Magma mun ávallt eiga mest 23. ágúst 2010 03:15 ásgeir margeirsson
Viðræður standa yfir á milli kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy og nokkurra lífeyrissjóða um kaup þeirra á 25 til 40 prósenta hlut í HS Orku. Áætlað verðmæti hlutarins er á bilinu átta til þrettán milljarðar króna. Magma Energy á 86 prósenta hlut í félaginu. Viðræður hófust í júní. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma Energy á Íslandi, segir þær skammt komnar. Sumir lífeyrissjóðir hafi haft meiri áhuga en aðrir. Framtakssjóði Íslands, sem sextán lífeyrissjóðir standa að, bauðst að kaupa hlutinn fyrr á árinu. Forsvarsmönnum sjóðsins fannst verðmiðinn of hár. Deilur hafa sprottið um kaup Magma Energy í HS Orku og bauð Ross Beaty, forstjóri Magma Energy, ríkinu forkaupsrétt að hlut félagsins í fyrirtækinu auk þess að stytta tímann sem fyrirtækið hefur til orkunýtingar á Reykjanesi. Atli Gíslason, fulltrúi Vinstri grænna í iðnaðarnefnd Alþingis sagði um helgina það ekki duga og vill að orkuauðlindir landsins séu ótvírætt í eigu opinberra aðila. Þjóðnýting komi til greina. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist í samtali við Fréttastofu Stöðvar 2 um helgina enga trú hafa á að meirihluti væri fyrir þjóðnýtingu HS Orku á Alþingi. Hann rifjaði upp að þingmenn Vinstri grænna hefðu beitt sér gegn álveri í Helguvík í fyrra og reyndu enn að bregða fæti fyrir það. „Þetta er auðvitað ein leið fyrir Vinstri græna til þess að koma í veg fyrir að þau áform nái fram að ganga,” sagði hann. Ásgeir segir málflutning andstæðinga kaupa Magma Energy á meirihluta hlutafjár í HS Orku undarlegan, ekki síst á sama tíma og lífeyrissjóðum standi til boða að kaupa hlut í fyrirtækinu. „Þegar menn eru komnir með, segjum 35 prósenta hlut í fyrirtæki, þá hafa þeir talsverð ítök,“ segir hann en leggur áherslu á að Magma Energy hafi í hyggju að verða ávallt meirihlutaeigandi í HS Orku. - jab
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Sjá meira