Innlent

Banaslysið á Grindavíkurvegi: Grunur um ölvunarakstur

Ökumaður annars bílsins, sem lenti í árekstri á Grindavíkurvegi í gærmorgun, með þeim afleiðingum að ökumaður hins bílsins lést, er réttindalaus. Samkvæmt heimildum Fréttastofunnar er hann líka grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis og jafnvel fíkniefna. Beðið er niðurstöðu úr blóðprufu hvað það varðar. Þá segja heimildir Fréttastofu að hann hafi verið á öfugum vegarhelmingi þegar slysið varð. Hann slasaðist talsvert þegar hann kastaðist út úr bílnum við áreksturinn því hann var ekki spenntur í öryggisbelti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×