Svindl getur sýkt heilu atvinnugreinarnar 28. maí 2009 18:47
Svindl atvinnubótaþega á vinnumarkaði getur sýkt heilu atvinnugreinarnar, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann óttast að svört atvinnustarfsemi muni aukast á næstu mánuðum. Verið er að þróa sérstakt kerfi sem eykur eftirlit með starfsfólki. Vinnumálastofnun hefur hert þann hluta af starfseminni sem sinnir eftirliti og misnotkun á bótakerfinu. Upplýsinga er aflað með ýmsum hætti og unnið er úr fjölmörgum nafnlausum ábendingum sem berast daglega um fólk sem þiggur atvinnuleysisbætur en er jafnframt í starfi. Nokkrir atvinnurekendur sem rætt hefur verið við í dag segja að mjög sé þrýst á þá að ráða starfsmenn án þess að gefa upp laun - jafnvel gangi erfiðlega að fá fólk til starfa ef því er hafnað. Varað er við því að farin sé þessi leið, þótt sýnt sé að ekki verði unnt að koma alveg í veg fyrir það. „En þegar svindl og brot fara yfir eitthvað mark, sem er mjög lágt, þá sýkist öll atvinnugreinin og öll viðkomandi starfsemi. Þannig að þeir sem eru að fara eftir lögum og reglum geta bara ekki keppt," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Aðspurður hvort það kunni að gerast hér á landi sagði Vilhjálmur: „Það þarf að vera mjög á varðbergi gagnvart því og það þarf að gera ráðstafanir. Því það er mjög vont ef við missum atvinnulífið og einstakar greinar þess í það að svindlararnir verði ofan á, en þeir heiðarlegu undir." Talið er að svört atvinnustarfsemi hér á landi séu um 2 til 5%, svipað og í nágrannalöndum okkar. Verst er staðan sögð í byggingariðnaði og veitingarekstri. Aðilar á vinnumarkaði eru nú að gera tilraun með svonefnd vinnustaðaskilríki og þróa ákveðið eftirlitskerfi með starfsfólki, meðal annars til að minnka misnotkun á bótakerfinu.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Sjá meira