Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sakar biskup um rangfærslur Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, sakar Karl Sigurbjörnsson núverandi biskup um rangfærslur í orðsendingu til fjölmiðla í gær. Þar sagði Karl að hann hefði ekki tekið þátt í því að þagga mál Sigrúnar Pálínu niður. 23.8.2010 11:40
Strætó kominn á vetraráætlun Vetraráætlun Strætó hefur tekið gildi sem þýðir að tíðni ferða eykst á ný og verður svipuð og síðastliðinn vetur. Jafnframt breytist akstur um Grafarvog og Grafarholt nokkuð með nýrri vetraráætlun. 23.8.2010 11:22
Dagsektum beitt vegna slysagildra á Klukkuvöllum Hafnarfjarðarbær hyggst beita verktaka dagsettum vegna slæms frágangs á byggingarlóðum í Vallahverfi í bæjarfélaginu. Íbúar á Klukkuvöllum í Hafnarfirði hafa ítrekað kvartað undan slæmum frágangi á lóðum í götunni. 23.8.2010 10:58
Miðborgin hrein að nýju Miðborgin er orðin hrein og fín að nýju eftir að um 100 þúsund manns komu saman þar þegar að menningarnótt náði hámarki. 23.8.2010 10:42
Vilja eigendafund vegna stöðu Orkuveitunnar Bæjarráð Akraness og byggðarráð Borgarbyggðar samþykktu á fundum sínum síðastliðinn fimmtudag að óska eftir eigendafundi í Orkuveitu Reykjavíkur. Fundurinn yrði haldinn í kjölfar yfirlýsinga stjórnarformanns Orkuveitu Reykjuvíkur um breytta stefnu í rekstri fyrirtækisins vegna atbeina borgarstjóra, brottvikningu forstjóra og ýmissa annarra stjórnarhátta án samráðs við eigendur Orkuveitunnar. 23.8.2010 10:04
Sigrún Pálína: Karl og Hjálmar reyndu að þagga niður í mér Sigrún Pálína Ingvarsdóttir segir að eftir misheppnaðar sáttatilraunir við Ólaf Skúlason, þáverandi biskup, hafi Karl Sigurbjörnsson, núverandi biskup, og Hjálmar Jónsson, núverandi Dómkirkjuprestur, reynt að þagga niður í henni. Karl hafi meðal annars vísað til þess að hún ekki gert sjúkri móður sinni það að halda málinu til streitu. Sjálfur segist Karl ekki hafa tekið þátt í að beita Sigrúnu óeðlilegum þrýstingi til að fá hana til að falla frá ásökunum sínum. 23.8.2010 09:57
Geir Waage: Ríkari trúnaðarskylda gildir um presta Geir Waage, prestur í Reykholti segir að tilkynningaskylda presta hafi litla raunhæfa þýðingu því án trúnaðar verði prestum aldrei trúað fyrir nokkru. Hann segir ríkari trúnaðarskyldu lagða á presta. Þetta kemur fram í grein sem Geir ritar í Morgunblaðið í dag. 23.8.2010 08:37
HS Orka vill hærra verð Bæjaryfirvöld í Grindavík og Hafnarfirði hafa ekki lokið breytingum á aðal- og deiliskipulagi á Reykjanesi og í Krýsuvík. Það tefur fyrir fyrirhuguðum tilraunaborunum og raforkuframleiðslu HS Orku. Hægst hefur á framkvæmdum við byggingu álversins í Helguvík af þessum sökum. 23.8.2010 06:45
Dómsmálaráðherra fundar með biskupi Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, fundar í dag með Karli Sigurbjörnssyni biskupi um málefni þjóðkirkjunnar. Tilefnið segir Ragna vera þau ummæli Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, að þagnarskylda presta sé hafin yfir landslög, jafnvel í tilfelli kynferðisbrota gegn börnum. 23.8.2010 06:45
Bölmóður víki fyrir bjartsýni Vísbendingar eru um að farið sé að sjá til sólar í íslensku efnahagslífi og á bölmóður að víkja fyrir bjartsýni. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í þriðju grein sinni af sex um stöðu mála eftir bankahrunið. 23.8.2010 06:30
Brúin var orðin ótraust og götótt Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir tók sig til í sumar og lagaði brú á Mosfellsheiði. Brúin liggur á vegarslóða frá Skálafells-afleggjara og inn á Mosfellsheiði. 23.8.2010 06:00
Töf forðaði stórum gjaldeyrislánum Stefnt er að því að ný heilsulind verði opnuð í júní á næsta ári á reit gamla gufubaðsins á Laugarvatni. Framkvæmdir við heilsulindina hófust í sumar en hafa tafist í tvö ár eftir að bankahrunið setti áætlanirnar í uppnám. 23.8.2010 06:00
Umferðin minnkar stöðugt Hratt hefur dregið úr helgarumferð til og frá höfuðborgarsvæðinu undanfarnar helgar. Umferðin hefur dregist stöðugt saman frá því um miðjan júlí, en jókst aðeins aftur um verslunarmannahelgina. 23.8.2010 06:00
Gögn rannsökuð um helgina Ekkert nýtt kom fram um helgina og enginn var yfirheyrður í tengslum við rannsókn lögreglu á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni fyrir viku. „Helgin var nýtt til rannsókna á gögnum,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar. Hann vildi ekki tjá sig nánar um málið en vísaði til upplýsinga, sem fram komu á blaðamannafundi á föstudag. 23.8.2010 05:00
HB Grandi biðst afsökunar á grút Mikil mengun frá frystihúsi HB Granda hefur mengað höfn og fjörur á Vopnafirði í sumar. Höfnin og ströndin í grennd við þéttbýlið hafa verið löðrandi í grút. HB Grandi hefur beðið bæjarbúa afsökunar með bréfi sem fyrirtækið lét bera í öll hús í plássinu. 23.8.2010 05:00
Sagt vinna gegn hagsmunum barna með úreltum kenningum Ákvörðun menntaráðs Reykjavíkurborgar um að setja af stað stýrihóp til að efla árangur drengja í grunnskólum, var ekki einróma samþykkt innan ráðsins. Líf Magneudóttir, fulltrúi VG, er ósammála aðgerðinni og segir ekkert benda til þess að góður árangur stúlkna í skóla sé á kostnað drengja og hún gagnrýnir ákvörðun menntaráðs harðlega. 23.8.2010 04:00
Segir íslenska skóga nýtanlega auðlind Mikið magn af hágæðatimbri hefur fallið til við grisjun í Skorradal í sumar. Skógræktarstjóri segist viss um að markaður sé fyrir timbrið og er bjartsýnn á að koma því í auknum mæli í notkun hér á landi. 23.8.2010 04:00
Lausnir verði raunverulegar Er þörf á sérstökum úrræðum til að efla námsárangur drengja? Menntaráð Reykjavíkur skipaði í síðustu viku átta manna stýrihóp með fulltrúum skólastjóra, kennara, foreldra og sérfræðinga, sem ætlað er að vinna markvisst að því að efla námsárangur drengja í grunnskólum. 23.8.2010 03:30
Magma mun ávallt eiga mest Viðræður standa yfir á milli kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy og nokkurra lífeyrissjóða um kaup þeirra á 25 til 40 prósenta hlut í HS Orku. Áætlað verðmæti hlutarins er á bilinu átta til þrettán milljarðar króna. Magma Energy á 86 prósenta hlut í félaginu. 23.8.2010 03:15
Biskup Íslands segist ekki hafa þaggað niður kynferðisbrotamál Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta um að hann hafi átt einhvern þátt í því að hafa áhrif á meint fórnarlömb þáverandi biskups Íslands, Ólafs Skúlasonar. 22.8.2010 20:02
Stórhættulegar slysagildrur á Klukkuvöllum Íbúar á Klukkuvöllum í Hafnarfirði hafa ítrekað kvartað undan slæmum frágangi á byggingarlóðum í götunni. Eftir hrunið hafa húsgrunnar staðið ókláraðir, byggingarkranar eru orðin leiktæki krakkana í hverfinu og stór gryfja þar sem blokk átti að rísa er nú slysagildra við hlið leikskóla. Og fyrir ofan götuna má sjá glitta í ljósastaura og gangstéttir - en engin hús. 22.8.2010 19:30
Þýskir vandræðaunglingar vistaðir á Íslandi Þýskt fyrirtæki hefur gert samning við barnaverndarstofu sem heimilar því að senda allt að 15 þýska vandræðaunglinga til vistunar á íslenskum sveitaheimilum. 22.8.2010 19:15
Óstarfhæf ríkisstjórn Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina óstarfhæfa og hún ráði ekki við Magma-málið með neikvæðum áhrifum á atvinnulífið á Reykjanesi. Enginn meirihluti sé fyrir því á Alþingi að þjóðnýta HS Orku eins og Vinstri grænir virðist vilja. 22.8.2010 19:00
Vill stuðning ESB við krónuna Utanríkisráðherra leggur áherslu á það í viðræðum Íslands við Evrópusambandið að krónan verði bökkuð upp af Seðlabanka Evrópu strax við aðild, áður en evran verði síðan tekin upp sem gjaldmiðill á Íslandi. Hann telur viðræðurnar taka lengri tíma en bjartsýnustu menn geri sér vonir um. 22.8.2010 18:45
Morðrannsókn í Hafnarfirði: Fréttaskýring Hannes Þór Helgason keyrði einn heim til sín eftir að hafa skutlað kærustu sinni niður í miðbæ Reykjavíkur nóttina sem hann var myrtur á heimili sínu 22.8.2010 18:50
Ölgerðin vill auglýsingu á slökkviliðsstöð „Það er búið að gera samkomulag um þetta en samningurinn hefur ekki verið samþykktur,“ segir Páll S. Brynjarsson, sveitastjóri Borgarbyggðar, en auglýsingasamningur á milli Ölgerðar Egils Skallagrímssonar og slökkviliðsins í sveitarfélaginu liggur fyrir í byggðarráði. 22.8.2010 15:12
Tekist á fram á síðustu stundu Tekist var á um það fram á síðustu stundu innan Evrópusambandsins áður en formlegar aðildarviðræður hófust við Íslendinga, hvort hefja ætti viðræðurnar án þess að niðurstaða hefði fengist í Icesave-deilunni. Utanríkisráðherra segir Íslendinga eiga öfluga bandamenn innan sambandsins og ekki muni slitna upp úr viðræðunum vegna Icesave. 22.8.2010 12:57
Fangageymslur lögreglunnar fullnýttar á Menningarnótt Þúsundir manna voru í miðborg Reykjavíkur í gær þegar Menningarnótt var haldin í borginni en hátíðin gekk almennt vel fyrir sig. 22.8.2010 11:48
Öllum umsækjendum hafnað í Skagafirði Öllum þeim 17 umsækjendunum sem sóttu um stöðu sveitarstjóra hjá sveitarfélaginu Skagafirði hefur verið hafnað af hálfu meirihlutans samkvæmt fréttavef Feykis. Það segir að leit sé hafin að nýju að sveitarstjóraefni. 22.8.2010 11:05
Vandræðabarnið Christoph Schlingensief látinn Þýski listamaðurinn Christoph Schlingensief er látinn. Schlingensief var einn umdeildasti listamaður Þýskalands en samstarf hans við Klink og Bank á Íslandi vakti á sínum tíma mikla athygli. 22.8.2010 10:48
Kuldakast á landinu Kuldalegt var í morgun í flestum landshlutum og norðanlands hafa fjöll gránað. Þannig var Hlíðarfjall ofan Akureyrar grátt niður undir skíðahótel, að sögn lögreglu, en fimm stiga hiti var á Akureyri klukkan níu í morgun. 22.8.2010 09:58
Óttast verðfall vegna íslenska þorsksins Skoskir útgerðarmenn óttast að verð á þorski á Bretlandseyjum muni lækka mikið í haust vegna aukins framboðs af þorski frá Íslandi eftir að heimilt var að veiða tíu þúsund tonnum miera af þorski á Íslandsmiðum. 22.8.2010 09:46
Drukknir unglingar á Menningarnótt Talsverður viðbúnaður var hjá lögreglu frá klukkan 07:00 að morgni Menningarnætur og maraþons í höfuðborginni. Sá viðbúnaður stóð í sólarhring. Nokkur breyting var gerð á skipulagi umferðarmála að þessu sinni með lokun Þingholtanna og Kvosarinnar, en þær lokanir voru mun umfangsmeiri en áður. 22.8.2010 09:22
