Fleiri fréttir

Skotið á jarðýtu

Í nótt var skotið á jarðýtu sem var lagt við þjóðveg í vestur-Húnavatnssýslu.

Segir ásakanir á hendur Julian lykta af ófrægingaherferð

„Þetta gerist á einum sólarhring en það er óvanalega hröð málsmeðferð í Svíðþjóð,“ segir Kristinn Hrafnsson, einn af talsmönnum uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, en forsvarsmaður síðunnar, Julian Assange, hefur verið eftirlýstur af sænskum yfirvöldum vegna gruns um nauðgun.

Tindur Eyjafjallajökuls snjóhvítur

Hátindur Eyjafjallajökuls er á ný orðinn fannhvítur eftir að þar snjóaði í nótt. Fjallið hefur allt verið öskugrátt frá lokum eldgossins í vor en gosið í toppgíg jökulsins stóð frá 14. apríl til 7. júní.

Erilsöm nótt í borginni

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mikið af fólki skemmti sér í miðborginni og talsvert var um pústra og ósætti. Að sögn lögreglu endaði það þó giftusamlega og enginn alvarleg meiðsl hlutust af. Þá gistu fáir fangageymslur lögreglunnar.

Bjóða ríkinu forkaupsrétt

Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra hefur borist formlegt erindi frá Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, þar sem íslenska ríkinu er boðinn ótímabundinn forkaupsréttur á meirihluta í fyrirtækinu. Eins er ríkinu boðið til viðræðna um styttingu leigutíma á afnotarétti auðlinda á Reykjanesi.

Yfirborð Bláa lónsins orðið alltof hátt

Vatnsborð Bláa lónsins er orðið allt of hátt og grípa þarf til varanlegra aðgerða til að losna við umframvökva. HS Orka og Grindavíkurbær vinna nú að lausn málsins.

Vilja úttekt á rotþróm við Þingvallavatn

Brýnt er að gera úttekt á neysluvatns- og fráveitumálum við Þingvallavatn að mati Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og þjóðgarðsvarðar. Strangar reglur voru settar 2006 en ekki er vitað hvernig þeim er fylgt.

Ný hjólaleið er í vegi reiðhjólaverkstæðis

„Þetta er auðvitað nokkuð skrýtin staða. Fólk kemst ekki að hjólreiðaverkstæði fyrir nýjum hjólreiðastíg,“ segir James Fletcher, eigandi hjólreiðaverkstæðisins Borgarhjóla á Hverfisgötu 50.

Rænt úr tjöldum tvisvar á ári

„Það er stolið úr tjöldum hjá okkur einu sinni til tvisvar á ári. Það er alltaf ömurlegt að lenda í þessu, bæði fyrir okkur og ekki síst fyrir þá sem verða fyrir þjófnaðinum,“ segir Markús Einarsson, framkvæmdastjóri Farfugla, sem reka tjaldsvæðið í Laugardal. Hann segir erfitt að verjast þessu. Þótt tjaldsvæðið sé afmarkað með girðingu eigi utanaðkomandi greiðan aðgang að því.

Búist við svipaðri þátttöku og síðast

Búist er við að þátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, sem fram fer í dag, verði svipuð og síðustu tvö ár, eða nálægt ellefu þúsund manns. Skráningarhátíð Reykjavíkur­maraþons Íslandsbanka stóð í gærdag, milli klukkan tíu árdegis og sjö að kvöldi.

Attac taka þátt í menningarnótt

Samtökin Attac á Íslandi sem barist hafa fyrir því að bönd verði sett á fjármálastarfsemi taka þátt í dagskrá menningarnætur. Samtökin hafa tekið höndum saman við aðstandendur undir­skriftasöfnunarinnar orkuaudlindir.is. Meðal listamanna sem koma fram á vegum samtakanna eru KK og Ómar Ragnarsson.

Formaður fjárlaganefndar ánægður með rekstrarafgang Landspítlans

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, er ánægður með rekstrarafgang Landspítlans sem var jákvæður um tæpar 36 milljónir króna á fyrri hluta þessa árs. Hann segir afar mikilvægt að stofnanir haldi sig innan fjárheimilda. Þá segir Guðbjartur starfsfólks Landspítlans eiga hrós skilið.

Fagnar rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, fagnar rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Hann segir lífeyrissjóðina sýna mikilvægt frumkvæði en það hafi stjórnvöld ekki gert.

Slökkvilið kallað út vegna reyks á Flókagötu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðsins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld þegar tilkynnt var reyk og skynjara í gangi í íbúð við Flókagötu í Reykjavík. Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn kom í ljós að reykurinn stafaði frá potti á eldavél. Óverulegar skemmdir urðu á íbúðinni, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliði.

Rannsóknin teygir anga sína til Litháens

Rannsókn lögreglu á andláti Hannesar Þórs Helgasonar teygir anga sína til Litháens, en hann átti í viðskiptum þar í landi undanfarið. Hannes kom heim frá Litháen á föstudag, rúmum sólarhring áður en hann fannst látinn.

Biskup: Æðri dómstólar fara yfir mál séra Ólafs

Karl Sigurbjörnsson biskup segir að á Íslandi séu menn saklausir uns sekt þeirra sé sönnuð, kirkjan geti því lítið aðhafst í tengslum við ásakanir á hendur forvera sínum, Ólafi Skúlasyni. Aðrir og æðri dómstólar fari yfir hans mál.

Á annað hundrað milljarðar sparast með evruaðild

Utanríkisráðherra segir ávinninginn af því að komast á evrusvæðið spari þjóðinni á annað hundrað milljarða á ári. Hann er sannfærður um að Íslendingar nái það góðum samningi við Evrópusambandið að aðild verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Stangast á við ákvæði EES-samningsins

Ein stærsta lögmannsstofa landsins telur að bann við gengistryggingu lána í íslenskri mynt sé í andstöðu við ákvæði EES-samningsins, að því er fram kemur í minnisblaði sem stofan vann fyrir fjármögnunarfyrirtæki.

Kyrrsetning eigna rýmkuð

Skattrannsóknarstjóri er að skoða hvort krafist verði kyrrsetningar eigna í um þrjú hundruð málum. Ríkisstjórnin hyggst rýmka heimildir embættisins til að krefjast kyrrsetningar eigna.

Rekstur Landspítalans jákvæður

Rekstrarafgangur Landspítala á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 nam rúmum 35 milljónum króna, samkvæmt hálfsársuppgjöri sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest. Í byrjun ársins var spítalanum gert að lækka rekstrarkostnaðinn um rúm 9% eða 3400 milljónir króna. Með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem gripið var til á öllum sviðum spítalans um áramót hefur tekist að ná þessu markmiði, að því er fram kemur í tilkynningu frá spítlanum.

Ræðir við borgarbúa í sundskýlunni

Jón Gnarr, borgarstjóri, mun fara vítt og breitt um borgina á Menningarnótt á morgun. Í hádeginu ræsir hann til að mynda skemmtiskokkið í Lækjargötu og klukkan þrjú hyggst hann afhjúpa menningarskilti með upplýsingum um bæinn Klambra á Klambratúni. Klukkustund síðar verður hann í Sundhöll Reykjavíkur þar sem hann mun eiga „pottaspjall" við gesti sundlaugarinnar.

Mun viðra vel til maraþonhlaupa

Það mun viðra ágætlega á hlaupara þegar Reykjavíkurmaraþon hefst í fyrramálið, segir Soffía Sveinsdóttir veðurfréttamaður hjá 365 miðlum. Hún býst við 8 - 9 gráðu hita og bjartviðri með köflum. Hún býst ekki við neinni úrkomu. Vindurinn verði fimm til átta metrar á sekúndu. „Þetta er svona í það svalasta fyrir hlaupara og það gæti orðið mótvindur á Eiðsgranda og Sæbraut, en veðrið verður samt allt í lagi,“ segir Soffía. Þetta þýði samt líka að hálfmaraþonhlauparar fái meðvind á lokasprettinum.

Slökkviliðsmanna að meta gæði samningsins

Sverrir Björn Björnsson, formaður samninganefndar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að það sé félagsmanna að meta hvort samkomulagið sem landssambandið og Launanefnd sveitarfélaga undirrituðu í dag sé gott. Í samtali við fréttastofu vildi hann ekki greina frá hvað felst í samkomulaginu. „Innihald samningsins er ekki gefið upp að svo komnu máli. Við kynnum það fyrst fyrir okkar félagsmönnum."

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn búnir að semja

Kjarasamningur hefur tekist á milli samninganefnda Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga. Verið er að fagna honum í húsnæði Ríkissáttasemjara þessa stundina. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa verið samningslausir í heilt ár.

Skrifað undir samning um breikkun Suðurlandsvegar

Skrifað var í dag 20. ágúst undir samning við verktakafyrirtækið Ingileif Jónsson ehf. um framkvæmdir við áfanga við breikkun Suðurlandsvegar. Áfanginn sem um ræðir er frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni.

Samningaviðræður vel á veg komnar

Samningafundur milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur staðið yfir frá því um eittleytið í dag. Viðræður hafa gengið vel í dag samkvæmt upplýsingum Vísis.

Vísir sýnir beint frá flugeldasýningunni

Vísir og Vodafone verða með beina útsendingu frá flugeldasýningunni á menningarnótt. Umræða um flugeldasýninguna komst í hámæli í ágúst eftir að Jón Gnarr borgarstjóri reifaði þá hugmynd á fésbókardagbók sinni að sleppa flugeldasýningunni þetta skiptið.

Hannes reyndi að verjast árásinni

Hannes Þór Helgason var með áverka á höndum sem benda til þess að hann hafi reynt að verjast árás morðingja síns. Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir stundu.

Útgjöld drógust saman um 27%

Útgjöld til löggæslu, réttargæslu og öryggismála drógust saman um tæp 27% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkissjóðs sem birt var fyrr í vikunni. Fóru úr um það bil 12,3 milljörðum í um það bil 9 milljarða.

Nýr skóli fyrir starfsmenn stjórnarráðsins

Forsætisráðuneytið ætlar að setja á fót sérstakan Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins. Með því á að efla endurmenntun og þjálfun starfsmanna ráðuneytanna. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem út kom fyrr á árinu var lögð á það áherslu að fjölga þyrfti í þeim hópi starfsmanna Stjórnarráðsins sem eru vel menntaðir og þjálfaðir og hafa getu til að takast á við mjög flókin og krefjandi verkefni.

Sigurður Einarsson óttast ekki að verða ákærður

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, óttast ekki að fá á sig ákæru vegna starfa sinna fyrir Kaupþing. Hann mætti til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara núna klukkan eitt eftir að hafa tekið sér hádegishlé. Hann mætti til yfirheyrslu klukkan níu í morgun en hafði verið í yfirheyrslum í sjö klukkustundir í gær.

Boðað til blaðamannafundar vegna morðrannsóknar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað til fréttamannafundar klukkan tvö í dag. Þar verður farið almennt yfir stöðu rannsóknarinnar á andláti Hannesar Þórs Helgasonar, sem ráðinn var bani síðastliðinn sunnudag.

Rannsókn á banaslysinu á Grundartanga lokið

Stjórnendur Elkem á Íslandi, sem rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, hafa í kjölfar banaslyss sem varð þegar sprenging varð í verksmiðjunni þann 29. júní síðastliðinn og rannsóknar á því tekið ákvörðun um margþættar aðgerðir til þess að auka enn frekar öryggi starfsemi sinnar.

Kvenmannslaust Counter Strike-maraþon

Af hundrað og fjörutíu keppendum á tölvuleikjamóti í Counter Strike var engin kvenmaður á meðal þáttakenda. Mótshaldarar segjast hafa orðið fyrir örlitlum vonbrigðum með kynjahlutfallið.

Kertafleyting til minningar um Hannes

Kertafleyting verður á Læknum í Hafnarfirði á mánudaginn næstkomandi til minningar um Hannes Helgason sem fannst myrtur á heimili sínu um helgina.

Háspennulínur í mannsmynd

Bandaríska arkitektastofan Choi+Shine fékk nýverið ársverðlaun Arkitektasamtakanna í Boston (The 2010 Boston Society of Architects Award) fyrir hugmynd að burðarvirkjum fyrir háspennulínur sem unnin var fyrir Landsnet árið 2008. Hönnunin kallast „Land of Giants“ og var innlegg stofunnar í samkeppni sem Landsnet blés til það ár.

Sigurður yfirheyrður af þremur starfsmönnum í einu

„Ég geri nú ráð fyrir því að hann hafi gert það,“ segir Ólafur Þór Hauksson Sérstakur saksóknari aðspurður hvort að Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, hafi mætt til yfirheyrslu klukkan níu í morgun.

Vilja að heimkomu verði ekki fagnað

Stjórnvöld í Bretlandi hafa biðlað til stjórnvalda í Líbýu að tryggja að það verði ekki fagnað á opinberlegum vettvangi að eitt ár sé liðið frá því Abdelbaset Ali Mohmed al-Megrahi, sem var dæmdur fyrir Lockerbie tilræðið, var látinn laus úr haldi í Skotlandi.

Sigurður Einarsson yfirheyrður í sjö klukkutíma

Yfirheyrslum yfir Sigurður Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, verður fram haldið í dag. Sigurður mætti til yfirheyrslu klukkan níu í gærmorgun til Sérstaks saksóknara og ræddi hann við menn þar á bæ í sjö klukkutíma.

Börðust við eld í Straumsvík í tvo tíma

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu barðist í tvo tíma við eld í álverinu í Straumsvík í gærkvöldi. Eldurinn kom upp á tíunda tímanum í kjallara steypuskála álversins og er talið hugsanlegt að bráðið ál hafi lekið í kjallarann og kveikt þar í rafmagnsköplum.

Sjá næstu 50 fréttir