Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Deila um tónlistarskóla leyst Borgaryfirvöld komu til móts við forsvarsmenn tónlistarskóla í Reykjavík á fundi í gær með því að bjóða fram 50 milljóna króna viðbótarframlag fram til haustsins frá því sem áður stóð til. 29.5.2009 04:30
Stefna mörkuð í nýmiðlun Ráðherrafundur Evrópuráðsins um fjölmiðlun og nýmiðla hófst í Reykjavík í gær. Ráðherrar allra 47 aðildarríkja ráðsins eða fulltrúar þeirra sitja fundinn ásamt fulltrúum alþjóðlegra hagsmunasamtaka. 29.5.2009 04:30
Alþingi samþykkir hærri neysluskatta Samtök ferðaþjónustunnar óttast að hækkun stjórnvalda á neyslusköttum muni koma illa við fyrirtæki í ferðaþjónustu. Frekar ætti að auka tekjur með markaðsátaki erlendis. Talsmaður neytenda óttast áhrif hækkana á verðtryggð lán. 29.5.2009 04:30
Nauðsynlegar ráðstafanir „Sé ekki gripið til viðeigandi ráðstafana þegar á þessu ári verður halli ríkissjóðs á árinu 2009 meiri en áætlað var og meiri en viðunandi getur talist,“ segir í athugasemdum með frumvarpi fjármálaráðherra um hækkanir á gjöldum á eldsneyti, bílum, áfengi og tóbaki. 29.5.2009 04:15
Þúsund störf í púkkið Reykjavíkurborg tekur fimm milljarða lán hjá lífeyrissjóðum til ýmissa framkvæmda. Formaður borgarráðs segir lánið á góðum kjörum miðað við aðstæður. 29.5.2009 04:15
Munu rannsaka innhöf Evrópu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hefur hlotið 200 þúsund evra rannsóknarstyrk – eða sem nemur um 35 milljónum króna – úr 7. rammaáætlun Evrópusambandsins. Styrkinn hlýtur stofnunin vegna þátttöku sinnar í verkefninu EU4SEAS, sem alls hlaut vilyrði fyrir 1,2 milljóna evra styrk. 29.5.2009 04:15
Mikil þörf fyrir hvíldarheimili Átak til styrktar hvíldarheimili Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna hófst í gær. Nefnist það Á allra vörum og byggir á sölu á varaglossum. 29.5.2009 04:15
Ríkur þingvilji til að sækja um ESB-aðild Aðferðafræði greinir að tillögur ríkisstjórnarinnar annars vegar og Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hins vegar um Evrópusambandsmál. Stjórnin vill leggja inn aðildarumsókn en stjórnarandstöðuflokkarnir vilja undirbúa mögulega umsókn. 29.5.2009 04:15
Ólík aðferðafræði við undirbúning Munurinn á tillögunum tveimur er sá helstur að ríkisstjórnin vill að þingið feli henni að leggja inn umsókn en framsóknar- og sjálfstæðismenn vilja að utanríkismálanefnd undirbúi mögulega umsókn. 29.5.2009 04:15
Hækkun á eldsneyti og áfengi samþykkt Alþingi samþykkti nú í kvöld frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, sem gerir meðal annars ráð fyrir að áfengi og eldsneyti hækki. Frumvarpið fékk flýtimeð en það var að lokukm samþykkt með 32 atkvæðum en 22 þingmenn greiddu atkvæði gegn því. 28.5.2009 23:28
FÍB: Stjórnvöld í skattavíking gegn bifreiðaeign Félag íslenskra bifreiðaeigenda varar ríkisstjórnina við margþættum óæskilegum áhrifum af frumvarpi sem nú er til umfjöllunar á Alþingi sem felur meðal annars í sér 10% hækkun bifreiðagjalds. Félagið segir að sú aðferð stjórnvalda að leggjast í skattavíking gegn bifreiðaeign og bifreiðanotkun landsmanna þegar rétta þurfi hag ríkissjóðs sé ekki ný saga. 28.5.2009 21:19
Fundum Alþingis ítrekað frestað Þingfundum hefur ítrekað verið frestað í kvöld. Til umræðu hefur verið frumvarp ríkisstjórnarinnar sem felur 10% hækkun bifreiðagjalds og 15% hækkun gjalda á tóbak og áfengi. Frumvarpið fékk flýtimeðferð og verður væntanlega að lögum innan tíðar. 28.5.2009 23:09
ESB-tillagan ekki kúvending Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að þingsályktunartillaga Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sé ekki í kúvending frá fyrri afstöðu flokksins í Evrópumálum. 28.5.2009 20:53
