Fleiri fréttir

Ósáttur hundaeigandi réðist á lögreglumann

Ósattur hundaeigandi í Reykjanesbæ réðist á lögreglumann eftir að hundur mannsins hafði verið tekinn í vörslu lögreglunnar. Tveir lögreglumenn meiddust í átökum við manninn sem gistir fangageymslu.

Koma verður í veg fyrir landflótta

Gæta þarf jafnvægis milli skattlagningar og niðurskurðar til að koma í veg fyrir landflótta að mati formanns fjárlaganefndar Alþingis. Hann segir þó óhjákvæmilegt að aðhaldaðgerðir ríkistjórnarinnar bitni á heimilunum með einum eða öðrum hætti.

Enginn með allar réttar í lottóinu

Enginn var með allar fimm tölurnar réttar í lottóinu í kvöld og því verður potturinn þrefaldur í næstu viku. Enginn var með fjórar réttar tölur og bónustölu og verður bónusvinningurinn tvöfaldur að viku liðinni.

Raforkuverð sligar garðyrkjubændur

Raforkuverð er að sliga íslenska garðyrkjubændur eftir að 25 prósenta hækkun tók nýlega gildi. Útlitið er svart segir framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjubænda. Hann telur marga neyðast til að hætta framleiðslu yfir vetrartímann verði raforkuverð ekki lækkað.

Þyrla kölluð út vegna slyss á Langjökli

Björgunarsveitir voru kallaðar út á sjöundatímanum í kvöld þegar tilkynnt var um slys á Langjökli. Sæunn Ósk Kjartansdóttir hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að tildrög slyssins séu óljós en svo virðist sem að maður maður hafi fallið um sprungu í Geitlandsjökli sem er vestastihluti Langjökuls.

Fóru loftleiðina yfir Gullfoss án vængja

Á annan tug björgunarsveitarmanna hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg svifu yfir Gullfoss í dag og létu sig síga niður tugi metra. Ekki er vitað til þess að loftleiðin hafi áður verið farin yfir Gullfoss án hjálpar vængja.

Á þriðja hundrað mótmæltu á Austurvelli

Um þrjú hundruð manns voru á mótmælafundi Radda fólksins á Austurvelli í dag, þar sem Icesave samkomulaginu var mótmælt og sinnuleysi stjórnvalda í málefnum heimila og fyrirtækja. Þá krafist fundurinn þess að réttað verði tafarlaust yfir hvítflibbaglæpamönnum.

Íslandsmetið í Esjugöngu slegið

Tveir fjallgöngugarpur, Sveinn Halldór Helgason og Þorsteinn Jakobsson, slógu Íslandsmet í Esjugöngu með því að komast sjö sinnum upp á Esjuna í dag. Þeir tóku daginn snemma og byrjuðu klukkan tvö í nótt þar sem þeir töldu að það yrði sól og hiti í dag.

Næstu skref móta framtíðina - 13 þingmenn vilja þjóðaratkvæði

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að næstu skref sem þjóðin taki muni móta framtíð hennar. Þrettán þingmenn Framsóknarflokks og Borgarahreyfingar vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu eins fljótt og auðið er um hvort staðfesta eigi ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninganna.

Þjófar handteknir í Kringlunni

Lögreglan handtók í hádeginu þrjá karlmenn sem staðnir voru að þjófnaði í verslun í Kringlunni. Öryggisverðir verslunarmiðstöðvarinnar höfðu afskipti af mönnunum og lauk þeim samskiptum með því að kalla þurfti til lögreglumenn, að sögn varðstjóra.

Hvalur 8 á leið í land með tvær langreyðar

Hvalveiðiskipið Hvalur 8 er á leið í land með tvær langreyðar. Þetta eru fyrstu dýrin sem skipið veiðir í 20 ár. Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., gat ekki upplýst hvar dýrin voru veidd og endaði með því að skella á fréttamann.

Þurfum að segja bless við AGS og nei við Icesave

„Við þurfum kjark til að segja bless við AGS og kjark til að segja nei við Icesave og biðja Breta og Hollendinga um að setjast aftur að samningaborðinu,“ segir Valgeir Skagfjörð, varaþingmaður Borgarahreyfingarinnar. Hann gerir síðustu daga að umfjöllunarefni í pistli á heimasíðu sinni en frá því á mánudaginn hefur Valgeir setið á þingi sem varamaður Þórs Saari.

Nóg komið af órökstuddum hræðsluáróðri

Ólafur Elíasson, einn af forsvarsmönnum InDefence hópsins, segir nóg komið af hræðsluáróðri og órökstuddum fullyrðingum ráðamanna varðandi Icesave samkomulagið. Hann segir kjánalegt að halda því fram að nágranna- og vinaþjóðir fari í viðskiptastríð við okkur samþykki Alþingi ekki samkomulagið við bresk og hollensk stjórnvöld.

Hiti verður á bilinu 8 til 22 stig í dag

Það verður hægviðri eða hafgola á landinu í dag og víða bjartviðri eða bjart með köflum, en þokuloft úti við ströndina norðan- og austanlands. Á morgun þykknar upp og fer að rigna sunnantil á landinu, en norðanlands verður nokkuð bjart fram eftir degi. Hiti verður á bilinu 8 til 22 stig, hlýjast í innsveitum en svalast í þokunni.

