, sjö á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 19-42 ára og tvær konur, 28 og 42 ára. 22.11.2011 17:40
Víggirt Alþingi vegna Áramótaskaupsins Ráðgert er að ljúka tökum á Áramótaskaupinu að mestu leyti um eða eftir helgina, segir Gunnar B. Guðmundsson leikstjóri. Tökur fóru fram fyrir utan Alþingishúsið í dag. 22.11.2011 16:56
Lou Reed veitti Ragnari verðlaun kennd við Malcolm McLaren Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson fékk í gærkvöldi verðlaun í New York sem kennd eru við Malcolm McLaren. McLaren, sem lést í fyrra, var á sínum tíma umboðsmaður bresku pönksveitarinnar Sex Pistols og af sumum talinn sá sem mest áhrif hafði á þá tónlistarstefnu. 22.11.2011 15:54
Fyrsta flensutilfellið staðfest Fyrsta inflúensutilfelli vetrarins hefur verið staðfest á veirufræðideild Landspítala. Inflúensan greindist í íslenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu og er af stofni inflúensu A(H3) sem hefur valdið árlegri inflúensu síðastliðna áratugi. 22.11.2011 15:36
Græna orkan afhendir ráðuneytinu skýrslu um orkuskipti Verkefnisstjórn Grænu orkunnar afhenti í dag iðnaðarráðuneytinu skýrslu um það hvernig best verði staðið að orkuskiptum í samgöngum. Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri tók við skýrslunni grænu frá Sverri Hauki Viðarssyni, formanni verkefnisstjórnar Grænu orkunnar. 22.11.2011 15:30
Vélstjórar á Herjólfi aflýsa vinnustöðvun Samkomulag hefur náðst kjaradeilunni á milli Eimskips, rekstraraðila Herjólfs og vélstjóra ferjunnar. Fyrirhugaðri vinnustöðvun sem hefjast átti um næstu helgi er því aflýst, að því er fram kemur í tilkynningu frá Félagi vélstjóra og málmtæknimanna. Ferðir Herjólfs verða því með eðlilegum hætti um helgina. 22.11.2011 15:17
Lögreglan leitar eiganda að verulegum verðmætum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu auglýsir eftir eiganda að verulegum verðmætum sem hún hefur í sinni vörslu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan sendi fjölmiðlum. 22.11.2011 15:11
Lögreglan minnir fólk á endurskinsmerki Lögreglan segir það vera áberandi hve fáir grunn- og framhaldsskólanemar nota endurskinsmerki. Þetta sé sérstaklega bagalegt snemma á morgnana þegar myrkur grúfir yfir og margir eru á ferð við skóla á höfuðborgarsvæðinu, bæði gangandi og akandi. 22.11.2011 14:44
Byssan úr Bryggjuhverfi enn ófundin - einn laus úr haldi Byssan sem notuð var til að skjóta á bíl í Bryggjuhverfinu á föstudagskvöld er enn ófundin. Í bíl mannanna sem handteknir voru vegna málsins fannst stór kylfa, ekki ósvipuð óeirðarkylfum. Tveir mannanna hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald en þeim þriðja hefur verið sleppt. Hann er innan við tvítugt. 22.11.2011 14:25
Maraþonfundur hjá ríkisstjórninni Ríkisstjórnin situr enn á fundi í Stjórnarráðshúsinu en þar hófst fundur klukkan níu í morgun. Laust fyrir klukkan tvö var gert hlé á fundi til þess að ráðherra gætu fengið sér hádegismat og skömmu síðar var fundarhöldum fram haldið. Ástæða þessarar löngu fundarsetu mun vera sú að ríkisstjórnin vinnur nú hörðum höndum að því að afgreiða stjórnarfrumvörp í ríkisstjórninni svo hægt sé að leggja þau fyrir haustþingið sem nú stendur yfir. 22.11.2011 14:18
KFS nýbúið að gera sex ára samning við Iceland Express Öllum starfsmönnum flugþjónustunnar, Keflavík Flight Services, á keflavíkurflugvelli var sagt upp störfum í gær eftir að flugfélagið Astraeus hætti rekstri. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir þetta vera mikið áfall enda var félagið nýbúið að gera sex ára þjónustu samning við Iceland Express. 22.11.2011 12:27
Björgólfur Thor ósáttur við heimildarmyndina Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður er ósáttur við dönsku myndina Thors Saga sem sýnd var á RÚV um helgina. Í myndinni er fjallað um Thor Jensen langafa Björgólfs en ekki síður um hann sjálfan og hans umsvif fyrir og eftir hrun. „Ég stóð í þeirri trú að áherslan yrði fyrst og fremst á langafa okkar," segir Björgólfur. „Hins vegar fékk ég engu ráðið um útkomuna, fremur en aðrir sem samþykktu að koma fram í myndinni." 22.11.2011 11:05
Gaslöggu vikið frá störfum - slær í gegn á Netinu Lögreglustjórinn á stúdentagörðunum við UC Davis háskólann í Kalíforníu hefur verið leystur tímabundið frá störfum ásamt tveimur undirmönnum sínum. Ástæðan er óhófleg notkun á piparúða þegar lögreglumennirnir reyndu að leysa upp friðsamleg mótmæli á skólalóðinni á föstudaginn var. Eins og við var að búast var atvikið tekið upp og hefur meðfylgjandi myndband vakið mikla athygli á Internetinu. Þar sést lögreglumaðurinn John Pike fara sér í engu óðslega og spreyja piparúðanum í miklu magni á námsmennina sem sitja með krosslagðar lappir og ógna engum. 22.11.2011 10:16
Fær aðgang að gagnagrunni yfir óþekkt börn Nokkrir íslenskir lögreglumenn eru þessa dagana í þjálfun hjá sérfræðingi frá alþjóðalögreglunni Interpol til að læra á alþjóðlegan gagnagrunn með myndum af óþekktum börnum sem eru kynferðislega misnotuð. Gagnagrunnurinn er þegar nýttur til rannsókna í um þrjátíu löndum. 22.11.2011 12:10
Dóri laus af strandstað Björgunarskip Landsbjargar náði fyrir stundu að draga fiskibátnum Dóra GK af strandstað í fjörunni á Stöðvarfirði, þar sem hann strandaði upp úr klukkan eitt í nótt. Ljóst er að hann er nokkuð skemmdur. 22.11.2011 12:07
Sex aukamilljónir í jólaskraut „Það er verið að bæta töluvert í,“ segir Jón Halldór Jónasson. upplýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg, um jólaskreytingar sem settar verða upp á vegum borgarinnar í ár. 22.11.2011 11:00
Ók á ljósastaur í hálku Töluverð hálka er á götum borgarinnar þessa stundina, einkum í úthverfum borgarinnar eins og Breiðholti og Grafarholti. Þrátt fyrir það hefur umferð gengið nokkuð vel hingað til að sögn lögreglunnar. Þó var bíl ekið á ljósastaur í Norðurfelli, skammt frá Jórufelli, í morgun. Bíllinn var dreginn í burtu með kranabíl og kalla þurfti starfsmenn Orkuveitunnar til því að ljósastaurinn. 22.11.2011 10:58
Rukkarar undir fölsku flaggi Lögreglunni á Selfossi var gert viðvart vegna tveggja manna sem bönkuðu upp á í húsi í bænum og kynntu sig sem starfsmenn vörslusviptingafyrirtækis. Erindi þeirra væri að sækja bifreið manns sem var í skuld með hana. 22.11.2011 10:30
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent