Fleiri fréttir

Nýtt Ísland ætlar að vekja Jóhönnu og Steingrím

Vakningalest Nýs Íslands fór af stað klukkan níu í morgun. Samkvæmt tilkynningu frá samtökunum er verkefni morgunsins að vekja og minna forsætisráðherra og fjármálaráðherra á kosningarétt sinn. Svo verður haldið uppboð á Fríkirkjuvegi 11 klukkan 11:00.

Allir sammála um ósanngirni laganna

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir þá ákvörðun sína að skjóta Icesave-málinu til þjóðarinnar hafa skilað þeim árangri að allir séu nú sammála um það að Icesave-samkomulagið sem gert var í fyrra hafi verið ósanngjarnt.

Aukinn viðbúnaður eftir flótta

„Hér eftir munum við láta landamæraeftirlit vita af dagsleyfum fanga,“ segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, spurður um viðbrögð fangelsismálayfirvalda við flótta Guðbjarna Traustasonar, fanga á Litla-Hrauni.

Saksóknari í deilu við dómarann

Hæstiréttur mun á næstunni eyða óvissu um það hvort eðlilegt sé að brot gegn lögreglumönnum séu rannsökuð af samstarfsmönnum þeirra hjá sama embætti. Hæstiréttur hefur kveðið upp fjóra misvísandi dóma um þetta atriði og fór ríkissaksóknari vegna þess fram á að fimm manna dómur myndi dæma í enn einu slíku máli til að fyrir liggi skýr afstaða réttarins í eitt skipti fyrir öll.

Ríkið gæti skapað sér bótaskyldu

Stjórnvöld verða, líkt og aðrir, að bíða niðurstöðu Hæstaréttar um lögmæti gengisbundinna lána, að sögn Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. „Það er eitthvað hægt að liðka fyrir niðurstöðu, en það er ekkert til sem heitir flýtimeðferð fyrir Hæstarétti," segir hann og kveður því svigrúm til að flýta niðurstöðu afar takmarkað.

Kosið um virkjun í Flóahreppi í vor

Líklegt þykir að stuðningur sitjandi sveitarstjórnar við fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í Þjórsá verði stærsta kosningamálið í sveitarstjórnarkosningum í Flóahreppi í vor, enda verður virkjunin vart komin á aðalskipulag fyrir kosningar.

Óvissa um fjármögnun tefur

„Staða mála á Íslandi er nokkurn veginn óbreytt frá því sem verið hefur. Viðræður halda áfram,“ sagði Caroline Atkinson, forstöðumaður ytri samskipta hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) á reglubundnum upplýsingafundi í vikulokin.

Landsmótið verður í Reykjavík

„Ég vona að þetta verði til góðs fyrir hestamennskuna í landinu,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga.

Flóð kvartana frá foreldrum

Leikskólaráð Reykjavíkurborgar mun endurskoða ákvörðun sína um að afnema systkinaforgang á leikskólum borgarinnar. Er þetta gert að tillögu Oddnýjar Sturludóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Sérsveitarmenn sóttu Ramos

Brasilískir sérsveitarmenn sóttu gæsluvarðhaldsfangann Hosmany Ramos hingað til lands í gær. Þeir fylgdu honum til Brasilíu þar sem hann heldur áfram afplánun á ellefu árum sem hann á eftir af 25 ára fangelsisvist sem hann var dæmdur til á sínum tíma fyrir mannrán, rán og fleiri alvarleg brot.

Stórt skref stigið í réttlætisátt

„Ég hef tekið af öll tvímæli með nýrri reglugerð að þessi hópur á rétt á 95 prósenta endurgreiðslu frá ríkinu,“ segir Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra sem undirritaði í gær nýja reglugerð um aukna þátttöku sjúkratrygginga í nauðsynlegum tannlækninga- og tannréttingakostnaði vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa.

Bretar og Hollendingar til í viðræður í næstu viku

Bretar og Hollendingar hafa lýst sig reiðubúna til þess að halda viðræðum í Icesave-málinu áfram í næstu viku. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra í Kastljósi í kvöld.

Vatnavextir í Ísafjarðardjúpi

Vegagerðin varar ökumenn við að fara veginn um Ísafjarðardjúp vegna mikilla vatnavaxta. Vegir eru greiðfærir Á Suður- og Suðausturlandi og sama má segja um Vesturland. Þar er þó óveður í Kolgrafafirði.

Ólafur kýs klukkan hálfellefu í fyrramálið

Þrátt fyrir að forystumenn ríkisstjórnarinnar séu óánægðir með komandi þjóðaratkvæðagreiðslu í Icesave-málinu ætlar sá sem var þess valdandi að kosningunni var komið á ekki að sitja heima.

Erlendir blaðamenn furða sig á skeytingarleysi gagnvart lýðræðinu

Ólafur Elíasson, einn forsvarsmanna InDefense hópsins segist hafa orðið var við það síðustu daga að erlendir fjölmiðlamenn furði sig á því skeytingarleysi sem forystumenn ríkisstjórnarinnar sýni þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fer á morgun. Mikill fjöldi erlendra blaðamanna er nú staddur hér til þess að fylgjast með atkvæðagreiðslunni og segir Ólafur að hann og hans menn hafi farið í yfir 200 viðtöl frá því forseti synjaði lögunum.

Góð kjörsókn styrkir samningsstöðuna

Stjórnarandstaðan leggur mikið upp úr góðri kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun og segir hana styrkja samningsstöðu Íslendinga í Icesave málinu.

Blönduóslöggan tálguð í spýtu

Hin landsfræga Blönduóslögga er orðin uppspretta minjagripaframleiðslu. Listakona í bænum tálgar út lögreglumenn fyrir ökumenn til að hengja í baksýnisspegilinn.

Vona að viðræður haldi áfram eftir helgi

Leiðtogar stjórnarflokkanna telja að verulega hafi dregið saman með Íslendingum og viðsemjendum þeirra í Icesave deilunni og vona að samningaviðræður geti haldið áfram strax eftir helgina.

„Mottu-merki“ seld á kjörstað

„Mottu-mars," mánaðarlangt átak Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein hefur farið vel af stað en fjölmargir karlmenn hafa sýnt átakinu stuðning með því að safna yfirvaraskeggi og skrá sig á vefsíðu átaksins.

Enn skelfur jörð undir Eyjafjallajökli

Enn skelfur undir Eyjafjallajökli og hafa síðustu klukkutíma orðið á bilinu 20 til 30 jarðskjálftar á klukkustund, að sögn Steinunnar Jakobsdóttur jarðeðlisfræðings á Veðurstofu Íslands. Hún segir að enginn skjálftanna hafi náð stærðinni tveir á Richter.

Forstjóri Flugstoða verður prófessor

Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða, tekur við stöðu prófessors í flugleiðsögutækni við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, þegar hann lætur af starfi forstjóra Flugstoða í lok apríl. Hann verður jafnframt starfsmaður Flug-Kef ohf., hins nýja sameinaða fyrirtækis, sem tekur við starfsemi Flugstoða og Keflavíkurflugvallar.

Undirrituðu samkomulag um Landsmót hestamanna

Hestamannafélagið Fákur og Landssamband hestamannafélaga undirrituðu í dag samstarfssamning um að Landsmót hestamanna árið 2012 verði haldið á félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík.

Lögreglumenn lýsa yfir þungum áhyggjum

Lögreglufélag Þingeyinga lýsir yfir þungum áhyggjum og megnri óánægju með seinagang og áhugaleysi í samningaviðræðum samninganefndar ríkisins við Landssamband lögreglumanna. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins fyrr í dag.

ASÍ skoðar vinnulag bankanna

Á síðasta fundi miðstjórnar Alþýðusambands Íslands var ákveðið að skipa tvo þriggja manna starfshópa, auk sérfræðinga sambandsins, sem fara munu í saumana á aðkomu bankanna að endurskipulagningu á fjárhag heimila og fyrirtækja. Frá þessu er greint á vef ASÍ.

Tæplega 11 þúsund búnir að kjósa

Skömmu eftir klukkan þrjú dag höfðu 10.614 greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lögin. Þar af höfðu 6525 greitt atkvæði í Laugarhaldshöllinni, að sögn Bergþóru Sigmundsdóttur deildarstjóra hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Meira en hálftíma biðröð myndaðist seinnipartinn í dag við Laugardalshöllina en það er svipað því sem verið hefur undanfarin ár.

Frumvarp um hópmálsóknir verði afgreitt sem fyrst

Neytendasamtökin telja brýnt að frumvarp sem heimilar hópmálsóknir fái skjóta meðferð á Alþingi. Þingmenn allra flokka standa að frumvarpinu sem vísað var til annarrar umræðu í gær. Neytendasamtökin hafa á undangegnum árum vakið athygli á því að hér á landi skorti heimild til hópmálsóknar og því vona samtökin að frumvarpið verði að lögum sem fyrst.

Handrukkarar dæmdir í 15 mánaða fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Brynjar Loga Þórisson og Mikael Má Pálsson í 15 mánaða fangelsi í dag fyrir húsbrot, rán, eignaspjöll og tilraun til fjárkúgunar þegar þeir réðust inn á heimili manns í Reykjanesbæ í febrúar 2009. Þar ógnuðu þeir manninum með hníf og hótuðu honum stórfelldum líkamsmeiðingum yrði hann ekki við kröfum þeirra um peningagreiðslu vegna fíkniefnaskuldar hans.

Fannst látinn sunnan við Hveragerði

Maðurinn sem saknað var frá dvalarheimilinu Ási í Hveragerði og björgunarsveitarmenn leituðu að í nótt og í morgun fannst látinn sunnan við Hveragerði á ellefta tímanum í morgun. Talið er að hann hafi orðið úti, að sögn lögreglunnar á Selfossi.

Óvissustigi lýst yfir

Vegna aukinnar virkni í Eyjafjallajökli hafa almannavarnir ákveðið að virkja viðbragðsáætlun á fyrsta háskastigi, svokölluðu óvissustigi, sem einkennist af atburðarás sem er hafin og ætla má að geti leitt til þess að öryggi fólks og/eða byggðar sé stefnt í hættu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Vísindamannaráð almannavarna fundaði um málið í hádeginu.

Ekkert lát á skjálftahrinunni

Mælir við rætur Eyjafjallsjökuls í landi Þorvaldseyrar, sýnir að land hefur hækkað um fimm sentímetra frá áramótum. Ekkert lát er á skjálftahrinunni í jöklinum, sem staðið hefur í hálfan annan sólarhring, og er skjálftatíðnin sú mesta sem mælst hefur til þessa. Viðbragðshópar Almannavarna sitja nú á fundi um málið.

Formenn stjórnarflokkanna kjósa ekki

Íslendingar hafa ekki efni á að það dragist á langinn að ná nýjum samningum um Icesave að mati formanna stjórnarflokkanna. Hvorugur þeirra ætlar að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni en segja að með því séu þau ekki að skora á fólk að mæta ekki á kjörstað.

Flóahreppur stefnir Svandísi vegna Urriðafossvirkjunar

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að höfða mál gegn Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra til að ógilda ákvörðun hennar um að hafna skipulagi Urriðafossvirkjunar. Sveitarstjórinn segir ráðherrann hafa vanvirt skipulagsvald sveitarfélaga.

Samninganefndin kemur heim í dag

Samninganefnd Íslands kemur heim frá London í dag, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Lýsa yfir miklum áhyggjum vegna boðaðs verkfalls

Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum áhyggjum vegna boðaðra verkfallsaðgerða íslenskra flugumferðarstjóra. Ef verkfallsaðgerðir þessar koma til framkvæmda munu þær trufla alvarlega flug til og frá landinu með miklum skaða fyrir flugfélög og ferðaþjónustuna í heild, að mati samtakanna.

Síbrotamenn fengu skilorð

Tveir síbrotamenn voru dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir fjölmörg brot, meðal annars innbrot og þjófnað.

Ný ríkisstjórn skrifuð í skýin

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, telur að komið sé að leiðarlokum hjá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra. Þau hafi framið pólitískt sjálfsmorð í Icesave málinu. Hann segir að ný ríkisstjórn sé skrifuð í skýin.

Pálmi sér eftir mannorðinu - voru í typpakeppni

Pálmi Haraldsson, fyrrverandi eigandi Fons, segist bera ábyrgð á efnahagshruninu en að stærsti sökudólgurinn sé hið opinbera. Hann viðurkennir að hafa tekið þátt í siðferðilega vafasömum viðskiptum en að hann hafi ekki framið nein lögbrot. Pálmi segist sjá eftir mannorði sínu. Þetta kemur fram í viðtali við hann í DV í dag. Hann segir að umsvifamiklir fjárfestar hafi verið í „typpakeppni.“

Stjórnvísi afhenti verðlaun

Fjórir fengu afhent stjórnunarverðlaun Stjórnvísi sem veitt voru í fyrsta sinn í gær. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á framúrskarandi starfi hins almenna stjórnenda og hvetja hann til áframhaldandi faglegra vinnubragða og árangurs á öllum sviðum stjórnunar og rekstrar.

Hvergerðingar svipist um eftir Jónasi

Björgunarsveitir fyrir austan fjall og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt eftir miðnætti í gærkvöld til leitar að karlmanni á sextugsaldri sem saknað er frá dvalarheimilinu Ási í Hveragerði.

Enn skelfur undir Eyjafjallajökli

Jarðskjálfti upp á rúmlega þrjá á Richter varð undir Eyjafjallajökli á sjöunda tímanum í morgun, en hingað til hafa skjálftarnir verið undir tveimur á Richter í skjálftahrinunni sem staðið hefur í rúman sólarhring. Tíðni skjálftanna er sú mesta sem mælst hefur á þessum slóðum.

Sex verið teknir í stóru fíkniefnamáli

Handtaka tæplega sjötugs burðardýrs fíkniefna á Keflavíkurflugvelli í febrúar hefur leitt til þess að fimm manns til viðbótar hafa verið handteknir. Lögregla telur málið tengjast umfangsmiklum fíkniefnainnflutningi og sölu fíkniefna, meðal annars á Akureyri.

Samgöngumiðstöð af stað í sumar

Gangi allt eftir geta framkvæmdir vegna samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri hafist í sumar. Hún mun standa við Hótel Loftleiðir. Möguleiki verður á tengingu á milli húsanna í framtíðinni.

Sjá næstu 50 fréttir