Handtekin fyrir dónalegan dans Kona um þrítugt var handtekin í miðborginni í gærkvöldi. Málavextir voru þeir að lögreglu bárust margar kvartanir vegna konu sem var sögð iðka ósiðlegan dans. Í ljós kom að konan var stödd á svölum. 22.8.2010 11:34
Hörð árás á Wikileaks vekur heimsathygli Fréttir um handtökutilskipun á hendur ástralanum Julian Assange, forsprakka Wikileaks-síðunnar, hefur vakið heimsathygli og er með efstu fréttum á vefmiðlum víðsvegar um heiminn. Þannig segir BBC ítarlega frá málinu auk USA Today. CNN og Sky News fjalla einnig um málið. 21.8.2010 20:00
Morðrannsókn: Tilviljun að Hannes var einn heima Tilviljun ein virðist hafa ráðið því að yngsta systir Hannesar Þórs Helgasonar sem myrtur var á heimili sínu um síðustu helgi, var ekki á heimilinu umrædda nótt, en hún hefur undanfarið búið hjá bróður sínum. Enginn er nú í haldi lögreglu vegna málsins. 21.8.2010 19:00
Tilboð í Búðarhálsvirkjun opnuð í næstu viku Landsvirkjun hyggst standa við þá áætlun að opna tilboð í smíði Búðarhálsvirkjunar í næstu viku, þrátt fyrir að óvissa ríki um fjármögnun. Enn hefur ekki tekist að koma neinum nýjum stórframkvæmdum í gang í landinu eftir efnahagshrunið. 21.8.2010 18:49
Skelfilegt að tapa fyrir EFTA-dómstól Fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg staða ef Íslendingar töpuðu máli Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave fyrir EFTA-dómstólnum. Stjórnvöld vinna nú að svari til eftirlitsstofnunarinnar og vona að samningaviðræður um Icesave hefjist að nýju í næsta mánuði. 21.8.2010 18:34
Séra Bjarni: Sjónarmið Geirs Waage varðar brottrekstur „Það er háskalegt og varðar hreinan brottrekstur úr prestsembætti að halda fram því sem sr. Geir Waage gerir," segir séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, um þá skoðun Geirs að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum sé algjör og þar sé engan milliveg að finna. 21.8.2010 17:04
Skriftarbarn getur ekki bundið samvisku prestsins Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna greinar séra Geirs Waage og birtist í Morgunblaðinu í morgun. Þar sagði Sveinn að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum væri algjöra og þar væri engan milliveg að finna. 21.8.2010 16:33
Saksóknari afturkallar handtökuskipun á hendur Assange Embætti ríkissaksóknarans í Svíþjóð hefur dregið handtökutilskipun á hendur Julian Assange, forsprakka uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, til baka en hann var eftirlýstur vegna gruns um nauðgun og líkamsárás. 21.8.2010 15:52
Miklatún verður aftur Klambratún Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, breytti formlega nafninu á Miklatúni í dag og heitir það nú Klambratún. Hluti túnsins tilheyrði bænum Klömbrum sem þar stóð þar til um miðja 20. öld. 21.8.2010 15:33
Borgartréð afhjúpað Klukkan tvö í dag afhjúpaði Jón Gnarr borgarstjóri skilti við Borgartréð 2010 í Víkurgarðinum við Aðalstræti. 21.8.2010 14:40
Tæplega 30 milljónum safnað í maraþoni Tæplega 30 milljónir hafa safnast í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbankans samkvæmt upplýsingum á heimasíðunni hlaupastyrkur.is. 21.8.2010 14:15
Sæbjúgnaflotinn stækkar Bátum sem veiða sæbjúgu hér við land fer nú ört fjölgandi. Lengi vel stundaði aðeins einn bátur þessar veiðar, Hannes Andrésson SH, en nú eru bátarnir orðnir sex talsins. Hannes Andrésson er gerður út frá Grundarfirði, en þar hefur fyrirtækið Reykofninn verið að þróa vinnslu á sæbjúgum undanfarin sex ár. 21.8.2010 14:14