Innlent

Kastljós sýknað í tengdardótturmáli

Lucia og Birnir töpuðu dómsmálinu.
Lucia og Birnir töpuðu dómsmálinu.

Hæstiréttur Íslands staðfesti sýknudóm yfir Páli Magnússyni, útvarpsstjóra, Þórhalli Gunnarsyni, Helga Seljan, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur auk Sigmars Guðmundssonar í Kastljósi vegna umfjöllunar þeirra um veitingu ríkisborgararéttar til tengdadóttur Jónínu Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra Framsóknarflokksins.

Það var sonur Jónínu, Birnir Orri Pétursson og unnusta hans, Lucia Celeste Molina Sierra, sem höfðuðu skaðabótamál á þeim forsendum að umfjöllun miðlanna hefði brotið á friðhelgi þeirra. Að auki sökuðu þau fréttastofurnar um ólögmæta meingerð gegn æru Luciu og persónu hennar við umfjöllun málsins. Þau kröfðust samanlagt 3.5 milljónir í skaðabætur.

Þetta féllst Héraðsdómur Reykjavíkur ekki á og það staðfesti hæstiréttur í dag. Í úrskurði Hæstaréttar Íslands segir að Lucia og Birnir hefðu mátt þola slíka umfjöllun vegna eðli málsins þar sem þau væru svo samofin að útilokað væri að greina skýrlega þar á milli. Svo segir orðrétt í dómnum:

„Yrðu einstaklingar að nokkru marki að þola að persónuleg málefni, er þá varða, kæmu í slíkum tilvikum til almennrar umfjöllunar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×