Bankarnir réðu bresk almannatengslafyrirtæki Íslensku bankarnir réðu til sín bresk almannatengslafyrirtæki til að fá þarlenda fjölmiðla í lið með sér í góðærinu. Þetta segir framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka blaðamanna. Á annað hundrað jákvæðar greinar í breskum blöðum hafi orðið til þess að Bretar lögðu nærri tvo milljarða punda í íslenskar fjárfestingar eða um 400 milljarða króna á gengi dagsins í dag. 28.5.2009 20:42
Þvingaður út af Vesturlandsvegi Lögreglan þvingaði ökumann bifreiðar af Vesturlandsvegi við Höfðabakkabrú eftir stutta eftirför á áttunda tímanum í kvöld. Lögregla hafði áður borist ábending um manninn sem er að sögn lögreglu andlega vanheill. Hann mun ekki hafa ekið yfir leyfilegum hámarkshraða. 28.5.2009 20:31
Mikið að gera í vínbúðum Mikið var að gera í verslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í dag og víða mynduðust raðir undir kvöld. 28.5.2009 20:21
Kona sakar fyrrverandi biskup um kynferðislegt áreiti Kona sem var nemandi Ólafs heitins Skúlasonar fyrrverandi biskups segir hann hafa áreitt sig kynferðislega þegar hann kenndi við Réttarholtsskóla. Hún iðrast þess að hafa ekki sagt sögu sína fyrr en stígur nú fram til að styðja þær konur sem hafa verið í sömu sporum. 28.5.2009 19:45
Barðastrandaránið: Þriðji maðurinn handtekinn - þýfið fundið Karlmaður fæddur 1989 var handtekinn síðdegis í dag grunaður um aðild að innbroti á Seltjarnarnesi á mánudagskvöldið þar sem karlmanni á áttræðisaldri voru veittir áverkar. Jafnframt lagði lögregla hald á þýfi úr ráninu í dag. Þetta sagði Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. 28.5.2009 19:15
Svindl getur sýkt heilu atvinnugreinarnar Svindl atvinnubótaþega á vinnumarkaði getur sýkt heilu atvinnugreinarnar, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann óttast að svört atvinnustarfsemi muni aukast á næstu mánuðum. Verið er að þróa sérstakt kerfi sem eykur eftirlit með starfsfólki. 28.5.2009 18:47
Hækkun gjalda hefur óhjákvæmilega neikvæð áhrif Gjöld á bíla, eldsneyti, áfengi og tóbak hækka um tíu til fimmtán prósent, samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi í kvöld. Fjármálaráðherra segir að ekki verði hjá því komist að hækkun gjalda hafi neikvæð áhrif á verðlagið. 28.5.2009 18:39
Vörubíll valt á Selfossi - ökumaður grunaður um ölvunarakstur Vörubifreið sem ekið var um hringtorgið við Ölfusárbrú á Selfossi valt á sjötta tímanum í dag. Tildrög slyssins eru óljós á þessari stundu en að sögn lögreglu er ökumaður vörubifreiðarinnar grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. 28.5.2009 18:10
Tollari fær þrjár milljónir frá ríkinu Hæstiréttur staðfesti í dag dóm hérðasdóms þar sem íslenska ríkinu var gert að greiða fyrrum tollverði þrjár milljónir króna. Maðurinn starfaði sem tollvörður en var vikið frá embætti um stundarsakir og síðar að fullu. Áður höfðu fjórir menn verið handteknir fyrri að taka órfrjálsri hendi áfengi sem átti að farga. Þeir kváðu umræddan tollvörð hafa verið í vitorði með þeim við þessa háttsemi, hann neitaði hinsvegar. 28.5.2009 16:52
Kastljós sýknað í tengdardótturmáli Hæstiréttur Íslands staðfesti sýknudóm yfir Páli Magnússyni, yfirmanns fréttastofu Ríkisútvarpsins og Þórhalli Gunnarsyni, Helga Seljan, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur auk Sigmars Guðmundssonar í Kastljósi vegna umfjöllunar þeirra um veitingu ríkisborgararéttar til tengdadóttur Jónínu Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra Framsóknarflokksins. 28.5.2009 16:46
Hæstiréttur staðfestir þyngsta kynferðisbrotadóm sögunnar Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Suðurlands frá því í desember yfir manni sem dæmdur var í átta ára fangelsi fyrir að misnota fósturdóttur sína á þriggja ára tímabili. 28.5.2009 16:44
Staðfesti ársfangelsi fyrir hrottafengna árás Hæstiréttur staðfesti í dag ársfangelsi yfir karlmanni sem dæmdur var fyrir hrottafengna árás á þáverandi unnustu sína, sem var að hluta til framin fyrir framan dóttur hennar. Af ársfangelsi eru níu mánuðir skilorðsbundnir. 28.5.2009 16:30
Ingvi Hrafn Jónsson: Golíat að níðast á Davíð „Í minni bók er þetta Golíat að níðast á Davíð," segir sjónvarpsmaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson, einn af aðaleigendum sjónvarpstöðvarinnar ÍNN en Saga Film höfðaði skuldamál gegn þeim og krafðist 200 þúsund króna. Það gerðu þeir vegna meintra vangoldinna reikninga sem vörðuðu tækjaleigu en ÍNN fékk fyrirtækið til þess að setja upp ljósabúnað fyrir 800 þúsund krónur. 28.5.2009 16:27
Lýst eftir blómaníðing Ekið var í tvígang yfir sumarblómabeð í Laugardalnum í gær en Axel Knútsson, yfirverkstjóri borgargarða í Laugardal, er afar ósáttur við skemmdarverkið. 28.5.2009 16:05
Byggingaframkvæmdir á brunareitnum boðnar út á næstunni Gert er ráð fyrir að byggingaframkvæmdir á brunareitnum við Lækjargötu og Austurstræti verði boðnar út á allra næstu dögum, segir Óskar Bergsson, formaður borgarráðs. „Þetta verður boðið út í nokkrum áföngum. 28.5.2009 15:27
Vandamál Íslands verður bara leyst á Íslandi Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tók til máls í umræðum um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á Alþingi fyrir stundu. Hann sagði meðal annars að fyrir sitt leyti teldi hann ólíklegt að Ísland fengi miklar undanþágur eða sérreglur í samningaviðræðum við Evrópusambandið. Það byggði hann á reynslu annarra þjóða og nefndi þar Noreg þar sem ljóst hefði verið að þeir þyrftu undanþágur á sviði sjávarútvegs ef þjóðin ætti að samþykkja niðurstöðuna. 28.5.2009 15:00
Skaðabótamáli „fortíðardraugs“ áfrýjað Bæjarráð Akureyrar samþykkti í dag að áfrýja skaðabótamáli slökkviliðsmanns gegn bænum til Hæstaréttar Íslands. Þá var bæjaryfrvöldum gert að greiða slökkviliðsmanninum 3 milljónir í skaðabætur vegna vanefnda á ráðningasamningi árið 2007. 28.5.2009 14:50
Vilja úttekt á hraðakstri og kappakstri í borginni Samfylkingin lagði fram tillögu í borgarráði í dag sem gengur út á að gerð verði úttekt á hraðakstri og kappakstri í borgarlandinu. Flokkurinn vill að gerðar verði tillögur að úrbótum og frekari stefnumörkun borgarinnar um hraða umferðar innan borgarlandsins í ljósi umferðaröryggisstefnu borgarinnar, m.a. með hliðsjón af slysum og slysablettum og reynslu af svokölluðum 30 kílómetra hverfum. 28.5.2009 14:19
Borgarráð samþykkir 5 milljarða lífeyrissjóðslán Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um 5 milljarða króna lántöku til að fjármagna framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar á árinu 2009. Lánið er tekið með skuldabréfaútboði til 45 ára en nú þegar liggja fyrir skuldbindandi fyrirheit frá lífeyrissjóðum um kaup á 5 milljörðum. 28.5.2009 14:17
Spíttverksmiðjumálið til ríkissaksóknara Rannsókn lögreglunnar á umfangsmikill amfetamínframleiðslu sem var starfrækt í iðnaðarhúsi við Rauðhellu í Hafnarfirði er lokið. Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, 28.5.2009 12:50
Beðið eftir endurskoðun Formaður Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi segir að ekkert verði aðhafst í málum er varða greiðslur Kópavogsbæjar til fyrirtækis í eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra fyrr en niðurstaða endurskoðanda liggi fyrir. Mál sem tengist greiðslum bæjarins til Klæðningar sem var í eigu Gunnars verði þá einnig tekin fyrir. Framsóknarmenn í Kópavogi taka í sama streng. Helga Arnardóttir. 28.5.2009 12:13
Grunaður um sérstaklega ofbeldisfulla nauðgun Portúgali á fertugsaldrinum hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan á laugardaginn en hann er grunaður um sérstaklega ofbeldisfulla nauðgun. Rannsóknardeild kynferðisbrota auglýsti í gær eftir leigubílstjórum sem mögulega keyrði manninn og meint fórnalamb hans í heimahús í Hafnarfirði á Uppstigningadag. 28.5.2009 12:04
Banaslysið á Grindavíkurvegi: Grunur um ölvunarakstur Ökumaður annars bílsins, sem lenti í árekstri á Grindavíkurvegi í gærmorgun, með þeim afleiðingum að ökumaður hins bílsins lést, er réttindalaus. 28.5.2009 11:58
Hraðakstur við skrifstofu forsetans Sautján ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Sóleyjargötu í Reykjavík í gærkvöld en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Þetta kemur frama í tilkynningu frá lögreglunni í höfuðborgarsvæðinu. Skrifstofa forseta Íslands er til húsa að Sóleyjargötu 1 28.5.2009 11:49
Steingrímur víst mættur - var í símanum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins gerði athugasemdir við það að ráðherrar Vinstri grænna skyldu ekki vera mættir við upphaf umræðunnar um tillögu ríkisstjórnarinnar sem gengur út á aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Hann spurði um stuðning flokksins við tillöguna sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir í samtali við fréttastofu að um vindhögg sé að ræða hjá Sigmundi. 28.5.2009 11:20
Lést í umferðarslysi Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi í gærmorgun hét Sigurfinnur Jónsson. Sigurfinnur bjó í Grindavík, var 48 ára og lætur hann eftir sig eiginkonu og þrjú börn. 28.5.2009 10:51
Saga Film stefnir ÍNN Framleiðslufyrirtækið Saga Film er búið að stefna sjónvarpsstöðinni ÍNN fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna skuldamáls. 28.5.2009 10:42
Krefjast félagsfundar í VR 250 félagsmenn í VR munu í dag afhenda formanni félagsins beiðni um að haldinn verði félagsfundur. Þetta mun vera í fyrsta sinn í sögunni sem þessu er beitt en samkvæmt lögum félagsins er hægt að krefjast þess að félagsfundur verð haldinn með því að eigi færri en 200 félagsmenn skrifa undir slíka beiðni. Kristni Erni Jóhannessyni, formanni VR, verður afhentur listinn í hádeginu í dag. 28.5.2009 10:41
Fjórir togarar HB Granda á úthafskarfaveiðum Fjórir af frystitogurum HB Granda hafa verið að úthafskarfaveiðum upp á síðkastið. Helga María kom inn til löndunar í morgun en Venus, Þerney og Örfirisey eru enn á miðunum. 28.5.2009 10:27
Bjartsýnn á að samstaða náist um Evrópumálin á þingi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunarillögu um aðildarumsókn að Evrrópusambandinu á Alþingi í morgun. Össur fór yfir kosti og galla varðandi veru okkar í Evrópusambandinu og sagði rökin með og á móti bæði eiga rétt á sér. Hann sagðist bjartsýnn á að góð samstaða næðist meðal flokkanna á þingi varðandi þessi mál. Tuttugu og fimm þingmenn bíða þess nú að taka til máls. 28.5.2009 10:22
Með borgina í vasanum Mobileguide er gjaldfrjáls gagnvirk upplýsingahandbók sem sérhönnuð er fyrir farsíma og lófatölvur. Handbókin er jafnt ætluð íslendingum sem og erlendum ferðamönnum og býður upp á margvíslega möguleika svo sem að leiða þig um götur Reykjavíkur eða kynna fyrir þér þjónustur og markverða staði á höfuðborgarsvæðinu. 28.5.2009 09:29
Obama skipar nýjan sendiherra á Íslandi Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur skipað Robert S. Connan í embætti sendiherra á Íslandi. Connan mun taka við af Carol van Voorst sem gegnt hefur stöðunni síðustu ár. Obama tilkynnti í gær um skipanir sendiherra í fjölmörgum ríkjum, þar á meðal í Bretlandi, Frakklandi, Indlandi og í Japan. 28.5.2009 09:26