Innlent

Ríkur þingvilji til að sækja um ESB-aðild

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í gær. Breiður þingvilji er til aðildarviðræðna en stjórn og stjórnarandstaða vilja fara ólíkar leiðir.fréttablaðið/GVA
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í gær. Breiður þingvilji er til aðildarviðræðna en stjórn og stjórnarandstaða vilja fara ólíkar leiðir.fréttablaðið/GVA

Breiður vilji er á Alþingi fyrir aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.

Við upphaf þingumræðu um tillögu ríkisstjórnarinnar þess efnis í gærmorgun var tillögu stjórnarandstöðuflokkanna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, sama efnis útbýtt.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði gærdaginn sögulegan enda sýndi tillaga stjórnarandstæðinga að hægt væri að ná samstöðu um málið í þinginu. Hann reifaði helstu rök með og á móti Evrópusambandsaðild og sagði mótrökin bæði lög- og réttmæt. En hann væri ósammála þeim. Trú hans væri sú að hægt sé að semja um sérlausnir í mikilvægum málaflokkum.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, er á hinn bóginn vantrúaður á að undanþágur og sérreglur fáist. Byggir hann þá trú sína á reynslu Norðmanna.

Þar af leiðandi sagðist Steingrímur þeirrar skoðunar að þjóðin myndi, þegar þar að kæmi, hafna aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. En málið væri þá úr sögunni og við hefðum það ekki lengur hangandi yfir okkur.

Steingrímur sagði svo eðlilegt að tillögurnar tvær yrðu „bræddar saman“.

Málflutningur þingmanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var á einn veg: stjórnartillagan er hrákasmíð.„Handónýtt plagg,“ sagði til dæmis Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og bætti við að hlegið yrði að Íslendingum í Brussel þegar tillagan hefur verið þýdd á erlend mál. Um leið ítrekaði hún þá skoðun sína að sækja bæri um aðild að Evrópusambandinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði Ísland ganga án sjálfsvirðingar og reisnar til viðræðna við Evrópusambandið eins og sakir stæðu og taldi harla ólíklegt að leið ríkisstjórnarinnar yrði til þess að góðir samningar næðust.

Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, kvað þingflokk sinn fagna málinu enda þinginu falið að ná niðurstöðu og þjóðinni svo að samþykkja samningsniðurstöður á endanum.

bjorn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×