Segir íslenska skóga nýtanlega auðlind 23. ágúst 2010 04:00 'Með því að saga ekki hliðarnar af trjábolunum fæst fallegt timbur sem til dæmis er hægt að nota til að klæða hús, segir Jón Loftsson skógræktarstjóri. Mynd/Jón Loftsson
Mikið magn af hágæðatimbri hefur fallið til við grisjun í Skorradal í sumar. Skógræktarstjóri segist viss um að markaður sé fyrir timbrið og er bjartsýnn á að koma því í auknum mæli í notkun hér á landi. „Við höfum verið að prófa þetta, ég var að setja upp hús sjálfur þar sem ég notaði svona timbur, og það kom rosalega vel út,“ segir Jón Loftsson skógræktarstjóri. Hann segir hægt að nota timbrið í klæðningu, húsgögn og ýmislegt annað. Á bilinu fimm til sex þúsund rúmmetrar voru grisjaðir úr skóginum í Skorradal. Elstu trén eru ríflega 50 ára og því stórir stofnar og gott timbur sem fæst úr bestu trjánum, segir Jón. Stór hluti af því timbri sem til féll við grisjunina var kurlaður og nýttur í ofnum járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Þá er lélegasta timbrið kurlað í spæni og notað fyrir dýr í kjúklinga- og svínabúum og víðar. Jón segir að Skógræktin hafi haldið besta timbrinu eftir og vonast til þess að hægt verði að selja það í haust. Til greina komi að Skógræktin eignist betri sög til að saga timbrið í planka, enda engin sögunarmylla á Íslandi til að vinna trjábolina. „Það er ekki spurning að það er markaður fyrir þetta,“ segir Jón. „Það sem gerðist eftir hrunið var að menn áttuðu sig á því að íslenskt timbur er nýtanleg auðlind.“ Hann segir að mikil uppsöfnuð þörf sé fyrir grisjun í skógum landsins og því lítið vandamál að svara eftirspurn. Hulda Gunnarsdóttir, sem býr á Fitjum í Skorradal, segir ekki nóg að gert við að koma íslensku timbri í notkun. Hún hefur látið klæða hús og smíða húsgögn úr timbri úr Skorradal, og segir alla sem að því hafa komið sammála um að um úrvals hráefni sé að ræða. „Vandamálið er að enginn farvegur er fyrir úrvinnslu,“ segir Hulda. Hún segir Skógræktina þurfa að gera mun meira en hingað til hafi verið gert til að koma timbrinu í umferð. „Það mun falla til timbur, og ef við gerum ekkert með það fer það allt í kurl.“ Hulda segir að til dæmis mætti leyfa fyrirtækjum sem byggja sumarbústaði að prófa að smíða úr íslensku timbri fyrir lítið fé og leyfa minni verkstæðum að kaupa ódýrt til að prófa sig áfram með smíði á húsgögnum eða öðru tilfallandi. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Erlent Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Innlent Áframhaldandi landris í Svartsengi Innlent Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Innlent Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Innlent Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Erlent Fleiri fréttir Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Sjá meira