Útfærsla á persónukjöri samþykkt í ríkisstjórn Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 26. júní 2009 16:28 Stærðfræðingurinn Þorkell Helgason hafði umsjón með gerð frumvarpanna. Mynd/Vilhelm
Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í dag frumvörp um persónukjör í bæði alþingis- og sveitarstjórnarkosningum. Er þetta í samræmi við 100 daga áætlun yfirvalda, en ekki hafði verið kveðið á um útfærslu persónukjörsins fyrr en nú. Frumvörpin verða næst lögð fyrir Alþingi. Persónukjörskerfið sem lagt er til byggir á írskri fyrirmynd og felur í sér svipað kerfi og notað er við prófkjör. Lagt er til að framboðslistinn verði tvískiptur. Á efstu sætum listans eru nöfn þeirra sem boðnir eru fram til persónukjörs og skal fjöldi þeirra vera jafn fjöldi þingsæta í kjördæminu, en sá hluti listans er óraðaður. Neðstu sæti listans skipa frambjóðendur sem boðnir eru fram með hefðbundnum röðuðum hætti. Val kjósandans byggir síðan á sama fyrirkomulagi og tíðkast í prófkjörum, þar sem hann gefur hverjum frambjóðanda í hin óröðuðu sæti tölu eftir geðþótta. Undirstrika ber að með þeim breytingum sem lagðar eru til, er hvorki hróflað við listakosningu né hlutfallskosningakerfinu hér á landi. Kjósendur munu eftir sem áður kjósa tiltekinn lista og hefur persónukjörið einungis áhrif á það hvaða frambjóðendur hreppa þau sæti sem listinn fær í viðkomandi kjördæmi eða sveitarstjórn samkvæmt niðurstöðu kosninganna. Þorkell Helgason stærðfræðingur hefur haft umsjón með gerð frumvarpanna en jafnframt var settur á fót samráðshópur hagsmunaaðila.
Mest lesið Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Erlent Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show Erlent Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Innlent Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Innlent Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Innlent Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Erlent Fleiri fréttir Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Mótmæli, sviknir strandveiðimenn og hættulegar falsaðar töflur Von der Leyen segir aðildarumsókn Íslands enn gilda Þriggja bíla árekstur á Hringbraut Strandveiðum er lokið í sumar Í beinni: Blaðamannafundur Kristrúnar og von der Leyen Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Gosið lifir enn og mengun norður í landi Flugvél snúið við vegna eldgossins: Var í fjörutíu klukkustundir á leið til Íslands Grindvíkingar setja þrýsting á lögreglustjóra Háskólinn fær 200 milljónir vegna vatnslekans Telur stuðning við ESB-viðræður til staðar Sjá meira
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“