Fjallgöngugarpur búinn að ganga fimm sinnum upp á Esjuna í dag

Þorsteinn Jakobsson, fjallgöngugarpur, stefnir á að komast sjö sinnum upp á Esjuna í dag og slá þar með Íslandsmet í Esjugöngu en þetta er gert til styrktar Ljósinu, sem er endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Þorsteinn tók daginn snemma og byrjaði klukkan tvö í nótt.

Ungmennin ekki í lífshættu

Fimm ungmenni voru flutt á sjúkrahús, þar af fjögur með sjúkraflugi, eftir að bifreið sem þau voru í fór útaf veginum í Fagradal í Fjarðarbyggð. Fólkið er ekki í lífshættu.

Brotist inn í leikskólann Örk á Hvolsvelli

Brotist var inn í leikskólann Örk á Hvolsvelli aðfaranótt föstudagsins. Þaðan voru teknar tvær fartölvur og skjávarpi. Þeir sem hafa orðið varir við mannaferðir í kringum leikskólann aðfaranótt föstudagsins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488-4110.

Þyrla sótti slasað barn

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun vegna slyss á þriggja ára stúlku í Félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja og Miklaholtshreppi. Stúlkan var við leik þegar hún féll um einn og hálfa metra niður á gólf. Hún lenti á bakinu og var óttast að um innvortis meiðsl.

Mótmæla sinnuleysi stjórnvalda

Samtökin Raddir fólksins hafa boðað til útifundar á Austurvelli í dag klukkan þrjú en þetta er 31. fundurinn á Austurvelli undir merkjum samtakanna.

Eyða þarf 180 milljarða króna halla

Ef ekki kæmi til aukinnar tekjuöflunar ríksins með skattahækkunum þyrfti að skera niður um 40% af umfangi hins opinbera. Þetta kemur fram í grein sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ritar í Fréttablaðið í dag.

Piltur ógnaði öðrum með hníf

Nóttin var tíðindalítil á höfuðborgarsvæðinu, að sögn aðalvarðstjóra lögreglunnar. Lögregla handtók þó undir morgun 16 ára pilt í miðborginni þar sem hann ógnaði öðrum með vasahníf. Drengurinn var færður á lögreglustöð en sökum ungs aldurs var hringt í foreldra hans sem komu og sóttu hann.

Fimm ungmenni slösuðust í bílslysi

Fimm ungmenni slösuðust eftir að bíll sem þau voru í fór út af veginum í Fagradal um klukkan hálf fjögur í morgun. Beita þurfti klippum til að ná fólki út úr bílnum og var tækjabíll slökkviliðs Fjarðarbyggðar sendur á staðinn ásamt sex sjúkrabílum.

Bróðir árásarmanns tekinn

Lögreglan á höfuð­borgarsvæðinu handtók á fimmtudag mann sem sterklega er grunaður um að tengjast alvarlegu líkamsárásarmáli. Bróðir þess handtekna hafði áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. júní vegna málsins.

Ræddu um hælisleitendur

Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, fundaði í gær með norrænum ráðherrum útlendingamála í Lardal í Noregi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.

Vinna hefur áhrif á tíðni krabbameins

Minnstar líkur eru á því að bændur og garðyrkjumenn fái krabbamein, en mestar líkur á krabbameini eru meðal starfsstétta sem hafa auðvelt aðgengi að tóbaki og áfengi, eins og starfsfólk veitingastaða. Þetta eru niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á Norðurlöndunum á nýgengi krabbameina meðal starfsstétta.

Strákar hærri þegar karlar kenndu

„Stelpur taka oft fyrr út þroska en strákar. Það gæti verið ástæðan,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, spurður hverja hann telji ástæðu þess að stúlkur eru með hærri einkunnir en drengir í grunnskóla og eru nú í miklum meirihluta í vinsælustu framhaldsskólum landsins. Hann segir að KÍ hafi ekki rætt þetta á fundum.

Yfirfull fangelsi nú hættuástand

Gripið hefur verið til þess ráðs að nýta einangrunar­klefa í fangelsum hér á landi til vistunar á almennum afplánunar­föngum. Öll fangelsi eru yfirfull og um 200 brotamenn á boðunar­lista til afplánunar, auk 1.600 einstaklinga sem sitja eiga af sér vararefsingu. Virkir, dæmdir brotamenn leika lausum hala þar sem ekki er pláss til að láta þá hefja afplánun, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær.

Stal meðlagi og notaði í rekstur

Tæplega fimmtugur karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Jafnframt til að greiða Innheimtustofnun sveitarfélaga hálfa milljón króna.

Boða stóreignaskatt og hækkun á áfengi

Fjármálaráðherra boðar 30 til 40 prósenta hækkun á áfengis- og tóbaksgjaldi á næstu mánuðum í nýrri skýrslu um jöfnuð í ríkisfjármálum sem gerð var opinber í gær. Áætlað er að slíkar hækkanir gætu skilað ríkinu fjórum milljörðum í auknar tekjur. Hægt væri að hækka gjöldin í áföngum út næsta ár.

Allt nötrar enn vegna Icesave

Enn er alls óvíst hvort ríkisábyrgð vegna Icesave-lánsins verður samþykkt á Alþingi. Til stendur að frumvarpið verði lagt fram í næstu viku.

Innbrotaalda: Frönsk nýgift hjón rænd í Grjótaþorpinu

„Það er búið að brjótast inn í tvö hús hérna á tveimur tímum,“ segir Örn Ægisson, íbúi í Grjótaþorpi. Laust eftir klukkan fimm í dag var brotist inn í hús í eigu Arnar en í því dvelja hjón frá Frakklandi sem eru hér á landi í brúðkaupsferð. Þjófurinn náði að stela um þrjúhundruð þúsund krónum af fólkinu ásamt tölvu, skartgripum, myndavél og síma.

Skattbyrðin eykst um 90 þúsund krónur á mánuði

Skattbyrðin á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu mun aukast að meðaltali um 90 þúsund krónur á mánuði, þegar skattahækkanir í aðgerðaáætlun stjórnvalda verður komin að fullu til framkvæmda, segir Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur. Hann óttast að bresta muni á með landflótta.

Skrið að komast á umferð í Kömbum

Nokkurt skrið er komið á umferð í Kömbunum en bíll bið bíl var þar fyrr í kvöld. Mikill straumur ferðamanna lagði leið sína austur fyrir fjall og skapaðist öngþveiti í Kömbunum.

Snæugla við Hvalfjarðargöng

Systrunum Auði og Elínu Valdimarsdætrum brá heldur betur í brún þar sem þær óku fram á Snæuglu skammt frá Kjalarnesinu áðan „Við öskruðum upp yfir okkur. Héldum fyrst að þetta væri hauslaus fugl en þegar við komum nær sáum við að þetta var Snæugla," segir Auður Valdimarsdóttir.

Bíll við bíl í Kömbum

Gífurlegur straumur ferðalanga liggur nú austur fyrir fjall og er bíll við bíl í Kömpunum. Íbúi við Heiðmörk í Hveragerði hafði samband við fréttastofu en hann segir að umferðin hafi um nokkurt skeið bifast áfram á um tíu kílómetra hraða en nú er hún nánast stopp.

Loftorka tekin til gjaldþrotaskipta

Loftorka Borgarnesi ehf. lagði í dag inn beiðni til Héraðsdóms Vesturlands um að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta kemur fram á fréttavef Skessuhorns.

„Gömlu nýlenduþjóðirnar haga sér með ólíkindum“

„Þessar gömlu nýlenduþjóðir eru farnar að haga sér með ólikindum, það er ekki nóg fyrir þær að ríkið sé líklega reiðubúið að taka á sig þessar himinháu skuldbindingar vegna Icesave innstæðna, heldur vilja þær líka hagnast á okkur með himinháum vöxtum.

Útfærsla á persónukjöri samþykkt í ríkisstjórn

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í dag frumvörp um persónukjör í bæði alþingis- og sveitarstjórnarkosningum. Er þetta í samræmi við 100 daga áætlun yfirvalda, en ekki hafði verið kveðið á um útfærslu persónukjörsins fyrr en nú. Frumvörpin verða næst lögð fyrir Alþingi.

Bíll Bootcampþjálfarans fundinn

Bifreið Ingu Þóru Ingadóttur, Bootcampþjálfara er komin í leitirnar en henni var stolið í nótt. Bíllinn sem er af gerðinni PT Cruiser fannst í miðbænum fyrir skemmstu og er kominn í hendurnar á Ingu Þóru á ný.

Stefnt að hallalausum Landspítala

Stefnt er að hallalausum rekstri Landspítala í árslok þrátt fyrir umtalsverða hagræðingarkröfu á árinu sem nemur um 2800 milljónum króna frá rekstri síðasta árs. Staða og þróun íslensku krónunnar gerir hins vegar það verkefni afar erfitt. Á spítalanum hefur verið gripið til margháttaðra hagræðingaraðgerða sem m.a. lúta að skilvirkara stjórnskipulagi, breyttu vaktafyrirkomulagi hjá starfsfólki, sparnaði í innkaupum og ódýrari stoðþjónustu. Staðfastlega er reynt að standa við það markmið að skerða ekki þjónustu spítalans við sjúklinga.

Íslenskur prófessor frelsar breskan fanga

Skýrsla sem íslenski rannsóknarprófessorinn Gísli H. Guðjónsson vann um breska fangann Ian Lawless átti stóran þátt í því að Lawson var látinn laus úr fangelsi eftir sjö ára afplánun. Lawless var gefið að sök að hafa orðið manni, sem ranglega var grunaður um barnagirnd, að bana í Grimsby.

Stefnir á Íslandsmet í Esjugöngu

Þorsteinn Jakobsson, velunnari samtakanna Ljóssins, stefnir að því að ganga sjö ferðir upp og niður Esjuna á morgun. Hann safnar áheitum til göngunnar, sem renna óskipt til Ljóssins.

Sjá næstu 50 fréttir