Innlent

ASÍ skoðar vinnulag bankanna

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Mynd/Pjetur
Á síðasta fundi miðstjórnar Alþýðusambands Íslands var ákveðið að skipa tvo þriggja manna starfshópa, auk sérfræðinga sambandsins, sem fara munu í saumana á aðkomu bankanna að endurskipulagningu á fjárhag heimila og fyrirtækja. Frá þessu er greint á vef ASÍ.

Annar hópurinn hefur það verkefni að rýna í bæði verklagsreglur og árangur af svokölluðum frjálsri greiðsluaðlögun banka og fjármálastofnana á meðan hinn hópurinn mun einbeita sér að vinnulagi bankanna, bæði þeirra nýju sem og slitastjórnum gömlu bankanna við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækjanna.

Markmið er að draga saman upplýsingar um framvindu þessara mála til að geta lagt betur mat á nauðsynlegar aðgerðir til að hraða þessari vinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×