Líklega olía á Drekasvæðinu 24. nóvember 2011 10:00 Annað olíuleitarútboð íslenskra stjórnvalda vegna Drekasvæðisins stendur nú yfir. Því lýkur 2. apríl næstkomandi. Nordicphotos/AFP Nordicphotos/AFP
Meiri líkur eru taldar vera á því að olíulindir finnist á Jan Mayen-hryggnum en áður. Þetta er niðurstaða Olíustofnunar Noregs sem hefur rannsakað sýni af svæðinu í samstarfi við Orkustofnun og Háskólann í Bergen síðustu mánuði. Jan Mayen-hryggurinn liggur inn fyrir lögsögu Íslands inn á svokallað Drekasvæði. Þá er stór hluti hryggjarins á sameiginlegu nýtingarsvæði Íslands og Noregs en hvort land á rétt á 25 prósenta þátttöku í olíustarfsemi á þeim hluta svæðisins sem tilheyrir hinni þjóðinni. Þau sýni sem Olíustofnunin hefur haft til rannsóknar komu bæði af íslenska og norska hluta hryggjarins. Í tilkynningu frá Olíustofnuninni segir að niðurstöðurnar hafi komið á óvart og verið mun jákvæðari en búist var við. Þær renni stoðum undir þá kenningu að olíu sé að finna á svæðinu. Haft er eftir Sissel Eriksen, forstöðumanni rannsókna hjá stofnuninni, að fundist hafi mikið af steinum og efnum sem bendi til þess að olía og gas gætu hafa myndast á svæðinu. Norska Olíustofnunin mun halda áfram að rannsaka svæðið á næstu árum. Til að mynda er stefnt að því að bora grunnar holur á hryggnum. Þórarinn Sveinn Arnarsson, verkefnisstjóri olíuleitar hjá Orkustofnun, sagði í samtali við Vísi í gær að tíðindin kæmu á besta tíma fyrir olíuleitarútboð Íslendinga sem hófst í október. Niðurstöðurnar komi fram á fyrri hluta útboðstímabilsins á meðan áhugasamir aðilar séu enn að meta svæðið og ákveða hvort þeir taki þátt. Útboðinu lýkur 2. apríl en þá verður ljóst hvort einhver olíufélög sæki um vinnsluleyfi á svæðinu.- mþl
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira