Staðfesti ársfangelsi fyrir hrottafengna árás Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. maí 2009 16:30 Hæstiréttur dæmdi manninn í árslangt fangelsi. Mynd/ GVA.
Hæstiréttur staðfesti í dag ársfangelsi yfir karlmanni sem dæmdur var fyrir hrottafengna árás á þáverandi unnustu sína, sem var að hluta til framin fyrir framan dóttur hennar. Af ársfangelsi eru níu mánuðir skilorðsbundnir. Maðurinn var ákærður að hafa farið inn í húsnæði þar sem konan var gestkomandi, togað hana út og inní bifreið, ekið með hana, dregið hana út úr bifreiðinni og slegið hana í andlit eða líkama, síðan sett hana aftur inn í bifreiðina, ekið að heimili hennar, dregið hana meðal annars á hárinu út úr bifreiðinni og inn í íbúð hennar og veist þar að henni með ofbeldi, afklætt hana og sett fingur upp í kynfæri hennar og við það sumpart notfært sér ölvunarástand hennar og slegið hana ítrekað í andlit og líkama. Maðurinn játaði að hafa veist að konunni fyrir utan bifreiðina og veitt henni áverka. Hæstiréttur taldi að gögn og áverkar væru á konunni sem studdu það að hann hafi dregið hana nauðuga út úr bifreiðinni og meðal annars dregið hana á hárinu. Þá viðurkenndi maðurinn að hafa þreifað á kynfærum konunnar en kvað hana hafa samþykkt það með því að vera í ástarsambandi við hann. Þá var talið sannað að maðurinn hafi veist að konunni inni á salerni íbúðar hennar. Var maðurinn sakfelldur fyrir þessa háttsemi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn játaði að hafa veist að konunni fyrir utan bifreið sína, en einnig til þess að árásin var hrottafengin og ófyrirleitin og að hluta framin inn á heimili konunnar þar sem dóttir hennar var einnig stödd og varð vitni að fólskulegri árás á móður sína. Þá var litið til þess að um brotasamsteypu var að ræða og að ofbeldi mannsins stóð yfir í umtalsverðan tíma og var til þess fallið að niðurlægja unnustu hans og svipta hana mannlegri reisn. Loks var litið til þess að árásin hafði líkamlegar og andlegar afleiðingar í för með sér.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira